Alþýðublaðið - 01.07.1972, Page 12
alþýðu
mum
Alþýdubankinn hf
ykkar hagur/okkar metnköur
KÚPAVOGS APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga milli kl. í og 3.
SEND1B1L ASTOÐIN Hr
OKKáR L
miiíli
Þeir eru ekki gersneyddir
allri menningarviðleitni rón-
arnir, — þegar þeir hafa hrist
spirann samanviö vatnið nefna
þeir drykkinn Shakespeare —
Og Vyrst viö erum a annað borð
að tala um sterka drykki má
geta þess, að hættulegt getur
verið að drekka saklausan
drykk eins og pilsner áður en
setzt er undir stýri, — það er
ómögulegt að segja hver við-
brögð blöðrunnar verða, ef lög-
reglan biður á næsta
horni • A ölafsfirði verða
aldeilis haldin nauðungarupp-
boð á næstunni, þar verður boö-
ið upp bilaverkstæði vegna 150
þús. kr. skuldar og fjórir verka-
mannabústaðir. Eitt þeirra
siðartöldu uppboða er til lúkn-
ingar á dómsskuld, en fjárnám
fór fram á sömu eign fyrir
tveimur árum • Það er
kannski ekki úr vegi að láta það
berast, að Útgerðarfélag Skag-
firðinga hf. á Sauðárkróki hefur
tryggt sér einkarétt á skipsheit-
unum Drangey og flegranes, en
Einar Sigurðsson hefur einn
leyfi til að láta skip sin bera
niifnin Sigurður og Guð-
riður. • Hvernig ætli fólki
litist á að éta flöskur? Það er
ekki eins fráleitt og það virðist
vera i fljótu bragöi, þvi fregnir
próteini og sellulósa. Nú standa
yfir tilraunir með að framleiða
þessar flöskur með mismunandi
bragði • Skáksamband
tslands hefur ákveðið að gefa út
sérstakt umslag i tilefni af út
gáfu frimerkis vegna heims-
meistaraeinvígisins i skák, og
geta frimerkjaáhugamenn
fengið á þau sérstimpil i sér-
stöku pósthúsi, sem verður opið
i Laugardalshöllinni á meðan
einvigið fer fram. Umslögin
verða tiu þúsund talsins og tölu-
sett, en verðið er kr.
15 • Flugfreyjur Loftleiða
hafa að undanförnu beðið með
öndina i hálsinum eftir þvi aö
Bobby Fischer labbi sig um
borö, i hvert sinn sem búizt hef-
ur verið til brottferðar frá
Kennedyflugvelli. Þær eru
orðnar svo leiðar á kauða, að sin
á milli hafa þær talað um að ef
hann birtist væri réttast að
stinga honum beint i farangurs-
rýmið. Og svona okkar á milli
sagt er sama við hvern er talað
þessa dagana, allir óska mister
Fischer alls ills • Það er
varla annað hægt að segja en
fast sé saumað að islenzkum
sveitamönnum i nýju heil-
brigðisreglugerðinni, sem ann-
ars er hið gagnmerkasta plagg.
Þar stendur skýrum stöfum i
161. grein, fjórða paragraf, að
óheimilt sé.að nota fjós fyrir
salerni. Hvernig ætli sjómönn-
um mundi lika ef þeim væri
bannað að „miga i saltan
sjó”? • 1 reglugerðinni er
lika gætt velsæmis: þar stendur
i 88. grein: Eftir 10 ára aldur
skulu piltum og stúlkum ætluð
herbergi sér.
ÉG ER AÐ REYNA AÐ
KOMAST TIL BOTNS í ÞVÍ
livort Fischer sé meö brögð i
tafli....
herma, að bandariskt fyrirtæki
hafi leyst það mengunarvanda-
mál, sem stafar af glerflöskum,
með þvi að framleiða flöskur úr
ALÞTÐUHLAÐIÐ
ÍTRIE 50 ÁRUM
Þaö veröur aldrei mikið af spönsku vínunum, sem
selt verður hér á íslandi, en i skjóli þeirra mun hellast
whisky konjaks og brennivínsflóð inn yfir landið.
