Alþýðublaðið - 18.06.1972, Síða 5
ÍSLENZKIR
BOG-
MERKINGAR
Af tslendingum, sem
fæddir eru i Bogmanns-
merkinu má nefna m.a.
Árna óla, blaöamann,
prófessor Einar Ólaf
Sveinsson, Geir
Ilallgrimsson, borgar-
stjóra, Gunnar Bjárna-
son, kennara á Hvann-
eyri, Gunnar M.
Magnúss, rithöfund,
Inga R. Jóhannsson,
skákmann og Kjartan
Jóhannsson verkfræð-
ing.
Knútur Otterstedt,
rafveitustjóri á Akur-
eyri er einnig fæddur i
þessu merki, Kristján
Eldjárn, forseti og
Kristján Gunnarsson,
skólastjóri.
Pétur heitinn
Benediktsson, banka-
stjóri var Bogmerking-
ur, og eins var Þórarinn
heitinn Björnsson.
Páll J. Lindal,
borgarlögmaður er
fæddur i þessu merki,
Sigurður Bjarnason,
sendiherra, Þorsteinn
Gislason, skipstjóri og
Þorvaidur Guðmunds-
son, hótelstjóri.
l#í Samband ísL samvínnufélaga □
INNFLUTNINGSDEILD
Persónulýsing þeirra, sem fæddir eru í Bogmannsmerkinu (23. nóvember — 20. desember)
Undantekningarlítið eru Bogmerkingar vinsælir mjög sakir glaðværðar sinnar, fyndni og vitsmunaog metur margur mikils vináttu þeirra.-& -fe -fe -fc -fo
marki - leggja meira að
segja svo mikia áherzlu á
einmitt það, að það þeir
haldast þar ekki við til
lengdar, sem þeir fá ekki
þeirri kröfu sinni fullnægt.
Þeir vilja að heimilið sé
þrifalegt og að þar sé allt i
röð og reglu, aftur á móti
er hætt við að þeim falli
það ekki að þurfa að
nostra við slíkt sjálfir.
Þeir verða fljótt eirðar-
lausir og leiðir á þvi að
sinna reglubundnum
heimilisstörfum, eða vera
háðir þeim.
Flestir hafa Bog-
merkingar ánægju af
börnum, og þegar þeir
hafa á annað borð stofnað
heimili og geta boðið vin-
um sinum að eiga þar með
sér ánægjustundir, kunna
þeir þvi vel. En vegna þess
hve þeir eiga mörg áhuga-
mál utan heimilis og mörg
járn viða i eldi, verða þeir
sjaldan „heimiliselskir” i
eiginlegri merkingu.
Áhugi þeirra er bundinn
öllum umheimi, og stöð-
vast þvi ekki við heimilið
nema að takmörkuðu
leyti.
Sjaldnast hafa Bog-
merkingar mikinn tima
aflögu handa börnum sin-
um meðan þau eru ung að
aldri, og finnst sem þeir
hafi ekki lag á að sinna
þeim eins og með þarf.
öðru máli gegnir þegar
börnin eru komin á legg og
geta farið að taka þátt i
útivist og iþróttum, en þá
myndast oft mjög sterk
tengsl á milli þeirra og
foreldris, sem fætt er und
ir þessu merki. Unglingar
laðast mjög að Bog-
merkingum vegna lifs-
gleði þeirra og sækjast
meira eftir samvistum við
þá en jafnvel flestir full-
orðnir.
Börn sem fædd eru undir
bogmannsmerki eru tiðum
eirðarlaus og spennt á
taugum, og hneigð þeirra
til frjálsræðis getur oft
reynst mjög sterk, þegar á
unga aldri. Ekkert hentar
þeim ver en stöðug umsjá
og aðfinnslur. Finni þau
aftur á móti að þeim sé
treyst, setja þau metnað
sinn i að bregðast þar
ekki- mæti þau hins vegar
vantrausti og tortryggni af
hálfu foreldra eða yfir-
boðara, geta þeir glatað
trúnaði þeirra og tiltrú, ef
til vill að fullu og öllu.
