Alþýðublaðið - 19.04.1972, Side 3
HAUSTLODNA
HANDA NORÐ-
LENDINGUM?
Húsv’kingar hafa verið að velta
þvi f jrir sér, hvort möguleiki sé á
þvi að veiða loðnu sem heldur sig
i torfum undan Norðuriandi á
sumrin og haustin. Kom þetta
meðal annars fram i viðtaii við
frystihússtjórann á Húsavik hér i
blaðinu nýlega, og kvað hann það
mikla búbót fyrir sildarbræðslur
nyrðra ef úr þessu gæti orðið.
Blaöið hafði samband við Jakob
Jakobsson fiskifræðing vegna
þessa máls, og innti eftir hans
áiiti, en Jakob er ásamt Hjálmari
Vilhjálmssyni manna fróðastur
um loðnuna.
Sagði Jakob að þessar veiðar
kæmu mjög til áiita, einkum þó ef
stofninn er sterkur. Slikar veiðar
myndu vissulega auka álagið á
stofninn, og þær hefðu einnig þær
neikvæðu hliðar, að loðnan væri
þá ekkibúin að ná fullum vexti og
ekki búin að hrygna.
HALFT
TÓLFTA
ÞÚSUND
í DAS-
HÚSINU
Frá þvi að happdrættishús DAS
að Vogalandi 11 var opnað al-
menningi laugardaginn S.april og
þar til á mánudagskvöld
heimsóttu húsið rúmlega 11500
gestir. Það er álíka mikil aðsókn
og varð að húsgagnasýningunni i
Laugardalshöll, sem lauk á
mánudagskvöld.
Baldvin Jónsson, fram-
kvæmdastjóri happdrættisins,
sagði blaðinu i gær, að flestir
komi um helgar og s.l. sunnudag
hafi komið hátt á fimmta þúsund
gesta. Sagðist hann búast við um
30 þúsund gestum áður en
sýningunni á húsinu lýkur n.k.
þriðjudagskvöld.
Byggir Baldvin þessa spá á þvl,
að þegar siðast var talið i
happdrættishús, fyrir tveimur
árum á Flötunum i Garðahreppi,
hafi komið 25 þúsund gestir, og
von sé á fleirum i þetta skipti þar
sem húsið er i Reykjavik.
Daginn eftir að sýningunni
lýkur fer fram fyrsti dráttur i
happdrættinu og dreginn út
Mercedens Benz, auk fjölda
annarra vinninga.
t happdrættishúsunum er i
rauninni húsgagnasýning þar
sem teiknarar og framleiðendur
sýna verk sin i réttu umhverfi, en
fólk flykktist lika á húsgagna-
sýninguna i Laugardalshöll þar
sem húsgögn voru i básum.
Sú sýning var i rauninni kaup-
stefna, og sagði Stefán Snæ-
björnsson framkvæmdastjóri
sýningarinnar, að sýnendur þar
væru yfirleitt nokkuð ánægðir
með undirtektirnar, sem voru
betri en á síðustu sýningu.
Hún var betur sótt af al-
menningi og kaupmenn virðast
vera að komast á bragðið með að
notfæra sér þessa þjónustu, þ.e.
að panta vörurnar á kaupstefnu.
Jakob sagði, að loönuveiðar
væru bannaðar fyrri hluta sum-
ars, og um loðnuveiði fyrir
Norðurlandi yrði þá helzt að ræða
á haustin.
Vel mætti þvi hugsa sér að
árangurinn væri mjög sterkur, og
lengja hina eiginlegu loðnuvertíð
hér, ef vitað væri að árgangurinn
væri mjög sterkur, og byrja veið-
arnar undan Norðurlandi á
haustin, og fylgja siðan loðnunni
austur fyrir land alveg upp að
suðurströndinni, en þar hefur
aðal loðnuveiðin verið undanfarin
ár, eins og kunnugt er.
Á MORGUN
í KÓPAVOGI
Hátlðahöld i Kópavogi á
morgun hefjast klukkan hálf tvö
við félagsheimilið, og koma
þangað m.a. skátar, iþróttafólk
og skólafólk en hestamenn úr
Gusti ríða um svæðið.
Skrúðganga heldur siðan frá
Félagsheimilinu um Vogatungu,
yfir brúna, eftir gamla Hafnar-
fjarðarveginum, Kópavogsbraut,
Skólagerði að Kársnesskóla, og
fara skátar og Skólahljómsveit
Kópavogs fyrir göngunni.
tJtisamkoma hefst við skólann
klukkan tvö, og flytur sr. Arni
Pálsson þar ávarp, en siðan
verður lúðrablástur, söngur
karlakórsins Faldafeykis úr Vig-
hólaskóla. Þá syngja og leika þrlr
piltar úr Þingholtsskóla og Ómar
Ragnarsson skemmtir.
