Helgarpósturinn - 20.02.1997, Blaðsíða 22
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1996
Rómantík
’M /
The Sugar Street
Naguib Mahfouz
Black Swan 1994
Egypsk
fjölskytdusaga
The Sugar Street er þriöja og
slöasta bindi sagnabálks sem
nefnist Kairó-þríleikurinn (Cairo-
Trilogy). Höfundinn, Naguib
Mahfouz, þarf vart að kynna,
enda nýtur hann hylli hvarvetna
nú á dögum. Hann hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels árið
1994.
Naguib Mahfouz er án efa
einn virtasti arabíski rithöfundur
sem uppi er í dag. Hann skrifaöi
slna fyrstu bók árið 1939, þá
næstu fertugur og síðan þá hef-
ur hann sent frá sér 32 skáld-
sögur og 13 smásagnasöfn. The
Sugar Street kom fyrst út árið
1957.
Cairo Trilogy-bækurnar fjalla
um Ai Jawad-fjölskylduna og eru
um leiö raunsönn lýsing á Eg-
yptalandi þessarar aldar. Þetta
er fjölskyldusaga eins og þær
gerast bestar, en í bókunum er
saga þriggja kynslóða Al Jawad-
fjölskyldunnar sögð. Sögurnar
gerast á tímabilinu frá síðustu
aldamótum og fram að valda-
töku Nassers á sjötta áratugn-
um. Mahfouz dregur upp ógleym-
anlega og umfram allt afar at-
hyglisveröa mynd af mannlífinu I
Egyptalandi á meðan landið var
verndarsvæði Breta.
Þótt hér sé á feröinni þriöji
hluti ritsafns þá er vel hægt að
njóta The Sugar Street án þess
að hafa lesið hinar tvær.
Bókin er 308 síöur, fæst hjá
Máli og menningu og kostar
1.650 krónur.
The Last of the
Savages
Jay Mclnerney
Vintage 1997
Óijúfanleg vinátta
Rithöfundurinn Jay Mclnern-
ey hefur getið sér gott orð fyrir
skáldverk sln og ber þar hæst
bækurnar Brightness Falls og
Bright Lights, Big City, en eftir
þeirri síöarnefndu hefur einnig
veriö gerö samnefnd kvikmynd
sem margir kannast eflaust viö.
Jay Maclnerney náði í skottið á
hippamenningunni og segist sjálf-
ur öfunda þá sem uppliföu blóma-
tíma hippanna til fulls. Bestu verk
Mclnerneys gerast þó á níunda
áratugnum og lýsa tíðaranda
þess tímabils, en þá notar unga
fólkiö kókaín í staö ofskynjunar-
efna sjöunda áratugarins.
The Last of the Savages gerist
' í Bandaríkjunum og sagan hefst á
sjöunda áratugnum. í bókinni
segir frá tveimur ungum mönn-
um, sem kynnast á heimavistar-
skóla áriö 1965. Mennirnir tveir
eru afar ólíkir aö upplagi; Will Sa-
vage er hippi frá Suðurríkjunum
en Patrick Keane er uppi og
framapotari frá Norðurríkjunum.
Savage hættir í skóla til aö geta
sinnt miklum tónlistaráhuga sín-
um en Keane fer í Harvard og út-
skrifast sem lögfræðingur. Þrátt
fyrir aö þeir félagar séu eins og
svart og hvítt endist vinátta þeirra
út lífiö og spannar sagan þrjátíu
ár af ævi þeirra.
Ef frá er talin sagan Bright
Lights, Big City þá er The Last of
the Savage tvímælalaust besta
bók Jays Mclnemey til þessa.
Bókin er 271 síöa, fæst hjá
Máli og menningu og kostar 950
krónur.
Aðklæmast
t j áningarfrelsinu
Fjölmiðlar
Halldór Halldórsson
skrifar
Ekki eru liðin nema 3-4 ár,
að ég ræddi af fúlustu al-
vöru við vel menntaðan íslend-
ing í menntakerfinu um upp-
lýsingabyltinguna og róttækar
breytingar, sem myndu fylgja
Internetinu í bernsku þess.
Einkum vildi ég koma þeirri
skoðun minni á framfæri, að
með möguleikum netsins færð-
ust þjóðir nær hver annarri,
bilið minnkaði og heimurinn
nálgaðist loks það að vera einn
en ekki margur. Jafnframt
þessu ættu eftir að skjóta upp
kollinum vandamál er lytu að
tjáningarfrelsi, friðhelgi og
klámi. Sumar þjóðir umgengj-
ust tjáningarfrelsi og upplýs-
ingafrelsi eins og helgidóm,
aðrar þjóðir væru ákaflega
tækifærissinnaðar í þessum
efnum og loks væri til sá hópur
þjóða eða þjóðríkja, sem legði
meiri áherzíu á ritskoðun en
tjáningarfrelsi. Þessár þjóðir
klæmast á tjáningarfrelsinu.
