Alþýðublaðið - 07.05.1972, Side 3
BROT A
VENJUNNI
Þetta er handhægur brúðar-
kjóll og ef til vill viðeigandi
aö hafa hann i svörtu - þvi
hann er ekki sakleysislegur
að sjá nema framanfrá.
Hann er vart kominn í tizku
enn - var fyst kynntur fyrir
skemmstu í brezku leikriti,
,,Liggjandi verur" - og leik-
konan heitir Jeannette
Cochrane.
FÆRIR MADURINN ÞINN
ÞÉR KAFFI í RÚMIB?
Gætið nákvæmlega að öllu, þér
konur, sem eigið svo einstaklega
hugulsaman eiginmann, að hann
tekur það jafnvel upp hjá sjálfum
sér, að færa yður kaffið i rúmið á
morgnana!
Þeir eiginmenn, sem auðsýna
konum sinum slika ástúð og
stimamýkt, geta nefnilega verið
áfengissjúklingar á laun og á
byrjunarstigi, og megin tilgangur
þeirra með hugulseminni verið sá
að fá sér viskidreitil án þess að
konan hafi hugmynd um það, til
þess að ræsa liffærastarfsemina
eftir nætursvefninn.
bað er brezkur sálfræðingur,
dr. Bruce Ritson, starfandi við
konunglega sjúkrahúsið i Edin-
borg, sem komizt hefur að þessari
merkilegu niðurstöðu.
Á ráðstefnu hálærðinga i Lund-
únum, sagði hann að um 40% af
áfengissjúklingum þjóðarinnar
leyndu sjúkleika sinum fyrir fjöl-
skyldunni og sinum nánustu.
Hann telur að þetta sé viðlika
almennt innan allra stétta þjóðfé-
lagsins. Þegar þvi eiginmað-
urinn segir: Nú skal ég færa þér
kaffið i rúmið, elskan, er eins lik-
legt að hann sé að laumast i stút-
inn, eins og Páll Ólafsson forðum.
ÞAD VEIT EKKI Á GOTT
!iiil—
Sumarbústaður sem eltir sólskinið
Eins konar sumarbústað á hjól-
um er nú að fá hjá Gisla Jónssyni
& Co i Skeifunni 6. Er hér um að
ræða hjólhýsi af gerðinni
Cavalier, amerisk, sem fyrirtæk-
ið hefur nýhafið innflutning á.
Myndin að ofan er af einu slikra
hjólhýsa, og segja forstöðumenn
fyrirtækisins að vart sé hægt að fá
betri bústað i islenzkri veðráttu,
auk þess sem hjólhýsi sé gætt
þeim kostum, að elta megi sól-
skinið og eiga þannig sinn sumar-
bústað á óskastaðnum á hverjum
tima, — skipta svo um stað þegar
þurfa þykir.
Cavalier hjólhýsin eru með
styrktum fjöðrum og grindum og
mikið einangruð. Sjálfvirkur
bremsubúnaður bremsar hjól-
hýsið um leið og billinn hægir á
sér, og stefnuljós og bremsuljós
eru auðveldlega tengd rafkerfi
biísins.
Vandað eldhús er i hýsinu, i það
má fá kæliskáp, salerni o.fl. — og
svefnsófar eru fyrir 4—6 fullorðna
auk þess hengikojur fyrir börn.
Hjólhýsi eru sögð létt i drætti og
henta öllum venjulegum bilum.
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■
: Áskriftarsíminn er :
j 86666
■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■
Við bjóðum yður velkomin á Aðalskrifstofu okkar í
Ármúla 3.
Starfsfólkið þar er reiðubúið til að ganga frá nauð-
synlegum tryggingum fyrir yður og gera áætlun um
heildartryggingaþörf yðar persónulega eða fyrirtækis
yðar.
Skoðunarmenn tjóna eru sérmenntaðir á sínu sviði og
leggja kapp á að hraða uppgjöri hvers konar tjóna og
láta sanngirni ráða við ákvörðun tjónbóta.
Eftirlitsmenn á sviði eldvarna og tjónavarna veita yður
leiðbeiningar um varnir gegn slysum á vinnustöðum
og eldsvoða hjá atvinnufyrirtækjum.
Við erum reiðubúin að leysa hvers konar vandamál
yðar á sviði trygginga, tjóna og tjónavarna.
Þér eruð velkomin í Ármúla 3. SÍMI 38500
SAM\I > > IIHYÍ ; í i i >c;ar
Sunnudagur 7. maí 1972