Alþýðublaðið - 15.04.1972, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.04.1972, Blaðsíða 7
Fyrirtækin treg til að auglýsa á búningunum Knattspyrnufélögin vinna flest að þvi þessa dagana að verða sér út um auglýsingar á búninga leikmanna sinna, en sem kunnugt er var slik tekju- öflun heimiluð á siðasta árs- þingi KSt. Hefur komið i ljós, að fyrirtæki eru mörg treg á að auglýsa, og virðist þar margt spila inn i. Einna mesta þýðingu hefur afstaða sjónvarpsins til auglýs- inga, en sem kunnugt er hefur sjónvarpið neitað að sýna iþróttamyndir ef auglýsingar sjást á keppnisbúningum, vit- andi það að slik stefna leiði að- eins til auðnar i iþróttaþætti sjónvarpsins. Forráðamenn fyrirtækja sjá það i hendi sér að mestur aug- lýsingamátturinn er fólginn i þvi að auglýsingin birtist á sjónvarpsskerminum, og að sjálfsögðu biða þeir og halda að sér höndum i málinu meðan sjónvarpið situr við sama hey- garðshornið i málinu. Annað atriði sem áhrif hefur á málið, eru þær auglýsingar sem þegar hafa birst hjá handknatt- leiksmönnum. Þeir riðu á vaðið með auglýsingarnar, og þeir hafa að sjálfsögðu hirt rjómann ofan af. Þá hefur körfuknatt- leikurinn einnig tekið upp aug- lýsingar, t.d. er landsliðið i körfuknattleik með auglýsingar frá Flugfélagi Islands á búning- um sinum. Stór fyrirtæki, eins og Loft- leiðir hafa lýst yfir þvi að þau muni ekki i bráð auglýsa á knattspyrnubúningum, enda auglýsir félagið hjá þrem hand- knattleiksliðum. Loftleiðir borga auglýsingar sinar með ferðum, og sá timi sem knatt- spyrnumenn eru á ferðinni er ákaflega óheppilegur fyrir flug- félögin, hásumarið. Þriðja atriðið i máli þessu eru greiðslurnar fyrir auglýsing- arnar. Heyrst hefur að sum sum félög hafi farið fram á allt að 600 þúsund króna greiðslu fyrir auglýsingarnar, og er ekki furða þótt fyrirtækin hiki áður en þau samþykkja slikar upp- VIII HOFIM SYNT 12 MHUON METNA 00 ÆTLUM «0 VINNA! Engu er likara en Islendingar séu orðnir sundóðir siðustu dag- ana. Samkvæmt talningu sem gerð var i gær, má fastlega gera ráð fyrir þvi að búið sé að synda 200 metrana rúmlega 60 þúsund sinnum, eða samtals 12 þúsund kilómetrar, eða þá 12 milljón metra ef einhver vill hafa það þannig. Þetta er miklu meiri þátttaka en búist var við áður en keppnin hófst, þá var reiknað með að allir þeir sem syntu i siðustu keppni mundu synda þrisvar, eða að sundin yrðu samtals 130 þúsund. Ljóst er að það mark er ekki iangt undan. I helztu kaupstöðunum var staðan þannig. Reykjavik 35,395, Kópavogur 4000, Hafnarfjörður 3100, Keflavik 2760, Akranes 1920, Isafjörður 2272 og Akureyri 4900. I gangi er keppni milli ein- stakra staða, t.d. er sérstök keppni milli Reykjavikur, Hafnarfjarðar og Akureyrar. Staðan er þannig, að Akureyri er efst með 0,45 sund á ibúa, Reykja- vik er með 0,43 sund á ibúa og Hafnarfjörður er með 0,31 sund á ibúa. Hér á eftir fer grein sem ISl hefur sent frá sér i sambandi við Norrænu sundkeppnina, og einnig leiðbeiningar hvernig fólk á að haga sér þegar það ætlar að synd 200 metrana i fyrsta sinn: Margir standa i þeirri trú að fyrirkomulag i norrænu sund- keppninni sé flókið. Sumt fólk er jafnvel feimið við að hefja þátt- töku vegna þess. 1 raun og veru er það afar einfalt að vera með i keppninni. 