Vinátta.
Þó að oftast nær sé það
undir hendingu komið
hverja Bogmerkingar
velja að vinum, getur sú
vinátta varað árum sam-
an. Geta Bogmerkingar og
valið sér vini af öllum stig-
um og stéttum, þar eð þeir
eru yfirleitt frjálslyndir
mjög og meta menn frem-
ur eftir þvf hvað þeir eru i
rauninni, en ekki hverju
þeir hafa náð að mann-
virðingum. Yfirdreps-
skapur og sýndarmennska
er i augum flestra Bog
merkinga gagnsær hjúp-
ur.
Undantekningarlitið eru
Bogmerkingar vinsælir
mjög sakir glaðværðar
sinnar, fyndni og vits-
muna og metur margur
mikils vináttu þeirra.
Annarsvegar er það góð-
látlegt skopskyn þeirra,
hinsvegar alvara þeirra
og rökvisi ef i það fer, sem
aflar þeim i senn vináttu
og trausts þeirra, sem þeir
kynnast.
Enda þótt Bog-
merkingar segi tiðast hug
sinn allan og lúri ekki á
skoðunum sinum, fyrir-
finnst andstæður þáttur i
skapgerð sumra þeirra,
sem veldur þvi að þeir
geta virzt hlédrægir og
torskildir. Samskonar tvi-
skipting persónuieikans
veldur þvi, að sumir
þeirra geta orðið tillits-
lausir og óvægnir, ef þeim
rennur i skap, enda þótt
þeir séu yfirleitt manna
vingja rn legastir og
ljúfastir i framkomu. Eins
er það, að þeir geta orðið
afundnir, séu þeir innan
um fólk sem þeim fellur
ekki.
Astir Bogmerkinga.
Margir Bogmerkingar
eru hneigðir fyrir æfin-
týri, eðli sinu samkvæmt,
og það er ekki ósjaldan að
þeir lita á ástarkynnin
fyrst og fremst sem æfin-
týri. Þeir lita oft á hjóna-
bandið með talsverðri tor-
tryggni og reynast margir
nokkuð staðir i hnapp-
helduna. Hinsvegar ber á
það að lita að mörgum
Bogmerkingum hættir við
að láta skyndilegar hug-
dettur ráða á stundum, og
geta hagað sér óhyggilega
i makavali, ef þeir kvæn-
ast mjög ungir. Sjaldnast
eru Bogmerkingar eigin-
gjarnir i ást sinni, heldur
álita þeir það einungis
sanngjarnt og eðlilegt að
sú sem þeir unna, njóti
sama frjálsræðis og. þeir
krefjast til handa sjáífum
sér. Ástin er þeim og svar
við félagslegri þörf, þar
sem þeir leita ekki siður
andlegrar en likanlegrar
fullnægingar.
Afstaða Bogmerkinga til
ástarinnar er yfirleitt heil-
brigð og eðlileg. Astar-
æfintýri þeirra einkennast
af glaðri eftirvæntingu,
ástaratlotin eru þeim
hámark þess æfintýris. Og
þeir eiga flestir fleiri slik
æfintýri en þeir hafa tölu
á, unz þeir að lokum finna
sig laðast svo að einhverri
sérstakri, að þeir stað-
festa ráð sitt. Hviklyndi
þeirra i ástamálum getur
stundum valdið þeim von-
brigðum og harmi, en það
stendur yfirleitt ekki
lengi. Þeir eru allt of glað-
sinna til þess að láta þess-
háttar á sig fá nema rétt i
bili.
Bogmerkingur ætlast
venjulega til þess af þeirri
sem hann elskar, að hún
taki þátt i áhugamálum
hans, útivist og ferða-
lögum og hafi ánægju af
skepnum. Hann vill að hún
sé einnig félagi sinn og
kemur iðulega fram við
hana sem slika, öllu frem-
ur en unnustu eða ástmey.
