Helgarpósturinn - 20.02.1997, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 20.02.1997, Blaðsíða 4
4 RMMTUDAGUR 20. FEBRUAR1997 í skýrslu, sem gerO var fyrir dómsmálaráöuneytid um heim- ilisofbeldi á íslandi, kemur í Ijós aö 1,3 prósent kvenna eöa um eitt þúsund til ellefu hundruö konur og 0,8 prósent karla eöa um 650 þeirra hafa oröiö fyrir líkamlegu ofbeldi á ' heimilum sínum af völdum nú- verandi eöa fyrrverandi maka eöa sambýlismanns/konu á síöustu tólf mánuöum. Skýrsl- an er byggö á simakönnun sem gerö var fyrir stuttu. Hringt var í 3.000 manna úr- tak og spurt um ofbeldis- reynslu, bæöi heimilisofbeldi og götuofbeidi. Eru konur farn- ar aö lemja karlmenn í meira mæli Ingólfur? Lægri ofbeldis- þröskuldur hjá kon- um en körium „Það er ekki stór munur á milli ofbeldis gagnvart konum og of- beldis gagnvart körlum ef þessar tölur eru skoðaðar hráar," segir Ingólfur V. Gíslason, starfsmað- ur skrifstofu Jafnréttisráðs. „All- verulegur hluti þeirra kvenna sem segjast hafa beitt maka sinn líkam- legu ofbeldi segist hafa gert það í sjálfsvörn. Það þýðir að maki þeirra hafi orðið fyrri til að beita ofbeldi. Eins má segja að í þess- ari rannsókn og öðrum sem gerðar liafa verið sýnir það sig að konur hafa lægri ofbeldis- þröskuld en karlar, það er að segja; þær kalla hiutina fyrr of- beldi en karlarnir. Það stafar vafalítið af því að miklu meiri ógn er fyrir konu ef karl beitir hana ofbeldi en' þegar konur beitir karl ofbeldi. Þó svo að kona löðrungi þig þá er það ekki neitt sem þú þarft að stressa þig neitt verulega á. í langflestum til- fellum hefur karlmaðurinn líkam- lega yfirburði.“ Verða einhverjur ráðstafan- ir geröar vegna þessara upp- lýsinga? „Þessi skýrsla er nú til um- ræðu inni á Aiþingi. Þar eiga þingmenn eftir að fara yfir hana og skoða. Það eru engar tillögur í sjálfri skýrslunni, enda var nefndin ekki beðin um að gera þær. Ég geri fastlega ráð fyrir að það komi einhverjar hugmyndir og kröfur um aðgerðir tii að sporna við þessari ofbeldisþró- un á Alþingi. Ég vona bara að Guð gefi að umræðan snúist ekki um að beita harðari refsingum í þessum málum. Ég held að það skili mjög, mjög takmörkuðum árangri, enda sýnir það sig í lang- flestum tilfellum að það er ekki ósk kvennanna sem verða fyrir ofbeldi. í könnuninni kom í ljós að um 4,5 prósent kvenna segja að sér hafi verið nauðgað ein- hvern tímann á lífsleiöinni, en sárafáar konur kæra verknaðinn. Að mínu mati eru harðari refs- ingar auðvelda lausnin. Svo virð- ist sem veriö sé að gera eitthvað í málinu en þessar skammtíma- lausnir virka bara því iniður ekki. Langtímaverkefnið er að taka á þessu í raun. Mín ósk um aðgerðir væri að dómsmálaráð- herra kallaði að einu borði alla þá sem koma eitthvað að ofbeld- ismálum. Síðan myndu menn fylgja þeim alþjóðaskuldbinding- um sem ísiendingar hafa gengist undir og smíða þjóðaráætlun, til dæmis til fimm ára, um hvernig elgi að taka á þessu. Meta síðan eftir fimm ár hvernig til hefur tekist.