Helgarpósturinn - 09.01.1997, Síða 14

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1997 Bref frá Hallgrími Helgasyni rithöfundi Kræklótta kynslóðin Glaðningur gömlum kverúlanti ** Mig langar til fagna nýju ári með því gleðja gaml- »-an kverúlant, Þorgeir Þor- geirsson, eða Þorgeir Þorgeir- son eins og hann hefur með frægum hætti barist fyrir að verða nefndur, sem í síðasta Helgarpósti (19. des. ‘96) rit- aði grein undir fyrirsögninni „Um... ekta og óekta plast- vöru“ í ritröð hans „Um...“ er hann birtir reglulega í þessu blaði. Ég segi glaðningur, því mér eldri og reyndari menn hafa ráðið mér frá því að svara Þor- geiri þessum, hinum ókrýnda Islandsmeistara í Þjóðarsál. „Ja, hann Þorgeir, hann segir nú svo margt,“ sagði mér sjálf- ”Ur páfinn í blekskylmingum á síðum blaðanna. Það er líka spurning hvernig maður svarar manni sem staulast um bæinn með staf- setningarvillu í eigin nafni. Hvar á maður þá að byrja? Annarsstaðar en einmitt á nafninu: Það vantar í það eitt ess, einn staf. Er það kannski stafurinn sem greinarhöfund- urinn heldur á á meðfylgjandi mynd? Hann lítur að minnsta kosti út fyrir að vera ess-laga: Kannski ekki þægilegasta lög- un á göngustaf, en kannski samt essið sem hann er í í .grein sinni. Því gamli kvörtun- armeistarinn er hér sannar- lega í því essi sínu sem hann sleppir úr eigin nafni: Greinin hefst nefnilega á annarri staf- setningarvillu. í fyrsta orði í fyrirsögn hefur gleymst einn, og reyndar mun þægilegri, göngustafur að lögun: 1. Ritröð Þorgeirs (í eintómu ráðaleysi læt ég hér fljóta með eignar- falls-essið, þú fyrirgefur Þor- geir) er fremur „Uml...“ en „Um...“. Sumir missa tönn og tönn úr andliti sínu með aldrinum. Þorgeir virðist hinsvegar vera '.-að missa staf og staf úr nafni sínu og verkum. Einhvernveg- inn eru áhrifin svipuð. Uml sitt hefur greinarhöf- undur á sannarlegri hetjusögu um mann sem í denntíð sagði lausu starfi sínu í nú horfinni plastvöruverslun þegar kúnni einn knúði hann svars um það hvort ruslafatan sem hann var að hugsa um að kaupa væri úr „ekta plasti"?!!! Ég endurtek: Ékta plasti!!! Ho ho hó!!! (Ég gef lesendum hér næði til að hlæja miklum hrossahlátri yfir þess- ari úr-fyrndinni-fyndni.) Úr þessari dæmisögu sinni vefur Þorgeir síðan úr skeggi sínu nokkuð átakanlega hug- vekju um öll þau gerviefni sem „nútíminn" hefur gefið okkur. Þorgeir er af þeirri kynslóð manna sem notar orðið „nú- tími“ jafnan í neikvæðri merk- ingu, enda fæddur á þeirri fögru for(ar)tíð þegar ekki var enn búið að leggja gerviefni á allar götur bæjarins. „Hver hef- ur ekki tekið eftir því að gervi- blómaframleiðsla er nú komin á það stig að náttúrleg blóm eru ekki nærri eins trúverðug og plastblómin?“ bölmæðist Þorgeir í plastandúð sinni. Mikið má erfitt vera það líf í „nútímans" bölvuðu þjóðfélagi sem ekki líður plast í sínum húsum; þar sem jafnvel rusla- fatan er útskorinn myndar ask- ur. Við þetta fólk er aðeins eitt að segja: Lífið heldur áfram og tekur á sig aðrar og óvæntar myndir. Og það er meira að segja það skásta við það. Nei. Pirrist ei. Fátt er eins ámátlega sorglegt og pirrað gamalmenni sem kembir hærur á hornum sér og kastar skít og skömm í allt það sem yngra er. Þorgeiri bendi ég á að taka ljóðskáidið eiginkonu sína sér til fyrir- myndar sem orti svo vel og fal- lega um tölvuspilin á göngum Austurbæjarskólans og líkti þeirra tísti við lóur og dirrindi. Greinarhöfundur gengur jafnvel svo langt að skella þessari ekta-plast-líkingu sinni á sjálfan persónuleikann sem að hans sögn þrífst ekki lengur nema dýpst inná dvalar- og elliheimilum, nú sé það „ímyndin“ sem gildi og hún sé úr plasti. Ekta plasti. Því „per- sónuleiki fólks sprettur hægt og seint og af sjálfum sér eins