Hann vill gera allt eftir
þvi, en á þvi vill ef til vill
verða misbrestur á stund-
um, þar eð hann hefur i
svo mörgu að snúast. Það
er tiltölulega sjaldgæft að
Bogmerkingar séu af-
brýðisamir, þeirvilja ekki
að þeirra eigið frelsi'sé i
neinu skert, og eru yfir
leitt einnig frjálslyndir i
þeim sökum hvað aðra
snertir. Aftur á móti er
ekki loku fyrir það skotið,
að þeir kunni að særa þá,
sem þeir elska með
galgopalegri jjlettni sinni
enda þótt þvi fari f jarri að
það sé af ásetningi gert.
Þeim er glaðværðin fyrir
öllu, og vilja engum annað
en gott gera.
Þeir Bogmerkingar,
sem ekki kvænast mjög
ungir, velja eiginkonu sina
oftast nær af mikilli
gaumgæfni, og koma þar
til dyranna eins og þeir
eru klæddir - skýra þeirri
tilvonandi undandráttar-
laust frá öllu, er þá sjálfa
varðar og ætlast til gagn-
kvæmrar hreinskilni.
Þegar þeir hafa staðfest
ráð sitt, eru þeir á margan
hátt fyrirmyndar eigin-
menn, og yfirleitt trúir
þeirri konu, sem þeir
elska. Þeir eru glaðværir á
heimili, sifellt reiðubúnir
að hrinda i framkvæmd
öllu þvi, sem orðið getur til
að auka á ánægjuna. Hins-
vegar kæra þeir sig ekki
um að láta tjóðra sig
heima og vilja hafa fullt
frelsi til að fara út með
kunningium sinum. en
yfirleitt þarf eiginkonan
ekki að óttast að kvenfólk
komi þar við sögu. Sé Bog-
merkingur þess fullviss,
að kona hans elski hann
heilshugar, auðsýnir hann
henni yfirleitt fullan
trúnað, auk þess sem hann
hefur svo mörgum áhuga-
málum að sinna, að hann
hefur ekki neinn tima af-
lögu til að vera i kvenna-
stússi. Helzti gallinn á
honum sem eiginmanni er
sá, að hann kann að tefla
of djarft i peningamálum,
og þó að hann hafi
heppnina þar furðulega oft
með sér, er það ekki alltaf.
Bogmerkingurinn þarf
að kvænast hygginni og
skilningsrikri eiginkonu,
ef vel á að vera. Hún þarf
að geta annast alla stjórn
innanstokks, vegna þess
hve hann hefur mörgu að
sinna á viðari vettvangi og
mörg járn i eldinum sam-
timis, en fyrir bragðið
verður einkalifið honum
oft hálfgert aukaatriði.
Fyrir það þarfnast hann
frjálslyndrar og þolin-
móðrar eiginkonu, sem
umber öll umsvif hans.
Geri hún það, launar Bog-
merkingurinn henni það i
ást og glaðværð, sem
eiginmaður og félagi.
Ekki sinnir Bog-
merkingurinn börnum sin-
um yfirleitt að ráði á
meðan þau eru á unga
aldri, en þegar þau eru
orðin það gömul, að þau
geta tekið þátt i áhuga-
málum hans, til dæmis
útivist og iþróttum, verða
þau tiðum einlægir félagar
hans og tengjast honum
sterkum böndum.
Ástir bogamannsmerkis-
kvcnna.
Margar þær konur, sem
fæddar eru undir boga-
mannsmerkinu, eru góð-
lyndar, tillitssamar og
aðlaðandi. En margar
þeirra virðast eiga örðugt
með að láta staðar numið
til lengdar, en una sér bezt
á ferð og flugi. Þær eru
yfirleitt fjörmiklar,
léttlyndar, bjartsýnar á
lifið og tilveruna og láta
hverjum degi nægja sina
þjáningu. Drottnunarfýsn
og eigingirni er þeim yfir-
leitt fjarri skapi, en frjáls
ræði fyrir öllu.
