Alþýðublaðið - 15.03.1972, Blaðsíða 12
[alþfðuj
■ilEisnsi
SKEIÐARARHLAUPIÐ
ENGINN
ASIÁ
ÁNNI
— Ain vex ákaflega hægt og
rólega og er ekkl meira en
sumarvatn í henni ennþá, en ég
býst við að hlaupið nái hámarki
um næstu helgi eða næstu viku ,
sagði Ragnar Stefánsson bóndi i
Skaftafelli I Oræfum, er Alþýðu-
biaðið hringdi i hann I gær til að
frétta af iiðan Skeiðarár.
Eins og komið hefur fram
i fréttum, hefur Skeiðará hagað
sér undarlega undanfarna daga,
og hafa kunnugir gert sér i
hugarlund, að hún sé að búa sig
undir hlaup, jafnvel nokkuð stórt,
þvi nú er liðið sex og hálft ár frá
siðasta hiaupi, en það er jafn
Iangur timi og leið fram til stóra
hlaupsins 1954.
i simtaiinu við Ragnar
spurðum við hann einnig hvort
ekki sé óvanalegt að jökulhlaup
verði á þessum árstima, og
svaraði hann þvi til, að hlaupin
hafi orðiö á öllum tiinum árs. —
Ef litiö er aftur I aldir, sagði
hann, má sjá, að hlaup hafa
sjaldnast verið i desember, en
oftast i júni-júll, en þaö er ekkert
samband á milli tiðarfars og
jökulhlaupanna.
Ragnar sagöi aö engir visinda-
menn væru komnir austur, enda
heföu þeir lítið þangað að gera
enn. Þó höfðum viö fregnir af þvi
að Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður hygðist ieggja af stað
austur að Skeiðará i morgun, og
hafði hann iátið þau orð falla, að
nú heföi gerfitunglið þurft að vera
komiö á loft — það væri einmitt
verkefni fyrir það aö fylgjast meö
vexti árinnar I aðdraganda
hlaupsins.
BÆNABANNIAFLETT *
RUTH heitir kona Billy
Grahams. Hún er fædd i Kina.
Einnig hún stjórnar bæna-
samkomum.
Nú þegar hinn góði vinur fjöl-
skyldunnar, Nixon forseti, hefur
breytt um afstöðu gagnvart
Kina — hefur hún einnig breytt
sinni guði þóknanlegu afstöðu.
Hún tilkynnti þar sem 7000
manns voru saman komin á
fundi i Chicago að nú væri bezt
að biðja lika fyrir hippunum og
svo fólki eins og Angelu
Davies, Chou og Mao.
VAHTAR KETTI A MNG +
INNRASARHER músa er aö verður tekið fyrir á pingi I
leggja undir sig brezka þing- þessari viku.
húsið. Þingmenn eru svo ihaldsþingmaður nokkur,
áhyggjufullir yfir herskörum Joseph Kinsey að nafni, hefur
músanna, sem hafa komið sér látið svo ummælt, að hann vilji
fyrir i löngum skuggsýnum fá volduga sveit katta staðsetta
göngum þinghússins, sem er i húsinu til að halda músa-
meir en aldar gamalt, að málið fjöldanum niðri.
HVERSKONAR
HROSSAKAUP
ERU ÞETTA?
Nú biða fjórir flugvélafarmar
af hrossum, eða 160 stykki, eftir
flugfari út, en Fragtflug h/f,
sem hingað tii hefur flutt út
talsvert af hrossum, telur sig
ekki geta staðið undir þessum
flutningum, nema sá varn
ingur, sem félagiö flytur
hingað heim, fái sömu tollameð-
ferð og vörur, sem koma með
Ftugfélaginu og Loftleiöum.
Fjármáiaráðherra hefur mái
þetta til meðferðar, en
afgreiðsla þess hefur dregist
svo að Magnús Ingvarsson hjá
SÍS taldi, er blaðið átti viðtal við
hann i gær, að erlendu
kaupendurnir mundu i stórum
stil rifta hestakaupunum, ef
máliö yrði ekki afgreitt i þessari
viku.
Eins og blaöiö hefur áður
skýrt frá, er nýkomin reglugerö
um hestaflutninga og er þar
bannað að flytja hross út með
skipum nema á timabilinu frá 1.
júnl til 1. október.
Hins vegar má flytja hesta
meö flugvélum allan ársins
hring.
Aö undanförnu hefur hrossa-
útflutningurinn verið að dreifast
ÞARFASTI
MÚNNINN I
FERDABANNI
meir og meir á allt árið, og
sagöi Magnús, að það væri
samkvæmt óskum erlendra
kaupenda.
Fari nú hins vegar svo, að
loftflutningar ieggist niður og
aðeins verði hægt að flytja hrAss
með skipum yfir sumarmán-
uöina, munu t.d. tveir erlendir
kaupmenn, sem hafa keypt 80
hross hér að undanförnu, þegar
rifta kaupunum, þvi að þeir
vilja fá hrossin út fyrir páska,
annars ekki. —
Magnús sagði, að hlutí hross-
anna væri þegar kominn til
Reykjavikur, og nú hlæðist upp
kostnaður við hirðingu þeirra og
fóðrun, og drægist svar ráö-
herra enn, gæti svo fariö aö StS
yröi einnig að rifta sinum
kaupum.