Inniskemmtanir fyrir börn
verða I Kópavogsbiói kl. 3 og hálf
sex, og sýna skólanemendur þar
m.a. leikrit og sýndur verður
djass-dans og stepp-dans.
NOBELMENN FÁ
KAUPHÆKKUN
Nóbelsverðlaunahafar i ár
eiga von á „kauphækkun”.
Akveðið hefur verið, að verð-
launin verði sjö milljónir og
800 þúsund krónur, sem er
hækkun um rúma hálfa
milljón frá þvi, sem áður var.
Verðlaunin hafa hækkað um
180% frá 1953.
JUNÍ111 SJÓSETTUR
S.í. föstudag var sjósettur i
San Sebastian á Spáni annar
togarinn af þeim fjórum þúsund
lesta togurum, sem smiðaðir
eru á Spáni hjá skipasmiða-
stöðinni Astilleros Luzeriaga.
Eigandi þessa togara er
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Frú Sólveig Björnsdóttir, ekkja
Asgeirs Stefánssonar, fyrsta
framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins skirði skipið og hlaut
það nafnið Júni og fær ein-
kennisstafina GK 345.
Þessi togari er hinn þriðji i
röðinni, sem ber nafnið Júni hjá
Bæjarútgerðinni. Smiði skipsins
hófst siðari hluta s.l. árs, og það
á að afhendast i októbermánuði
n.k. Myndin er frá sjósetning-
unni.
PLASTIÐJAN Á AKUREYRI
A siðasta ári framleiddi
Plastiðjan Bjarg á Akureyri
samtals 355 þúsund hluti til raf-
lagna og var heildarvelta fyrir-
tækisins 5 milljónir króna.
Plastiðjan var rekin af Sjálfs-
björg, félagi fatlaðra á Akureyri
og voru gerðar hjá fyrirtækinu
ýmsar tilraunir með fram-
leiðslu fiskikassa og fiskibakka
og stórjókst sú framleiðsla á
árinu.
A vegum samtakanna er
rekin Endurhæfingarstöð og
kom i ljós, að eftirspurnin eftir
meðferð varð miklu meiri en
reiknað var með I upphafi.
Frá upphafi hafa á fjórða
hundrað manns notið meðferðar
á stöðinni, og háir það mjög
starfseminni, að ekki hefur
tekizt að fá fleiri sjúkraþjálfara
til starfa.
NY LANDHELGISVEL
Nú hefur verið ákveðið að
Landhelgisgæzlan kaupi Fokker
Friendshipflugvél frá Japan, til
gæzlustarfa, en Gæzlan hefur
ekki átt flugvél siðan i fyrra, að
SIF var seld.
Að sögn Péturs Sigurðssonar,
forstjóra Landhelgisgæzlunnar,
hefur verið unnið að þessum
kaupsamningum um nokkurn
tima.
Pétur sagði, að það hafi átt
stóran þátt i þvi að Fokker var
keyptur i stað annarar vélar, að
Flugfélag tslands á Fokker og
eru því þjálfaðir viðgerðarmenn
og flugmenn þaðan til taks, auk
þess sem hér eru varahluta-
birgðir i vélina.
UOSMYNDARAR
Aðalfundur Ljósmyndarafélags
tslands var haldinn 29.febrúar
1972 i Hótel Esju. Fráfarandi
stjórn var öll endurkjörinn, en
hana skipa: ÞórirH. Oskarsson,
formaður, Rúnar Gunnarsson,
varaformaður, Guðmundur Er-
lendsson gjaldkeri. Heimir
Stigsson ritari. Guðmundur
Hannesson meðstjórnandi.
22 ÁRA STARFSAFMÆLI
A 22 ára starfsferli
Þjóðleikhússins hafa verið sýnd
samtals 244 verkefni en það er
einmitt á sumardaginn fyrsta,
sem leikhúsið á 22 ára starfsaf-
mæli.
Þá verða sýnd tvö verkefni.
Annað er barnaleikritið Gló-
kollur og hitt söngleikurinn
Oklahóma.
HAFNARFJORÐUR
A fundi bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar 21.marz sl. var
gerð eftirfarandi samþykkt:
,,t tilefni af þeim athugunum,
sem fram hafa farið á flutningi
á aðsetri Landhelgisgæzlunnar
hingað til Hafnarf jarðar,
áréttar bæjarstjórn áhuga sinn
á framgangi málsins.”
BYGGINGAFRÆÐINGAR
Nýlega hélt Byggingafræði-
félag lslands aðalfund sinn að
Hótel Loftleiðum. Félagar i
BFI eru 26 talsins og er
núverandi formaður Sigurður
Guðmundsson.
