Helgarpósturinn - 09.01.1997, Side 23
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1997
23
Ekki
missa
Hetjurnar hans Spessa
■ Hinn snjalli ijósmyndari
Spessi, eða Spesman high eins
og sumir kalla hann, opnaði
sýningu nú í vikunni í Iista-
kaffihúsinu Mokka við Skóla-
vörðustíg. Yfirskrift sýningar-
innar er Hetjur. „Þetta orð,
hetjur, er orð sem virðist vera
löngu hætt að nota í íslensku
þjóðfélagi," segir listamaður-
inn síkáti. „Það þarf svo að
skilgreina hugtakið enn frekar
með því að bæta einhverju
við, s.s. íþróttahetja, hvunn-
dagshetja o.s.frv. Myndirnar á
sýningunni eru myndir af
mönnum sem eru hetjur í mín-
um augum. Allt Vestfirðingar
og menn sem ég kannaðist við
í æsku, en ég ólst upp á ísa-
firði. Mér fannst allir þessir
menn vera hetjur á sínum
tíma. Mér fannst þeir allir vera
svo stórir. Svo kom í ljós að
þeir voru ekki svo stórir þegar
ég loks hitti þá aftur til að taka
af þeim myndir. Á sýningunni
stilli ég saman alls kyns mönn-
um, frá aflaskipstjórum yfir í
venjulega verkakarla. Allir eru
settir í spariföt. Við það hverf-
ur stéttaskiptingin að ein-
hverju leyti. Ég set þá alla á
sama stall. Allt er svo myndað
á sama staðnum; í gömlu
sjúkrahúsi á ísafirði sem hefur
ekki verið notað í fimmtán ár.“
Þessi sýning Spessa var haldin
á síðasta ári á Isafirði við mjög
góða aðsókn, en um fjórðung-
ur allra íbúa svæðisins sá sýn-
inguna. Nú er tækifærið að
skoða hetjur Spessa í Mokka-
kaffi á Skólavörðustígnum.
Þegar amma var ung
■ Onlyyou, The great preten-
der og Smoke gets in your eyes
eru meðal þeirra laga sem
sungin verða á Hótel íslandi
nú um helgina þegar söng-
kvartettinn The Platters stígur
[)ar á stokk og tekur lagið fyrir
slendinga. Sönghópurinn
kemur fram á tvennum tón-
leikum, á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Nú er bara fyrir
eldra fólkið (og þá yngri sem
hafa gaman af) að skella sér á
Hótel ísland og upplifa gömlu,
góðu, hugljúfu rokkstemmn-
inguna eins og hún var best,
— þegar amma var ung.
Leikfélagið
hundrað ára
■ Leikfélag Reykjavíkur verð-
ur 100 ára núna 11. janúar og í
tilefni af því verða tvær frum-
sýningar í Borgarleikhúsinu
um helgina, Fagra veröld eftir
Karl Ágúst Úlfsson og Dómínó
eftir Jökul heitinn Jakobsson.
Dómínó skrifaði rithöfundur-
inn og leikskáldið Jökull á ár-
unum 1970-1973 og er það að
margra dómi eitt besta verk
hans. Frumsýning er í kvöld á
verkinu og er uppselt. Önnur
sýning er á morgun.
Jónína, Hringur og Kjar-
val í húsi meistarans
■ Á laugardaginn verða opn-
aðar þrjár sýningar á Kjarvais-
stöðum. í fyrsta lagi yfirlits-
sýning á verkum Hrings Jó-
hannessonar, eins dáðasta
listamanns þjóðarinnar, sem
lést á síðasta ári langt um ald-
ur fram. í öðru lagi sýning á
nýjum verkum eftir eina
fremstu leirlistakonu skersins,
Jónínu Guðnadóttur. Að
þessu sinni er listunnendum
boðið til móts við ný verk sem
sérstaklega hafa verið gerð
fyrir rýmið á Kjarvalsstöðum.
Þar gefur að líta afrakstur ára-
langrar listsköpunar, sjálf-
stæða skúlptúra sem oftar en
ekki hafa sterka skírskotun í
íslenska náttúru.
í fjórða lagi verður sýning á
verkum meistara Kjarvals sem
hann gerði á árunum 1931-
1945. Sú sýning nefnist Lifandi
land.