Þar eð konum þessum
hættir við að igrunda ekki
um of ákvarðanir sinar á
yngri árum, er það alltitt
að þær verði þá fyrir von-
brigðum i ástamálum,
með þeim afleiðingum að
þær hætta sér ekki út i slik
æfintýri siðar svo neinu
nemi. Enda þótt þær séu
yfirleitt hinar vinsælustu
og eigi sér marga að-
dáðendur, reyna þær ef til
vill ekki sanna ást nema
RÉTTLÆTISKENNDIN OG SANNLEIKS-
ASTIN ERU SNÖRUSTU ÞÆTTIRNIR í
einu sinni á ævinni. Og
þegar þær hafa að lokum
hitt fyrir þann mann, sem
til greina kemur sem
eiginmaður, hugsa þær sig
flestar um lengi og gaum-
gæfilega áður en þær taka
endanlega ákvörðun.
Konur þessar eru yfir-
leitt hraustlegar, friðar
sýnum og aðlaðandi, og
hafa mikið yndi af útivist
og ferðalögum, og þá helzt
um óbyggðir. Þær eru
mjög hneigðar fyrir
skepnur, einkum hesta og
hunda. Hinsvegar eru þær
ekki sérlega mikið gefnar
fyrir heimilisstörf, og vilja
þá mun heldur vinna úti i
garðinum en við upp-
þvottinn, ef þvi er að
skipta. Eigi að siður eru
þær þrifnar innanstokks,
og sjá um að þar sé allt i
röð og reglu, þegar hús-
móðurskyldan býður.
Margar eru þar fljótar
að skipta skapi: geysa þá
mjög rétt sem snöggvast
en svo fær léttlyndið og
brosið óðara yfirhöndina.
Þá eru þær bezt giftar, ef
eiginmaðurinn gerir sér
allt far um að skilja þær og
fullnægja þörf þeirra fyrir
útivist og ferðalög, og vart
getur bóndi i sveit eignast
betri konu og starfsfélaga
en ef hún er fædd undir
l£t7lUckc4l
SKAPHÖFN
Margir Bog-
merkingar eru einkar
sjálfstæðir í nugsun
og góðum gáfum
gæddir. Andlega
þroskaðir, framsýnir,
hugkvæmir og raun-
sæir.
Yfirleift eru þeir
frjálslyndir, um-
burðarlyndir, gæddir
skopskyni og sér í
lagi hreinskilnir og
heiðarlegir. Hrein-
skilni þeirra getur
stund um orðið
óvinsæþ þeim hættir
við að láta flakka
það, sem þeir vita að
er satt og rétt, án þess
að taka nokkurt tillit
til hver áhrif það
kunni að hafa á aðra.
Þeir eru ekki margir
sem fýsir að heyra
miður hrósfenginn
sannleika um sjálfan
sig, sízt jafn hrein-
skilnislega orðaðan
og Bogmerkingum
hættir við, þar eð þeir
virðast álíta aðra
jafn hreinskilna og
heiðarlega og þeir
eru sjálfir.
Bjartsýnir eru Bog-
merkingar yfirleitt öðrum
fremur, og lifsgleði þeirra
og lifsnautn hrifur iðug-
lega aðra með sér. Yfir-
leitt eru þeir vel á sig
komnir iikamlega og and-
lega, jafnlyndir og heil-
brigðir. Þeir hneigjast að
fjölbreytni i lifinu, hafa
margir mikinn áhuga á
iþróttum og eru gefnir
fyrir nám og lestur, og
setja sig ekki úr færi að
njóta leiksýninga og list-
sýninga, ef svo ber undir.
Margir þeirra eru mjög
trúhneigðir.
Heilbrigð og hyggin sál i
hraustum likama gæti vel
átt við Bogmerkinga. Úti-
vist og starf er þeim mjög
að skapi, og flestir hafa
þeir til að bera þau
hyggindi, sem koma þeim
að gagni i lifinu.
Þeir eru fljótir að átta
sig á hlutunum, fúsir að
semja sig að nýjum hug-
myndum og fljótir að að-
lagast nýjum lifnaðarhátt-
um og lifsviðhorfum
Oftast nær hitta þeir á
réttar ákvarðanir vegna
framsýni sinnar, og hug-
boð þeirra reynist oft
undarlega næmt.