og hver annar trjástofn. Fáir nenna lengur að bíða eftir því- umlíku". Þar höfum við það. Persónu- leika hafa þeir einir sem komn- ir eru til vits og ára, væntan- lega vel yfir sextugt. (í grein sinni telur Þorgeir þá menn enn unga sem eru yngri en 55.) Vei þeim sem deyja ungir! og liggja persónuleikalausir í sinni gröf. Jónas og Mozart og Pushkin væntanlega jafn kar- akterlausir og verk þeirra og kvæði? Eða er hér ef til vill loksins loksins komin skýring- in á öflugum trjávexti í kirkju- görðum? Það eru jú margir sem deyja ungir og ná ekki sín- um trjávexti fyrr en of seint, í garðinum græna. Þorgeir hefur hinsvegar plantað sínu gamal- gilda persónutré í annan garð þar sem moldin er ekki alveg svo andrík; einhver trénun er hlaupin í tré hans ef marka má greinar þess er fallin og gulnuð helgarblöðin vitna um. Allt er þetta trénaða tal sprottið út frá sjónvarpsþætt- inum „Á elleftu stundu" sem Þorgeir Þorgeirsson kveður sig hafa séð í sínu — geri ég eðli- lega ráð fyrir — norska eikar- sjónvarpi með ekta þindarskjá þar sem undirritaður var til viðtals ásamt Lindu Péturs- dóttur. Reyndar notar Þorgeir gamalt og klístrað trix í grein sinni og nefnir okkur aldrei á nafn en þar sem ég þóttist þekkja sjálfan mig og Lindu á ljósmyndum meðfylgjandi greininni get ég ekki annað en tekið umlið til mín. „Ungi rit- höfundurinn“ bar framan í sér „harðneskjuplastið" en „feg- urðardrottningin unga“ var „galvaníseruð“ í framan. Ég læt hjá liggja að verja eigið andlit fyrir plastkúlunum úr penna Þorgeirs. Ég nenni heldur ekki að útskýra fyrir húmorslaus- um manni hvað það þýðir að manni „líði best í beinni út- sendingu". Þeir sem ekki sjá al- vöru í íroníu eiga það ekki skil- „Það er líka spurning hvernig maður svarar manni sem staulast um bæinn með stafsetning- arvillu í eigin nafni. Hvar á maður þá að byrja?“ ið. Þeir sem ekki sjá í gegnum yfirborðið — „le superflou, cette chose si necessaire“ (Voltaire) — eiga ekki skilið að njóta undirdjúpanna. En að bera fegurstu konu landsins saman við ryðvarinn gaddavír er svars míns virði. Einhver gaukaði því að mér að Þorgeir væri sjálfur rithöfundur, þó ekki geti ég kallað fram skáld- verk hans í minn haus, sem kannski er skiljanlegt ef bók- menntagildi þeirra gleymsku- verka er í samræmi við hrif- næmi „skáldsins“. Ein af bölv- unum „nútímans“: Skáldin eru hætt að hrífast af fegurð. En hvað. Það er víst fullkomlega eðli- legt að maður sem á allt sitt höfundarverk óupptekið og plastað á einhverjum kjallara- lager borgarinnar sé með plast á heilanum og sjái allt í gegn- um plast: Allt hans fjálglega tal er ekkert annað en lítið og lág- vært uml innan úr plasthaugn- um miðjum. Hinn íslenski andófsmaður berst semsagt gegn plasti. Hann er plastandófsmaður en þó í raun (svo við sleppum hér enn einu essi á la Þorgeir) plat- andófsmaður í ljósi nýjustu staðreynda: í öðrum sjón- varpsþætti sat prestur að norðan með fætur úr plasti og eigum við þá nokkuð að spyrja hvort það sé ekta eður ei? Nei. Nú gengur hún við sinn staf; kynslóðin sem trúði á lífsins tré og orti um tré og plantaði sínu í vonargarðinn græna: Nú situr hún trénuð undir því tré og fussar við „nútímans" nýj- um aðstæðum. Eða fussar hún kannski frekar yfir „íslenskum aðstæðum“? þar sem trén eiga svo erfitt uppdráttar að öll enda þau birkilega dvergvaxin og kræklótt. Gamla og alvar- lega kynslóðin er kræklótt af biturleika út í yngra fólkið sem í hennar augum sprettur svo beinvaxið og hratt upp að það fellir laufið og laufgast aftur á meðan sú gamla blikkar auga, í sófanum við sjónvarpið sem hún hefur alltaf séð ofsjónum yfir. (Hvað er þetta lið að góna á sjónvarp fram eftir öllum kvöldum í stað þess að sitja kræklóttum höndum við púltið