Alþýðublaðið - 16.04.1972, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 16.04.1972, Qupperneq 2
 FRÁ REYKJAVÍK 19. MAÍ TIL REYKJA VÍKUR 23. MAÍ VERÐ FRÁ KR. 4.218- „Til fiskiveiða förum..." Hvítasunnuferð m/s Gullfoss til Vestmannaeyja ISLAND OG ÍSLENDIN GAR Nú fer i hönd timi útivistar og ferðalaga og er reyndar þegar hafinn. Mikil hreyfing var á fólki um páskana, enda eru þeir orðnir meiri ferðahátið eu trúarhátið, a.m.k. hér á landi. Veður var iika hið ákjósanlegasta um hátiðina og ýtti undir fólk að nota snjóinn og sólskinið. Það má þess vegna segja, að ferðatiminn hefjist með fyrra móti að þessu sinni og vonandi fáum við gott ferða- sumar. Það hefur orðið að ráði, að ég skrifi nokkra ferðaþætti fyrir Alþýðublaðið næstu vikurnar og haldi mig þá eingöngu við innan- landsferðir og ferðir sem sérstak- lega eru miðaðar við tslendinga sjálfa. Sem sagt: tsland og lslendinga. t þessum þáttum verður vakin athygli á hverjir hafa slikar ferðir helzt með hönd- um, um hvaða leiðir og staði er að velja, brottfarartima og brott- fararstað, fargjald, ferðabúnað o.s. frv. Auk þess er ætlunin að drepa litiliega á, hvað mark- verðast er að sjá og skoða á hverjum stað, eftir þvi sem kunnugleiki og rúm leyfir. Þessir pistlar eru fyrst og fremst skrifaðir fyrir þá sem áhuga hafa á náttúruskoðun i ein- hverri mynd eða blátt áfram hreyfingu, útivist og góðum félagsskap, en hafa ekki farar- tæki sjálfir eða taka hópferðalag fram yfir akstur i eigin bil, sem er reyndar sitt með hvoru móti að mörgu leyti. I hópferð þar sem leiðsögumaður er við hendina má t.d. gera ráð fyrir að ýmiskonar vitneskja um leiðina og staðinn sé fáanlég, sem hæpnara væri að verða sér úti um I einkaferðalagi. Sömuleiðis er alltaf áhyggju- minna að ferðast i annarra farar- tæki og þurfa.ekki að standa i akstri og viðgerðastússi sjálfur, ef svo ber undir, þótt einka- ferðalagið hafi að sjálfsögðu lika sina kosti. Helgarferöir Til að byrja með er ætlunin að vikja að stytztu ferðunum, hálfs dags og eins dags ferðum, og þá einkum og sér i lagi hérna i nágrenni Reykjavikur, sem jafn- framt eru ódýrustu ferðirnar. Siðar kemur svo röðin að lengri ferðum, tveggja og þriggja daga ferðum, ferðum um hvitasunnu og verzlunarmannahelgi og sumarley fisferðum. Eg gat þess i upphafi að segja mætti að timi útivistar og ferða- laga væri þegar hafinn. Ef til vill hefði verið réttara að kveða fastara að orði og segja að hann hefði staðið i allan vetur og væri nú að færast i sumarhorfið. Sannleikurinn er nefnilega sá, að Ferðafélag íslands hefur haldið uppi gönguferðum um hverja helgi I allan vetur og þátttaka verið ágæt., Þetta hafa yfirleitt verið siðdegisferðir, lagt af stað úr bænum um kl. 1 eftir hádegi, ekið á einhvern stað i nágrenni bæjarins og gengið f fylgd kun- nugs manns 3—4 tima. Þetta er i fyrsta skipti i ferðamálasögu tslands sem slik tilraun hefur verið gerð,og eins og þegar hefur verið vikið að,tókst hún mjög vel. Að sögn Einars Þ. Guðjohnsen, framkvæmdastjóra Ferða- félagsins, verða nú teknar upp að nýju morgunferðir á sunnu- dögum, eins og verið hefur á sumrin, siðdegisferðum hætt að sinni. Hann taldi þó ekki óliklegt, að þróunin yrði sú i framtiðinni, að meira yrði stillt inn á siðdegis- ferðirnar, einnig að sumrinu, þar sem svo vei hefði tekizt i vetur og allt benti til að þær ættu vin- sældum að fagna meðal al- mennings. En hvað sem því liður, þá verða þær örugglega teknar upp aftur undir haustið og ef til vill skotið inn á milli annarra ferða i sumar að einhverju leyti. Það kemur i ljós við athugun, að það eru ekki margir aðilar sem halda uppi almennum náttúru- skoðunarferðum hér á landi, þ.e.a.s. ferðum sem ætlaðar eru fyrst og fremst fyrir Islendinga sjálfa. Það eru að visu ýmsar ferðaskrifstofur sem annast innanlandsferðir, þar sem öllum er heimil þátttaka, jafnt lslen- dingum sem útlendingum, svo sem Ferðaskrifstofa rikisins, Ferðaskrifstofa Olfars Jacobsen og Guðmundur Jónasson, en þátt- takendur eru samt sem áður mestmegnis erlendir ferðamenn, t.d. um 80% hjá Guðmundi Jónas- syni og liklega enn hærri prósent- tala hjá ferðaskrifstofunum sem nefndar voru, enda ferðirnar sérstaklega við það miðaðar. Mér virðist hinsvegar i fljótu bragði, að það séu aðallega tveir aðilar, sem haldi uppi nátt- úruskoðunarferðum af ýmsu tagi fyrir íslendinga sérstaklega, þótt útlendingum sé auðvitað heimil þátttaka i þeim ferðum lika. En þær eru þó fyrst og fremst mið- aðar við islenzka ferðamenn og einungis litill hundraðshluti út- lendingar. Þessir tveir aðilar eru Ferðafélag Islands og Farfugla- deild Reykjavikur. Auk þessara FYRSTI HLUTI ÞÁTTA UM FERÐALÖG INNANLANDS OG UTAN GESTUR GUÐFINNSSON SKRIFAR FYRSTA ÞÁTT SINN UM FERÐIR INNANLANDS 0 Sunnudagur 16. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.