Helgarpósturinn - 09.01.1997, Side 24

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Side 24
illt af og sent trakteringarnar í rannsókn er hafi leitt í Ijós að meðal hráefnanna var sæöi þriggja karlmanna. Við bíðum bara eftir aö fá nöfn hráefnisgjafanna... \lokkur brögö munu að því að söluverö lllíbúða sé skráð hærra en það raunveru- lega er. Þetta er gert til að kaupandinn fái hærra lán til kaupanna hjá húsbréfadeild Hús- næðisstofnunar. Mál af þessu tagi kom upp um miðjan desember þegar lögfræðideild Hús- næðisstofnunar fór fram á að Rannsóknarlög- regla ríkisins rannsakaði alls 16 kaupsamn- inga. Húsbréfalán höföu veriö veitt út á þessa samninga að meðaltali 4-5 milljónir á hvern en eignirnar taldar mun minna virði. Ein fast- eignasala var einkum talin tengjast málinu en ekki hefur komið fram hvaða fasteignasala það er. Við getum upplýst að hér mun átt við fasteignasöluna Hraunhamarí Hafnarfiröi. Hitt er svo annað mál að ekki er endilega þar meö sagt aö starfsmönnum fasteignasölunnar hafi veriö kunnugt um svindliö. Þegar um er að ræöa eignir utan höfuðborgarsvæðisins mun nefnilega alsiða aö kaupandi og seljandi séu búnir að gera út um kaupin sín á milli. Hlut- verk fasteignasölunnar er þá í raun ekki ann- að en að ganga frá formsatriðunum. í slíkum tilvikum tekur fasteignasalan yfirleitt ekki venjuleg sölulaun heldur einungis þóknun fyrir skjalagerð. Sú þóknun mun þó geta numið 25 þúsund krónum, sem óneitanlega eru bærileg laun fyrir klukkustundar vinnu... Bókaforlögin hafa síðustu vikurnar verið að dagsetja reikninga ýmist fram eða aftur í tímann. Þetta hefur verið árviss viðburður I bransanum og ef eitthvað er mun fremur hafa dregið úr þessum dagsetningatilfærslum með aukinni töluvtækni á allra síöustu árum. Bókasöfn þurfa eins og aðrar opinberar stofn- anir að eyða fjárveitingum sínum fyrir áramót. Annars er nefnilega hætt viö að þeim verið refsaö fyrir sparsemina með lægri fjárveitingu næst. Ekki dugar heldur að eyða um efni fram. Árum saman hefur þess vegna verið nokkuð um ofboðspantanir bókasafna fyrstu dagana eftir áramót. Þá hafa menn skyndi- lega gert sér Ijóst aö fjárveitingin var ekki al- veg búin. Bækur eru pantaðar og forlögin beðin að dagsetja reikninga fyrir áramót. Á sama h'átt ber líka alloft við að bókasöfn sem klára fjárveitinguna snemma fái jólabækurnar afgreiddar en reikningurinn sé ekki skrifaður fyrr en í janúar... Jólakort sem forsetaframbjóðandinn Guð- rún Agnarsdóttir og ektamaður hennar, Helgi Valdimarsson, sendu stuðningsmönn- um sínum hefurvaldið nokkrum heilabrotum. „Lítiö kort" stendur á forsíðunni og innl „Mikl- ar þakkir. Bestu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning!" Upphrópunarmerkið er svolítið spurningarmerki og minnir á að Guörún vildi ekki fyrr en I lengstu lög viðurkenna aö hún hefði tapað kosningabaráttunni... HELGARPÓSTURINN 9. JANÚAR 1997 1. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR. Ekkert lát er á aðsókn að söngleiknum Stone Free I Borgarleikhúsinu og viröist sem hálfgert Stone Free- æöi hafi gripið um sig. Sýningum á verkinu átti að Ijúka um áramót en þá voru enn um 120 manns á biðlista eftir miðum. Gripiö var til þess ráðs að hafa fjórar aukasýning- ar nú eftir áramót og var byrjaö að selja á þær miða slð- astliöinn sunnudag. Þá fimm tlma sem miöasalan var op- in seldust um fimm hundruð miðar... Hjá flestum stórfyrirtækjum er það siður að útdeila jóla- gjöfum