að pára endurminningar sín- ar?) Á sama hátt og orðið „nú- tími“ þýðir í orðabók kræk- lóttu kynslóðarinnar „bölvun“ hefur orðið „fjölmiðlar" merk- inguna „hið illa“. Sjónvarpið semsagt: Útsendari hins illa. (Einhver gaukaði því þó að mér að Þorgeir Þorgeirsson væri ekki aðeins rithöfundur heldur líka kvikmyndagerðar- maður. Kannski hefur Sjón- varpið enn fúlsað við að kaupa þær gömlu ræmur.) Og því: Rithöfundur í fjölmiðli: Munk- ur í klaustri kölska. Og: Rithöf- undur með fegurðardrottningu 5 fjölmiðli: Munkur með hóru í klaustri kölska. Æi gömlu greyin mín. Þó sjálfir hafið þið dæmt ykkur út- læga frá „trúðslátunum", „markaðstorginu" og „skrum- félaginu“ (eins og þið orðið þjóðfélag okkar) skuluð þið ekki ætlast til þess að sérhver kollegi fylgi ykkur inn í ykkar andlegu eyðimörk. Þið haldið ykkur heilaga menn að stunda ykkar blekþurra harðlífi með lindarpennann vomandi yfir lindum á heiði; að yrkja ljóð og garð og tré. En lindir ykkar eru ekki lengur tærar heldur tærð- ar. Og gætið að: Gerið orð ykk- ar og greinar pappírsins virði. Minnist þess, kæru trjáunn- endur, að pappírinn vex ekki á trjánum; fyrir hann eru þau felld. En ef ekki... Haldiði þá bara áfram að yrkja ykkur inn í sellófanið en öfundið ekki þá sem úr því komast. Öldruðum fer öfundin illa. Reiði ykkar má vera heilög en umburðarlynd- ið er þó göfugra. Því kannski er þetta allt sam- an ein stór öfund, allt þetta bölsót veðurbarinnar kynslóð- ar sem nú dynur á okkur ung- um mönnum úr svo mörgum kynlegum bárujárns-kvistum borgarinnar. Þeir saka okkur um yfirborðsmennsku og tala í sífellu um „of mikla athygli“, væntanlega þá sömu og þeir þrá. Það eina sem maður getur sagt við því er: Reyniði bara að gera betur. Reyniði bara að gera hluti sem hafa eitthvað að segja og skipta okkur ein- hverju máli, þá komist þið kannski í fjölmiðla. Ég reyni hér mitt besta til þess að hjálpa ykkur til. Öldr- uðum fjölgar stöðugt í þessu bölvaða nútímaþjóðfélagi okk- ar og því stóra vandamáli fylgja önnur smærri, eins og til dæmis tómstundavandinn. Það verður að reyna að finna eitthvað fyrir þetta fólk að gera. Og ég geri það hér með. Á nýju ári: Nýtt verkefni fyrir gamlan kverúlant. Og svaraðu nú. Opið bréf til Amal Rúnar Qase og Helgarpóstsins icallar Axnai riui r— IAt 11 / 1 . mvmm*****" ,ft Vi,r ðlt ‘"1 'l'y Við þrír, sem undirritum þetta bréf, viljum fá að koma eftirfarandi á framfæri. Föstudaginn 13. desember vorum við staddir á skemmt- un í Loftkastalanum þar sem fram komu Herbert Guð- mundsson og Radíusbræður. Helgarpósturinn kaus að draga eitt afmarkað atvik frá skemmtuninni út, skrifa um það „frétt“ og í framhaldinu slá fyrirsögninni „Davíð Þór kallar Amal Rún vændiskonu" upp á forsíðu. Efnistökin og rangfærslurnar eru með þvílík- um endemum að við getum ekki orða bundist. Áður en lengra er haldið er rétt að greina frá þessu til- tekna atviki eins og það raun- verulega var. Radíus-bræður, Steinn Ármann Magnússon og Davíð Þór Jónsson, kusu að gera að umtalsefni mann nokkurn sem sakaður hefur verið um 20 kílóa innflutning á hassi til landsins og heldur því fram að það hafi verið til einkanota. Spunnu þeir all- langt^ samtal sín á milli um það. í miðju atriði hrópar ein- hver kona úr salum, kona sem við síðar fréttum að væri Am- al Rún: „Davíð! Ert þú enn að reykja hass?“ Davíð svarar að bragði: „Þú ætlast þó ekki til þess að ég fari að játa á mig lögbrot hér á sviðinu? Ert þú ennþá að selja þig?“ Og síðan héldu þeir áfram atriðinu eins oglög gera ráð fyrir. í frétt Helgarpóstsins, sem byggir að mestu á frásögn Am- al Rúnar, er haft eftir henni: „Ég kallaði til þeirra í stríðni hvort þeir ættu ekki til betri brandara en þá kallaði Davíð Þór til mín á móti og spurði hvort ég væri ekki hætt að selja mig.