Alþýðublaðið - 18.06.1972, Side 1
Þetta „meginlandslag" er, þótt ótrúlegt megi
virðast, hvorki i Danmörku, Þýzkalandi, né
nokkru ööru útlandi. Til þess að komast inn i
þennan tvrópska heim þarf ekki aö fara langt út
fyrir borgarmörkin. Og nú er spurningin. Hvar
er þessi mynd tekin.
KANNAST NOKKUR VIÐ?
Viö höfum gefiö okkur
þaö sem forsendu aö
skammdegiö sé ein höfuö-
orsök óvenjuhárrar sjálfs-
morðstíöni íslendinga, og
þessi skoöun er svo út-
breidd, svo almennt viö-
urkennd og þykir svo
sjálfsögð, aö ætla má aö
ekkert sé gert til aö kanna
þessi mál til hlitar.
Þunglyndisköst, þar sem vik-
in verða mest i svartasta
skammdeginu, eru nánast eins
konar þjóðareinkenni, og þótt
farið sé með i'réttir og skýrslur
um sjálfsmorð eins og hernað-
arleyndarmál, þá hefur það
ekki fariðfram hjá þeirri frétta-
stofnun, sem nefnist almanna-
rómur, aö aldrei eru sjálfsmorð
fleiri en umhverfis áramót.
Nóvember, desember og janúar
eru þeir mánuðir, sem mest ber
á þessu, og þykir öllum sjálf-
sagt.
Það jaörar við að litið sé á
þetta sem jafn sjálfsagðan hlut
og t.d. haustrigningarnar, óum-
flýjanlegan og þess vegna vart
þess virði að það sé rannsakað
til hlitar eða leitað svara við
þeim spurningum, sem
óhjákvæmilega vakna.
Nú er það verkefni geðlækna
og félagsfræöinga að kanna
hvað veldur og hvað hjálpar til
að valda þunglyndisköstum.
Það er orðið allútbreidd skoðun
að geðheilsa sé eins og likamleg
heilsa i mörgu tilliti. Enginn sé i
rauninni alheilbrigður á sinni,
og ýmsir sjúkdómar og geð-
kvillar geti hrjáð menn um
stundarsakir, þótt þeir yfirvinni
þá, rétt eins og þegar likaminn
sigrast á kvefi eða einhverri
umgangspest.
Með þetta i huga er óhætt að
álykta að þessi „landlægu”
þunglyndisköst megi að miklu
leyti forðast, eða a.m.k. megi
draga úr þeim.
Kg er sannfærður um að skýr-
ingarnar eru að mestu leyti
fólgnar i nánasta umhverfi
mannsins og hátterni hans.
Þótt rangt sé að lita á það sem
sjálfsagðan hlut að viö séum
þrælar timakapphlaupsins, þá
skulum við samt sem áður
ganga út frá þvi sem visu að við
eigum erfitt með að brjóta okk-
uj úr viðjum þeirrar keppni um
framleiðsluaukningu, sem veld-
ur þessu timakapphlaupi,
a.m.k. á næstunni. En það eru
þó ýmsir leiöir sem við getum
farið til að draga úr þeirri
spennu, sem gagntekur okkur
alla okkar starfsdaga að meira
eða minna leyti.
Og þá má ekki gleyma hlut
arkitektanna. t þeirra verka-
hring hefur nefnilega bætzt við
ýmislegt, sem ekki var hugsað
út i áður, og bætist við eftir þvi
sem skilningur almennings og
ráðamanna eykst á vanda-
málum, sem of fáir hafa skynj-
að til þessa , eins og dæmið um
byggingarnar og fatlaða fólkið
hefur sýnt okkur.
Bandariskum hönnuði var ný-
lega falið að teikna skrifstofur
fyrir nokkuð stórt fyrirtæki.
Hann fékk tiltölulega frjálsar
hendu um uppbyggingu skrif-
stofuhúsnæðis, nema að þvi
leyti, að það varð að vera
„opin" skrifstofa, þ.e. fólkið
mátti ekki vera inni i lokúðum
herbergjum, heldur i einum
stórum sal, i mesta lagi básað af
að hálfu leyti. Þetta var sam-
kvæmt niðurstöðum hagræð-
ingaráðunauta, sem sögðu að,
með þvi væri auðveldara að
fylgjast með iðni og afköstum
hvers einasta starfsmanns.
En arkitektinn bætti öðru við.
7
Hann tók með i dæmið þátt
sem hagræðingarráðunautarnir
h'öfðu ekki sett inn i sitt dæmi.
Hann teiknaði i miðju húsinu
lokað herbergi, sérkennilega
ávallt i laginu, sem þjónaöi
þeim tilgangi að vera i senn at-
hvarf fyrir þá, sem þurftu allt i
einu að slappa af, og um leið
næði fyrir þá sem þurftu að
beita huganum. t þessum
„hugsanabelg” (think-tank) eru
veggir hljóðdeyfandi og teppi
þykk. Menn fara úr skóm áður
en þeir ganga þangað inn og þar
inni er vinnuaðstaða, svo sem
skrifborð og sófar. Vilji menn
njóta algerrar hvildar fara þeir
inn i miðjan belginn, en þar er
vatnsrúm, hringlaga dýna með
ylvolgu vatni.
öllum starfsmönnum erheim-
ilt að nota þennan „belg" aö
eigin geðþótta, með einni
undantekningu þó, það er ekki
æskilegt að tveir aðilar gagn-
stæðra kynja séu einir þar inni.
inni.
A vatnsrúminu geta menn
setið ef um er að ræða litlar ráð-
AFDREP I ONGÞVEITI
HVERSDAGSERILSINS
stefnur, eða rabbfundi, og þar
geta menn lika lagt sig smá-
stund ef þeir þurfa að lina
streitu eða hafa orðið óvenju-
lega æstir.
Itautt ljós er úti, ef ekki er
óskað eftir þvi að neinn komi
inn, en gult ljós ef aðrir mega
gjarnan bætast i hópinn. Grænt
ljós þýöir að sjálfsögðu að belg-
urinn er ekki i notkun.
• Ekki er haldin skýrsla yfir
hvaö hver aðili notar belginn
lengi, en áætlað er að hann sé i
notkun 40% vinnutimans, og af
þeim tima noti yfirmenn hann
60% timans.
En hefur þetta haft eitthvað
að segja.
Fyrirtækið lét nýverið fara
frám athugun á þvi hvaða
breytingar höfðu orðið á starfs-
fólkinu siðan belgurinn kom til
sögunnar.
Og niðurstaðan var sú, að
fyrirtækinu hefur haldizt betur
á starfsfólki, og starfsfólkið
fullyrðir sjálft að það komi
meiru i verk, þvi óttinn við
streitu sé þvi næst úr sögunni.
Einn starfsmanna hafði að visu
kviðið þvi að fara þarna inn, þvi
honum fannst eins og hann
þyrfti nauðsynlega að koma
með einhverja snjalla hugmynd
til baka. Hann var þess vegna
allur á nálum þegar hann lagö-
ist i vatnsrúmiö.
En hann var að sama skapi
endurnærður þegar hann kom út
eftir 20 minútur. Hann hafði
nefnilega steinsofnað.
Sunnudagur 18. júní 1972
©