Alþýðublaðið - 28.06.1972, Qupperneq 9
KJARTAN FÉKK HARÐA
KEPPNI í GOLFINU!
W
: r
t-
t»iS sTÍndlar .BjeLnxloifur,
VALIIR OG FH
í ÚRSLIT?
Nú fer að siga á seinni hluta is-
landsmótsins i handknattleik
utanhiiss. Linurnar eru mjög
farnar að skvrast i A-riðli,
Þa r seni FH hefur langmestar
likur til sigurs, eftir að liðið náði
jafntefli við Fram i fyrrakvöld,
22:22. Um tima hafði Fram 7
mörk yfir.
í H-riðlinum eru málin enn
óljós, og þau skvrast ekki fyrr en
eftir leik Vals og Vikings á
miðvikudaginn. þvi annaöhvort
þessara liða kemst i úrslit.
MÍNIHM Á
LOKASTIGI
Litla heimsmeistarakeppnin
svokallaða i Brasiliu er nú komin
á lokastig. Á sunnudaginn lauk
undankeppni, og tryggðu JUgó-
slavia, PortUgal og Argentina
sér þá sæti i lokakeppninni. Fyrir
eru Brasilia, Skotland, Uruguay,
RUssland og Tékkóslóvakia.
Keppni i lokaUtslitunum hófst i
gærkvöldi, en Urslit lágu þá ekki
fyrir.
Kjartan L. Pálsson á Timan-
um bar sigur Ur býtum i golf-
keppni blaðamanna sem fram
fór á föstudaginn. Er þetta
þriðja árið i röð sem Kjartan
sigrar i keppninni, og vann hann
verðlaunastyttuna þvi til eign-
ar.
Á föstudaginn fékk Kjartan
harða keppni frá þeim Jón Birgi
Péturssyni á Visi og Atla
Steinarssyni á Morgunblaðinu.
Fór Kjartan hringinn á 51 höggi,
Jón fór á 53 höggum og Atli á 54
höggum.
Aðrir keppendur voru of
hógværir til þess aö blanda sér i
keppnina um efsta sætið, kusu
fremur að berjast á öðrum víg-
stöðvum.Þeirra afrek verða
ekki tiunduð hér.
Meðfylgjandi mynd er frá
verðlaunaafhendingunni sem
fram fór i skála GolfklUbbs Ness
Uti á Seltjarnarnesi, en þar fór
keppnin fram eins og undanfar-
in ár.
Almenna bókafélagið hefur á-
kveðið að gefa væntanlegum sig-
urvegurum i tslandsmóti II. III.
IV, og V. flokki. bókina BETRI
KNATTSPYRNA eftir Jimmy
Hill, sem gefin er Ut af Bókaverzl-
un Sigfúsar Eymundssonar.
Tilefni gjafarinnar er, að
„tækninefnd K.S.Í. og Knatt-
spyrnuþjálfarafélags lslands,
telja að allir þjálfarar og drengir
á aldrinum 10—18 ára ættu að
eiga þessa bók, þar sem hún sé
mjög handhæg og góð kennslubók
fyrir knattspyrnumenn.”
Bókin BETRI KNATTSPYRNA
er 150 bls. að stærð og kostar kr.
295.00. Bókin er fáanleg hjá i-
þróttafélögum bóksölum og
sportvöruverzlunum viða um
land. (Fréttatilkynning).
I kvöld klukkan 20 fer fram á
Laugardalsvellinum Urslitaleik-
urinn i Reykjavikurmótinu i
knattspyrnu. Eru það Fram og
Valur sem þar eigast við.
Fram stendur betur að vigi fyr-
ir leikinn, hefur 8 stig, en Valur er
með 7 stig. Það er þvi ljóst að
hrein Urslit fást i kvöld, meistara-
tignin er Vals ef félagið vinnur
leikinn, en jafntefli og sigur gefa
Fram sigur i mótinu.
Stundarfjórðungi fyrir leik
verða afhent verðlaun fyrir sigur
i B og C liðum Reykjavikurmóts-
ins i yngri flokkunum, og i hálf-
leik verða afhent verðlaun fyrir A
liöin.
öruggt má telja, að leikur Vals
og Fram verður mjög spennandi
og skemmtilegur, og hvorugt fé-
lagið mun gefa eftir.
ÚRSLITIN
í KVÖLD
Bjarni Stefánsson tók þátt i 400
metra hlaupi á móti á Árósum á
mánudagskvöld. Bjarni varð
fjórði i 400 metra hlaupi á 48,6
sek.
