Alþýðublaðið - 06.04.1972, Side 11
V
w & w J||% eftir
A VAI m vir IATTIINI 21
H JA ÍJS Arthur
H YHL .111 vll IHIIUHI llftll Mayse
Kross-
gátu-
krílið
l_'Q ^ /naLOfíúrn/rvu
r 'tl-'RT ‘ =5; PfiSbfi Dfi
ófímuL FOTTuR. BORCr
V£RIL 'R fi)KUR £yR/ 6 /
í
GEF/R SfY/R ffífíbXR D/lfiTr UFZ HLUT/
TVÍ HLJr >
Tom iN Púsft | QhNG jríor 2 •)
I) i Timfi m'oT
r» V ns< SÓmiNy 7
HRlÐUft fiN/
mmfft /nfítm LEIV/ i£RHL.
7 \
3
'U'fíT* ry/<TA mfíRK /0 END /Nú
/.YKJLORT)*- SvOL-/
b CÞ • Þ h) K
k) C: in S) Cxl 'fc N A 3 Oa %
3 \ A •n Þ 3 c; *) 3 Y-
'O A S N
k) C Þ Þ • 3 C 3
c Þ 3 3 "4
sparkar mikið frá þér i svefni, Linny! Þú beygir þig
saman og sparkar eins og skröltormur heggur. En
það er betra, að það er ég, sem fyrir högginu
verður en ekki pabbi þinn, finnst þér það ekki? ”
,,Miklu betra”. Hún var enn ekki á þvi að fyrir-
gefa honum. „Hvernig stendur á þvi, að það liggur
svona vel á þér i dag, Mike?
Veðrið”, sagði hann. ,,Ég hafði búizt við rign-
ingu. Og sjúklingnum hefur ekki versnað. Ef veðrið
helzt óbreytt, og ef leit hefur verið hafin, sem ég
reikna með, ættum við að hafa nokkuð góða mögu-
leika. Við verðum hérna einn dag i viðbót, nema
veðrið versni”.
,,Mjög viturlegt,” sagði hún i viðurkenningartón,
„sérstaklega með tilliti til þess, að við höfum engan
staðinn til þess að leita til”.
„Jú, við höfum raunar stað að fara til”, sagði
hann, ,,ef i nauðirnar rekur. Þú munt verða un-
drandi á þvi hve miklu maðurinn fær áorkað, ef
hann er neyddur til þess”. Hann brosti til hennar.
„Hefðirðu til dæmis trúað þvi, að þú hefðir getað
hlaupið hundrað metrana á tiu sekúndum?”
Hún lét sem hún tæki ekki eftir þessari athuga-
semd hans. „Þakka þér fyrir að bjarga farangr-
inum okkar, Mike, og fyrir að hafa gert við skóna
mina. Mér finnst leiðinlegt hve ég hagaði mér
kjánalega áðan. Ég veit ekki hvað gekk að mér!”
„Ég veit það”. Hann klappaði henni á öxlina.
„Það voru áhrif ósnortinnar náttúru á hinn sið-
menntaða mann. Þetta sýnir bara, að þú ert miklu
viðkvæmari en ég. Viðkvæm, siðmenntuð. Þannig
ertu einmitt, Linnea”.
„Hættu að kalla mig Linnea... Áttu við, að þér
hafi aldrei liðið eins og mér?”
„Einu sinni fann ég fyrir þessu sama”. Hann lét
múrmeldýrið slást i fæturna á sér og kærði sig koll-
óttann um blóðið, sem draup af þvi. „Þetta er dá-
litið, sem getur komið fyrir hérna, fjarri manna-
byggðum. Ég fann stundum fyrir þessu á ferðum
minum með Ves Jones, sem ég hef sagt þér frá. En
hve ég vildi, að Morg hefði getað hitt hann. Þeim
tveim hefði örugglega komið ágætlega saman”.
„Hvað hefði gerzt, Mike, ef ég hefði verið ein-
sömul?”
„Þú hefðir jafnað þig á þessu. Þú mundir hafa
tekið á þig rögg og sagt við sjálfa þig: Heyrðu mig
nú, þetta gengur ekki! Það er fyrst, þegar manni
finnst lækirnir tala, að hætta fer að vera á ferðum,
eða þegar manni finnst að maður hafi ferðafélaga,
þar sem enginn er, t.d. Parisarmódel i háhæla-
skóm”.
Hann hætti að tala, en hún var byrjuð að gera sér
mynd af honum. Henni likaði ekki hvernig þessi
Parisarkynbomba kom inn i frásögnina hans.