PLÓGUR & STJORNUR FOSTBRÆÐUR
Nú eru siðustu forvöð að sjá
Plóg og stjörnur, hið fræga
irska leikrit Seans O’ Caseys,
sem sýnt hefur verið i Iðnó i
vetur.
1 leiknum er lýst af safa-
mikilli irskri kimni atburðum,
sem ekki eru ólikir þvi, sem
daglega berast fréttir af frá
Norður-trlandi núna.
Á mánudag,þriðjudag og mið-
vikudag munu þeir efna til sam
söngva fyrir styrktarfélaga
Austurbæjarbiói og hefjast þeir
kl. 7.15 öll kvöldin.
Þá munu þeir vigja félags-
heimili sitt að Langholtsvegi
109-11 laugardaginn 22.april og
næstu tvær vikur á eftir efnir
kórinn til sjö skemmtikvölda
fyrir styrktarfélaga.
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra fór utan I morgun til við-
ræðna við forystumenn Efna-
hagsbandalags Evrópu. Mun
utanrikisráðherra reyna að koma
skriði á viðræður tslendinga og
bandalagsins um viðskipta- og
tollamál.
Þær viðræður hafa algerlega
legið niðri siðan EBE setti land-
helgismálið á oddinn i viðræðun-
um. Ekki er vitað hvort utanrikis-
ráðherra hefur meðferðis ein-
hverjar tillögur i málinu.
Með honum I förinni er Þór-
hallur Asgeirsson ráðuneytis-
stjóri. Fara þeir i dag tii Luxem-
burgar, og til Brussel á morgun.
t förinni munu þeir tala við
helztu forystumenn Efnahags-
bandalagsins, þar á meðal utan-
rikisráðherra Belgiu. Pierre
Ilarmel.
Eins og kunnugt cr, hófust við-
ræður við bandalagið um við-
skipta- og tollamál, þegar ljóst
var, að mörg riki innan EFTA
mundu sækja um aðild að EBE.
Upp úr viðræðunum slitnaði svo
þegar tslendingar tilkynntu ein-
hliða útfærslu landhelginnar I 50
miiur og hefur bandalagið látið á
sér skilja, að ekkert verði úr
samningum nema tslendingar
hætti við útfærsluna. För Einars
er þvi farin i þvi markmiði að
reyna aö höggva á þann hnút.
A FIORDA ÞUSUND MILUONA
í SPARISJÓÐUM LANDSMANNA
Upphæð heildarinnlána i spari-
sjóðunum á landinu nam i lok slð-
asta árs þremur milljörðum 221
millión króna og höfðu lánin þvi
aukizt um tæplega hálfan
milljarð á árinu.
Innlánin eru mjög misjöfn eftir
stærð sparisjóðanna og námu þau
innan við einni milljón króna i
minnsta sparisjóðnum, en i þeim
stærsta um 530 milljónum króna.
Þessar upplýsingar komu fram
á aðalfundi Sambands islenzkra
sparisjóða, scm haldinn var ný-
lega.
BÓLAN FÆLIR FERÐAMANNINN EKKI FRA
Bólnsóttartilfellin, sem upp
kontu i Júgóslaviu, hafa engin
áhrif haft á ferðamannastraum-
inn þangað, og hefur bólusóttar
einungis orðið vart á nokkrum
stöðum þar sem ferðamenn eiga
ekki leið um. Á ströndinni hefur
hennar ekkert orðið vart.
Nokkir islendingar voru I
Júgóslavfu um páskana á vegum
Landsýnar, og eru þeir komnir
heim, hinir hraustlegustu, enda
sumarbliða þar, hiti 17-24 stig.
Alþjóða heilbrigðisstofnuninni
eru daglega gefnar skýrslur um
ástandið, og gætt hefur verið sér-
stakra varúðarráðstafana, svo
sem aö bóiusetja alla Ibúa lands-
ins.
Ferðalögum til og frá Júgó-
slaviu hefur verið haldið aö mestu
áfram, en ferðamannastraumur-
inn hefst að marki i mai.
Iláðlagt er þó um óákveðinn
tima að láta bólusetja sig, ætli
menn til Júgóslaviu.
i landinu eru nú starfandi 50
sparisjóðir og af þeim eru 41
innan vébanda sambandsins.
í sparisjóðunum nú eru varö-
veitt um 17.9% af spariinnlánum
bankakerfisins.
Hefur það hiutfall litið raskazt
undanfarin ár þrátt fyrir fækkun
sparisjóða og fjölgun bankaúti-
búa.A árinu 71 hættu þrir spari-
sjóðir störfum. Sameinuðust tveir
þeirra bankaútibúum, en þeim
þriðja, Sparisjóði Alþýðu, var
breytt i banka.
Elzti starfandi sparisjóður
landsins, Sparisjóður Siglu-
fjarðar, verður hundrað ára I jan-
uar 1973.
o
Miövikudagur 19. apríl 1972