Alþýðublaðið - 22.01.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 22.01.1972, Side 9
íþróttir — íþróttir - íþróttir - íþríóttir 4 NÝL1DAR í KSÍ ÚRVALSLIÐINU - og margt fleira á seyði um helgina □ Að venju verður mikið um að vera í íþróttunum um‘;helg- Ina. Keppt verður í knattsþyrnu, handknattleik, í horðtennis og sunði, á skíðum og í körfuknatt- leik. Það fyrsta sem er á dag- skrá, er leikur ú'rvalsliðs KSÍ og Víkings, sem fram fer á|Mela- vtllinum í dag klukkan Í4. — Vegna mikilla forfalla í landsliðs hópnum hefur Hafsteinn Guð- mundsson bætt inn 4 nýjujn leik mönnum í landsliðshópinn. Eru það þeir Steinþór Steinþörsson Breiðabliki, Gísli Torfasoii ÍBK, Ingi Bjexn Albertsson V51I, og Jón Ólafur Jónsson ÍBK. ' ur í sundi haldið í Sundhöliinni á morgun. Þá verða einnig leikir r körfu- bolta um helgina, en það er eins og körfuboltamennirnir ætli að hara þ'etta mót einungis útaf fyr- ir sig. í það minnsta hefur hvorki heyrzt frá þeim hósti né stun,a í sambandi við fslandsmótið, og er íþróttasíðunni því ekki kunnugt um það hvaða leikir vexðia um heigina. — Hafsteinn einvaldur varð að bæta 4 nýliðum í landsliðshópinrí. Mikill fjöldi leikj,a fer fram í handknattleik um heigina, eða alls 27 leikir. Á Akureyri keppir Stjarnan við Þór og KA á laug- ardag og sumniudag, og á eúnmiu- daginn verða 16 leikir í yng.ri flokkunum í Laugardalshöllinni. Keppnin þar hefst klukkan 13. í Hafnarfirði fara fram 6 leikir, þaraf einn í 1. deild kvenna milli IJMFN og Breiðabliks. Keppn- in þar hefst klutokan 15. Á sunnudagskvö'ld klukkan 20,15 verða leiknir tveir leikir í 1. deild. Fyrst keppa ÍR og Fram,, og síðan FH og KR. Þietta em leikir s!sm erfitt er að henda reiður á, því þeir g'eta farið á hvorn veginn se.rn er. Á undan þessum leikjum, klukkan 19, fer fram mikilvægur leikur í 2. deild milli Þróttar o,g Gróttu. í dag klukkan 16 fer fram fyrsta stóra borðtennismót vetr- arins, Arnarmótið. Fór það fram í Laugardaishöllinni, og eru þátt— tatoendur 33. Reppf er pm vegieg' an verðlaunagrip. Á morgun kl. 14 hefst svo hið árlega Mullers- mót á skíðum, við Skíðáisfcálann í Hveradölum, og einnig verðuf Un glingameistaramót Reykj•avík Nú er völ á æfingapró- grammi fyrir golfiðkendur O Nú í vetur hefur ein af heilsuræktaTstöðvum borgar- innar fitjað upp á þeirri nýj- ung að bjóða upp á sérstakt æfingaprógram fyrir golf- menn. Heilsuræktarstofa Ecldu sem er til húsa að Brautar- holti 22 (á horni Nóatúns og Brautarholts) býður nú upp á prógram, er Gary Player, hinn þekkti meistari frá S,- Af’iíku, hefur samið. Eg hef kynnt mér þetta kerfi nokkuð í bók Player „Positive Golf“ og virðist það hafa stuðláð mjög að stöðugum og öruggum árangri hans í atvinnumennsk unni. Áherzla er lögð á mikilvægi þess, að sippa, hjóla og styrkja vöðva í baki og hand leggjum með léttum lyftinga- tækjum. Hér á Iandi sem og annars staðar í No'rðurálfu er ávallt talsvert hlé á golfiðk- Un að vetrinum, en ekki er þar með sagt að hlé þurfi að gera varðandi almenna Iíkams- þjálfun, þótt veðurguðirnir banni golfleikinn utan húSs. Þetta framtak Eddu e'r mjög vel þegið af golfmönnum á öllu Faxaflóasvæðinu, enda engin föst æfingaaðstaða til áður. Golfklúbbur Reykjavík- ur hefur jafnan boðið félögum sínum og öðrum áhugamönn- um upp á að slá í net, ýmist í golfskálanum í Grafarholti eða í Suðurveri. Því miður hafa fáir golfmenn notað sér þetta en nú ættu að skapast möguleikar til að stunda æf- ingarnar hjá Heilsuræktar- stofu Eddu og slá síðan í net. Gary Player hefur alltaf lagt ríka áherzlu á að golf- menn verði að þjálfa fætur sína vel. Úthaldsleysi háir golf mönnum oft hér á landi og vill margt fara úrskeiðis í golf leiknum, ef fæturnir gefa sig', t.d. í strangri keppni 4 daga í röð, eins og í íslandsmóti. — Göngutrimm og það að sippa á hverjum degi heldur fótun- um í þjálfun. Enginn fastákveðinn æfinga tími er í Heilsuræktarstofu Eddu fyrir goifmenn. Opnun- artímar -yru sem hér segir: fyr ir