meöal starfsmanna — en sllku er ekki fyrir að fara hjá öllum. Flugleiöir eru eitt þeirra fyrirtækja sem gáfu starfsfólki sínu ekki jólagjafir fyrir þessi jól. Þess I stað voru valinkunnum viðskiptavinum slöasta árs gefnar góðar gjafir... Sighvatur Björgvinsson, for- maöur Alþýðuflokksins, hlýt- ur ekki vinsældir fyrir þá ráöa- gerö að leggja Alþýðublaðið niður. Þingmenn flokksins eru sumir alfariö á móti því að út- gáfu blaðsins verði hætt. Hug- myndin um að leggja Alþýöublaðiö inn I Dag-Tímann upp I prentsmiöjuskuld við ísafoldarprentsmiöju, sem erí eigu útgefenda Dags-TImans, fær heldur ekki hljómgrunn. Al- þýðuflokksmenn telja ekki að krataslðan sem meiningin er að þeir fái I Degi-Tímanum verði langlíf, enda Stefán Jón Hafstein ritstjóri lýst þvl yfir að Dagur-Tíminn sé ekki flokksmálgagn... Fréttina um fyrirhugaða yfirtöku Dags-Tím- ans á Alþýðublaðinu bar upp á sama tlma og tilkynnt var um uppsagnir fimm starfsmanna Dags-TTmans. Uppsagnirnar drukknuðu I umfjölluninni sem fyrirhuguð yfir- taka fékk. Aðstandendur blaðsins eru sér- lega viðkvæmir fyrir fréttaumfjöllun um stöðu útgáfunnar. Lögfræðingur Dags-Tímans, Sigurður Guð- jónsson, heimsótti ritstjórn Helgarpðstsins fyrir jól og fékk tölublað HP frá því snemma I haust þar sem stutt klausa birtist um stöðu Dags-Tfmans. Sigurður íhugar fyrir hönd útgefenda Dags-TImans að stefna þáverandi útgef- endum Helgarpóstsins fyrir atvinnuróg... Þorsteinn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Sambandinu, bætti enn einni skrautfjöður I hatt sinn um áramót þegar hann varð stjórnarmaður I Pósti og síma hf. Þorsteinn er skjólstæðingur Halidórs Ás- grímssonar, formanns Framsóknarflokksins, og hefur m.a. setið I stjórn Norræna fjárfest- ingabankans og verið stjónarformaöur Iðn- lánasjóðs. Framsóknarmenn, sem sjálfir höfðu augastað á stjórn Pósts og síma hf., eru hins vegar hvekktir og telja fremd Þor- steins meö óllkindum I ijósi þess að hann var einn aðal- maður á bakviö NT-ævintýrið sem skildi fjárhag eftir Fram- sóknarflokksins I kaldakoli... Garðabær hreþþti höfuðstöðvar Marels hf., sem flytur starfsemi slna frá Höfða- bakka I Reykjavík I nýtt iðnaðarhverfi I Moldahrauni við Reykjanesbraut. í Morgun- blaðinu segir Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri I Garðabæ, að viðræður viö fyrir- tækið hafi gengið mjög vel. Engin ástæða er til að efast um það. Stjórnarformaður Marels er Bene- dikt Sveinsson, formaður bæjarráös I Garöabæ og leið- togi meirihluta Sjálfstæðisflokksins þar I bæ. Stjórnarfor- mennskuna fékk Benedikt I krafti eignarhluta Eimskips I Marel. Engu að síður er Marel almenningshlutafélag og þeir hluthafanna sem ekki eru Garðbæingar velta sumir fyrir sér hvort önnur bæjarfélög hefðu komið til álita... Meðal arkitekta er nokkur spenna vegna væntanlegrar hönnunar stórhýsis Marels I Garðabæ. Flestir veðja á aö Ingimundur Sveinsson fái verkiö, enda er hann bróö- ir Benedikts Sveinssonar, stjórnarformanns Marels og oddvita meirihlutans I Garöabæ. Ingimundur er höfundur skrifstofubyggingar Sjóvár-Almennra og Perlunnar I Öskju- hlíð... Olystug flökkusaga hefur lengi gengiö um bæinn um matsölustað sem sendir heim. Sagan segir að fólki sem fékk heimsendan mat frá nefndri matsölu hafi oröið http://this.is/net lifandi vefur um Internetið, fólkið, fyrirtækin og framþróunina Vorum að fá 32 BOOTS - SPECIAL BLEMD - FOIIR STAR

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.