STRÍDIÐ STENUUR UM
TOLLAMEÐFERDINA
FJÖLSKYLDU
TÖNLEIKAR
Sinfóniuhljómsveit isiands efnir
til fjölskyldutónleika I Háskóla-
blói næstkomandi sunnudag kl.
3 siödegis. Þetta eru seinni fjöl-
skyldutónleikarnir á þessum
vetri. Hljómsveitarstjóri veröur
Páll Pampichier Páisson, og
efnisskrá tónleikanna verður:
Forleikur að óperunni Hans og
Gréta eftir Humperdinck,
þættir úr ballettinum Þyrnirósa
eftir Tjaikovsky, Myndir á
sýningu eftir Mússorgsky (tvær
myndir), tónlist úr Fiðlaranum
á þakinu eftir Jerome Bock og
sænsk rapsódia eftir Hugo Alf-
ven.
SKEMMDARVARGAR
Þrir strákar á aldrinum 12 til
13 ára, brutust inn i verkstæði
við skipasmiðastöðina Dröfn
um helgina.
Þar inni voru tveir biiar, og
settu strákarnir þá báða i gang
og fóru að aka um verkstæðið.
Inni er þó Htið svigrúm, svo að
þeiróku afturábak og áfram um
verkstæðisgólfið, og létu vegg-
ina ráða lengd ökuferðanna.
Annar biliinn er kranabill, og
hvað sem þeir hafa ætlað að
hifa, þá settu þeir iyftiútbúnað-
inn i gang og skemmdu hann.
Báðir bilarnir skemmdust
eitthvað, svo og ýmisiegt iaus-
legt inni á verkstæðinu og stór
hurð.
Ra nnsókn a rlögre gla n i
Hafnarfirði hafði upp á strákun-
um I gær, og viðurkenndu þeir
brotið.-
FRAMTIÐIN í
SKOLAMALUM
Siðari hluti ráðstefnu Félags
háskólamenntaðra kennara um
framhaldsskóla framtiðarinnar
og tæknimenntun fer fram I
ráðstefnusal Hótei Loftieiða
næstkomandi iaugardag og
hefst kl. 14. Þá munu starfs-
hópar skila áliti, en slðan verða
aimennar umræður. Gert er ráð
fyrir aö gengið verði frá álykt-
unum ráöstefnunnar sama dag.
LÖGGAN
FÆRIR ÚT
KVÍARNAR
Þaðer „verbúöalif”, hjá fleir-
um I Þorlákshöfn en sjómönn-
unum, þvi aö lögreglan á
Selfossi hefur komið þar upp
lögregluvarðstofu með sima og
öllu tilheyrandi, og veröur hún
starfrækt á meðan á vertiö
stendur.
Jón Guðmundsson, yfirlög-
regluþjónn á Selfossi, sagði i
viðtali við biaöið I gær, að þetta
væri samkvæmt ósk ibúanna i
Þorlákshöfn, þar sem margt aö-
komumanna væri þar um ver-
tiðina, og væru þeir stundum
með drykkjulæti eöa önnur
vandræði.
Jón sagði að varðstofan virtist
bera tilætlaðan árangur, þvi að
það sem af er vertiðinni, hefur
verið með eindæmum róiegt i
Þoriákshöfn,-
EBE BYDUR
HLUNNINDIEF..
Samkvæmt fréttatilkynningu
viðskiptamálaráðuneytisins
neitaöi Efnahagsbandaiag
Evrópu að fallast á þá tillögu
islenzku samninganefndarinnar á
fundinum I Bruxelies, sem lauk i
gær, að sjávarafuröir og lam-
bakjöt verði aðnjótandi sérstakra
tollfriðinda ihinu stækkaöa EBE.
Þess i stað lagði EBE fram
tillögu um 50% lækkun á tollum á
isfiski og freðfiski, með þvi
skiiyrði, að islenzk fiskveiðilög-
saga verði óbreytt frá þvi sem
hún er.
islenzka samninganefndin taldi
óeðlilegt að tengja saman fisk-
veiðiréttindi og fisksöluréttindi
og visaði til ákvörðunar rikis-
stjórnarinnar og Alþingis um
stækkun fiskveiðilögsögunnar.
Ráöherraráð bandalagsins
kemur væntanlega saman I april-
lok eða maibyrjun, og tekur það
þá afstöðu til endurskoöaös til-
boðs við tsland og önnur þau
EFTA-lönd sem ekki munu gerast
aðilar aö bandalaginu.
132 MILUðN
KRÓNA LÁN
Með rúmlega 132 milljón
króna af láni, sem fengið er með
skuldabréfasölu i gegnum
Hambros banka i London, verð-
ur Hitaveitu Reykjavikur gert
kleift að leggja aðfærsluæðar úr
nýjum borholum við Reyki i
Mosfellssveit. Með tengingu
þessara nýju hola veröur unnt
að veita hita veituvatni til
Hafnarfjaröar, I Garöahrepp og
Framhald á bls. 3