Alþýðublaðið - 15.04.1972, Qupperneq 12

Alþýðublaðið - 15.04.1972, Qupperneq 12
alþýðu Alþýöubankinn hf ykkar hagur/okkar metnaöur Askriftarsíminn er 86666 SENDIBIL ASTODIN HF OKKáR k MIItLI » • ö Mörg bæjarfélögin hafa sett sig á hausinn meft togaraútgerð, Vestmannaeyjar m.a. tvisvar eða þrisvar, en nú vilja þessi bæjarfélög ólm fá skuttogara — og fara á hausinn aftur—Frá árinu 1!)0H fram til 1969 jókst meðalársnyt kúa i nautgripa- ræktarfélögum úr 2242 kg með :i,6U%fitu, eða 8071 fituciningu, i 2698 kg. með 4,04% fitu. eða 14940 fitueiningar-Meðalnyt allra kúa á landinu er nú talin um 2100 kg ársnyt og fitan 2,98%—A þeim -tveimur sæö- ingarstöðvum sem reknar eru á landinu voru á sl. ári sæddar 20.000 kýr, sem eru um 75% af kúnum i landinu-Fyrir skömmu var ákveðiö hjá sjónvarpinu, að þyngsti starfsmaöur stofnunar- innar skyldi fá aö velja matinn i mötuneytinu einn dag. Það voru þeir Kniil Björnsson og Magnús Bjarnfreðsson, sem kepptu til úrslita, og hafði Magnús naum- an sigur. Ekki vitum viö hvaða mat hann pantaði—A laugar- daginn var sögöum við frá barnsfaðernismáli gegn lög- regluþjóni einum. Síðan höfum við fengið þá vitneskju, að þetta hafi veriö rakin kjaftasaga, og cnginn fótur sé fyrir henni—Við sögðum á laugardaginn að i iiúsfreyjunni sé fastur þáttur með nafninu okkar á miili sagt. Sigriður Thorlacius hringdi I vikunni og sagði að hann hafi verið i blaðinu siðan 1954 og sé þvi eldri en okkar þáttur.Okkar þáttur hefur aftur verið I Alþýðuhlaöinu i mörg herrans ár, þó hann hafi fallið niöur um tima og tima, falla báðir aöilar frá málssókn þar sem ekki er á hreinu hvcnær okkar þáttur hóf göngu sina—Samkvæmt tillögu byggingafulltrúa skulu götur i norðurhluta Breiöholts III heita: Vesturhólar, Álftahólar, Blikahólar, Dúfnahólar, Gauks- hólar, Hrafnhólar, og Krfuhól- ar—-Samþykkt var fyrir skömmu að settir skyldu upp stöðumælar norðan við Kirkju- stræti, gegnt Landsimahúsinu, gjald verður kr. 5,00 fyrir hverj- ar byrjaðar 20 minútur, en hámarks stöðutimi 1 klst—Um- ferðarnefnd hefur lika sam- þykkt tvær nýjar aðaibrautir: Breiðholtsbraut og Stekkjar- bakki— EG ER AÐ REYNA AÐ KOMAST TiL BOTNS i ÞVI HVORT NYBAKAÐIR S J ÓM E N N S ÉU LÍTILSIGLDIR Forseti tslands, dr. Kristján KldjárífS varð fyrstur til að kaupa „Rauðu fjöðrina”, sem seld verður um land allt i dag og á morgun. öllum hagnaði af söl- unni veröur variö til lækjakaupa víðsvegar um landið og handa augnlækningadeildinni við Landakotsspitala. Tilfinnan- legur skortur cr á nauðsyn- legum tækjum i baráttunni gegn blindu. FTHIR 50 ARUM Alþýðufræðsla Stúdentafélagsins: Um mannkynbætur talar Guðmundur Finn- bogason prófessor á annan í páskum kl. 2 i Nýja Biói. Miðar á 50 aura við innganginn frá kl. 1,30. Mátulega peninga. SKUTTOGARAKAUPIN Vandinn er margur, en eitt er lausnarorðið, i útvegsmálunum þjóðin er fljót til svara, menn koma móðir og másandi og leggja á borðið milljónirnar: ég ætla að fá einn skuttogara. Slik togaraútgerð er svo sem að likum lætur vor lifshugsjón og sjávarútvegsins prýði. Um gervalla álfuna er unnið daga og nætur i islenzkra þágu að skuttogarasmiði. Hvern strákskussa dreymir um stórkostlega veiði, i stanzlausum torfum göngurnar koma og fara, og fólk sem á tjörn uppá Tvidægru og Arnarvatnsheiði er tekið að ræða um að fá sér skuttogara. a IG&A V/6rGA OGr 1'IL.VE.RAÞ/ Mengunarbann eftir 50 tima setu — Bráðlá á Róbert leikur Bjart — Sopinn góður, og stór FRETTIR HEÐAN OG LÍKA ÞAÐAN 1 nótt var vonazt til þess að full- trúar á mengunarráðstefnunni kæmust að samkomulagi um bann við losun úrgangsefna i sjó, eftir nær 50 tima fundarsetu á Hótel Loftleiðum þessa vikuna. Ráðstefnan hófst á mánudags- morgun, og sitja hana 90 fulltrúar