Þannig væri óleyst hugsan-
legt vandamál vegna undra-
verðra fjarskipta samtímans,
sem lyti að því hvernig taka
ætti á álitamálum tjáningar á
netinu, s.s. klámi og klám-
fengnu efni. Spurningin snerist
sem sé um það hvort reyna
ætti og hvort kleift væri að
beita staðbundnum lausnum á
alþjóðleg vandamál. Núna er
þetta orðið eitt af stóru vanda-
málunum, sem reynt er að
finna einhverja lausn á. í höf-
uðstöðvum ES í Brussel t.d. og
raunar víða um heim eru emb-
ættismenn og stjórnmálamenn
á kafi við að reyna að finna
lausn á því frelsi, sem fylgir
Internetinu.
„Vel meinandK' rítskoðun-
arsinnar
Hérlendis er tjáningarfrelsið
í hávegum haft á hátíðarstund-
um, en þegar leysa þarf vanda,
sem stafar af tjáningu, þykir ís-
lendingum alltof oft heppileg-
ast að grípa til „fyrirbyggjandi“
aðgerða og ræða um að skella
t.d. á ritskoðun hugsunarlaust.
Á síðustu dögum hefur um-
ræða verið talsverð um klám
og klámfengið efni á Internet-
inu. Þar á meðal hafa tekið til
máls „vel meinandi" alþingis-
menn, sem vilja koma í veg fyr-
ir, að slíkt efni sé aðgengilegt á
netinu, með því að beita jafn-
framt ritskoðun og herða refs-
ingar fyrir dreifingu á slíku
efni.
{ Bandaríkjunum hafa þessi
mái verið rædd af miklu kappi.
Clinton Bandaríkjaforseti vildi
setja búnað í tölvur, til þess að
koma í veg fyrir að börn kæm-
ust í slíkt efni. Hugmyndin
naut ekki stuðnings, en þess í
stað hefur Bill Gates Micro-
soft-jöfur látið byggja inn í
Windows-forrit samtímans val-
kost, sem heitir Clipper og er
eins konar klámvörn. Vitan-
lega á að gera það sem hægt er
til að koma í veg fyrir, að börn
og unglingar hafi frjálsan að-
gang að klámfengnum sora.
ingarfrelsið verði fljótt þunnur
þrettándi. Auk þess leysir það
ekki nein vandamál að banna
fyrirfram tiltekna tjáningu
vegna þess, að hún er klám-
fengin eða á annan hátt and-
stæð gildismati okkar í tiltekn-
um tímapunkti.
Um þetta eru þúsundir
dæma af ritgerðum, smásög-
um, skáldsögum, kvikmynd-
um, dægurlagatextum o.s.frv. í
löndum heims. Mörg merkustu
skáldverk sögunnar voru í
einn eða annan tíma bönnuð.
Það sem er e.t.v. athyglis-
verðast við umræðu af þessu
tæi er tvískinnungurinn, sem
skín í gegn. Lýðræðissinnar og
frjálslyndir nútímamenn tala
um nauðsyn þess að banna
klám á Internetinu og ofbeldi í
sjónvarpi í þágu mannúðar og
samhygðar með börnum og
unglingum, en í hinu orðinu
þurrka þeir út tjáningarfrelsið
í nafni ritskoðunar án þess að
blikna.
„Alþjóðaumræða" sem
parfnast verndar
Ein af grundvallarreglum
lýðræðissamfélags er tjáning-
arfrelsið. Án tjáningarfrelsis
væri ekkert lýðræði. Ritskoð-
un ætti holt og bolt að heyra til
miðöldum. En stundum er
freistandi að grípa til úrræða
ritskoðunar eða eins konar
iögbanns á frjálsa tjáningu.
Þannig samþykkti Bandaríkja-
þing breytingu á klámlögum
landsins í fyrra vegna kláms á
Internetinu. En fjölskipaður al-
ríkisdómstóll í Pennsylvaníu
komst að þeirri niðurstöðu, að
lögin væru of óljós, þau væru
brot á ákvæði stjórnarskrár
um tjáningarfrelsi og einn
dómaranna bætti því við, að í
raun færi fram eins konar „al-
þjóðaumræða" á Internetinu
og hana bæri að vernda með
meira afli en aðra tjáningu!
