Alþýðublaðið - 01.07.1972, Blaðsíða 2
4. ógúst 15 daga
18. ógúst 15 daga
1. september 15 daga
15. september 15 daga
29. september 22 daga
20. október 10 daga
Allt úrvalsferðir að sjólfsögðu.
FERDASKR/FSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
ÞJÚÐLEIKHÚSIÐ
BALLET
SPECTACULAR GALA
Hljómsveitarstjóri: Ottavio
de Rosa
Ljós og leiksviö: Demetrio
Menendez
Framkvæmdastjóri: Fanc-
is Mayville
Nafn ballettflokksins, sem gisti
Þjóðleikhúsið i byrjun vikunnar,
gefur með sinum hætti til kynna
eðli hans og stefnu. Hann stefnir
fyrst og fremst að stjörnuleik og
ytri glæsibrag, hefur á að skipa
úrvalsdönsurum sem koma fram
i pörum með valda kafla úr
þekktum ballettverkum og
„brilléra”. Að sjálfsögðu var
ánægjulegt að horfa uppá fimi
dansaranna og vald þeirra á list
sinni, en atriðin voru flest of stutt
til að skapa verulega dýpt i túlkun
og alltof keimlik til að veita veru-
lega skemmtun. Þvi er ekki að
neita, að klassiskur ballett er
ákaflega einhæft listform og tæp-
lega á færi annarra en stórmeist-
ara að blása i hann fersku lifi.
Þeir, sem séð hafa meistarana
dansa, kæra sig kollótta um minni
spámenn. Þegar þar við bætist,
að heil efnisskrá samanstendur af
tvidönsum (Pasde Deux), er ekki
óeðlilegt þó á menn sæki svefn-
höfgi á köflum.
A sýningunni á þriðjudagskvöld
skar eitt par sig úr að þessu leyti,
Grace Doty og Juliu Horvath,
sem komu fram i tveimur atrið-
um, „Lindunum” við tónlist
Rachmaninoffs og „Opus II” við
tónlist Menottis. Bæði þessi verk
voru túlkuð á frjálslegan og
ferskan hátt, sem gerði þau ná-
komin leikhúsgestum, og þá
einkanlega siðarnefnda verkið.
Mér fannst þessi tvö verk tvi-
mælalaust forvitnilegust ásamt
lokaatriðinu, „Rómeó og Júliu”
við tónlist Berlioz, sem þau döns-
uðu með dramatiskum og áhrifa-
miklum hætti Margot Fonteyn og
Karl Musil.
Þessar tvær stjörnur vöktu
mesta hrifningu áhorfenda, enda
var túlkun frúarinnar ákaflega
finleg og nærfærin i lokaatriðinu,
en i „Svanavatninu" lét hún mig
ósnortinn þó tækni hennar væri
óaðfinnanleg. Karl Musil frá
Vinarborg var glæsilegur mót-
herji Margot Fonteyns, en þau
voru að mér fannst „hálffeimin”
hvort við annað. Vitaskuld var
það minnisstæð reynsla að sjá
hina miklu primadonnu balletts-
ins dansa i Þjóðleikhúsinu, en
maður hefði kosið að sjá hana i
veigameiri og samfelldari verk-
um.
Finnska parið Soili Arvola og
Leo Ahonen fóru léttilega og
fjarska smekklega með tvidansa
úr „Giselle”, „Hnotubrjótinum”
og „La Favorita”, og fannst mér
mest koma til „Hnotubrjótsins”.
Fjórða parið, Annette av Paul
og Luis Fuentes, dönsuðu tvi-
dansa úr „Don Quixote” og „Sjó-
ræningjanum”. Annette av Paul
dansaði af rikum þokka og form-
fegurð, en Fuentes hafði i frammi
ýkta karlmennskutilburði eins og
til að bæta upp smáan lfkamsvöxt
eða skort á karlmennsku, og var
það hvimleið árátta, þó hann væri
á hinn bóginn bæði fimur og takt-
vissi.
Dame Margot Fonteyn
ásamt öðru listafólki
Heimsókn sem þessi hlýtur að
vera ballettlausu landi sem þeyr i
eyðimörk, enda sýndi aðsókn
Reykvikinga áhuga sem jaðrar
við hreint balletthungur. Er leitt
til þess að vita, hve sjaldan þetta
hungur er satt hérlendis, og þvi
full ástæða til að þakka fyrir
heimsóknina, þó réttirnir hefðu
vissulega mátt vera saðsamari.
Sigurður A. Magnússon
TANNVERNDAR-
SÝNING
í Árnagarði
28/6 - 2/7
opin daglega
kl. 14-22
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINGA
óskar eftir að ráða starfsmann. Umsóknir
um starfið sendist skrifstofu sjóðsins Al-
þýðuhúsinu, ísafirði fyrir 1. ágúst n.k.
Umsóknum fylgi upplýsingar um mennt-
un og fyrri störf, svo og launakröfur.”
Stjórnin.
Auglýsingasíminn okkar er 8-66-60