Alþýðublaðið - 24.07.1971, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 24.07.1971, Qupperneq 9
íþróttir - íþróttir - íþróttir - íþróttir GRIMMD H Það gæti vel verið heitið á þessari skemmtilegu mynd sem Gunnar Heiðdal tck í leik Fram og Vals fyrir nokkru. Það er sannarlega grimmdar- svipur á Kristni Jörundssyni þar sem hann stendur yfir Sig urði Dagssyni, líkt og veiði- maður yfir fallinni bráð Og ef að líkum lætur, veit- ir Kristni ekki af grimmdinni á sunnudaginn, því þá fer Fram til Keflavíkur og mætir þar heimamönnum Þetta eru tvö efstu liðin í deildinni, og víst er að þar verður barizt til síðasta manns Leikurinn hefst kl. 15 á sunnudag. Tveir aðrir leikir eru í 1. deild um helgina, báðir úti á landi, og báðir í dag kl. 16. A Akureyri keppa heimamenn við Akur- nesinga, og í Eyjum mæta heimamenn botnliðinu KR. Úrslit leiksins á Akureyri er afar tvísýnn, en sigur Vest- mannaeyinga er aftur á móti öllu líklegri, í 2. deild fara fram 3 leik- ir, allir í dag. Víkingur keppir við Þrótt úr Neskaupsstað á Melavellinum kl. 16, FIl mæt ir Selfossi í Hafnarfirði kl. 16.30, og á ísafirði heima- menn við Þrótt úr Reykjavík. SIJIB I SÓLSHIK3 □ Sundfólkið okkar á líklega þá ósk heitasta núna, að veður- guðirnir verði jafn góðir við það og aðra íþróttamenn. Ef svo verður, mun sólskin og hlýja verða í Laugardalslauginni um helgina þegar Sundmeistaramót íslands verður haldið þar. Ætti árangurinn á mótínu að geta orð ið mjög góður, því sundfólk okkar er í afbragðsgóðri æfingu um þessar mundir, endá veitir ekki af að undirbúa sig fyrir stórátökin í sumar. Alls munu um 200 keppendur verða á niót- inu, allt okkar hesta sundfólk, plús 25 þjóðverjar sem hér dvelja núna í heimsókn hjá ís- lenzka sundfólkinu. Dagskrá mótsins verður sem hér segir: ; Laugardagur kl. 18: 100 metra flugsund kvenna. 200 metra bringusund karla 400 metra skriðsund kvenna 200 metra baksund karla 200 metra fjórsund kvenna 100 metra skriðsund karla 100 m^tra bringusund kvenna 200 metra flugsund karla 100 metra baksund kvenná 4x400 'metra fjórsund karla 4x100 métra skriðsund kvenna. I i ■ - j i Sunnudagur kl. 15: j 100 ‘ metra flrtgsund karla' •200 metra bringusund kvenna 400 metra skriðsund kai'la 200 metra baksund krvenna ’ 200 metra fjórsund karla 100 metra skriðsund- kvenna '100 metra • bringusund karla 200 metra flugsund kvenna 100 metra baksund karla 4x100 metra fjórsund kvenna 4x200 skriðsund karla HM 1948: Stanley Rous, þá ritari enska knattspyrnusam bands, heiðraSur af kóngi. (Þ. e. sleginn til riddara). 1949: Rangers fyrsta félagið til þess að vinna deiid og bikar í Skotlandi sama ár- ið. 1950: Liðum fjölgað í deildunum ensku úr 88 í 92.' 1950: Heimsmeistarakeppnin hald- in í fjórða sinn. í úrslita- leiknum sigraði Brazilía í Rio de Janeiro. 200.000 manns horfðu á leikinn og greiddu 125.000 pund í að- gangseyri. í undanúrslitun- um srgraði England Chile 2:0, en tapaði mjög ó'vænt fyrir Bandaríkjunum 1:0. Vakti sá sigur heimsathygli á sínum tíma, því fyrirfram var búist við því að Eng- lendingárnir ynnu leikinn með minnst tveggja stafa tölu. England tapaði einn- ig fyrir Spáni 1:0, og var þar með úr leik. 1950: Skotland tápar í fyrsta sinn á heimavelli fyrir erlendu liði. Austurríki vann Skot- ana 1:0 á Hampden Park í Glasgow. 1951: Sheffield Wednesdey greiddi Notts County metupphæð fyrir leikmann, þegar þeir keyptu innherjann Jackie Sewell fyrir 34.000 pund. LlTTHRIFNIRAF EYJAMÖNNUM | | Nokkrir ungir pillar komu að máli við íþróttasíðuna fyr- ir stuttu. og sögðu farir sínar ekki sléttar í samskiptuiw við Vestmarnaeyinga. Þessir pilt- ar voru fyrir skömmu að keppa í Eyjum með 2. flokki. Eins og að líkum lætur var d.cmarinn úr Eyjum, og var hann svo hlutdrægur að mönn um blöskraði Þá voru línu- verðir litlu betri En þetta var ekkki það eina sem dómarinn liefur á samvizkunni, því hann hreyfði engum mótmælum þótt Eyjamenn skrifuðu eltki fæffingardag og ár á leikja- skýrslu, enda þótt lög geri ráð fyrir slíku, og fyrirbyggji þann ig að menn leikj með sem ekki eru hlutgengir í liðin. Sinnti bann engu ábendngum þjálf- ara aðkomuliðsins um þetta cfni. Þá rak bann út af bezta mann aðkomuliðsins fyrir litl ar salur. I' Það er engin ný bóla, að svona hlutir komi fyrir í Vest mannaeyjum Er það til skammar livernig þessu er háttað þar, og vonandi að Eyjamenn stingi á kýlinu hið fyrsta, svo lið sem sækja þá beim, þurfi ekki alltaf að bera þeim jafn illa söguna Það er ekki langt síðan að einn Eyja- dómarinn gat ekki skrifað und ir skýrslu að leik loknum, því hann hafði gleynit gleraugun- um sínum heiina! — Laugardagur 24. júlí 1971 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.