Til stóð að Erlendur Valdi-
marsson færi einnig Ut til keppni,
en hann gat ekki farið vegna
meiðsla.
★
Knattspyrnufélagiö Valur.
Skrifstofa félagsins að Hliðar-
enda er opin á fimmtudögum kl.
18—20 (6—8 e.h.). Þar eru upplýs-
ingar gefnar um félagið og starf-
semi þess. Nýir félagar innritað-
ir. Ennfremur tekið á móti gjöld-
um eldri félaga.
Stjórnin
*
Iþróttir
úr hinni
og þessari
áttinni
SPÁNN VANN TUGÞRAUTINA
A SÍDUSTU GREININNI!
Spánverjar sigruðu með litlum
mun i þriggja landa tugþrautar-
keppninni sem lauk á Laugar-
dalsvellinum i gærkvöldi. Sigur-
inn vannst á sfðustu greininni,
1500 metra hlaupinu, en þar voru
Bretarnir áberandi slakastir.
Stefán Hallgrintsson kom þægi-
lega á óvart með þvi að sigra i
1500 metra hlaupinu, og nældi
hann sér þar i fjórða sætið á nýju
persónulegu ineti. Valbjörn
Þorláksson varð þriðji.
Keppnin dróst á langinn i gær-
kvöldi. Stóð hún i heila sex
klukkutiina, og varð ekki lokið
fyrr en klukkan 23,30. Stangar-
stökkskeppnin tók lengsta tima,
en henni lauk ineð sigri Valbjarn-
ar, sein stökk 4,20 metra. Stefán
setti persónulegt met í greininni,
stökk 3,60 metra.
Keppnin hófst með 110 metra
grindahlaupi. t þeirri grein sigr-
aði Cano, Spáni á 15,2 sek.,
Valbjörn hljóp á 15,4 og Stefán
15,6. Clark Bretlandi sigraði i
kringlukasti með 43,30 metra.
Valbjörn kastaði 38,78 og Stefán
32,20.
i spjótkasti sigraði CÍar’k Bret-
landimeð 62,14 metra, Valbjörn
kaslaði 55,08 og Stefán 52,08.
Lokagreinin var 1500 metra
hlaup, og þar sigraöi Stefán eins
og fyrr segir á 4,28,3 miútum. en
Valbjörn fékk aðeins timann
5,11,0 min.
Fyrir siðustu greinina var
Kidner Brctlandi efstur en Cano
Spáni skaust fram úr honuin á
siöustu greininni, fékk 7237 stig.
Kidner varð annar með 7113 stig,
Valbjörn þriðji með 6821 stig og
Stefán fjórði með 6767 stig, sem er
persónulegt met.
i stigakeppni þjóðanna sigraöi
Spánn sem fyrr segir, fékk sam-
tals 13,920 stig, Bretland varð í
öðru sæti með 13,859 stig og tsland
rak lestina með 13,588 stig
FYRRI DAGUR:
Islenzku keppendunum gekk
ekki sérlega vel i keppninni fyrri
daginn, og eftir fimm greinar var
Island i neðsta sæti með 6941 stig.
Spánn leiddi þá keppnina með
7411 stig og Bretland var i öðru
sæti með 7207 stig.
Röð einstaklinga eftir fyrri
daginn var þessi: 1. Keidner, Br.
3804, 2. Fernandez, Sp. 3707, 3.
Cano.Sp. 3704, 4. Ruiz, Sp. 3593, 5.
Stefán Hallgrimsson, 3496, 6. Val-
björn Þorláksson, 3445, 7. Phipps,
Br. 3403 og 8. Clark, Br. 3251 stig.
1 fyrstu grein kvöldsins, 100
metra hlaupi, sigraði Fernandez
á 10,8 sek, en Valbjörn var beztur
Islendinganna á 11,1 sek. Bretinn
Keidner sigraði hins vegar i lang-
stökkinu, stökk 7,29 metra, en
Stefán Hallgrimsson var beztur
okkar manna með 6,88 metra. I
kUluvarpi gekk landanum illa,
Elias Sveinsson var beztur með
12,28, en i greininni sigraði Ruiz
Spáni kastaði 15,06 metra.
Hástökkskeppnin var afdrifarik
fyrir Islendinga, þvi Elias Sveins-
son meiddist þá i fæti og komst
Framhald á bls. 4
Miðvikudagur 28. júni T972