Þetta var vel valinn timi fyrir flugvél að fljúga
yfir þau. Flugvélin kom úr suðri og hún glitraði i
sólskininu. Þau horfðu á hana án þess að segja orð,
þar til hún hvarf á bak við há fjöll Maxada-
svæðisins.
„Heldurðu að þeir hafi komið auga á okkur? Á
eldana á ég við?”
„Ef þeir hafa séð okkur, ættu þeir að snúa við.”
Tónninn i rödd hans gaf til kynna, að það hefði ekki
haft ýkja mikil áhrif á hann að vera minntur þannig
á umheiminn. „Ertu búin að borða morgunmat?”
„Aðeins forréttinn. Á eftir ætla ég að fá mér reykt
svinsflesk og egg og ristað brauð með smjöri.”
„Eitthvað meira?”
„Appelsinusafa, vöflur og pulsu.” Þessi flugvél
varð að snúa við. Hún reyndi að beita huganum við
að fá hana til að snúa við. „Og kaffi. Ég vil hafa það
svart.”
„Hveitilim,” sagði hann. „Fjárinn, hafi það, ég á
við hafragraut.”
Þau brostu hvort til annars. Gamall maður,
tuttugu og fjögurra ára, og hæglát stúlka, tveim
árum yngri. Þeim kom vel saman núna.
En þokan i suðvestri varð þéttari og silfurlita
flugvélin sneri ekki við.
Þegar þau komu til baka rótaði Morgan Halsted i
skjalatöskunni sinni, sem Linn hafði sett við hliðina
á honum. Hann leit upp til þeirra með rafmagns-
E UNGIR MENN FRÁ CHICAGO
íramburði um æsku og kringum-
stæður varðandi glæpinn. Æskan i
sjálfu sér, er þvi aðeins mikilvægt
atriði, vegna þess að hún hefur
áhrif á sálarástandið”.
I svari sinu lýsti Crowe þvi yfir,
að annað hvort þekktu sakborn-
ingarnir muninn á réttu og röngu,
eða alls ekki. Staðreyndirnar
sýndu fyrirfram ákveðið,
grimmúðlegt og lostafullt morð
án nokkurra mildandi kringum-
stæðna. Réttlætið og yfirþyrm-
andi almenningsálitið legðu sér á
herðar að krefjast þyngstu refs-
ingar, til að varna þvi að milljón
dollarar gætu bjargað lifi tveggja
samvizkulausra morðingja.
Darrow hrópaði:
,,Mér virðist, að ef ég gæti
nokkurn timann komið mér til að
krefjast dauðarefsingar, þá ætti
ég ekki að gera það i hroka, eða
með gleði, eða i reiði eða með
hatri, heldur ætti ég að gera það
með dýpstu eftirsjá yfir að svo
þurfi að vera og að ég ætti að gera
það i samúð með þeim, sem taka
ætti af lifi. Það hefur ekki verið
gert i þessu máli. Ég hef aldrei
orðið vitni að eins ákveðinni til-
raun til að gera mannlegt sam-
félag að öskrandi villidýrum og
notfæra sér allt sem boðizt hefur,
til þess að skapa ógrundað hatur i
garð þessara tveggja drengja”.
Carverly dómari tilkynnti að
hann myndi hlýða á þann vitnis-
burð, sem vörnin óskaði eftir.
Bardaginn fyrir lifi Leopolds og
Loebs var hafinn. Sálarlif þeirra
var rannsakað af fremstu geð-
læknum Bandarikjanna og bak-
grunnur þeirra dreginn fram i
dagsljósið, mældur og veginn. Lif
þeirra beggja, allt frá þvi þeir
voru i vöggu og jafnvel allt frá
getnaði, var sett undir smásjána.
Fyrst reyndi ákæruvaldið að
sanna hvert stig glæpsins, til að
sýna fram á að hann hefði verið
framinn að yfirlögðu ráði og að
kæruleysi sakborninganna gagn-
vart þeim verknaði, sem þeir
höfðu framið, útilokaði alla rétt-
lætingu á miskunn. Leidd voru
áttatiu vitni og meðal þeirra
prófessor i lögum við háskólann i
Chicago, sem bar, að daginn eftir
morðið hafi Leopold rökrætt við
sig um imyndaðan glæp, þar sem
kom fyrir mannrán til lausnar-
gjalds. Skýrslusérfræðingar lýstu
þvi yfir að fjárkúgunarbréfið og
vinnubókarblöðin hefðu verið
skrifuð á sömu ritvél, þá sem var
i eigu Leopolds. Vinir og skólafé-
lagar beggja piltanna rifjuðu upp
hegðun þeirra og tal. t vitna-
leiðslu, sem stóð i átta daga, fletti
ákæruvaldið ofan af hverju smá-
atriði glæpsins. Læknar lýstu þvi
áliti sinu, að Bobbie Franks hefði
verið misboðið kynferðislega af
kynvillingum. A hverjum morgni
las heimurinn eitthvað nýtt og
ógeðslegt um Leopold og Loeb.