karla þriðjudaga, og fimmtudaga kl. 16.30—21.00 ennfremur frá kl. 9.00 — 16.00 á laugardögum, Fyrir konur; mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 16.30—21.00. Menn geta komið, hvenær sem er á áðurnefndum tímum og æft samkvæmt þessu kerfi eftir geðþótta hvers og eins. Heilsuræktarstofa Eddu býð- ur öllum áhugamönnum um golf að reyna, hvernig þessi þjónusta er og er fyrsti tím- inn ókeypis. Hægt er að kaupa kort, sem gilda í mánuð eða lengur við mjög vægu verði. Tilsögn og leiðbeiningar, af- not af æfing-atækjum auk gufu baðs er allt innifalið í verði æfingatímanna. Ég vil endregið hvetja alla golfmenn á Faxaflóasvæðinu til að færa sér þeisSa þjónustu í nyt nú í vetur. Ef vel geng- ur verðum við að öllum líkind um þessarar þjónustu aðnjót- andi framvegis. Að lokum vil ég minna golfara og aðra á- hugamenn á að skokk er iðkað frá golfskálanum í Grafarholti alla sunnudaga í vetur kl. 10.30 árdegis. — E. G. íþrqtrir. - íþróttir - íþróttir - íþróttir - TILKYNNING Frá Iryggingastofnun ríkisins Vegna laga nr. 96/1971, um breyting á l'ög- um um almannatryggingar nr. 67/1971, sem tóku gildi 1. janúar s.l., viljum vér vekja athygli á eítirfarandi: TRYGGING LÁGMARKSTEKNA ÖRYRKJA OG ALDRAÐRA Elli- og örorkulífeyrir er nú 77.616 kr. á ári fyrir eiu- stakling og 139.704 kr. fyrir hjón, sem bæði njóta elli- eða örorkulífeyris. Skylt er þó að tiyggja einstaklingi, sem þessara bóta nýtur 120 þús. kr. árstekjur og hjónum 216 þús. kr., ef þau hafa e'kki aðrar tekjur til viðbótar íryggingalbótum sínum, svo að þessu tekjumarki verði náð. Rétt er þeim. sem telja, ,sig ko,ma til greina um hækkun bóla samkvæmt þessu að snúa sér til tryggingaumboð- anna eða í Reykjavík til Jífeyrisdeildar Tryggingastofn- unar ríkisins og láfai skrá sig, svo kannað verði, hvorí réttur til hækkunar bóta er fyrir hendi. Rétt er að geth þess, aó greiðsla bótahækkana sam- kvæmt þessu getur varla hafizt fyrr en í marz, þar sera, úrskurð um bótahajkkun verður m. a. að byggja á nýj- um skattskýisluim Hækkanir verða hins vegar látnar gilda frá 1. janúair s.l. BARNALÍFEYRIR, í umræddum lögum segir m.a„ að barnalífeyrir sé greiddur með börnum yngri en 17 ára, e'f annað hvort íoreldra er látið eðá örorkulífeyrisþegi. Séu báðir for- eldrar látnir eða öroi'kulífeyrisþega.r, skal greiddur työ- faldur barnalífeyrir. Hér er um efíirtalin nýmæli að ræða: a) Áður var greiddur barnalífeyrir vegna örorku föð- ur, nú er einnig greiddur barnalífeyri vegna ör- orku móður og ívöfaldur barnalífeyrir, ef bæði eru öryrkjar. b) Áður var um að ræða heimrld til greiðslu á tvc- földu,m barnalífeyri vegna munaðarlausra barna, og ef ainnað í'oreldri var Iátið, en hitt öryrki, nú er það skylt. Ennfremur eru í Iögunum nýmæli um heimild til greiðslu barnalífeyris með barni manns, sem sætir gæzlu eða refsivist í a. m. k. þrj'á mánuði og með börnum, sem ekki reynist geriegt að feðra og skulu þá fylgja málskjöl varðandi faðernismálið með umsókninni. BARNSMEÐLÖG. Barnsmeðlög verða frá 1. janúar s.l. greidd til 17 ára aldurs. Af því leiðir, að vegna þeirraj barna, sem nú eru 16 ára og hætt var að greiðá meðlög með á s.l. ári, verð- ur aftur byrjað að greiða ,meðlög með frá 1. janúar s.I. og bar til þau verða 17 ára. BÆTUR VEGNA FRÁFALLS MAKA. Ekkjum hafa verið grekldair sérstakar bætur í 6 mán- uði eítir fráfall maka síns og nokkru lægri bætur 12 mánuði í viðböí, ef þær hal'a börn á framfæri. Nú verðá þessar bæíur greiddar ekklum á sanra hátt og ekkjum Rétt er þeim, sem telja siig eiga rétt til trygg ingabóta eða hækkunar á tryggingabótum samkvæmt framanrituðu, að snúa sér til tryggingaumboðanna eða í Reykjavik til líf- eyrisdeildar Tryggingastofnunar ríkisins og ganga frá utasóknum. Veitt verðú1' nauðsyn' leg aðstoð við útfyllingu eyðúblaða. Reykjavík, 19. janúar 1972 TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Laugardagur 22. janúar 1972 9

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.