Réttlætiskenndin og
sannleiksástin eru snör-
ustu þættirnir i skaphöfn
þeirra fiestra. Fyrir
bragðið geta þeir oft og
tiðum aðhyllst uppreisn og
byltingar, en ekki fyrst og
fremst i þvi skyni að af-
nema gildandi lög og
fyrirkomulag og koma á
einhverju öðru kerfi, held-
ur til að leiðrétta ranglæti
og rangsleitni og tryggja
að allir séu jafnir fyrir
gildandi reglum og lögum.
Fyrir bragðiö eru þeir
fróðir um alia slika hiuti
Störf og starfshæfni.
Bogmerkingar eru yfir-
leitt húsbóndahollir, dug-
legir og mjög hæfir starfs-
menn. Þeir eru oft fram-
gjarnir og atorkumiklir,
vilja gjarna takast á við
erfið verkefni og eru vel til
þess gerðir að berjast
fyrir ákveðnum málefn-
um. Hins vegar er þeim
ekki um það gefið að þeim
sé skipað nákvæmlega
fyrir verkum, og vana-
bundin skrifstofustörf eru
þeim litt að skapi þeir
vilja starfa þar og á þann
hátt sem þeir komast i
snertingu við sem flest
fólk, og séu þeir bundnir til
lengdar sama stað og um-
hverfi getur það bitnað á
afköstunum. Titt er það
um Bogmerkinga að þeir
reyni fyrir sér við hin ólik-
ustu störf áður en þeir
finna það sem er við
þeirra hæfi. Ættu þeir,
sem njóta vinnu þeirra að
gefa þeim sem frjálsastar
hendur, á þann hátt nýtast
starfskraftar þeirra og
hæfileikar bezt. Fullnægi
starfið þeim hins vegar
ekki, er eins vist að þeir
taki að dreifa kröftunum
við ýmis aukastörf, án
þess að skeyta nokkuð um
afleiðingarnar.
Bogmerkingar eru
margir gæddir miklum og
heppilegum hæfileikum til
að gerast kennarar, blaða-
FLESTRA BOGMERKINGA
og geta margir sér mikinn
orðsíir sem lögfræðingar
og dómarar.
Þá er útþráin og sterkur
þáttur i skapgerð margra
Bogmerkinga. Það er oft
að þeir verða gripnir
þeirri löngun að komast
sem lengst burt frá öllu og
öllum og stefna þá til fjar-
lægustu landa. Yfirleitt
eru þeir ekki sérlega
hrifnir af að búa i borgum,
og sennilega standa þeir i
öllu nánari tengslum við
náttúruna en aðrir, sem
fæddir eru undir öðrum
stjörnumerkjum. Flestir
unna þeir mjög sveitalífi
og eru mjög gefnir fyrir
skepnur, einkum hesta og
hunda, og virðast flestar
skepnur hænast að þeim
og treysta þeim.
Margir eru Bog-
merkingar snjallir i viðtali
og hafa ánægju af hörðum
kappræðum, en lausir við
alla illkvittni, og þegar
þeir bregða fyrir sig
glettni er það ekki i þeim
tilgangi að særa aðra. Þeir
geta sumir reiðst
snöggvast, en rennur yfir-
leitt fljótt reiðin og eru þá
fúsir tii sátta. Flestir eru
þeir glaðværir i umgengni
og fellur vel aö vera innan
um fólk. Yfirleitt eru þeir
vinmargir, bæði i starfi og
félagslifi. Þeir eiga það til
að vera dálitið óþolin-
móðir, og tefla þá nokkuð
djarft ef svo ber undir,
einkum ef þeir stefna að
fljótteknum gróða. En þeir
kunna lika vel að taka tapi
og vonbrigðum; láta sér
þá oftast nægja að yppta
öxlum með heimspekilegri
ró og treysta þvi að betur
gangi næst.
Heilsufar.
