Alþýðublaðið - 14.05.1972, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 14.05.1972, Qupperneq 3
Á KONAN AÐ SITJA HEIMA EÐA VINNA ÚTI? HVAD KEMIIR I HLIIT NEIMILISINS EF HOS- MÚBIRIH LEGGUR A SIC MB AUKAERFIDI tfl VIHHA UTI Hvað kemur i hlut heimilisins ef húsmóðirin leggur það aukaerfiði á sig að vinna úti? Við þeirri spurningu er ekki hægt að gefa neitt algilt svar. Það fer mikið eftir tekjum heimilisföðurins og auðvitað einnig eftir þvi, hvort konan telur sjálf fram sinar tekjur til skatts eða ekki. Sé eiginmaðurinn með minna, en meðaltekjur getur útivinna eiginkonunnar orðið til þess að hækka eiginmanninn i skatt- stiga auk þess sem rikið hirðir að sjálfsögðu sinn hluta af tek- jum konunnar. Til þess að komast hjá sliku getur konan að visu talið sérstaklega fram. Samkvæmt gömlu skatta- reglunum var það þó ekki talið borga sig, nema konan hefði þeim mun hærri tekjur, þvi ef hún telur sérstaklega fram, þá skipta hjónin eðlilega öllum frádráttarliðum á milli sin og frádráttur lækkar þvi að sama skapi hjá eiginmanninum. Engir slikir útreikningar hafa verið gerðir á skattaframtals- málum hjóna samkvæmt hinu nýja skattakerfi, a.m.k. ekki svo Alþýðublaðinu sé kunnugt um, en þó má telja nokkurn veginn vist, að það borgi sig ekki fyrir konu að að gefa sér- framtal og óska eftir sér- skattlagningu, þótt hún vinni eitthvað úti. Ef maðurinn hefur hins vegar meðaltekjur eða meira hafa launatekjur konu engin áhrif til að hækka eiginmanninn i skattstiga, þarsem meðaltekjur nægja til þess, að fylgt sé hæstu leyfilegri álagningu,— 10% brúttóálagningu til útsvars og 45% nettóálagningu til tekju- skatts. 1 slikum tilvikum er miklu auðveldara fyrir fólk að reikna út, hve miklu við- komandi heimili fær að halda eftir af launatekjum konu, vinni hún úti, og hvað mikið riki og bær taka til sin. Útivinna konu skapar heimilinu hreinn tekjuauka, en ekki neina nýja frádráttarliði. Persónufrádráttur, vaxta- frádráttur og aðrir frádráttar- liðir, sem heimilið nýtur gagnvart skattaálagningu, eru nákvæmlega þeir sömu, hvort heldur konan vinnur úti, eða ekki. Hluti hennar i persónu- frádrætti og öðrum frádráttar- liðum breytist ekkert við úti- vinnuna og sá eini frádráttur, sem hægt er að reikna með varðandi launatekjur konu, þegar hjón gera það upp við sig, hvort það „borgi sig” fyrir konuna að vinna úti, er aðeins sá helmingsfrádráttur af launa- tekjum konunnar, sem reiknaður er til tekjuskatts. Með gamla kerfinu naut konan einnig helmingsfrádráttar til útsvars, en rikisstjórnin lét fella þann frádráttarlið niður i hinum nýja skattalögum. Stundi eiginkona vinnu utan heimiiis og fái t.d. 100 þús. kr. i 'launatekjur á ári aukast skattgjöld heimilisins þar af leiðandi eins og sýnt er hér að aftan og er þá reiknað með þvi, að eiginmaðurinn hafi meðal- tekjur og útivinna konunnar hækki hann þvi ekki i skattstiga. Til útsvars: Enginn frá- dráttur er veittur i sambandi við launatekjur konu. Álagningin er 10%. Eitt hundrað þús.kr.ári launatekjur konu fyrir úti vinnu verða þannig til þess, að útsvarið á heimilinu hækkar um 10 þús. kr. Til tekjuskatts: Veittur helmingsfrádráttur á launa- tekjur konu. t þessu dæmi koma þvi 50 þús. kr. af 100 þús. kr. tek- jum konunnar til skatts. A- lagningin er 45%. Vegna 100 þús. kr. tekna konunnar þarf heimilið þvi að greiða 22.500 kr. meira i tekjuskatt. Samtals i opinber gjöld þarf viðkomandi heimili þvi að greiða 32.500 kr. aukalega i útsvar og tekjuskatt vegna þess, að konan vinnur úti fyrir 100 þús. kr. á ári. U.þ.b. þriðja hver króna, sem húsmóðirin vinnur sér inn, fer þannig i kassa rikis og sveitarfélags, — langmest þó i þann fyrrnefnda kassana Þannig litur dæmið út fyrir meginþorra islenzkra heimila. ÞAÐ ER EKKI SAMA HVOR KONAN ER GIFTINGARVOTTORfllD GETUR HÆKKAfl SKATTA En það kostar konuna einnig stórfé I sambandi við skatta- málin, að hafa fengið blessun rikis eða kirkju á samband sitt við manninn, sem hún býr með,— þ.e.a.s. að búa með . honum i löggiltu hjónabandi. í greinaflokki, sem Gylfi Þ. Gislason skrifaði um skattamál hjóna i Alþýðublaðið fyrir páska nefndi hann sláandi dæmi um þetta. Dæmið er i stuttu máli á þessa leið. Karlinn A og konan B búa saman i hjónabandi og halda heimili. Sameiginlega hafa þau 600 þús. kr. i tekjur, karl- maðurinn 400 þús. og konan 200 þús. Af þessum tekjum þurfa hjónin að greiða 155.450 kr. i tekjuskatt aðeins. Karlmaðurinn C og konan D búa saman og halda saman heimili, en hafa ekki gengið i hjónaband. Þau hafa sömu tek- jur og A og B,— 600 þús. kr. —, og fengnar á sama hátt,— konan vinnur fyrir 200 þús. kr., en karlmaðurinn fyrir 400 þús. kr. Vegna þess, að hjónaleysi þessi eru ekki lormlega gnt, stimpil kóngs og kirkju vantar, eru þau skattlögð, sem tveir einstak- lingar og borga samtals i tekju- skatt 114.700 kr. Það, að konan B og karlinn A lifa i formlegu hjónabandi að guðs og manna lögum, hefur það i för með sér, að þau borga 40.750 kr. meira i tekjuskatt hafandi samtals 600 þús. kr. tek- jur, en hjónaleysin C og D i næsta húsi, sem hafa nákvæm- lega sömu tekjur og eins fengnar og hjónin A og B. Dýrt giftingarvottorð það. Sunnudagur 14. maí 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.