Alþýðublaðið - 16.04.1972, Side 4
| Persónulýsing þeirra, sem fæddir eru í FISKAMERKINU - 19. febrúar - 20. marz. ★★★★★★★★★★*★**************
HELZTA
ÞEIRRA ÆTTI AO VERA HÚFSEMI Á ÖLLUM SVIÐUM - EN
Magnús Kjartansson
hefði sennilega orðið
fyrirmyndar
ráðuneytisstjóri
Eðli þeirra, sem fæddir Fólk litur á Fiskana sem
TÓMAS OG
GUNNAR:
FREKAR
DIPLOMATÍA
EN PÓLITÍK
eru undir Fiskamerkinu er
yfirleitt mjög mótanlegt og
hæfileikar þeirra margir -
og þess vegna er eðlilegt að
i þessu stjörnumerki sé að
finna fólk sem starfar að
óskyldustu störfum innan
þjóðfélagsins,- en það er þó
tvennt, sem áberandi sker
sig úr.
1 fyrra lagi listhneigðin. f
sumum tilvikum hneigist
Fiskurinn til listrænna
sköpunarstarfa i eins konar
llótta frá veruleika um-
heimsins. En það er lika
hið sveiflukennda geðslag
Fiskanna, sem stundum
ræður og tilfinninganæmni
þeirra og ekki sizt hæfi-
leika þeirra til að skilja og
túlka tilfinningar annarra.
Það eru býsna margir
listamenn, islenzkir, sem
fæddir eru á timabilinu frá
19. febrúar til 20. marz.
Guörún A. Simonar, óperu-
söngkona er trúlega dæmi-
gerður Fiskur. Hún er fædd
24. febrúar, en á hlaupárs-
dag á afmæli annar lista-
maður: Klemenz Jónsson
leikari, Gunnar Eyjólfsson
leikari er Fiskur og einnig
Erlingur Gislason, Nina
heitin Try ggvadóttir
myndlistarkona var fædd
16. marz. Einn af mest vax-
andi listmálurum okkar i
dag, Sverrir Haraldsson, er
lika Fiskur, fæddur 18.
marz. 15. marz á svo af-
mæli Þorsteinn frá Hamri.
Þorbergur Þórðarson, 12.
marz, og daginn áður
Þuriður Palsdóttir, söng-
kona. Arndis Björnsdóttir
leikkona er fædd 17. marz.
Það er sagt um Fiskana, að
þeir eigi auðvelt með aö
gera sér grein fyrir vanda-
málum almennings og
frjótt imyndunarafl þeirra
eygi oft lausnir á þeim.
Þarna gildir um Fiskana
eins og svo mörn önnur
merki. að fólk skiptist i tvo
hópa. Sumir hafa ekki það
framtak, sem þarf til að
afla hugmyndum þeirra
fylgis. Aðrir fá miklu áork-
að. Táknrænn fyrir þann
hóp Fiskanna er Þórður
Benediktsson, forseti SIBS.
En svo minnst sé á hina
hliðina, sem helzt er rikj-
andi hjá Fiskunum, þá er
það embættismennska. Þvi
er þaö sagt um stóran hóp
Fiska, að þeim láti vel að
starfa kerfisbundið. Og
þótt ekki sé hægt að segja
að Fiskar skiptist yfirhöfuð
i tvo hópa, listafólk og em-
bættismenn, þá er þessa
tviskiptingu þó trúlega viða
að finna meðal Fiska.
ÍSLENDINGAR
SEM FÆDDIR ERU
í FISKSMERKINU
svo að þeim sé óhætt að
treysta þeir séu heiðarlegir
og samvizkusamir. Enda
segja stjörnuspekingar að
P’iskar ættu helzt að leggja
fyrir sig störf þar sem beir
verða öðrum að liði, og þar
sem innsæi þeirra og skiln-
ingur á vandamálum ann-
arra kemur aö sem fyllst-
um notum.
Margir þeirra séu vel til
þess fallnir að inna af hendi
diplómatisk störf og gegna
stööum þar sem krafizt er
lagni og vinnandi fram-
komu.