“ Kom hún ykhur ekkert á óvart þessi háa tala yfir karla sem beittir hafu verið ofbeldi á heimilinu? „Jú, ætli sé ekki óhætt að segja það. En síðan fóru menn að skoða þetta nánar og sáu hve mikill hlutí af þessu var sjálfs- vörn. Það breyttl myndinni tals- vert. Það má einnig benda á að fólk var spurt hvort það hefði beitt ofbeldi og hvort það hefði orðið fyrir því. Mun fleirí konur sögðust hafa barið karla en karl- ar sem sögðust hafa verið þarðir af konum. Hvort það er svo vegna þess að þelr skammast sín fyrir þetta eða — sem mér finnst miklu líklegra — að þeir einfaid- lega líti ekki á þettasem ofbeldi." Bera Nordal, fráfarandi forstööumaöur Listasafns íslands, hefur brátt störf hjá Malmö Konsthall í Svíþjóö, sem er taliö eitt virtasta listasafn á Noröurlöndum og þótt víöar væri leitaö... Svan „Það verður mikil ögrun að takast á við þetta nýja starf hjá Malmö Konst- hall, enda mun ég fást við annars konar störf en ég hef gert hingað til hjá Lista- safni íslands,“ segir Bera Nordal sem lætur af störfum sem forstöðumaður safnsins um næstu mánaðamót. „í Malmö Konsthall eru sýningarnar aðalatriðið og ég mun vinna að alþjóð- legum sýningum, því ekki er lögð mikil rækt við norrænar sýningar. Hér heima hef ég verið mikið í því að rannsaka verk og skrásetja til varðveislu. í Malmö mun ég setja upp sýningar ungra listamanna sem eru við það að hljóta heimsfrægð og þeirra sem eru lengra á veg komnir í listinni.“ Mikill áhugi er meðal fjölmiðla og al- mennings á Malmö Konsthall og til marks um áhugann var haldinn fjöl- mennur blaðamannafundur þegar til- kynnt var að Bera hlyti starf forstöðu- manns safnsins. Safnið þykir líka eitt það allra merkasta á Norðurlöndum og er jafnframt vel fylgst með því í Evrópu hvað þar er til sýnis. Starf Beru mun því án efa vekja mikla athygli listunnenda bæði í Svíþjóð og annars staðar. Ný aðföng „Eg er þessa síðustu daga mína í starfi að setja upp sýningu fyrir safnið. Hún kallast „Ný aðföng“ og ber nafn með rentu, því á henni eru verk sem voru keypt á síðustu þremur árum. Ennfremur eru þar nokkrar gjafir sem okkur hafa borist. Reyndar er hér að- eins um úrval að ræða, því við höfum ekki tök á því að sýna allt sem við höf- um keypt eða fengið að gjöf frá einstak- lingum. Því miður háir plássleysi okkur og því getur verið erfitt að setja upp heilsteyptá sýningu, ekki síst í Ijósi þess að verkin eru mismunandi — enda höfundarnir ólíkir. Við erum með mörg prýðisgóð verk sem verða til sýnis í safninu, til dæmis eftir Krístján Guð- mundsson, Hrein Friðfinnsson og Þor- vald Þorsteinsson. Einnig erum við með verk eftir heimsþekktan lista- mann, Carl André að nafni, en það er gjöf til safnsins. Síðan erum við með málverk eftir einn þekktasta listmálara Svía af eldri kynslóðinni, Ola Billgren. Verkin spanna því langt tímabil og sýn- ingin veitir áhorfendum vonandi gott yfirlit yfir stórt skeið í list samtímans.“ Bera hefur verið forstöðumaður Listasafnsins undanfarin níu ár. Hún tók við starfi Selmu Jónsdóttur, sem var fyrsti forstöðumaður safnsins. Bera segir að á fyrstu árum Listasafnsins hafi það búið við þröngan kost í Þjóð- minjasafninu en síðar hafi það fengið glæsilega aðstöðu við Fríkirkjuveg. „Það er gaman að segja frá því að fyrsta sýningin sem ég starfaði við á vegum safnsins var einmitt í núverandi hús- næði þess. Það var mikil ögrun að geta átt þátt í að byggja safnið upp á þessum stað.“ Fólk vill öflugt listasafn Að sögn Beru hefur það verið áber- andi allan þann tíma sem safnið hefur verið starfandi að það hefur fengið mik- ið af gjöfum frá einstaklingum. „Stór hluti listaverka safnsins er gjafir frá listamönnum," segir Bera. „í því sam- bandi má nefna dánargjöf Gunnlaugs Scheving, sem hafði að geyma mörg þúsund verk. Síðan má nefna stór söfn Ásgríms Jónssonar og Finns Jónsson- ar. Við höfum ennfremur fengið að gjöf stór einkasöfn og þess má geta að ég var einmitt í morgun að taka við stór- kostlegri Kjarvalsmynd sem kom úr einkasafni. Það er gaman að því hve fólki virðist umhugað um að efla og göfga þetta listasafn þjóðarinnar. Að vísu búum við við þann annmarka að þurfa að geyma listaverk á nokkrum stöðum í borginni, enda mörg verk plássfrek. En það er nú einu sinni eðli safna að stækka og dafna. Næsta verk- efni nýs forstöðumanns verður því að finna stærra húsnæði fyrir safnið. Ólaf- ur Kvaran tekur um næstu mánaðamót við starfinu og ég efast ekki um að hon- um farnist vel í því að leiða safnið inn í næstu öld.