Alþýðublaðið - 18.12.1971, Qupperneq 9
^ÍÍÍBM-Eglí)]
GJMIÖI)
& 'tcvtœm
Útg. Alþýðuflokkurinn
Ritstjóri:
Sighvatur Björgvinsson
v ■ igin.wmirmTrm mm -■■■
ÞEIR FELA ...
Það var ekki að ástæðulausu, sem rík-
isstjórnin dró að sýna tilögur sínar í
sbattamálunum þar til eftir að verka-
lýðsfélögin höfðu gengið frá langtíma-
samkomulagi við vinnuveitendur.
Skattafrumvörpin tvö, sem ríkisstjórn
in hefur lagt fram hafa það í för með
sér, að skattbyrðin verður stórkostlega
þyngd á öllum almenningi í landinu.
Þegar er vitað, að ríkisstjórnina vantar
a. m. k. hátt á annað þúsund millj. kr.
til að ná saman endum í fjárlögum og
það fé ætlar hún að sækja til almenn-
ings í landinu með því að stórhækka
skatta.
Umrædd frumvörp tvö gera, auk
skattahækkana, ráð fyrir verulegum
breytingum á skattgjöldum landsmanna
innbyrðis. í meginatriðum eru breyting-
arnar á þá lund, að annars vegar fær
fólk með lágar tekjur nokkra skatta
lækkun og ber að fagna því. Miklu alvar
iegra er hitt, að toppurinn af hátékju-
fólkinu fær verulega skattalækkun.
Frumvörp ríkisstjórnarinnar i skatta-
málunum gera því ráð fyrir, að hátekju-
fólk fái skattalækkun og meginþorri al-
mennings, fólkið sem er á tekjubilinu
frá 350 þús. upp í um 800 þús., taki á
sig hátt á annað þúsund milljónir í aukn
um sköttum. Það var von, að ríkisstjórn
in vildi fela þessar tillögur sínar þar til
eftir að verkalýðsfélögin væru búin að
undirrita samninga.
... SEM STELA
En það var einnig önnur ástæða og
enn alvarlegri, sem var fyrir því, að
ríkisstjórnin geymdi skattatillögur sínar
fram yfir kjanasamninga. Þær eru nefni-
lega einn liðurinn í þeirri ráðagerð
stjórnarinnar, að stela af verkafólki 3,7
vísitölustigum, — nær allri kauphækk-
uninni, sem um var samið. Þetta fram-
kvæmir ríkisstjórnin með vísitöluskolla
leik af ómerkilegasta tagi, sem leiðir til
þess, að um næstu áramót mun verð
landbúnaðarafurða hækka um 350 m.
kr. í heildina til án þess að launþegar
£ái hækkunina á nokkurn hátt bætta
með hækkun kaupgjalds.
Þessar ráðstafanir sem ríkisstjórnin
hefur gert, eru hreinn þjófnaður á nœr
öllum þeim kauphœkkunum, sem verka
lýðshreyfingin hefur nýlega samið um.
Ríkisstjórnin er þarna að stela 3,7 vísi-
tölustigum af verkafólki aðeins nokkr-
um dögum eftir að verkalýðshreyfing-
in hefur náð fram hækkun á kaupi.
Þetta gerir liún með því að hœkka verð
á landbúnaðarafurðum frá næstu áta-
mótum án þess að launþegar eigi þess
kost að fá þá verðhœkkun bætta.
Fyrir litlu lesendurna
□Alþýffublaðið byrjar hér á
jólagetraun fyrir börn. Vegna
þess, að hlé varð á útkomu
blaðsins, verðum við að hafa
marg-a þætti getraunarinnar í
hverju blaði. Munum við birta
þrjá getraunaþætti í næsta
blaði og þá þrjá síðustu í því
þar næsta.
Verðlaun verða veitt einum
þeirra, pilti eða slúlku, sem
svaiar öllum þáttum getraun-
arinnar rétt og verður dregið
úr réttum lausnum. Verðlaun-
in eru leikföng að eigin vali
fyrir TVÖ ÞÚSUND KRÓNUR.
Efni getraunarinnar er mjög
einfalt. Þið eigið að svara
hvaða jólagjöf Jón eða Jóna
er að hugsa u,m á hvlerri
mynd. Svörin skrifið þið á
sérstakan seðil, sem fylgir með
hér í opnunni í hvert skipti,
sem getraun birtist. Safnið
seðlunum saman og sendið þá
til Alþýðublaðsins, Hverfis-
götu 8 — 10, Reykjavík, þegar
birtingu getraunarinnar er
lokið.
Til þess að börnin utan
Reykjavíkur geti einnig verið
með í getrauninni munum við
fresta drætti þangað til laust
eftir áramót, en skilafrestur er
til 4. janúar n.k.
Og þá er bara að byrja,
krakkar, og gangi ykkur vel!
8 Latigardagur 18. des. 1971
E972
Kodak
INSTAIHATIC X
mijndavélarnar
eru komnar
Kodak
Insfamatic
55-X
kr. 1.428.00
3 Kodak Instamatic-X myndavélar,
sem ekki nota rafhlöður við flashlampa.
Eru til stakar og í gjafakössum.
Kodak Instamatic — gjöf sem gleður.
BANKASTRÆTI 4 — SÍMI 20313
GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM 74 — SÍMI 82590
Kodak
Insfamatic 155-X
kr. 1.808.00
Kodak
Instamafic 255-X
kr. 2.779.00
HANS PETERSENt
✓
RAUN
Jón og Jóna eru að hugsa um eftirfarandi jólagjafir
á myndunum hér á síðunni:
|| MYND 1
M MYND 2
MYND 3
MYND 4
Nafn
Heimilisfang
Gleymið ekki að hafa nafn og' heimilisfang GF.EINI«
LEGT!
1
Laugardagur 18. des. 1971 9