Frank M. Halldórsson
prestur i Nessókn og Björg-
vin Sæmundsson, bæjar-
stjóri i Kópavogi gætu hæg-
lega farið i fararbroddi
þessa hóps,- einnig Gunnar
G. Schram, varafastafull-
trúi okkar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Frank og Gunn-
ar eru fæddir febrúarmeg-
in i merkinu og Björgvin 4.
marz. Páll Ásgeir
Tryggvason deildarstjóri i
utanrikisráöuneytinu er
fæddur 19. febrúar og Sig-
uröur Jóhannsson, vega-
málastjóri 16. marz.
Það er auðvelt að imynda
sér alla þessa menn að
störfum i utanrikisþjónust-
unni, þeir eru diplómatar,
og reyndar hafa tveir
þeirra þegar valið sér störf
tengd utanrikissþjónust-
unni.
En hvernig svo sem á þvi
kann að standa, þá er
Fiskurinn ekki sá maður,
sem bezt er fallinn til
stjórnm.. Honum lætur yf
irleitt annað betur.og þess
eru fremur fá dæmi að
Fiskar verði stjórnmála-
skörungar. Og án þess að
vera með illar meiningar
mætti komast að þeirri
niðurstöðu aö Tómas
Karlsson, (20. marz), rit-
stjóri og varaþingmaður,
hefði valið rétta leið, ef
henn hefði fariö inn i utan-
rikisþjónustuna, Ölafur
Jóhannesson (1. marz),
forsætisráðherra væri vel
settur og ynni þjóð sinni
meira gagn sem prófessor i
Háskólanum, og Magnús
Kjartansson, ráðherra, (25.
febr.) hefði án efa orðið
mjög góður ráöuneytis-
stjóri.
Björn Pálsson, alþingis-
maður, (25. feb.) hefur
ekki siglt eftir hefðbundn-
um sjókortum
islenzkra stjórnmála.
Oft hefur hann komið fyrir
á þingi eins og gluggi, sem
opnast og hleypir fersku
lofti inn i gamalt herbergi.
Trúlega hefði Björn engu
að siður getað hleypt nýju
og fersku lofti inn i ein-
hver ja rikisstofnunina,
sem hann hafði tekið að
sér, ef hann hefði gerzt em-
bættismaður.
íuiy!
KOSTAR ÞA VENJULEGA TALSVERÐA SJALFSAFNEITUN AÐ FYLGJA ÞVÍ
Venjulega lætur Fiskum
þaö vel aö starfa kerfis-
bundið. Þeir faka því, sem
lífið réttir að þeim og fagna
öllum breytingum, sem
þeir álíta að séu tii hins
betra.
Þeir eru næmir á tilfinn-
ingar annarra, og frjótt
ímyndunarafl þeirra eygir
oft lausnir á vandamálum
almennings. Því miður
hafa þeir þó sjaldnast
framtak til að fylgja því
eftir. Oft fá þeir merkilega
miklu áorkað, en hitt verð-
ur mun oftar að þeir láta
sitja við hugleiðingar sínar
og dagdrauma.
Þetta er meðal annars
það sem stjörnuspekin seg-
ir um persónuleika þeirra,
sem fæddir eru i Fiska-
merkinu, þ.e. frá 19.
febrúar til 20. marz.
Geðslag Fiskanna er
sterkum sveiflum háð, allt
frá allsráðandi hrifningu til
myrkrar dapurðar og
svartsýni.
Þetta er annar þáttur af
12 um persónulýsingar
stjörnuspekinnar.
Fiskarnir.
Margir af þeim, sem fæddir eru
undir þessu stjörnumerki, eru
dreymnir, opnir fyrir áhrifum og
viðkvæmir i a’fstöðu sinni gagn
vart lifinu. Oft gætir klofnings i
persónugerð þeirra, sem bæði
sjálfir þeir og aðrir eiga á stund-
um erfitt með að átta sig á. Yfir-
leitt eru þeir mjög góðgjarnir, en
allmargir þeirra óraunhæfir i af-
stöðu sinni til lifsins og vanda-
mála þess, skortir oft sjálfstraust
og eiga erfitt með að taka mikil-
vægar ákvarðanir.
Yfirleitt litur það fólk, sem þeir
umgangast, þannig á þá að þeir
séu heiðarlegir, samvizkusamir
og óhætt að treysta þeim. Þeir
eiga það og undantekningalitið
skilið, en sakir góðvildar sinnar
eiga þeir það á hættu að aðrir
misnoti sér þann eiginleika þeirra
og eins það, að þeir kjósa oft
heldur að halda friði en berjast
fyrir rétti sinum og réttindum.