“ Þarna er einfald- lega farið rangt með stað- reyndir. Nú er ef til vill rétt að árétta að umrædd skemmtun var auglýst í bak og fyrir sem grín- skemmtun auk þess sem ætla má að hvert mannsbarn gangi þess ekki gruflandi að þeir Radíusbræður hafa gert það að sínu vörumerki að ganga lengra en skemmra í sínum gamanmálum. Það er lág- markskrafa að hlutirnir séu vegnir og metnir út frá þeim forsendum sem þeir gefa sér sjálfir. Ef til væri bók sem héti „Handbók standtrúðsins“ væri fyrsta reglan í bókinni: „1. Sé einhver gestur með frammíköll, gerðu þá allt sem þú getur til að móðga hann á móti.“ (Ef HP kýs að sann- reyna þetta mælum við með því að blaðamenn spyrji hvaða skemmtikraft sem er um þetta atriði.) Og óhætt er að segja að svar Davíðs hafi vakið kátínu í salnum og við leyfum okkur að efast um að nokkur meðal áhorfenda hafi gert því skóna að þarna væri verið að vega að mannorði Amal Rúnar, heldur aðeins far- ið eftir þeim leikreglum sem í gildi eru á slíkum skemmtun- um. Ennfremur hvarflar það ekki að okkur að nokkur í saln- um hafi hugsað með sér við þetta tækifæri: Aha, hún er þá vændiskona eftir allt saman! Burtséð frá öllum málsatvik- um má fyrirsögnin á forsíðunni furðu sæta. Á skemmtun sem byggir á gamanmálum er ýmis- legt látið flakka eins og líklega Radíusbræður gera út á grín, Helgarpósturinn út á blaðamennsku. Frétt HP um að Davíð Þór hafi á skemmti- kvöldi vænt Amal Rún Qase um að selja sig var unnin sam- kvæmt viðurkenndum hefðum. HP hafði spurnir af atvikinu og talaðj við Amal Rún og Davíð Þór. I fréttinni kom skýrt fram hvar atvikið átti sér stað og í flestir vita. Til dæmis er ekki ólíklegt að Ómar Ragnarsson hafi einhvern tíma við slík tækifæri sagt eitthvað á þessa leið: „Hann er nú meiri kjáninn, hann Davíð Oddsson," sem lít- ið brot af stærra atriði. Á ná- kvæmlega sömu forsendum og eru hér á ferð væri hægt að slá upp fyrirsögninni: „Ómar Ragnarsson dregur greind for- sætisráðherra í efa“. Þetta er auðvitað algjör fréttafölsun og við ætlum ekki að ritstjóri HP, Páll Vilhjálms- son, sé svo skyni skroppinn að hann geri sér ekki grein fyrir því. Enn verður þessi frétt ein- kennilegri í ljósi þess að í sama blaði ver Páll hálfum Ieiðaran- um í að eiga vart orð yfir ósannsögli annars ritstjóra hér í borg. Vandlæting Páls verður hlægileg þegar hún birtist í hvaða samhengi. Amal Rún og Davíð Þór bar ekki fyllilega saman um málsatvik. Davíð Þór sagði að Amal hefði vænt sig um eiturlyfjaneyslu en hún segist hafa kallað eftir betri bröndurum. Hvort tveggja kemur fram í fréttinni og um önnur málsatvik er ekki deilt. HP lagði ekki mat á það hversu eðlilegt það er af skemmti- blaði með vísvitandi lygar á forsíðu. Eðlilega væntum við þess ekki að allur almenningur trúi þessum upplognu ávirðingum sem á Davíð Þór eru bornar í greininni og þeim annarlegu hvötum sem honum eru gerð- ar upp í „fréttinni“. En því mið- ur hefur enginn flaskað á því að vanmeta greind almennings hingað til, eins og Páli Vil- hjálmssyni ætti að vera full- kunnugt. Þó að Davíð Þór hafi kosið sér þennan starfsvett- vang, og megi sem opinber persóna búast við gagnrýni, þá gerir það hann ekki sjálfkrafa að skotmarki fyrir eins óvand- aða og ranga umfjöllun og raun ber vitni. krafti að kallast á við áhorf- anda með þessum hætti. Hitt er augljóst að um er að ræða atvik á opinberum vettvangi sem gerir það hæft til umfjöll- unar. Þremenningarnir ræða fréttina út frá grínforsendum sem ég kann ekki skil á. Ég er blaðamaður og mat fréttina á þeim forsendum. Pált Vilhjálmsson Ásgrímur Svemsson Einar S. Guðmundsson Stefán Snær Grétarsson Grín og blaðamennska

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.