Annars hygg ég, að fólk með
klámáhyggjur ætti að muna að
kleift er að loka með einföldum
hætti leiðum barna að klámi á
netinu og þeir, sem fullorðnir
eru og hafa áhuga á klámi,
sækja sér það hvort sem er —
á netinu, vídeóspólum, tímarit-
um, bókum, o.s.frv. Þetta gildir
um dóp og þetta gildir um
klám.
Það er ekki eins og klám sé
beinlínis glænýtt fyrirbæri!
Alvara
kli II AU D JAWK'.to
BLIND
WATCHMAKÍR
The Blind
Watchmaker
Richard Dawkins
Penguin 1991 (1986)
Blind
heimshönnun
Snemma á 19. öld skrifaöi
guöfræöingurinn William
Paley fræga ritgerö um
heimssköpunina og varð hún
ein áhrifamesta sönnunin fyr-
ir tilvist Guös. Paley lagöi
máliö upp þannig aö flókin
fyrirbæri, t.a.m. mannsaug-
aö, hefðu ekki orðið til af
sjálfu sér heldur væru þau
hönnuö Ifkt og ýmislegt þaö
sem mennirnir lögöu fyrir sig
eins og aö hanna sjónauka.
Charles Darwin kynnti þró-
unarkenningu sína hálfri öld
eftir aö ritgerö Paleys var gef-
in Ot og þaö tók heila öld áö-
ur en kenning Darwins kvaö
sjónarmiö guöfræöingsins I
kútinn, samanber frægu
„aparéttarhöldin“ í Bandaríkj-
unum um miöja þessa öld.
Og þó ekki. Líffræðingurinn
Richard Dawkins þóttist
taka eftir því að víöa í menn-
ingunni eimdi eftir af kenn-
ingu Paleys og að mun fleiri
þekktu hönnunarrökin en þró-
unarkenninguna. Þess vegna
setti hann sér þaö markmið
aö skrifa bók þar sem rök
guðfræðingsins yröu notuö til
aö færa sönnur á kenningu
Darwins.
Dawkins er fjarska góöur
stílisti, eins og Paley, og hon-
um tókst aö skrifa skemmti-
lega og spennandi bók um
viöfangsefni sem er þurrt viö
fyrstu sýn. Bókartilvísunin er
til kenningar Paleys, sem
notaöi klukku í sínum samlfk-
ingum, og „blindi úrsmiður-
inn“ vísar til þess að Guö
þarf ekki til aö hanna flókin
fyrirbæri eins og mannsaug-
að óneitanlega er.
Bókin 340 sföur, fæst hjá
Máli og menningu og kostar
1.795 krónur.
Erlendar
skáldsögur
eru um þess-
ar mundir
seldar meö
30% afslætti
í Máli og
menningu.
Klámvarnir og tjáningar-
freisi
En tilgangurinn helgar ekki
alltaf meðalið. Klámvarnartil-
burðir þeirra, sem hafa tekið
til máls um þetta efni hérlend-
is, eru yfirleitt í blóra við tján-
ingarfrelsið. Um er að ræða
eitt af grundvallaratriðum lýð-
ræðisþjóðfélags, en eigi skeik-
ular mannverur að skerða
þetta frelsi í nafni fyrirbyggj-
andi aðgerða, vegna barnanna
okkar og eigin blygðunar-
kenndar, er hætt við, að tján-
Bók sem
skipti
ir máli
„Bókin heitir heitir Dul og draumar og er um Guð-
rúnu Böðvarsdóttur sem var föðursystir mín.
Þetta er stórmerkileg bók um stórmerkilega konu. í
sautján ár barðist Guðrún við hvítadauða og féll
loks fyrir honum langt fyrir aldur fram. Þrátt fyrir
að Guðrún væri fársjúk stóran hluta ævinnar tókst
sjúkdómnum ekki að lama þrek hennar. Þótt hún
væri meira eða minna rúmliggjandi aftraði það
henni ekki frá því að ferðast því hún yfirgaf hrein-
lega líkamann. Hún var einnig berdreymin og sá
fyrir óorðna hluti. Hún samdi líka gjarnan lög eftir
draumi. Til að mynda samdi hún lagið við textann
Á föstudaginn langa og er það oft flutt við jarðarfar-
ir. Þá lýsir hún í bókinni dvölinni á Vífilsstöðum og
hvernig vinir hennar þar dóu hver á eftir öðrum.
En hún lét ekki bugast. Það er ekki hægt annað en
heillast af frásögninni af þessari konu. Kjarkur
hennar og hæfileikar voru einstakir."