Þeir eru yfirleitt vinmargir, en
sökum viðkvæmni sinnar eru þeir
auðsærðir og geta móðgazt af litlu
eða engu tilefni.
Venjulega lætur þeim að starfa
kerfisbundið, og hafast helzt ekki
að nema þeir séu sannfærðir um
að nauðsyn beri til. Þeir taka þvi
sem lifið réttir að þeim og fagna
öllum breytingum, sem þeir álita
að séu til hins betra fyrir þá og
allan almenning.
Samúð þeirra með öðrum má
kallast óendanleg og þeir eru
furðulega næmir á tilfinningar
annarra. Þeir eiga oft auðvelt
með að gera sér grein fyrir
vandamálum almennings og fyrir
fljótt imyndunarafl sitt eygja
þeiroftsinarlausnirá þeim,enda
þótt þeir hafi, þvi miður, sjaldn-
ast það framtak sem þarf til að
vinna þeim fylgis. A stundum
geta þeir þó fengið merkilega
miklu áorkað, en hitt verður mun
oftar, að þeir láti sitja við hug
leiðingar sinar og dagdrauma.
A stundum fær þessi flótti
þeirra frá veruleika umheimsins
útrás i listsköpun, á sviði tón-
listar, myndlistar eða skáld-
skapar. Þeir hrifast oft af alls-
konar dulrænu, sem vill þá stang-
ast á við önnur grundvallaratriði i
persónugerð þeirra. Þeir eru og
mjög hrifnæmir gagnvart öllum
kenningum, sem tala til ósk-
hyggju þeirra, og getur þá farið
svo að þeim finnist þeir ein-
angrast fyrir trú sina á þær, og þá
um leið fyrir skilningsskort ann-
arra.
Geðslag þeirra, sem fæddir eru
undir Fiskamerkinu, er sterkum
sveiflum háð, allt frá allsráðandi
hrifningu til myrkrar depurðar og
svartsýni. Hið siðarnefnda getur
leitt til þess að þeir forðist ósjálf-
rátt áhyggjur og torleyst vanda-
mál i lengstu lög, en hafa svo ekki
hugmynd um hvað þeir eigi til
bragðs að taka, er þeir komast
ekki lengur hjá að horfast i augu
við staðreyndirnar. Þegar verst
gegnir getur þetta orðið til þess
aö þeir blekki sjálfa sig og aðra,
neiti harðlega öllum staðreynd-
um og leiti allra undanbragða frá
sannleikanum sér til afsökunar.
En þó að þeir skorist þannig
undan allri ábyrgð, er jafn liklegt
að hvatning frá öörum geti orðið
til þess að endurvekja sjálfs-
traust þeirra og veita þeim það
hugrekki, sem með þarf.
Heilsufar.
Oft er það, að þeir sem fæddir
eru undir Fiskamerkinu, eru ekki
sérlega likamshraustir, og eins
tekur það þá oft alllangan tima að
ná sér aftur ef þeir verða fyrir
einhverjum veikindum. Samt
sem áður eru þeir margir tiltölu-
lega heilsugóðir, einkum ef þeir
eiga þess kost að vera mikið úti
við. Þeir þurfa á hreyfingu og
áreynslu að halda, en áreynslan
má þó ekki verða þeim of erfið.
Þegar þeir eldast, eru þeir
margir unglegri að sjá en aldur
þeirra segir til um, og margir ná
þeir mjög háum aldri.
Oft eru þeir, sem fæddir eru
undir Fiskamerkinu, grannir
vexti og ekki sterkbyggðir að sjá.
Þeir dansa mjög vel margir
hverjir. Sumum af þeim hættir
við sjóndepru, og yfirleitt eru þeir
næmir fyrir ofkælingu og kvef-
sæknir.
Helzta boðorð þeirra ætti að
vera hófsemi á öllum sviðum, en
það kostar þá þó venjulega tals-
verða sjálfsafneitun að fylgja
þvi. Margir af þeim hneigjast
mjög að notkun örvandi meðala,
og ættu þvi að varast áfengi og
önnur nautnalyf, en þar sem þeir
eru ekki fúsir til að viðurkenna
þann veikleika sinn, verður hið
gagnstæða oft uppi á teningnum.