Blaðaljósmynd
ársins 1996
■ Þeir sem hafa áhuga á
blaðaljósmyndum geta séð úr-
val bestu íslenskra blaðaljós-
mynda á síðasta ári I Gerðar-
safni í Kópavogi. Blaðamanna-
félagið verður hundrað ára
síðar á þessu ári og var því
ákveðið að hafa þessa sýningu
veglegri en hingað til. Sýndar
verða um 300 ljósmyndir, en
auk bestu mynda síðasta árs
verður á sýningunni úrval
þekktra fréttaljósmynda frá
liðnum árum og áratugum.
Sýningin verður opnuð á laug-
ardaginn og þá verða veitt
verðlaun fyrir bestu myndir í
hverjum efnisflokki og jafn-
framt útnefnd Blaðaljósmynd
ársins 1996. Sýningin verður
opin fram til 2. febrúar.
■ Vala Þórsdóttir leikkona
hefur verið á faraldsfæti með
einleiksverk sín Eða þannig og
Kíkir, súkkulaði, fýlugufa og
rusl, en Vala hefur sýnt þessi
verk í Danmörku, Ítalíu og
Englandi og auðvitað áður á
íslandi, alls staðar við góðar
undirtektir. „Þessi verk voru
sýnd í viku úti í London og
gekk mjög vel,“ segir hún. „Þar
var ákveðið að ég myndi fara
aftur út og vera í apríl og maí.
Þá yrði ég með þriggja vikna
rennsli í London og í fram-
haldi af því færi ég styttri leik-
ferð um Bretlandseyjar. Þá
myndi ég sýna bæði fyrir ís-
lendingafélögin þarna úti og
eins fyrir Bretana. Þetta er allt
saman mjög spennandi, sér-
staklega eftir að hafa fengið
svona góða dóma þarna úti.“
Nú geta íslendingar séð þessa
einleiki Völu í Kaffileikhúsinu
og verður fyrsta sýning á laug-
ardag og hefst hún klukk-
an 21.
Sannleikur
eða blekking?
■ Umræða verður í Þjóð-
leikhúskjallaranum á
mánudagskvöld um sið-
ferðisspurningar í leikrit-
inu Villiöndin eftir Hen-
rik Ibsen, sem sýnt er um
þessar mundir í Þjóðleikhús-
inu. „Það eru siðferðislegu
spurningarnar sem Henrik Ib-
sen setur fram í verkinu sem
verða meginumræðuefni
kvöldsins, en Villiöndin er
ákaflega margþætt verk. Um-
ræðurnar munu einnig snúast
um allar hinar margþættu per-
sónur í verkinu, um lífsskoð-
anir þeirra og hvernig þær
haga lífi sínu,“ segir Melkorka
Tekla Ólafsdóttir leikhúsfræð-
ingur, sem er umsjónarmaður
dagskrárinnar. „Meginskoð-
anaátökin í verkinu eru á milli
tveggja persóna, annars vegar
Gregers, sem heldur því fram
að sannleikurinn verði ávallt
að koma fram í öllum tilvikum,
og hins vegar Rellings læknis,
sem hefur helgað líf sitt því að
útdeila sjálfsblekkingum til
fólks í kringum sig, vegna þess
að hann telur að sjálfsblekk-
ingin sé nauðsynleg til að
maðurinn komist af.“
Meðal þátttakenda í umræð-
unni verða heimspekingar, rit-
höfundar og guðfræðingar. Þá
verða flutt atriði úr sýningu
Þjóðleikhússins á Villiöndinni.
Umræðurnar hefjast klukkan
21 og eru eins og áður segir í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Hverjir
fara
i um j ~
hel g i n aL?
„Ég er að undirbúa skólann, sem fer af
stað aftur eftir jólafrí, en ég er skólastjóri
Sálarrannsóknarskólans," segir Magnús
Skarphéðinsson. „Nú eru á þriðja hundrað
nemendur hjá okkur og 36 kennarar. Ég
ætla að gefa mér tlma I að fara I sund
seinnipart laugardags eins og alltaf á laug-
ardögum. Svo hafði ég hugsað mér að sjá
stórmyndina Hamsun um kvöldið. Sunnu-
deginum ætla ég aö eyöa með félögum
mínum í Tilraunafélaginu, sem er vísindalegt miðilsfundafélag. Ég
ætla í sund eftir fundinn. Síðan var hugmyndin að fara í heimsókn
til kunningjafólks okkar í Breiðholti, þannig að þetta verður hin
besta helgi. Ég ætlaði mér að sjá Þrek og tár en það verður að
bíða til næstu helgar. Ég fer ekki mikið út á skemmtistaðina því ég
nenni ekki að hlusta á röflandi fyrllibyttur."
