Alþýðublaðið - 18.04.1972, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 18.04.1972, Blaðsíða 2
; ; : : ; " ; : % og haust í*ÍSÍ>Í4t, Á öllum árstímum býður Flugfélagið yður tíðustu, fljótustu og þaögilegustu ferðirnar og hagstæðustu kjörin með þotuflugi til Evrópulanda. Nú er tími voríargjaldanna. Venjuleg far gjöld lækka um þriðjung til helztu stór borga Evrópu. Hvergi ódýrari fargjöld ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI TRKSM i D AFK LAG REYKJAVÍKUR TRÉSMIDIR Tekið verður á móti beiðnum um dvöl i ölfusborgum frá og með mánudeginum 17. april. Fyrstu vikuna þó eingöngu frá þeim félagsmönnum.sem hafa ekki dvalið þar áður. Stjórnin. . Við velium VUIÚgA ' það borgar sig runlal - ofnah h/f. « Síðumúla 27 . Reykjavik Símar 3-55-55 og 3-42-00 TILBOÐ OSKAST i nokkrar fólksbifreiðar og Volkswagen Camper er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðvikudaginn 19. april kl. 12-3. Tilboð verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. ADOLF BJQRNSSON BANKA- FULLTRÚI SEXTUGUR í DAG Adolf Björnsson bankafulltrúi er sextugur i dag. A þessum tima- mótum munu margir minnast hans með hlýhug og þakklæti, þvi að sá hópur er stór, sem notið hefur greiðvikni hans og hjáip- semi. Kunningja hans og vinir þekkja hversu sérlega bóngóður og útsjónasamur hann er, þegar til hans er leitað um aðstoð og fyrirgreiðslu enda verið mjög eftirsóttur i forystu i félagsstarfi og atvinnuuppbyggingu. Adolf er fæddur i Hafnarfirði 18.april 1912 sonur Björns Helga- sonar, sem lengi var skipstjóri þar, og konu hans Ragnhildar Egilsdóttur. Þar ólst hann upp. Hann brautskráðist úr Flens- borgarskóla 1927 og Verzlunar- skóla Islands 1933. Að þvi loknu stundaði hann nám i verzlunar- fræðum i Bretlandi um skeið. Er heimtil Islands kom hóf hann störf i útvegsbanka íslands, en þar hefur hans aðalstarf verið. Strax á unga aldri kom i ljós, að Adolf var vel til þess falinn að vera i forystusveit og þá þegar kallaður til slikra starfa á vett- vangi æskulýðssamtaka ungra manna á sviði iþrótta og annars félagsmálastarfs i Hafnarfirði. Siðar er hann hafði náð aldri og þroska varð hann einn af forvigis mönnum iatvinnulifi bæjarfélags síns á árunum upp úr 1940. Vann hann þar náið með athafna- mönnum eins og Asgeiri G. Stefánssyni, Þórarni Egilssyni, Birni Jóhannessyni, Óskari Jóns- syni og fleirum, og átti m.a. hlut að þvi, að fiskimjölsverksmiðjan Lýsiog Mjöl i Hafnarfirði reis af grunni en hann var formaður stjórnar fyrirtækisins á árunum 1945-56. Þá var hann i stjórn út- gerðarfélaga i Hafnarfirði eins og Akurgerðis h.f., Hrafna-Flóka h.f. og Vifils h.f. ,svo nokkuð sé nefnt. Adolf hefur verið traustur og dyggur stuðningsmaður Alþýðu- flokksins um árabil og gegnt trúnaðarstörfum á vegum hans, svo sem i niðurjöfnunarnefnd Hafnarfjarðar i 18 ár, i viðskipta- nefnd og verðlagsráði 1948-50 og formaður i útgerðarráði Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar. En það eru ekki aðeins sam- herjar, vinir og kunningar i fæðingabæ Adolfs, Hafnarfirði, sem sýnt hafa honum trúnað og traust, heldur einnig vinnu- félagar i bankamannastétt,en þar hefur hann gegnt marg- háttuðum trúnaðarstörfum. Hann hefur haft með höndum for- mennsku i Starfsmannafélagi Útvegsbanka Islands og Sambands isl. bankamanna. 1 stjórn Norræna bankamanna- sambandsins var hann 1948-50. Þá hefur hann verið ritstjóri Banka- blaðsins. Af þvi sem hér hefur verið rakið, má gera sér nokkra grein fyrir umfangi þess mikla starfs sem Adolf Björnsson hefur unnið i þágu starfsfélaga sinna i banka- mannastétt og Hafnfirðinga. Þótt Adolf hafi búið utan fæðingarbæj- ar síns siðan 1962 á hann sér sterkar rætur i Hafnarfirði. Kemur tryggð og ræktarsemi við það, sem hafnfirzkt er, greinilega fram i viðhorfi hans til framfara þar, og uppbyggingar svo sem kunningjum hans og vinum er kunnugt, og einnig á ýmsan annan hátt, en það skal ekki rakið nánar hér. A afmælisdegi Adolfs færi ég honum hugheilar árnaðaróskir og þakka honum tryggð og vináttu á liðnum árum. Adolf er einn þeirra manna, sem auðvelt er að eiga skipti við, sakir velvilja og áhuga á þvi, að verða öðrum að liði. Ég óska honum góðrar heilsu og langra lifsdaga. Starfsbræður og vinir munu halda Adolf afmælishóf i Glæsibæ i tilefni afmælisins á morgun 19.april og hefst það kl. 19. Er kunningum hansheimil þátttaka i þvi. Stefán Gunnlaugsson. o Þriöjudagur 18. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.