Alþýðublaðið - 14.05.1972, Síða 6
Fimmta grein Gests Guðfinnssonar um ferðir innanlands
Sumarleyfistíminn nálgast nú
óðum, og margir eru sjálfsagt
farnir að velta þvi fyrir sér, hvað
þeir eigi aö gera af sér i sumar-
leyfinu. Flestir hafa nú mánuð til
umráða, sumir nokkru meira. A
þeim tima er hægt að flækjast
heilmikið, ef allt er vel skipulagt
og undirbúið með góðum fyrir-
vara. Það er þess vegna sjálfsagt
timabært að fara að vikja svolitið
að sumarleyfisferðunum i þess-
um þáttum. En fyrst langar mig
til að minnast örlitið á nokkrar
helgarferðir, sem orðið hafa út-
undan fram að þessu i upptaln-
ingunni.
Hekla og Katla
Fyrst er þá að geta ferða á
Heklu, það frægðarfjall, sem allt-
af stendur fyrir sinu. Farfuglar
ráðgera 2 daga ferð þangað 1.
júli, en Ferðafélagið tveggja og
hálfs dags ferð næstu helgi á eftir
eða 7. júli.
Það er ástæðulaust að fjölyrða
mikið umþetta merkilega eldfjall,
sem þekkt er um allar jarðir og
frægast islenzkra fjalla. Margir
urðu til að sækja Heklu heim i
seinasta gosi, sem er tiltölulega
nýafstaðið, en yfirleitt var ekki
gengið á fjallið, heldur látið
nægja að staldra ögn viö einhvers
staðar i námunda við eldstöðv-
arnar. Hins vegar má gera ráð
fyrir, að marga fýsi enn sem fyrr
að standa ,,á tindi Heklu hám” og
horfa yfir landið friða, eins og
segir i kvæði Jónasar, enda er
þátttaka venjulega góð i Heklu-
ferðum. Þetta er seiglingsganga,
Hekla bætti nokkru við hæöina i
gosinu 1947 og mun nú vera rétt
innan við 1500 metra yfir sjávar-
mál, en nokkur afföll verða á
þeirri tölu i göngu, dálítið mis-
munandi þó, eftir þvi hvaðan er
lagt upp. Enginn skyldi þó láta
sér vaxa i augum að ganga á
Heklu. Hins vegar vil ég ráð-
leggja öllum Hekluförum að biðja
guð um gott veður, þvi að Hekla
er dálitið þokusælt fjall, einkum i
sunnanátt.
Það er ekki úr vegi að geta um
ferð á Kötlu i sömu andránni og
Heklu er minnzt. Þetta eru i raun
og veru nokkurs konar eldfjalla-
systur. Farfuglar áætla ferð á
Kötlu 9. júni, en jafnframt ráð-
gera þeir ferð i Dyrhólaey, Mýr-
dal og Hjörleifshöfða. Ferðafé-
lagið er hins vegar með ferð i
Mýrdalinn 16. júni.
Það er nú liðin riflega hálf öldin
siðan Katla gaus seinast og fjallið
reyndar farið að „hafa yfir”. Úr
þessu má þvi búast við gosi hve-
nær sem er, svo framarlega sem
Katla er ekki dauð úr öllum æð-
um. Þeir sem vilja kynnast henni
„fyrir gos” ættu þvi að nota tæki-
færiö og heilsa upp á maddömuna
meðan hún er enn i skapi til að
taka á móti gestum og sinna þeim
i ró og næði.
Sögustaðir Njálu
Enn vil ég geta einsdagsferðar
á sögustaði Njálu, sem notið
hefur mikilla vinsælda undanfar-
in ár. Sú ferð er ráðgerð 2. júli og
er á vegum Ferðafélagsins.
Komið er á helztu sögustaði
Njálu: að Hliðarenda, Bergþórs-
hvoli, Keldum og að Dímoni á
Markarfljótsaurum, sömuleiðis
að Odda á Rangárvöllum. Sögu-
fróður leiðsögumaður verður
væntanlega i ferðinni, eins og
undanfarin sumur.
Þjórsárdalsferðir eru ekki ráð-
geröar sérstaklega, hvorki hjá
Farfuglum né Ferðafélagi
tslands, en falla hins vegar vænt-
anlega inn i lengri ferðir, sem
liggja um þessar slóðir, auk þess
sem gera má ráð fyrir að B.S.f.
verði með ferðir þangað, svo sem
oft áður.