„Ég ætla að bjóða fjölskyldu minni,
konu, foreldrum og systrum á Hótel Örk
í afmælisveislu mína, en ég átti afmæli
í gær,“ segir gamla poppstjarnan og
hljómplötuverslunareigandinn Pétur
Kristjánsson. „Ég er orðinn fjörutíu og
fimm ára gamall, hugsaðu þér maður.
Og ætla að halda upp á það á Hótel
Örk, hafa það huggulegt í rúman sólar-
hring eða svo með fjölskyldunni. Það
held ég að sé svolítiö sniðugt. Systir
mín átti afmæli nú I desember og þá
fórum við til Keflavíkur. Það var virki-
lega skemmtilegt. Bara fjölskyldan saman, fá sér gott að borða og
bara hafa það gott."
„Ég geri nú ekki mikiö um þessa helgi,
ég var að koma úr uppskurði," segir
séra Flóki Krjstinsson, sóknarprestur í
Lúxemborg. „Ég var að láta laga á mér
kviðslit og verö bara heima hjá mér.“
Þú œtlar ekki að horfa á eitthvað
skemmtilegt í sjónvarpinu eða lesa
eitthvað gott?
„Nei, ekki neitt, ekki neitt," segir hann
döprum rómi. „Það eru engin plön.“
„Ég ætla bara að gera það sem ég er vön að gera; vera heima hjá
mér og njóta þess," segir Salome Þorkelsdóttir, fyrn/erandi al-
þingismaður. „Ég er nú vön að horfa á sjónvarpiö á laugardags-
kvöldum ef það eru einhverjar góðar myndir, en ég er ekki farin að
kanna dagskrána. Vonandi verður eitthvað bitastætt þar. Ég fer á
nýárstónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar á fimmtudagskvöldiö, en
ég er meö fasta miða hjá Sinfóníunni."
„Á laugardagsmorgun fer ég suður í Kapla-
krika til að halda smáfyrirlestur á þjálfara-
námskeiði þar,“ segir Þorbjöm Jensson,
þjálfari íslenska handboltalandsliðsins.
„Helgarnar snúast venjulega mest um íþrótt-
ir,“ segir hann og hlær. „Ég hugsa að ég fari
um helgina að fylgjast með keppni í fjórða
flokki karla sem verður uppi T Digranesi, en
sonur minn er að fara að spila þar.“
Upprennandi stjarna?
„Vonandi, fyrir hann," segir Þorbjörn og hlær.
„Ég ætla að fylgjast með þvT. Ég fór í bíó aldr-
ei þessu vant síðustu helgi og sá Ransom
með Mel Gibson. Mér fannst hún nokkuð
góð. Mérfinnst alltaf gaman að horfa á Mel Gibson. Hann er minn
maður, hæfilega brútal."
spurt...
Ef þú fengir að
ferðast í tíma og rúmi,
hvert myndirðu þá fara?
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur
„Ég myndi vilja
upplifa tímabilið í
París svona í
kringum 1830, —
þessa gömlu götu-
stemmningu. Vic-
tor Hugo var uppi
á þessum tíma og
andrúmsloftið
hefur örugglega
verið magnað.
Andinn í kringum
Notre Dame og
Signu.“
Karla
leikfimi
Markvissar
æfingar
fyrir karla
á öllum aldri
Vió bjóóum upp á
kvöldtíma þar sem vió
leggjum áherslu á þrek
og góóar styrktaræfingar
fyrir maga, bak og fætur.
Gott aóhald meó
teygjum og slökun i lok
hvers tíma.
Takmarkaóur fjöldi.
Einnig æfingar í
nýjum CYBEX tækjum.
Kennari:
Jón Halldórsson,
íþróttakennari