Likamlega eru Bog-
merkingar flestir vel á sig
komnir, margir fyrir-
mannlegir, háir vexti,
stæltir i hreyfingum og
þróttmiklir. Þeir vinna af
ákefð og keppni að öllu,
sem þeir taka sér fyrir
hendur: auk þess hafa þeir
yfirleitt mikinn áhuga á
útivist og iþróttum og öli
likamsáreynsla er mjög
við þeirra hæfi - þeir
virðast margir hverjir efl-
ast að þreki og starfsfjöri
að sama skapi og þeir eld-
ast. Þeir láta áhyggjurnar
sjaldan ná teljandi tökum
á sér, svo þessháttar hefur
ekki nein áhrif á heilsufar
þeirra.
Flestum er þeim það
mjög i mun að halda góðri
þjálfun likamlega, og yfir-
leitt eru Bogmerkingar
heilsugóðir. Það er tauga-
kerfið, sem er veikast
fyrir, og vegna þess að
þeir unna sér aldrei hvild-
ar, getur álagiö orðið þeim
um megn, andlega og
likamlega. I þvi sambandi
er það hættulegast heilsu
þeirra, að þeir dreifa
tiðum kröftum sinum og
fást við mörg viðfangsefni
i senn - þótt menn séu
sterkbyggðir, standast
það fæstir til lengdar, sizt
þegar hvergi er leift af
kappinu. Fyrir það er til
að Bogmerkingar fái allt i
einu alvarleg tilfelli af of-
þreytu, lúti i lægra haldi
fyrir taugaálaginu og
jaínvel að slys geti hlotist
af óðagoti þeirra og sjúk-
legri ákefð. Hið ákafa
keppniskap þeirra, þegar
um þátttöku i einhverjum
iþróttum er að ræða, getur
leitt til þess að þeir gæti
sin ekki og verði fyrir
meiðslum. Lakast er það,
að þeir vilja yfirleitt ekki
viðurkenna, hvorki fyrir
sjálfum sér né öðrum, að
þeir hafi lagt of hart að
sér, og taka ekkert tillit til
ofþreytueinkennanna fyrr
en um seinan.
í sambandi við tauga-
álagið og ofþreytuna geta
meltingarkvillar sagt til
sin, og þegar Bogmerking-
ar taka að eldast, hættir
þeim við of háum blóð-
þrýstingi og lærtaugagigt.
En hvað sem þvi liður,
halda þeir ást sinni á lifinu
og áhuga á öllu, sem gerist
i kring um þá, unz yfir lýk-
ur.
Margar þær konur, sem
fæddar eru undir bog-
mannsmerki, eru gæddar
sérkennilegum þokka,
friðar sýnum, öruggar i
framkomu og látbragð
þeirra allt hið virðu-
legasta.
menn, ef til vill rithöfund-
ar, fyrirlesarar og eins
hentar þeim vel að vinna
að útgáfustarfsemi og
auglýsingastarfsemi.
Skipulags og útbreiðslu-
störf á vegum hins opin-
bera, eða störf i ráðuneyt-
um og sendiráðum eru
mörgum þeirra vel við
hæfi.
Yfirleitt mun mega telja
að gáfur Bogmerkinga séu
vel i meðallagi og margir
þeirra eru mjög vel gefnir.
1 þeim flokki eru margir,
sem hneigjast að heim-
spekilegum efnum og
trúarbrögðum, og hafa
alla hæfileika til að reyn-
ast áhrifamiklir kenni-
menn. Þessir Bogmerk-
ingar geta einnig náð
miklum árangri sem
stjórnmálamenn sökum
framsýni sinnar, raunhæfs
mats á aðstæðum og
mannlegrar góðvildar.
Flestir eru Bogmerkingar
skemmtilegir samstarfs-
menn, og gott að vinna
með þeim, þvi að þeir
miðla gjarna öðrum af
sjálfsöryggi sinu. Þeir
hafa næmt auga fyrir öll-
um smáatriðum, og hug-
kvæmni þeirra i starfi er
oft óþrjótandi, þvi að þeir
hafa vakandi áhuga á
nýjum og fullkomnari
starfsaðferðum.