Sumarleyfisferðir
Og þá er að snúa sér að sumar-
leyfisferðunum. Þar er lika úr
talsverðu að moða. Ferðafélag
lslands ráðgerir hvorki meira né
minna en 27 sumarleyfisferðir,
Farfuglar eru aftur á móti aðeins
með tvær á sinum snærum.
Sumarleyfisferðirnar eru ákaf-
lega mislangar eða allt upp i 14
daga og að sjálfsögðu viðsvegar
um landið, bæði i byggð og á ör-
æfum.
í Núpsstaðaskóg
Fyrsta sumarleyfisferðin á
vegum Ferðafélagsins er 6 daga
ferð um byggðir Vestur—Skafta-
fellssýslu og i Núpsstaðaskóg, ef
fært verður yfir Núpsvötn, en þau
eru óbrúuð ennþá Gengið verður
á Eystrafjall og Súlutinda, sem
eru við vesturjaðar Skeiðarárjök-
uls, og blasir þaðan við öræfajök-
ull og Skaftafellsfjöll. Siðustu nótt
ferðarinnar verður gist i Þórs-
mörk. — Ferðin kostar 4.700 krón-
ur.
Snæfellsnes og
Breiðafjarðareyjar
Um sama leyti eða 1.—4. júli er
fjögurra daga ferð um Snæfells-
nes og til Flateyjar, einnig á veg-
um Ferðafélagsins. Ekið verður
fyrir jökul og siðan farið með
flóabátnum Baldri til Flateyjar,
en heim um Skógarströnd og
Bröttubrekku. Þessi ferð er
nokkuð áþekk Breiðafjarðarferð-
inni um verzlunarmannahelgina,
en þó tekin dálitið á annan hátt,
fleiri staðir skoðaðir og farið
hægar yfir. — Ferðin kostar 3.300
krónur.
Lakagigar
Þá er Ferðafélagið með fjög-
urra daga ferð i Lakagiga 29 júli
— 1. ágúst, sem kostar 3.100
krónur. Gigarnir draga nafn af
fjallinu Laka á Siðuafrétti, en þar
gaus árið 1783. Þetta var
sprungugos og mynduðust um 100
gigar á sprungunni. Hraunið rann
alla leið niður á láglendi m.a. eft-
ir farvegi Skaftár og er talið
mesta hraun, sem komið hefur
upp i einu gosi á jörðunni siðustu
aldirnar. Af völdum gossins féll
verulegur hluti af búpeningi
landsmanna og um fimmtungur
þjóðarinnar lézt i móðuharðind-
unum, sem fylgdu i kjölfar eld-
gossins. A heimleiðinni verður
farið um Eldgjá og komið við i
Landmannalaugum.
Farfuglar eru lika með sumar-
leyfisferð i Lakagiga. Það er átta
daga ferð. 1 þeirri ferð er gert ráð
fyrir að staldra við i Núpsstaðar-
skóg og ganga á Súlutinda og að
Grænalóni. Ekið verður um
byggðir aðra leiðina, en hina að
Fjallabaki. Eins og sjá má af
þessarí upptalningu er gert ráð
fyrir að slá þarna margar flugur i
einu höggi.
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar hafa oft orðið
útundan i ferðalögum. Nú hefur
Ferðafélagiðhins vegar tekið þær
upp i ferðaáætlun sina, og er ráð-
gerð fimm daga ferð þangað 1.—
5. júli i sumar. Ekið verður til
Þorlákshafnar og fariðþaðanmeð
báti til Eyja. Siðan verða Eyjarn-
ar skoðaðar eftir þvi sem timi og
aðstæður leyfa, m.a. farið i Kaf-
helli og Fjósin, ef fært verður.
Mikill fengur er að þessari ferð
fyrir þá sem aldrei hafa til Eyja
komið, enda eru þær rómaðar
fyrir náttúrufegurð auk þess sem
Vestmannaeyjakaupstaður er
orðinn mesti útgerðarbær lands-
ins. Ferðin kostar 4.000 krónur.
wíííSSs
Þetta er Fjallfoss, einn hinna sex fossa I Dynjandiá I Arnarfirði og einhver friðasti foss landsins. enda
eftirsóttur til Ijósmyndunar. — Myndina tók Eyjólfur Halldórsson.
