Alþýðublaðið - 15.04.1972, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.04.1972, Blaðsíða 5
Utgáfufélag Alþýöublaðsins h.f. Ritstjóri (áb.). Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8-10. Sighvatur Björgvinsson Blaðaprent h.f. ARAS A NEYTENDUR Rikisstjórnin hefur heldur betur sent neytendum kveðjur sinar i frumvarpi til laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins og verðlagningu landbúnaðar- afurða. Fyrst hyggst rikis- stjórnin svipta neytendur mikilsverðum rétti til þess að hafa áhrif á verðlagningu land- búnaðarafurða, en siðan ráð- gerir hún enn nýjar álögur á neytendur með landbúnaðar- vöruverðshækkun, og eiga þær álögur að standa undir endur- nýjun á fra mleiðslutækjum landbúnaðarins. i fjöldamörg ár hafa neytend- ur á islandi fengið að hafa ihlut- unarrétt um verðlagningu á landbúnaðarafurðum. Verka- lýðssamtökin i landinu hafa átt fulltrúa i nefnd þeirri, sem um verðlagningarmálin hefur fjall- að og enda þótt verðlagsþróunin hafi orðið mjög óhagstæð fyrir neytendur landbúnaðarafurða, þá er enginn vafi á þvi, að full- trúar neytenda i verðlagsnefnd- inni hafa iðulega getað komið i veg fyrir allt of ócðlilega miklar verðhækkanir á þessari þýðingarmiklu neyzluvöru islenzkra heimila. A.m.k. hefur vera neytendafulltrúanna i nefndinni orðið til þess, að sjónarmið neytendanna hafa komið þar skýrt fram. íslenzkur landbúnaðarafurðir eru í hópi allra þýðingarmestu neyzluvara hverrar fjölskyldu. Verðlag þessarar vörutegundar hefur geysimikil áhrif á afkomu heimilanna. Stórkostlegar verð- hækkanir hafa orðið á landbún- aðarafurðum öll undanfarin ár,- m.a. tvær miklar hækkanir á aðeins röskum þrem fyrstu mánuðum ársins 1972. Neyt- endur landbúnaðarafurða hafa þvi átt i vök að verjast i verð- lagningarmálunum. Hinar miklu verðhækkanir landbúnaðarafurða hafa glögg- lega leitt i Ijós, að núverandi verðlagningarkerfi hefur gengið sér til húðar. Breytingar voru þvi nauðsynlegar. En þær breytingar átti að gera i þá átt, að neytendur öðluðust meiri áhrif á verðlagningarmálin. Það er ekkert, sem réttlætir það, að áhrif neytenda á þau mál séu skert frá þvi, sem verið hefur. En þaö er einmitt það, sem rikisstjórnin hyggst gera. Hún hyggst ekki aðeins skerða áhrif neytenda, heldur afnema þau með öllu. i frumvarpi ríkis- stjórnarinnar er gert ráð fyrir þvi, að eftirleiðis eigi neytendur engan fulltrúa i verðiagsnefnd landbúnaðarafurða og hafi þar af leiðandi engin áhrif á verð- lagningu þeirra afurða. Bændur eiga skv. frumvarpi rikisstjórn- arinnar aö semja um þau mál við rikisstjórnina eina. Neyt- endum er gersamlega „kúplað” frá. Þessar fyrirætlanir eru ein- hverjar þær grófustu árásir á ré'tt og hagsmuni islenzkra neytenda, sem rikisstjórnin hef- ur gert sig seka um,- og hefur hún þó þar vel að verið. Þessari árás hljóta Neytendasamtökin og verkalýðssamtökin að mót- mæla harðlega. Auðséð er, hverjir þarna hafa ráðið ferðinni innan rikisstjórn- arinnar, en það er furðulegt, að fyrrverandi forseti Alþýðusam- bands islands, Hannibal Valdi- marsson, skuli láta hafa sig til þess að samþykkja slika aðför að hagsmunum verkafólks og annarra neytenda landbúnaðar- afurða i þjóðfélaginu. En bæði hann og samráðherrar hans úr Samtökum frjálslyndra og Alþýðubandalaginu virðast ekk- ert athugavert sjá við það, þótt verkalýðssamtökin og þar með islenzkir neytendur séu svipt öllum áhrifum á verðlagningu landbúnaðarafurða á islandi. Þeir flytja með ráðherrum F ra m sóknar f lokks ins laga- frumvarp, sem beinlinis hefur það markmið að svipta neyt- endur mikilsverðum réttindum og fyrrverandi forseti Alþýðu- sambands íslands lýsir sig sam- þykkan því, að fulltrúar verka- lýðshreyfingarinnar séu reknir með lögum úr nefnd, sem ákveða á verðlagið á þýðingar- mestu neyzluvörum alþýðu- heimilanna. Er það á þennan hátt, sem kommúnistar og frjálslyndir hyggjast gæta rétt- inda verkafólksins i landinu? ÞETTA ER OF LANGT GEHGI En rikisstjórninni þykir ekki nægilega að gert með þvi að neytendur séu sviptir svo mikil- vægum réttindum. Fleiri „góð- gerðir” á hún handa þeim i pokahorninu. i umræddu frumvarpi bein- linis skipuleggur rikisstjórnin þriðju landbúnaðarvöruverðs hækkunina. Og til hvers? Til þess að láta neytendur bera a 11- an kostnaðinn af endurnýjun á framleiðslutækjum bænda. Ráðgert er að verja miklu fé til þess að endurbæta sláturhús og mjólkurbú. Undir slikum kringumstæðum er það venjan, að viðkomandi atvinnugrein standi sjálf undir slíkum kostn- aði, en njóti lánafyrirgreiðslu og annarrar fjárhagsaðstoðar hins opinbera. En þannig er ekki ætlunin að endurnýja þessi framleiðslu- tæki landbúnaðarins. Bændur eiga engan kostnaö af þvi að bera. Neytendur eiga ða borga brúsann! Fjárins á að afla með þvi að hækka landbúnaðaraf- urðir i verði einu sinni enn! Eins og öllum er kunnugt þarf hraðfrystiiðnaðurinn að leggja út i gifurlegan kostnað við um- bætur og endurnýjun hrað- frystihúsa, svo þau standist ströngustu kröfur erlendra fisk- innflytjenda. Þessa fjármuni þarf hraðfrystiiðnaðurinn vita- skuld sjálfur að leggja fram, en nýtur til þess lánafyrirgreiðslu og annarar aðstoðar ríkisvalds- ins, eins og sjálfsagt er. Engum hefur hins vegar dottið i hug að láta þá islendinga, sem borða fisk, borga brúsann með þvi að fiskverðið innanlands sé hækk- að. En það er nákvæmlcga þess konar afgrciðsla, sem rikis- stjórnin ætlar að hafa á i sam- bandi við endurnýjunina á framlciðslutækjum land- búnaðarins. Fólkið, sem borðar kjöt, smjör og osta og drekkur mjólk, á að borga brúsann. Er þetta ekki einum of langt geng- ið, Halldór E. Sigurðsson? STÚRMÁL smámAl? t umræðum þeim, sem áttu sér stað á Alþingi um flugbrautar- málið á Keflavikurflugvelli, létu getið hvað eftir annað, for- . sætisráðherra og utanrikisráð- herra, að hér væri alls ekki um stórmál að ræða. Það væri smá- mál, sem hér væri á ferð, og þess vegna alls engin ástæða til þess að gera sérstakt veður út af af- greiðslu þess. Ýmsum fannst að visu, að býsna digurbarkalega væri talað, þegar framkvæmd, sem kosta mun um 500 millj. kr., er talin til smámála. Flestir munu lita svo á, að talsverðu máli skipti fyrir islenzkan þjóðar- búskap, hvort islenzka rikið verður að kosta framkvæmdina eða hvort erlendur aðili greiðir kostnaðinn. Hitt hlaut ekki siður að vekja athygli, að þegar for- sætis- og utanrikisráðherra lýstu þessari skoðun sinni á málinu, höfðu tveir samráðherrar þeirra, viðskiptaráðherrann og iðnaðar- ráðherrann, látið bóka það eftir sér á ráðherrafundi, að það væri forsenda sjálfstæðrar islenzkrar utanrikisstefnu, að þvi yrði neitað, að erlendur aðili kostaði slika framkvæmd sem þessa. Auðvitað hlýtur mál, sem slikt gildir um, að vera stórmál i augum þessara siðar nefndu ráð- herra. Það getur ekki verið, að Alþýðubandalagsráðherrarnir hafi heyrt það i fyrsta sinni á Al- þingi, eftir að málið var afgreitt, að Framsóknarráðherrarnir teldu málið smámál. Það hljóta þeir að hafa sagt i rikisstjórninni. Og fyrst þeir töldu málið smámál, gat þeim ekki verið fast i hendi, að tilboði Bandarikjastjórnar væri tekið. Enginn forsætisráð- herra lætur stjórnarsamstarf stranda á smámáli. Alþýðu- bandalagsráðherrunum hefði þvi átt að vera i lófa lagið að stöðva framgang þess, ef þeir hefðu kært sig um. Þeir gátu einfaldlega Lesendur eru beðnir velvirð- ingar á þvi, hve birting þessarar þriðju greinar um brautryðj- endur jafnaðarstefnunnar á Bretlandseyjum hefur dregist. Greinin átti að birtast i siðasta laugardagsblaði og er sú siðasta i greinaflokknum. Úndir aldamótin siðustu, eða undir lok „Viktorianska tima- bilsins”, eins og það er kallað af brezkum, urðu athuglisverð straumhvörf á Stóra-Bret landi, bæði i stjórnmálum og bókmenntum: fram á sjónarar- sviöið kom allt i einu ný kynslóð með ný viðhorf og breytta af- stöðu til vandamálanna, raunar lika önnur vandamál en undan- farnar kynslóðir. Kynslóð sem einkenndist af hagfræðilegum hugleiðingum bg áhuga á fé- lagslegum vandamálum i brezku þjóðfélagi. Hvað bókmenntirnar snerti, þá komu þessi nýju viðhorf óviða jafn greinilega fram og hjá rithöfundinum Herbert George