Og eftir þvi sem hin hryllilega
saga þróaðist, margfölduðust
kröfur almennings i Banda-
rikjunum, um að slik skrýmsli
ætti að hengja.
III
Spurningin um það hvort
Leopold og Loeb hafi verið rétt-
laus skrýmsli, eða svo jafnvægis-
lausir á geði að það hafi skaðað
ábyrgðartilfinningu þeirra, hefur
verið til umræðu og álita i ótelj-
andi bókum og blaðagreinum.
Arið 1924 rannsökuðu sex geð-
læknar þá fyrir vörnina og fjórir
þeirra báru vitni fyrir réttinum.
Akæruvaldið mótmælti heiftar-
lega vitnisburði þeirra og fékk
þrjá lækna frá Chicago til að
vitna á móti þeim. Hinir sex sér-
fræðingar varnarinnar voru: Dr.
H. S. Hulbert, sem hafði starfað
við Rockefeller stofnunina, Dr.
Karl Bowman frá Bloomingdale
sjúkrahúsinu i New York og fyrr-
um fyrirlesari um geðræna sjúk-
dóma við Harvard háskólann, Dr.
W. A. White yfiriæknir við St.
Elizabeth geðsjúkrahúsið i
Washington D.C., Dr, William
Healy frá Judge Baker stofnun-
inni i Boston, Dr. Bernard Glueck
yfirlæknir við geðdeild sjúkra-
húss Sing Sing fangelsisins og Dr.
Ralph Hamill frá Chicago.
Læknunum kom saman um að
báðir piltarnir hefðu orðið fyrir
áhrifum af fóstrum sinum. Fóstra
Loebs hafði verið alltof ströng og
til þess að fara á bak við hana,
hafði hann komizt upp á lag með
að ljúga af óskammfeilni og af
talsverðri leikni, þannig að ekki
komst upp um hann og hann slapp
við refsingu og án þess að hann
sæi eftir þvi hið minnsta. Þegar
hann var tiu ára fór hann að
dreyma órakennda dagdrauma
og suma þeirra hvað eftir annað.
Hann imyndaði sér sjálfan sig
sem „meistara-glæpahugsuð
aldarinnar” svo útsmoginn i
skipulagningu glæpa, að hann
gæti séð við mestu leynilögreglu-
mönnum heimsins. Hann imynd-
aði sér sjálfan sig fremja dásam-
iegan glæp, sem myndi valda um-
róti um allt landið og aldrei kom-
ast upp. Hann framdi ýmis smá-
afbrot, sem veittu honum mikla
fullnægju.
F'óstra Leopolds hafði sýnt hon-
um sjálfa sig á dónalegan hátt.
Hún hvatti har.n til að stela, til
þess að geta beitt hann kúgun og
hún kom inn hjá honum afbrigði-
legum hugmyndum um rétt og
rangt, sem honum siðan fannst
eðlilegar. í skólanum skar hann
sig úr og öðrum drengjum fannst
hann óvenjulegur og hann tók
brottfararpróf á ungum aldri
með háum einkunum. 1 Loeb fann
Leopold gáfur, sem hann áleit
æðri sinum eigin og honum varð
ógerningur að lifa án vináttunnar
við hann. Hann varð þræll Loebs
og fús til að vinna með honum að
hvaða afbroti sem var, þvi það
væri það gjald, sem hann yrði að
greiða fyrir vináttuna. Piltarnir
tveirbættu hvorannan upp. Hvor
um sig var reiöubúinn að takb
þátt i órum hins. Hugarórar
þeirra voru mjög ólikir, en þeir
þurftu hvor á Öðrum úð halda til
stuðnings. Aðalórar Leopolds
voru að hann væri þræll konungs
og hann setti Loeb i konungshlut-
verkið. Þjófnaðarnir og afbrotin,
Sögufræg sakamál -
Fimmtudagur 6. apríl 1972
o