“ Margar sýningar minnisstæðar Bera segir margt standa upp úr frá þessu níu ára starfi sínu við listasafnið — enda sýningarnar orðnar margar á þessum tíma. „Ég fer ekki ofan af því að við höfum sett upp margar stórkostleg- ar sýningar í gegnum árin. Af erlendum sýningum rís hæst norræna aldamóta- sýningin sem við vorum með í hitti- fyrra. Hún vakti gífurlega athygli, enda vorum við með þekktustu verkin úr rík- islista- og einkasöfnum á Norðurlönd- um. Þá vorum við með á síðasta ári sýn- ingu á verkum Edvards Munch, sem tókst vel í alla staði. Af íslenskum sýn- ingum er vert að nefna sýningu sem hét „í deiglunni“, þar sem listatímabilið frá 1930-1944 var tekið fyrir. Við tókum ekki aðeins myndlist fyrir heldur einnig allt sem var að gerast í listum á þessum tíma. Við höfum sömuleiðis verið með margar fínar yfirlitssýningar. Annars er frekar erfitt að gera upp á milli sýninga því þetta hefur verið einstaklega ánægjulegur tími í alla staði og ég kveð þetta safn með miklum söknuði.“ -gÞ „Það var mikil ögrun fýrír mig að geta átt þátt í að byggja listasafnið upp.“ Beru |l\ieðarimáls Fyrir stuttu var ákveðið að Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmað- ur hlyti þriðju viðurkenninguna sem veitt hefur verið úr sjóð Richards Serra. Að vonum er Þorvaldur ánægður með viðurkenn- inguna og styrkinn sem henni fylgir. „Þetta er ferðasjóðurinn næstu tvö árin,“ segir listamaðurinn. Hvaða listamaður hefur haft mest áhrifá þig? Ingibjörg Þorbergs, Megas og Slökkviliðið í Reykjavík. Hvaða stjórnmálamaður lifandi eða látinn er í mestu uppáhaldi hjá þér? Ég skil ekki spurninguna. Hvaða skáldsagnapersónu vildirðu helst líkjast? Hlyni Birni í 101 Reykjavík. Ég vil í sjálfu sér ekkert líkj- ast honum. Ég er hann, eins og við flestir. Hvaða persóna mannkynssögunnar vildirðu helst hafa verið? DeSade markgreifi. Hann var mikill framkvæmdamað- ur. Efþú fengir að lifa lífinu aftur myndirðu þá breyta einhverju? Já, ég myndi neita að svara þessari spurningu. Hver er merkilegasti atburður sem þú hefur upplif- að? Þegar ég var lítill strákur á Akureyri og mér var gefin appelsína sem hafði komið til Reykjavíkur. Hver er merkilegasti atburður sem þú œtlar að upplifa? Að vakna í fyrramálið, ef guð lofar. Hvaða atburður, verk eða manneskja hefur mótað lífsviðhorf þitt framar öðru? Móðir mín, Ibbý, Bob, Bill og Hvassaleitisdóninn. Efþú eettir kost á að breyta einu atriði í þjóðfélag- inu eða umhverfinu, hvað yrði fyrir valinu? Þetta er dálítið snúið, vegna þess að ég upplifi það að ég er alltaf að fá kost á að breyta einhverju í samfélaginu. Ég myndi í rauninni ekkert gera meira en ég er að gera. Maður er stöðugt í þessari stöðu. Spurningin er hvort maður fattar það og breytir einhverju. Ég vísa bara í verkin mín. Sérðu eitthvað sem ógnar samfélaginu öðru frem- ur? Húmorslaus börn í jakkafötum. Mottó? Það er alltaf gaman í Ólátagarði.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.