Þessi mynd er af Reiðskörðum á Barðaströnd, hinum sérkennilegu berggöngum i fjörunni, en þar lá
reiðvegurinn i gamla daga eftir leirunum. — Myndina tók Eyjólfur Halidórsson.
Drangeyjarferð
Ferðafélagið gerir ekki enda-
sleppt við eyjaferðir i sumar.
Þegar hefur verið getið tveggja
ferða i Breiðafjarðareyjar, og
Vestmannaeyjaferðar, en auk
þess er gert ráð fyrir ferð i
Drangey. 1 þeirri ferð, sem tekur
sex daga og er 4. — 9. júli, verður
Skagafjörður einnig skoðaður inn
til dala og út til sjávar, en þar er
hver sögustaðurinn öðrum merk-
ari, svo sem menn sjálfsagt
minnast úr Skagafjarðarkvæði
Matthiasar. Auk þess er gert ráð
fyrir að fara i þessari ferð fyrir
Skaga, um Fljót, Siglufjörð,
Ólafsfjörð, Svarfaðardal og
öxnadalsheiði. Þetta er mikið og
margbreytilegt ferðalag. En að
minum dómi er þó Drangeyjar-
förin hápunktur ferðalagsins og
alveg i sérflokki, eins og kaup-
sýslumennirnir mundu sennilega
orða það. Drangey er há úr sjó og
ákaflega sæbrött, svo sem flestir
vita. Hún er ekki geng nema á
einum stað, en öllum á að vera
fært að komast þar upp, enda
járnkeðja til stuðnings, siðasta
spölinn fyrir viðvaningana.
Faðirvorið var lesið við Gvendar-
altari, en sumir munu þó trassa
það núorðið, enda hefur það
verið prentað á skilti við upp-
gönguna til hagræðingar fyrir þá,
sem kynnu að vera farnir að
ryðga i bænagerðinni.
Þessi fjölbreytilega Skaga-
fjarðarferð kostar aðeins 4.950
krónur, og sýnist mér að þátttak-
endur fái ekki svo litið i aðra
hönd, ef vel tekst til.
Vestfjarðaferð
og ferðir á
Hornstrandir
Þá er Ferðafélagið með 9 daga
Vestfjarðaferð, sem stendur yfir
frá 11. — 19. júli. Farið er um
mikinn hluta Vestfjarða og ýmsir
áhugaverðir staðir skoöaðir. M.a.
er einum degi eytt i bátsferð til
Aðalvikur, um Jökulfirði til Snæ-
fjaliastrandar, þar sem billinn
tekur hópinn. Heimleiðin liggur
um Þorskafjarðarheiði og Dali. 1
þessari ferð eru áætlaðar fjall-
göngur, m.a. á Barða og Gölt. —
Vegir eru yfirleitt orðnir tiltölu-
lega greiðfærir um Vestfjarða-
kjálkann. Þó vantar ennþá
herzlumuninn, að unnt sé að aka
umhverfis Isafjarðardjúp, en
væntanlega verður fljótlega lokiö
við þann veg og opnast þá alveg
spáný ferðamannaleið, sem'
áreiðanlega verður mikið farin.
Vestfjarðaferðin kostar 7.000
krónur.
Tvær Hornstrandaferðir eru á
áætlun Ferðafélagsins i sumar,
sú fyrri 18. — 26. júli, hin siðari 24.
júli — 2. ágiíst. Þær kosta álika
mikið eða 7.000 og 7.300 krónur.
1 þessum ferðum er að sjálf-
sögðu notuð tvenns konar farar-
tæki, þ.e. bátar og bilar, en einnig
reiðskjótar postulanna, þvi aö
ekki verður alltaf öðrum farar-
tækjum við komið.
Hornstrandir eru nú mikið um-
talaðar sem væntanlegur þjóð-
garður og er það stórbrotin hug-
mynd, sem áreiðanlega á miklu
fylgi að fagna meðal lands-
manna. Þarna er óvenju hrika-
legt og sérstakt landslag, sem
varla á sinn Iika i þjóðgörðum
annarsstaðar á hnettinum að
ógleymdu fuglalifinu i Hornbjargi
og Hælavikurbjargi. Flestir
Hornstrandafarar e'ru á einu máli
um náttúrufegurðina í þessari af-
skekktustu eyðibyggð landsins og
sumir fara þangað aftur og aftur
og fá sig aldrei fullsadda af lands-
laginu.
0
Sunnudagur 14. mai 1972