Undantekningarlitið eru
Bogmerkingar einkar
greiðviknir menn og ör-
látir - það má að minnsta
kosti kallast alger undan-
tekning, að þeir séu nizkir
og nurlsamir. Flestir
komast þeir i sæmileg
efni, en jafn vel þótt þeir
séu félausir, miðla þeir
öðrum þvi sem þeir geta,
þvi að þeir eru alltaf vissir
um að innan skamms
muni rofa til. Þeir eiga
það til að tefla nokkuð
djarft þegar von er i
hagnaði, geta jafnvel haft
vissa nautn af tvisýnu
braski og treysta á
heppnina - enda reynist
hún þeim merkilega oft
innan handar þegar um
peninga er að ræða, og
fyrir það skortir þá sjaldn-
ast fé til lengdar.
„Að komast til fjár og
frama”, er þeim flestum
ákaflega mikils vert, Bog-
merkingunum, og þeir
hika ekki við að hefja hin-
ar stórfelldustu fram-
kvæmdir, ef þeir gera sér
vonir um hagnað. Margir
hrifast þeir af áætlunum
um skjóttekinn gróða, og
gegnir furðu hve heppnir
þeir eru oft og tiðum i
þeim tiltektum sinum.
Margir eru þeir hyggnir i
fjármálum og öllu sem við
kemur viðskiptum og
lægnir á að gripa þau tæki-
færi, sem þar verða á vegi
þeirra. Það er þvi ekki
nema hyggilegt fyrir unga
Bogmerkinga að afla sér
þeirrar þekkingar, sem
með þarf til þess að þeir
geti hagnýtt sér þá hæfi-
leika sina, og ef til verður
það öruggasta og auðveld-
asta leiðin til Velmegunar,
þegar þeir eldast.
Eigi aö siður er
hamingjan Bog-
merkingum meira virði en
auður, og flestir vilja þeir
fremur búa við takmörkuð
efni og njóta frjálsræðis,
en þann auð, sem leggur
einhverjar viöjar á sjálf-
stæði þeirra.
Heimili og fjölskylda.
Það vill svo til að áhugi
Bogmerkinga á heimili og
heimilislifi er tiðum tak-
markaður, vegna áhuga
þeirra á starfi og athöfn-
um utan heimilisins.
Bogmerkingar vilja
yfirleitt lifa einföldu og
látlausu lifi, og bera
heimili þeirra þvi oft vitni,
einnig þvi að þeir vilja
njóta frjálsræðis að vissu
bogmannsmerki. Engar
konur eru þeim yfirleitt
fremri sem félagar eigin-
manna sinna i öllum
þeirra störfum, án þess þó
að þar kenni ráðrikni eða
ihlutunar. Æski makinn
þess að þær beri fram til-
lögur eða leiðbeiningar,
verða þær fúslega við þvi,
annars ekki.
Flestar eru þær dug-
miklar eiginkonur, góð-
lyndar og jafnlyndar - þó
að þeim geti runnið i skap
sem snöggvast endrum og
eins. Þær eru yfirleitt
lausar við tilefnislausa
tortryggni eða afbrýði-
semi gagnvart eiginmann-
inum; þær eru sjálfar
trúar og traustar eigin-
konur og vænta hins sama
af maka sinum. Þær geta
sagt honum og börnunum
hreinskilnislega til synd-
anna, ef svo ber undir - en
sú gagnrýni er alltaf reiði-
laus og þannig fram borin,
að enginn getur reiðst
henni.
Börnum sinum eru þær
yfirleitt glaðværar og
brosmildar mæður, og oft
er það að börnin lita ekki
siður á þær sem leikfélaga
en mæður, en eigi að siður
geta þær verið stjórn-
samar viö þau og láta þau
hlýða sér. Fyrir það elska
börn þeirra þær og virða i
senn.
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást í Gefjun Austurstrœtl og hjá
kaupfélögum um land allt.
Fatnaöur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um víöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæöaeftirliti.
í næstu viku, síðasta stjömumerkið: Steingeitin (21. desember— 19. janúar)
©
Sunnudagur 18. júní 1972
Sunnudagur 18. júní 1972
©