Wells, sem fyrir örugga og skipulagða sókn á langri ævi tókst að verða einn kunnasti rit- höfundur og eignast fjölmenn- astan lesendahóp meðal ensku mælandi manna. Hann var fæddur árið 1866, og þvi tiu árum yngri en Bernard Shaw, sem hann átti eftir að kynnast i Fabian félagsskapnum árið 1903, og stóðu þau kynni eftir það meðan báðir lifðu. Foreldrar hans voru af lægri miðstétt, og heimilið var i þvi hverfi i Lundúnum þar sem skilin milli auðs og fátæktar eru hvað greinilegust. Það var eins og örlögin hefðu ákveðið að hann skyldi verða jafnaðarmað- ur, segir i ævisögu hans. Hann gerðist fyrst verkamaður, en lagði siðan stund á nám i æðri skólum og varð frábær kennari i náttúrufræðum. Ahugi hans á þeirri grein fylgdi honum alla ævi, ásamt áhuga hans á öllum samfélagsmálum. Það voru einskonar furðu- sögur, sem urðu frumraun hans sem rithöfundar, þær komu út 1895 og vöktu mikla athygli. Hann varð siðar frábær höfund- ur á þvi sviði, sem við köllum visindareifara nú, frásagnir hans báru vitni bæði hugmynda- flugi og snilli. Ahugi hans á samfélagsmál- um efldist stöðugt, og árið 1903 gerðist hann meðlimur i Fabian félagsskapnum. Menntabrag- urinn, sem einkenndi þann fé- lagsskap, átti vel við hann. Eins og áður er getið var sá félags skapur stofnaður til að marka og útbreiða stefnu jafnaðar- manna og berjast fyrir félags- legum endurbótum samkvæmt þeirri stefnu. Nafnið höfðu fé- lagsstofnendur sótt i sögu Róm- verja — Fabian Cunctator — það er Fabian hinn hikgjarni — og vildu þeir þar með gefa til kynna að þeir stefndu að hæg- fara endurbótum, en ekki bylt- ingu. Það var fyrst og fremst Sidney Webb, sem mótaði þessa raunhæfu framkvæmdastefnu, sem um langt bil átti eftir að setja svip sinn á brezka verka- lýðsbaráttu, fremur en hreinn Marxismi. Wells var upphaflega þessari stefnu fylgjandi, en reis þó gegn henni að þrem árum liðnum. Hann kvað sinn eiginn sósialisma vera allt of róttækan til að hann ætti samleið með hinum gætnu Fabians-mönnum. Einnig bar hann þeim á brýn þröngsýni i stjórnmálum. Þeir höfðu takmarkað sig við eina stétt, en þvi gat Wells ekki fylgt. Sjálfur kvaðst hann trúa á „alheimsbræðralag manna og viðurkenningu á samábyrgð allra gagnvart mannkyninu”. Yngri sagnfræðingar álita hins- vegar að ástæðan fyrir þvi að Wells sagði skilið við Fabians- félagsskapinn hafi verið sú að hann hafi verið of þvergirðings- legur og sérsinna, og eins að hann hafi smámsaman fengið öllu meiri áhuga á visindum en stjórnmálum. Komizt á þá skoðun að visindin ein gætu veitt manninum það vald sem með þurfti til að brjóta á bak aftur allt stéttaskipulag og endurbæta heiminn. Þessar skoðanir áttu og eftir að koma greinilega fram i mörgum af ritverkum hans. Wells-sérfræðingur kemst svo að orði: „Bækur hans voru eins og hornablástur, sem boðaði hinum ungu upphaf nýrrar aldar nokkru eftir aldamótin. vitnað til þess, að ráðherrar Framsóknarflokksins teldu hér vera um smámál að ræða, og þess vegna ekkert vit i þvi að láta stjórnarsamstarf stranda á af- greiðslu þess. Ef ráðherrar Alþýðubandalagsins hefðu ein- faldlega hótað að segja af sér, ef tilboðinu væri tekið, hlutu þeir að geta gengið út frá þvi, að niður- staðan yrði sú, að tilboðinu yrði hafnað, þar eð Framsóknar- flokkurinn léti ekki stjórnina sundrast vegna smámáls. En ráðherrar Alþýðubanda- lagsins lögðu ekki ráðherrastóla sina að veði. Þeir létu sér nægja að bóka. Siðan sátu þeir áfram i stólunum, hinir rólegustu, — virt- ust ekki einu sinni hafa sam- vizkubit. Framsóknarráðherr- arnir fengu vilja sinum fram- geng. Þeir fengu að svipta ts- lendinga forsendu þess, að unnt sé að fylgja fram sjálfstæðri utanrikisstefnu á Islandi. Hvað Framhald á bls. 8. BRAUTRYDIENDUR JAFNAO- ARSTEFNUNNAR IENGLANDI Hornablástur, sem gall við i heimi rykfallinna erfðakenn- inga, þar sem meirihluti lærðra kennara reyndi af alefli að troða vafasamri þekkingu sinni i nemendurna, og þar sem litið var upp til foreldranna sem Framhald á bls. 8. © Laugardagur 15. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.