Ef þeir verða ánauðugir einhverj-
um slikum vana, er mjög hætt við
að þá skorti viljastyrk til að rjúfa
viðjar hans, en lika er það að þeir
vilja gjarna láta aumka sig og lita
á sjálfa sig sem fórnarlömb nei-
kvæðra aðstæðna, og gera þannig
lifið erfitt bæði sjálfum sér og
öðrum.
Þetta er þvi sorglegra, að þeir
mundu margir hverjir eiga þess
kost að ná mjög háum aldri og
halda sér einstaklega vel, ef þeir
færu að öllu með gát.
Starf og lífshlutverk.
Oft er það helzta köllun þeirra i
lifinu, sem undir Fiskamerkinu
eru fæddir, að verða öðrum að
liði. Fyrir það leggja margir
þeirra stund á kennslu, hjúkrun
eða vinna að félags- og skipulags-
málum i þágu sjúkra og þurfandi,
þvi að hvorki skortir þá samúð
eða fórnfýsi.
Yfirleitt ættu þeir að velja sér
eitthvert það ævistarf þar sem
innsæi þeirra og skilningur á
vandamálum annarra kemur að
sem fyllstum notum. Þá eru og
margir þeirra vel til þess fallnir
að inna af hendi diplómatisk störf
og gegna stöðum, þar sem krafist
er lægni og vinnandi framkomu.
Eðli þeirra, sem fæddir eru
undir Fiskamerkinu, er yfirleitt
mjög mótanlegt og hæfileikar
þeirra margir, svo þeir eru ekki
við eina fjölina felldir. Þeir geta
til dæmis snúið sér að leiklist eða
kvikmyndun, eða unnið við sjón-
varp eða útvarp, þar sem listræn
hneigð þeirra og imyndunarafl
nýtur sin vel. Þeir geta og snúið
sér að tónlistinni meö góðum
árangri, myndlist eða skáldskap
— ekki hvað sizt fyrir þann hæfi-
leika sinn að skilja og túlka til-
finningar annarra. Hinsvegar
lætur þeim ekki eins vel að vinna
þau störf, sem krefjast mikillar
einbeitingar til langframa. Bgi
þeir við erfitt viðfangsefni að
glima, geta þeir þó lagt sig alla
fram i bili og oft komið öðrum á
óvart með hugkvæmni sinni og
(Himintungl hafa áhrif á líf okkar segir
stjörnuspekin. Það er vitaö að kynþörf er
oft tengd tunglkomum. Tunglið hefur
áhrif á allt vatn jarðarinnar, og
mannslíkaminn er 70% vatn. Þannig má
áætla að tunglið hafi áhrif á alla menn.
A.m.k. segja skýrslur margra landa, að
glæpir séu helzt
framdir þegar fullt er tungl).
SENNILEGA FYRIRFINNAST
VART TILFINNINGANÆMARI
INNILEGRIELSKENDUR
FÆDDIR
FISKAMERKINU
óværwm og snjöllum aðferðum.
Þeir eru oftast þægilegir vinnufé-
lagar og kemur vel ásamt við
samstarfsmenn sina.
En svo er það, að þeir geta
hæglega gripizt leti, eða þá að
þeim þykir sem starf þeirra sé
litils metið, missa allan áhuga á
þvi og eiga i stökustu vandræð-
um. Þeir kunna vel að meta lifs-
þægindi og öryggi, og þó að þeir
sækist ekki eftir peningum pen-
inganna vegna, gera þeir sér
fyllilega ljóst það öryggi, sem
þeim fylgir: fjárskortur getur þvi
valdið þeim þungum áhyggjum,
einkum þegar þeim verður
hugsað til efri áranna.Þrátt fyrir
það tekst þeim sjaldnast að safna
peningum að ráði, og kemur þar
einkum til hjálpsemi þeirra og
örlæti.
Heimili.
Flestum þeim, sem undir
Fiskamerkinu eru fæddir, er það
mikil nauðsyn að eiga gott og
friðsælt heimili, þar sem þeir
geta notið hvildar innan vébanda
fjölskyldunnar, og látið sig
dreyma. Þeir eru miklir heimilis-
unnendur og vilja hafa allt i röö
og reglu og sem smekklegast i
kringum sig, og fái þeir þá ósk
sina uppfyllta, kæra þeir sig
ekkert um að leita skemmtana
eða afþeyingar utan heimilisins.
