Alþýðublaðið - 27.05.1972, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.05.1972, Blaðsíða 2
ADVÖRUN TIL HÚSÁSMIÐAMEISTARA Af marggefnu tilefni eru húsasmiða- meistarar og aðrir atvinnurekendur tré- smiða alvarlega áminntir um að standa skil á iðgjaldagreiðslum til lifeyrissjóðs byggingamanna. Trésmiðafélag Reykjavikur. Frá Húsmæðraskóla Reykjavíkur Sýning á vinnu nemenda verður opin i dag laugardaginn 27. mai frá kl. 14 - 22 og sunnudaginn 28. mai frá kl. 10 - 22. Skólastjóri. Fíateigendur athugið Vorum að fá mikið úrval af varahlutum í Fiat bifreiðir: Kúplingsdiskar Kúplingspressur Kúplingslegur Stefnuljós og Stefnuljósagler Stöðuljós og Stöðuljósagler Stýrisendar Spindilkúlur Vatnsdælur Kveikjuhlutir. ÖLL VERÐ ÓTRÚLEGA HAGSTÆÐ. SÞh varahlutir Suðurlandsbraut 12 — Reykjavik — Simi 36510 AÐALFUNDUR Sölusamband islenzkra fiskframleiðenda verður haldinn i Tjarnarbúð miðvikudag- inn 14. júni, 1972 kl. 10 f.h. Dagskrá sam- kvæmt félagslögum. Stjórn Sölusambands isl. fiskframleiðenda. t þökkuni auðsýnda sarnúð við andlát og jarðarför konu minnar, móður og tengdamóður Marsibil K. Kristmundsdóttur Stangarholti 28. Hallgrímur Guömundsson. Kristin Hallgrimsdóttir. Hilmar Vilhjálmsson. Óskar Hallgrimsson. Rakel Sæmundsdóttir. SÓLUTJÖLD Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAG: Þeim, sem hyggjast sækja um leyfi til að setja uppsölutjöld á þjóðhátiðardaginn 17. júni n.k., ber að hafa skilað umsóknum fyrir 7. júni n.k. á skrifstofu borgarverk- fræðings, Skúlagötu 2, 3. hæð. Umsóknareyðublöð liggja frammi á sama stað. Þjóðhátiðarnefnd. Umferðarfræðsla BRÚÐULEIKHÚS 0G KVIKMYNDASÝNING Fyrir 5 og 6 ára börn i Reykjavik. Lögreglan og Umferðarnefnd Reykja- vikur i samvinnu við Fræðsluskrifstofu Reykjavikur efna til umferðarfræðslu fyr- ir 5 og 6 ára börn i Reykjavik. (Fædd 1965 og 1966). Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar um eina klst. i hvort skipti. Sýnt verður brúðuleikhús og kvikmynd auk þess sem börnin fá verkefnaspjöld. 1.-2. júni 6 ára börn 5ára börn Melaskóli 09.30 11.00 Austurbæjarskóli 14.00 16.00 5. - 6 júni Vesturbæjarskóli 09.30 11.00 Hliðaskóli 14.00 16.00 7. - 8. júni. Álftamýrarskóli 09.30 11.00 Vogaskóli 14.00 16.00 9. - 12. júni. Hvassaleitisskóli 09.30 11.00 Laugarnesskóli 14.00 16.00 13. - 14. júni Breiðagerðisskóli 09.30 11.00 Langholtsskóli 14.00 16.00 15. - 16. júni. Breiðholtsskóli 09.30 11.00 Árbæjarskóli 14.00 16.00 19. - 20. júni Fossvogsskóli 09.30 11.00 Æfinga- og tilraunask. K.í. 14.00 16.00 Lögreglan —Umferðarnefnd Reykjavikur. LÆTUR AF LANDLÆKNIS- EMBÆTTI l' HAUST Dr. Sigurður Sigurðsson, land- læknir, hefur óskað eftir lausn frá embætti frá og með 1. október n.k. að telja. Hefur forseti Islands fallizt á lausnarbeiðnina og verð- ur embætti landlæknis auglýst laust til umsóknar á næstunni. Dr. Sigurður Sigurðsson er fæddur 2. mai 1903 og verður þvi sjötugur á næsta ári. Hann hefur gegnt embætti landlæknis siðan 1. janúar 1960. Berklayfirlæknir hefur hann verið frá 1. april 1935 og gegnir þvi embætti áfram. Kvennaskólinn Kvennaskólanum i Reykja- vik var sagt upp 20. mai. Að þessu sinni voru 210 námsmeyjar i skólanum og luku 22 burtfararprófi. Lands- próf þreyttu 48 stúlkur og unglingaprófi lauk 61 stúlka. Hæstu einkunn á burtfarar- prófi hlaut Kristin Einarsdótt- ir 9.54. Forseti tslands mun fara til Lundar á miðvikudaginn kem- ur, i boði háskólans þar. Þar mun hann taka við heið- ursdoktorsnafnbót við hina ár- legu doktorsathöfn Lundarhá- skóla og einnig flytur hann fræðilegan fyrirlestur. Forsetahjónin munu dvelj- ast ytra i fáeina daga. t fylgd með þeim verður Pétur Eggerz ambassador. V I L J A E K K I FLUTNING Aðalfundur Meinatækna- félags tslands, sem haldinn var sl. miðvikudag, gerði eft- irfarandi tilkynningu: Vegna framkominnar til- lögu á Alþingi um flutning Tækniskóla tslands til Akur- eyrar, vill fundurinn benda á, að óframkvæmanlegt er að flytja nám i meinatækni, sem fram hefur farið við skólann, burt af höfuðborgarsvæðinu, þar eð viðurkenndar rann- sóknarstofur til kennslu eru eingöngu i Reykjavik. Telur fundurinn æskilegast að meinatækninámið væri fært inn i Háskóla tslands. SKUGGA-SVEINN Nú eru aðeins eftir tvær sýn- ingar á Skugga-Sveini, sem L.R. hefur sýnt siðan á afmæli sinu í vetur. Myndin er af Eddu Þórarinsdóttur sem leikur hlutverk Asu i Dal. Þá mun sýningum á Kristni- haldinu og Spanskflugunni ljúka nú um mánaðamótin, vegna þess að Leikfélagið kemur með tvö ný leikrit i júni i tilefni Listahátiðar. o Laugardagur 27. maí T972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.