Alþýðublaðið - 14.05.1972, Side 2
Hendurnar
John Lennon er 31
árs. Hann hefur
mótmælt flestu síö-
an hann tók saman
við Yoko Ono. Hann
segist nú vera sósía-
listi og syngur
„Power to the
People." Paul Mc-
Cartney er þritugur.
Hann hefur varla
látiö sig varöa
pólitik áður. Nú
heimtar hann Irland
handa irum.
segja meira
um þig en
þú heldur!
Greipar
1 hvert skipti sem þú
spennir greipar fyrir fram-
an þig, veitirðu upplýs-
ingar um persónugerð
þína. Hvernig þú leggur
hendurnar þegar þú ert
seztur i hægindastölinn
þinn, getur sýnt hvernig
maður þú i rauninni ert.
Hátternissérfræðingar
hafa fyrir löngu veitt þvi
athygli að hendur okkar
veita upplýsingar um skap-
gerð okkar. Löfalestrar
beita og þeirri tækni.
Samkvæmt kenningum
Walters Sorrells, eins af
þessum sérfræðingum, er
auðvelt að skilja þetta
táknmál, en hann hefur at-
hugað handhreyfingar
fólks i þvi skyni áratugum
saman.
Biðjið einhvern að
spenna greipar. Hvor
þumalfingurinn veröur
ofan á? Sé það hægri
þumalfingurinn, er liklegt
að viðkomandi sé raun-
sæismaður. I senn athafna-
maður og hugsaður.
Myndir af Mao Tse-tung
sýna, að hann spennir
greipar á þann hátt.
Draumóramenn.
Verði vinstri þumalfingur-
inn ofan á, er liklegt að við-
komandi sé draumóramað-
ur. Maður, sem gefið er
rikt imyndunarafl, og lætur
hugboð ráða. En Sorrell
tekur það skýrt fram, að
ekki megi dæma eftir
þumalfingrunum nema
önnur merki séu tekin með
i reikninginn.
Athugaðu þvi enn nánar
hvernig viðkomandi hagar
höndum sinum i hvild.
Réttir hann gleitt úr
fingrunum?
Sé svo, þá heldur Sorreli
þvi fram, að það sé merki
um sterka einstakiings-
hneigð, viðkomandi sé að
öllum likindum hreinskil-
inn, viðbragðsfljótur og
næmur fyrir áhrifum.
Maður, sem ekki ergefinn
fyrir hik, þegar athafna er
krafizt. Sir Winston
Churchill var einn af þeim,
sem rétti gleitt úr fingrun-
um.
Ef viðkomandi kreppir
hnúana og lokar fingrum i
lófa, er ekki óliklegt að
hann sé feiminn og hlé-
drægur og sennilega
varkár um of.
Ef viðkomandi kreppir
fingur um fremstu hnúa
bendir það til sjálfsdýrk-
unar, gæti og verið merki
um öryggisskort eða and-
lega streitu.
Ef viðkomandi kreppir
svo og réttir á vixl úr hnú-
unum, er vissara að vara
sig á honum, segir Sorrell.
Adolf Hitler hafði þann
kæk.
Framréttir, stifir fingur
bera vitni varfærni og efa-
girni, að viðkomandi sé
gagnrýnin persóna, sem
ekki eigi auðvelt með að
laga sig að öðrum, sem
hann umgengst.
Séu fingur lauskrepptir
um fremsta lið, bendir það
til þess að viðkomandi sé
fjörmikill, úthverfur og
gæddur aðlögunarhæfni.
Hann getur verið örlatur
og velviljaður, stundum
dálitið tillitslaus, auð-
reittur til gremju og segir
þá hverjum sina meiningu.
t bók sinni, „Frásaga
mannshandarinnar”, segir
Sorrell að þumalfingurinn
þegi um fátt sem skaphöfn
og persónugerð snertir.
Maður, sem felur þumal-
fingur með þvi að beygja
hann inn i lófann þarf &
vernd að halda — maður
sem öðrum er háður,
hneigður til þunglyndis og
svartsýni.
Gægist þumalfingurinn
aðeins fram á milli visi-
fingurs og löngutangar,
reiknar sérfræðingurinn
með þvi að viðkomandi sé
tortrygginn og uggandi
persónugerð.
En komi þumalfingurinn
hins vegar greinilega fram
á milli þessara fingra,
þannig að hann láti i raun-
inni nokkuð yfir sér, býst
hann við að eigandinn sé
gæddur miklu sjálfstrausti,
sem kunni bæði að gefa
fyrirskipanir og fram-
kvæma þær.
Kunnur, brezkur sál-
fræðingur hefur komizt svo
að orði um þessar kenn-
ingar Sorrells:
,,Ég veiti þvi alltaf ná-
kvæma athygli hvernig
viðkomandi ber til hend-
urnar. Það getur veitt
gagnlegar upplýsingar
varðandi andlegt ásig-
komulag sjúklingsins”.
Kvikmyndasnillingurinn
Orson Welles var i eina tið
áhugasamur lófalesari. En
hann hætti þvi, þegar hann
komst að raun um að hann
sagði fólki hið sanna um
sjálft sig.
Hann segir: „Lófalesari
getur orðið margs fróðari
um menn með þvi að taka
eftir vissu handahátterni
þeirra”.
Flestir leikarar eru sér
mjög meðvitandi um hend-
ur sinar.
John Donaldson, einn af
leikstjórunum hjá Saddler
Wells, segir: „Það gegnir
furðu hversu margir leik-
arar, jafnvel þaulreynir,
hafa ekki hugmynd um
hvernig þeir eiga að beita
höndunum”.