Margir af þeim kjósa helzt að búa
uppi i sveit, og þá i fögru um
hveríi. Heimili þeirra sendur oft-
ast nær opið vinum og kunningj-
um, sem kunna vel að meta að
geta rætt þar vandamál sin og átt
samúð og skilningi að fagna.
Ástir og hjúskapur.
Sennilega fyrirfinnast vart til-
finninganæmari eða innilegri
elskendur en þeir sem fæddir eru
undir Fiskamerkinu. öllum
fremur er þeim það lifsnauðsyn
að elska og vera elskaðir.
Yfirleitt hneigist hugur þeirra að
þeim gagnaðila, sem gæddur er
einhverjum listrænum hæfi-
leikum, hefur prúða framkomu
og ber umhyggju fyrir útliti sinu.
Sá galli er þó á þeim, að þeir eru
harla auðsærðir i ástum, og eins
hættir karlmönnunum við afbrýði
semi. Þeir eru og þurfandi fyrir
að sú sem þeir elska, fullvissi þá
stööugt um ást sina, bæði i oröi og
verki og þiggja fegnir hrós og
hvatningu. Sökum þess hve þeim
veitist oft og tiðum erfitt að taka
ákvarðanir kemur sér vel fyrir þá
ef makinn veitir þeim þar nauð-
synlegan stuðning. Hins vegar
biður það þeirri hættu heim, sé
makinn viljasterkur og ef til vill
drottnunargjarn, að þeir verði
ósjálfstæðir og láti hann ráða um
of fyrir sér. Þeim er það þvi mikil
nauðsyn að velja sér fóðan maka,
sem skilur eðli þeirra og veiK-
leika og gerir sér allt far um að
veita þeim styrk og örfa þá til
starfa og ákvarðana, án þess að
taka af honum ráðin. Og umfram
allt að sýna þeim ástúð og að-
dáun, þess þarfnast þeir öllum
öðrum fremur. Það á sér stund-
um stað um þá karlmenn, sem
fæddir eru undir Fiskamerkinu,
að þeir gera sér ljóst hve tii-
finninganæmir þeir eru og óák-
veðnir, og reyna að dylja það með
hrjúfri framkomu og jafnvel
hranaskap. Ekki þarf þó mikla
skarpskyggni til þess aö sjá i
gegn um þá grimu, að minnsta
kosti ekki af hálfu þeirra sem þeir
unna.
Stúlkur, sem fæddar eru undir
Fiskamerkinu, eru bliðlyndastar
og ástrikastar allra eiginkvenna,
en þarfnast einnig mjög styrks og
skilnings af hálfu eiginmannsins.
Einnig að hann sýni þeim ást sina
og umhyggju, til dæmis með þvi
að færa þeim gjafir, sem ekki
þurfa þó að vera dýrar: þeim er
það mest um vert að sjá og finna
að þeirra sé minnst. Þær gera
allt, sem i þeirra valdi stendur til
að búa eiginmanni sinum smekk-
legt og þægilegt heimili og sýna
honum alúö og umhyggju á allan
hátt. Börnum sinum auðsýna þær
ást og umhyggju, en hættir hins-
vegar óneitanlega við að spilla
þeim á of miklu eftirlæti. Þær eru
auðsærðar, og þyki þeim sér sýnd
ósanngirni eða ónærgætni, er öllu
liklegra að þær leiti svölunar i
tárum, en að þær byrgi það með
sér eða svari þvi með þykkju og
fálæti.
Sennilegt er að bezt fari á þvi
að þeir eða þær, sem fædd eru
undir Fiskamerkinu, leiti sér
maka sem fæddir eru undir
Nautsmerki, Krabbamerki,
Drekamerki eða Steingeitar-
merki. Eins getur það leitt til
ástriks hjúskapar aö viðkomandi
taki sér maka, sem einnig er
fæddur undir Fiskamerkinu — að
minnsta kosti svo fremi sem þau
gera ekki of miklar kröfur hvort
til annars i hjónabandinu.
i
f
Mm&M
í. >
a
Sunnudagur 16. apríl 1972
Sunnudagur 16. april 1972
o