1 fyrsta sinn sem 200 metrarnir eru syntir þarf að fvlla út bátt- tökuskirteini, þ.e. nafn, heimilis- fang og skóla, ef viðkomandi er i skóla. Siðan þarf þátttakandinn að skila efri hluta skirteinisins, til þeirra er skrásetja keppnina. Á þeim hluta skirteinisins, er þátt- takandinn heldur eftir, er númer, sem þátttakandinn geymir. Eftir að viðkomandi hefur synt 200 metrana þarf hann að láta skrá þátttökunúmer sitt og fær þá lit- inn gulan miða, sem hann heldur eftir til sönnunar þvi að hann hafi synt. Hverjum er heimilt að synda einu sinni á dag meðan ákeppninni stendur, cn henni lýk- ur 31. október n.k. Eftir að þátttakandinn hefur synt 200 metrana einu sinni hefur hann aflaö sér rétt til kaupa á bronzmerki. Eftir aö synt hefur verið 20 sinnum fær hann rétt til kaupa á silfurmerki með þvi að framvisa 20 fulum miðum. Er viðkomandi hefur synt 200 metr- ana 50 sinnum (10 km) getur hann keypt gullmerki keppninnar með þvi að framvisa 50 gulum miðum. Svo virðist, það sem af er keppninni, að mikill áhugi sé meðal manna að ná gullmerkinu, Framhald á bls. 4 Dómarar leiða malið hja ser Domarar hyggjast ekki gripa til neinna sérstakra aðgerða i máli þvi sem kom upp á siðustu landsliðsæfingu, þegar Fram- liöið gekk af velli vegna þess aö einum leikmanni þess var vikið af velli. Vilja dómararnir ekki láta málið ganga lengra vegna þess að hér var um æfingu að ræða, en ef um leik hefði verið að ræöa, hefði veriö gripið til þyngstu refsingar. Dómari einn sem blaðið hafði samband við i gær, sagði að dómarar litu þetta mál mjög alvarlegum augum sérstaklega þó framkomu þjálfarans Guð- munds Jonssonar. A mánudaginn klukkan 17 fer fram úrslitaleikurinn i skólamóti KSI. Fer leikurinn fram á Mela- vellinum.Til úrslita leika Háskóli Islands og Menntaskólinn i Reykjavik, en þess má geta að þessi lið hafa þrisvar lent saman i úrslitum i þau fjögur skipti sem keppnin hefur farið fram. Fyrsta árið vann MR eftir vita- spyrnukeppni, annað árið vann svo MR 2:1, og nú reyna liðin með sér i þriðja sinn. I fyrra vann Kennaraskólinn MH 2:1. ★ ★ ★ Um helgina eru úrslitin i 2. deild i körfuknattleik. I dag klukkan 18,15 leika UMFN og IBV og á morgun ÍBV og KA. Leikirnir fara fram á Seltjarnarnesi. ★ ★ ★ Haraldur Korneliusson varð tvöfaldur Reykjavfkurmeistari i badminton um siðustu helgi. I einliðaleik sigraði hann Öskar Guðmundsson eftir æsispennandi keppni, og i tvfliðaleik sigraði hann ásamt Steinari Petersen. 1 tvenndarleik mátti Haraldur þó bita i það súra epli að tapa. Þar sigruðu þau óskar og Jónina Niljóniusardóttir. Bayern Munchen er nú efst i 1. deildinni i Vestur-Þýzkalandi. Orslit leikja um siðustu helgi urðu þessit Frankfurt-Gladbaqþr!..... Köln-Kaiserslgplero, .... Dortmund-Oþ^rþ^usen .. Duisburg-Bocþujj^' .,... Schalke 04-Bráunscnwe'ig Hannover 96-SfótlgÍrf .. Dusseldorf-HértWl ■ . Bayern, Múndi.cflhém. Hamburg-Arndltlll .?:... 3- 0 4- 2 2-1 2-2 5- 1 3-0 1-0 6- 2 1-0 Laugardagur 15. apríl 1972 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.