frá 30 löndum. ,,betta stendur allt á járnum þessa stundina, og ég get ekki sagt annað en það, að við von- umst eftir að ná samkomulagi einhvern timan i nótt” sagði bor- steinn Ingólfsson fulltrúi i Utan- rikisráðuneytinu þegar blaðið hafði samband við hann um kvöldmatarleytið i gær. bá stóðu fundir ennþá yfir, og áttu að halda áfram fram á nótt ef þörf krefði. Fundurinn hefur gengið alveg samkvæmt áætlun, og i gær var langt komið með að gera uppkast að samningi um bann við þvi að losa úrgangsefni i sjó. Búizt; er við opinberri tilkynningu um málið i dag. bað er rikisstjórn tslands sem boðið hefur til þessarar ráð- stefnu, og er Hjálmar Bárðarson siglingamálastjóri i forsæti á ráð- stefnunni. ¥ ¥ ¥ Lögreglan i Prag þurfti fyrir skömmu að stöðva ungan bil- stjóra fyrir of hraðan akstur. begar lögreglan spurði eftir ástæðunni fyrir hinum hraða akstri svaraði maðurinn. „Billinn minn er vita bremsu- laus, og þess vegna þurfti ég að koma honum á verkstæði eins fljótt og mögulegt var.” ¥ ¥ ¥ A sjötugsafmæli Halldórs Lax- ness, 23. april nk„ frumsýnir bjóðleikhúsið Sjálfstætt fólk, i leikbúningi höfundar og Baldvins Halldórssonar leikara, og er sá siðarnefndi jafn framt leikstjóri. Róbert Arnfinnsson fer með hlutverk Bjarts i Sumarhúsum, og er það fyrsta hlutverk hans hjá bjóðleikhúsjnu eftir leiksigrana miklu i býzkalandi. Briet Héðinsdóttir leikur Ástu Sóllilju fullorðna, bóra Friðriks- dóttir leikur Rauðs- mýrardömuna, Rúrik Haralds- son leikur Jón hreppstjóra, Valur Gislason leikur séra Guðmund, Bessi Bjarnason fjallkónginn, Gunnar Eyjólfsson Ingólf Arnar- son, Kristbjörg Kjeld Finnu og Arni Tryggvason bórð i Niður- koti. Leikmyndir eru gerðar af Snorra Sveini Friðrikssyni, og er þetta i fyrsta skipti, sem hann t~ÚT AP /-ÍFINU gerir leikmyndir fyrir þjóðleik- húsið, en hann starfar við sjón- varpið sem leikmyndateiknari. Sjálfstætt fólk er fimmta leik- ritið sem bjóðleikhúsið sýnir eftir Halldór Laxness. ¥ ¥ ¥ i\y samtalsbók Halldórs Lax- ness er komin út hjá Helgafelli. Skeggræðurnar er fyrsta bók Helgafells að minnast 70 ára afmælis Halldórs Laxness 23. april nk„ en afmælisbækurnar verða alls fimm og koma út smám saman á árinu. Næst kemur „Norðan- stúlkan” (Atómstöðin) i leik- sviðsgerð borsteins Gunnars- sonar og Sveins Einarssonar og þar næst „Bjartur i Sumar- húsum og blómið”, leikútgáfa Baldvins Halldórssonar að Sjálfstæðu fólki, sem frumflutt verður i bjóðleikhúsinu á sjötugsafmæli nóbelsskáldsins 23. april. Fjórða bókin er ný útgáfa af Laxdælasögu með -nútima staf- setningu H.L. og 30 nýjum teikningum og skreytingum eftir fjóra listamenn úr hópi hinna yngstu málara okkar. Bókin er i raun og veru i tveimur útgáfum, nútima stafsett útgáfa Bókmennta- félagsins i heild með litlum frá- vikum og markað með sérstöku letri, og tillögum Halldórs sjáifs um úrfellingar i listrænum útgáfum framtiðarinnar af fornritunum. bessi útgáfa á sérstaklega að minna á baráttu skáldsins við stjórnarvöld íslands um staf- setningu og skáldskap. Ritar Kristján Karlsson formála þar sem meðal annars er vikið að þessu baráttumáli skáldsins. Fimmta og siðasta afmælis- bókin er ný útgáfa, á ensku, af Kristnihaldi undir jökli, i þýð- ingu Magnúsar Magnússonar i Edinborg. Kemur bókin út i nóvember og er hugsuð sem gjafabók handa enskumælandi fólki. Er þýðing Magnúsar talin með afbrigðum vel gerð. ¥ ¥ ¥ Margaret Daniells, sem vinnur á bar i London, setti fyrir nokkru nýtt met i þvi aö drekka hálfan litra af bjór. Tók það hana 2,5 sek- úndur að innbyrða bjórinn, en gamla metið var 2,8 sekúndur. begar Margaret voru færðar fréttirnar varð henni að orði: Aldrei i lifinu, þetta er ekki hægt.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.