Helgarpósturinn - 09.01.1997, Síða 21
Mynd: Bjöm Blöndal
RMMTUDAGUR 9. JANUAR1997
21
V
¥
Gengilbeina að aðalstarfi
en fýrirsæta í hjáverkum
Elma Lísa Gunnars-
dóttir er tuttugu
og þriggja ára gömul
og mæðist í mörgu.
Andlit hennar hefur
birst okkur í ótal aug-
lýsingum gegnum árin,
því þrátt fyrir ungan
aldur hefur hún starf-
að sem fyrirsæta í ein
níu ár. Þekktust er hún
þó líklega fyrir að sjá
um þáttinn íslenska
listann á Stöð 2.
„Ég er nú bara fyrir-
sæta í hjáverkum og
hef í raun og veru aldr-
ei lagt neinn sérstakan
metnað í það starf og
lít ekki á mig sem mód-
el. Mér hálfleiðist fárið
sem hefur verið búið
til í kringum fyrirsæt-
ur. Sannast sagna er
aðalstarf mitt það að
vera gengilbeina, —
hitt eru bara auka-
störf,“ segir Elma Lísa.
Tækifæri til
að ferðast
Þrátt fyrir „metnað-
arleysið" hefur Elma
Lísa samt sem áður
starfað sem fyrirsæta
erlendis. Hún var eitt
sumar í Grikklandi og
einnig nokkra mánuði í
Mílanó. „Ég leit nú að-
allega á þetta sem
tækifæri til að kynnast
einhverju nýju, sjá og
skoða heiminn,“ segir
hún. Elma Lísa segir
tísku- og fyrirsætu-
bransann mjög sér-
kennilegan í Grikklandi
og litlir peningar séu í
boði, en kveður það
litlu máli hafa skipt.
Hún hafi notið dvalar-
innar út í ystu æsar,
ferðast og notið lífsins.
Dvölin í Mílanó hafi
aftur á móti gefið
meira í aðra hönd og
allt annar bragur sé á
tískuheiminum á Ítalíu.
Mílanó heillaði þó ekki
Elmu Lísu og raunar
taldi hún helsta kost-
inn við að starfa þar
þann að myndirnar
voru teknar alls staðar
á Ítalíu nema í Mílanó.
„Ég vann mest fyrir
innlend blöð og hafði
nóg að gera. M.a. birt-
ist af mér næstum
heilt blað þar sem ég
spranga um Rómaborg
í brúðarkjólum,“ segir
Elma Lísa og hlær.
En hefur hún
klœðst slíkum
skrúða í fullri al-
vöru?
„Nei, en ég er í sam-
búð.“
Er hann líka fyrir-
sœta?
„Nei, svo sannarlega
ekki. Ég hef aldrei orð-
ið ástfangin af neinum
í fyrirsætu- og tísku-
geiranum."
Mestu áthátíð árs-
ins, með sínum fitandi
krásum, er nýlokið.
Þar sem fyrirsætur eru
iðulega afar mjóslegn-
ar hvarflar það að
manni að þær þurfi
starfsins vegna að
neita sér um flestar
kræsingar jólanna. „Ég
borða nú bara jafnmik-
ið og mér sýnist,“ segir
Elma Lísa. „Ég hef aldr-
ei nennt að velta því
fyrir mér hvað ég læt
ofan í mig og er svo
sannarlega ekki þjök-
uð af lystarstoli. Ég
borðaði steikur, smá-
kökur og sælgæti í
miklu magni yfir jólin,"
segir fyrirsætan sem
ekki lítur á sig sem fyr-
irsætu að lokum.
Hverjir
voru c)
hvar
Á SÓLONIÍSLANDUSI sátu
margir og sötruðu kaffi og
nörtuðu í rúnnstykki síð-
astliðinn laugardagseftir-
miðdag. Flosi Ólafsson
leikari, Andrés Sigurvins-
son leikstjóri og Þor-
steinn
Gylfason
prófessor
sátu saman
og spjöll-
uðu mikið,
væntanlega
um leikritun
og leiklist.
Vala Matt
útvarpar
ekki bara
> fráSólon
heldur virðist hún hrein-
lega búa þar. Kári Stef-
ánsson erfðavísindafröm-
uður stúderaði gesti kaffi-
hússins og Sólveig Arn-
arsdóttir leiklistarnemi
f rak inn nefið. Ari Alex-
ander reyndi ekki að
■ skinnklæða staðinn líkt og
hann gerði á Mokka á
dögunum heldur spjallaði
hann við Kristin Hrafhs-
son, fréttarita í Nýju Jór-
vík.
Einnig sást þar til eins
íbúa Latabæjar, Ólafs
Guðmundssonar leikara,
og Lindu Bjargar, tísku-
hönnunarnema í París.
KAFFIBARINN var stútfull-
ur að venju á laugardags-
kvöld. Þar mátti sjá
myndlistar-
manninn,
rithöfund-
inn og leið-
sögumann-
inn Harald
Jónsson.
Síðhærði
myndlistar-
og tattó-
gerðarmað-
urinn Fjöln-
ir Bragason
leit inn sem
og Bubbluflugan og
Blossastjarnan Páíl Ban-
ine. Vala og hinn ftal-
skættaði herra Vala, eig-
endur verslun-
arinnar Noi,
sem snarað á
íslensku út-
leggst Við,
duttu einnig
inn úr dyrun-
um. Þá sást þar
til hins Stund-
arlausa Felix
Bergssonar.
■Kp'' J _
Á KAFFI LIST safnaðist
saman inargt manna til að
hlusta á hina frábæru
hljómsveit „The Gipsy
Kings"! Andrés Sigurvins-
son drakk þar margan
kaffibollann ásamt vini
sínum Binii Karlssyni
Ieikara. Sigurlaug M. Jón-
asdóttir. þula með meiru,
þuldi yfir manni sínum,
Torfa gullsmið. Þar var
p einnig Hrönn Kristins-
dóttir Kvikmyndasam-
stev|)ingur og dansfiðrild-
in Ástrós og Sóley.
; Þetta sama kvöld brá
; Björk Guðmundsdóttir
sér,
ásamt
vinum
sínunt,
út að
borða á
veitinga-
staðinn
Jónatan
Living-
ston
máf.