„Flestir þeirra ofleika
með höndunum, svo ekki er
neinu lagi likt. Þeim finst
að þeir verði stöðugt að
nota þær til áherzlu. Það er
blátt áfram martröð fyrir
leikstjórann að fá þá til að
halda eðlilega að sér hönd-
um”.
Sorrell fer oginokkrum orð
um um þessar áherzlu-
hreyfingar.
„Veitið athygli hvernig
ræðumenn á opinberum
fundum pata með höndun-
um, rétt eins og þeir vilji
segja: Ég geri ráð fyrir að
verða fyrir árásum, og er
reiðubúinn að verja mig”.
Úthverfir.
Terri viðkomandi þumal-
fingurinn upp á við, bendir
það til einstefnu i hugs-
unarhætti i þvi skyni að ná
settu marki.
Og þegar hann heggur á
með þumalfingrinum til á-
herzlu, er viðkomandi út-
hverfur að skapgerð, ein-
beittur og röggsamur.
Handhreyfingar til á-
herzlu eru mönnum eðli-
legar, segir Sorrell og sum-
ir ganga þar svo langt, seg-
ir hann, að þeir tala að
vissu leyti með höndunum.
Fólk af Bubis-kynstofn-
inum i Afriku getur ekki
talað saman i myrkri,
vegna þess að handahreyf-
ingarnar ráða svo miklu
um merkingu orðanna.
Og Purisarnir i Braziliu
nota eitt og sama orðið yfir
„i gær”, „i dag” og „á
morgun”.
Þeir benda þvi aftur fyrir
sig, þegar það táknar „i
gær”, til himins þegar það
táknar „i dag”, og fram
fyrir sig, þegar það táknar
„á morgun”.
Bretar notuðu mikið
handhreyfingar til áherzlu
orðum sinum áður fyrr, en
vöndust af þvi á viktori
anska timabilinu, þar eð
slikt var þá talin ókurteisi.
Nú eru þær handhreyfingar
teknar að færast i aukana
aftur.
Nema ef viðkomandi vita
af Sorrell i nánd. Þá stinga
þeir höndum i vasa.
ÞEIR STORGRÆDA A STYRIOLDUM
06 HUNGUR ER KIRRA LIFIBRAUD
Það er sala i styrjöldum,
múgmorðum og frelsis-
styrjöldum. Þeir sem gera
sér það ljóst, eru með á
nótunum.
Þeir hinir miklu popp-
listamenn hafa lika verið
fljótir að átta sig á þvi, að
það gefur drjúgan skilding
i aðra hönd að syngja mót-
mæli gegn þvi, sem allir
eru á móti
George Harrison og Joan
Baez syngja um Bangla-
desh, John Lennon um
trska lýðveldisherinn og
krefst „valds til handa
fólkinu”, Paul Mc Cartney
„Afhendið trum aftur lr-
land” og Bob Dylan um
„George Jackson”
Hugsjónir?
Hvað hefur eiginlega
gerst? Hvernig stendur á
þvi að þeir John Lennon og
Paul McCartney eru allt i
einu hættir að syngja
tviræða söngva, þar sem
þeir bera hvorn annan öll-
um vömmum og skömm-
um, og eru þess i stað orðn-
ir snjóhvitir hugsjóna-
menn, sem gera sér grein
fyrir þjáningum og böli
annarra og finna til með
þeim?
Einungis það, að slikt
gefur peninga i aðra hönd.
Paul hefur aldrei aðra eins
auglýsingu og i sambandi
við „Afhendiö trum aftur
trland”, þar eð platan var
bönnuð i brezka útvarpinu.
Allar þessar stjörnur vita
ósköp vel hvaða aðferð er
liklegust til að ná frægð og
frama.
Og þær vita allar fyrst og
fremst hvaða ráð eru væn-
legust til að græða milljón-
ir. Þar með er ekki sagt að
um einlægni geti ekki verið
að ræða á bak við þær
aðgerðir. Með hljómleikum
sinum hafa þeir Harrison
og Dylan safnað fé svo
milljónum punda skiptir til
handa hinu nýja riki,
Bangladesh...en þarf svo
mikið hugrekki til þess að
æpa inn i hljóðnemann
mótmæli gegn þvi sem allir
eru á móti?
Paul McCartney er það
eflaust alvara, að afhenda
beri trum aftur trland.
John Lennon er vafalaust
fylgjandi trska lýðveldis-
hernum.
Bob Dylan heldur þvi
fram með fullum rétti, að
aftaka George Jackson hafi
einungis verið handhæg að-
ferð til að loka munninum á
áhrifamiklum negra.
Joan Baez og Heorge
Harrison taka afstöðu gegn
styrjöldinni i Pakistan og
hylla hið nýja riki,
Bangladesh. Gera 'það ekki
allir? Popp og pólitik er allt
i einu orðinn eftirsóttur
söluvarningur sem græða
má á milljónir...eins og
poppið og Jesú.
Þessum popplistamönn-
um hryllirað sjálfsögðu við
fréttunum i sjónvarpi og
útvarpi og dagblööunum,
þegar þar er skýrt frá ugg-
vænlegum ofbeldisaðgerð-
um, eins og okkur öllum -
munurinn er einungis sá,
að þeir kunna að græða á
þvi. Það gildir einu, þótt
sjónarmið kunni að vera
almennt og hversdagslegt,
einungis ef mótmælin eru
öskruð nógu hátt! Ekki
samt of ákveðið, ekki allt of
brennandi...þvi að ekki má
hræða fólk. En dálitlir
gárar á yfirborðinu, það er
lóðið!
Það geta allir verið sam-
mála hálfkveðnum mót-
mætlum. Þeir listamenn,
sem taka einbeitta afstöðu,
eiga ekki eins auðvelt með
að selja hana.
o
Sunnudagur 14. maí 1972