Hér með er skorað á alla félaga Sjómannafélags
Reykjavíkur, og aðra þá ersjómennsku stunda, og um
leið aðvaraðir um að ráða sig ekki á síldveiðiskip á
Noröureða Vesturlandi upp á þá skilmála, er útgerðar-
menn hafa sett.
Bláskógahlaupið
Um Bláskógaheiðina er hlaupið og skokkað i dag
og hafið til vegs þetta forna göngulag,
sem íeður vorir og áar iðkuðu löngum
i útnesjaferðum, smalamennskum og göngum.
Kn hvort sem er þeytzt yfir þúfu eða klettabrik
má þekkja hvar hlauparinn flokkast i pólitlk,
þvi stjórnarsinnar sem geysast þar austur um grjótin
ganga og hlaupa meira upp á vinstri fótinn.
Þvi kann svo að fara þeir viki af tilsettum veg
og vinstri stefnan reynist þeim hættuleg
og áður en lýkur lendi þeir uppi fjöllum
hjá leiðindafólki, bergrisum og tröllum.
S
IGr&A V/6GA OGc 'ULVt.VAU
Alþýðublaðið lagði tvær spurningar fyrir átta þekkta ís-
lenzka skákmenn.
Sú fyrri varþessi: Hver haldið þér að sigri í einvíginu?
Hin var: Hver teljið þér líklegastan áskoranda 1975?
Og svörin eru þessi:
Ingvar Ásmundsson:
Ég álit að Fischer sé liklegri
sigurvegari, vegna betri frammi-
stöðu að undanförnu, hinsvegar
held ég að Spassky sé vel undir-
búinn, og honum hefur tekizt að
skapa það andrúmsloft, sem er
honum jákvætt. Viltu spá ein-
hverju um áskorandann 1975?
Það er mjög liklegt, að Fischer
reyni aftur ef hann tapar núna, en
ekki eins vist að Spassky reýni
aftur, ef hann tapar, en mjög lik-
legt, að áskorandinn verði þó
Hússi, t.d. Karpov.
Björn Þorsteinsson:
Ég held náttúrlega meö
Spassky, en ég hef meiri trú á að
Fischer vinni, vegna árangra
hans undanfarið. Ég held að sá
sem tapar núna, verði áskorand-
inn næst.
Þórir ólafsson:
Ég álit Fischer betri skák-
mann, hann hefur sýnt mjög
sannfærandi sigra undanfarið, og
ég á ekki von á að hann láti staðar
numið nú. Að minum dómi, eru
Þeir Spassky og Petrosjan mjög
svipaöir að styrkleik en F'ischer
feti framar.
Ég álit að það verði Boris
Spassky!
Bragi Kristjánsson:
Ég held að Fischer vinni, þaö er
ekki hægt annað en að spá honum
sigri, eftir árangrinum sem hann
hefur náð undanfarið.
Ef Fischer vinnur núna, býst ég
ekki við að Spassky reyni aftur.
Hort, Hubner, Portisch, Lubovis
og Sviinn Anderson kæmu til
greina og af Rússunum,
Smyslov, Karpov, Kortsnoj og
Petrosjan.
Jóhann örn Sigurjónsson:
Ég hallast helzt að þvi að
Spassky vinni, og byggi það á þvi
hvað Fischer hefur gengið illa að
mæta þeim byrjunum sem
Spassky teflir með hvitu, s.s.
Sa em isc h-a f br igðið gegn
kóngsindverskri vörn og
Grunfelds-vörn.
Eg held að það verði sá sem
tapar i einviginu núna, þessir
tveir skera sig úr hvað styrkleika
snertir.
Jóhann Þórir Jónsson:
Ég býst við að þetta verði mjög
jöfn keppni, og satt að segja held
ég að það verði tefldar allar skák-
irnar, og það velti á siðustu skák-
inni hvor vinnur.
Ég er á þvi að Fischer sé sterk-
ari, en Spassky klókari. Sá sem
tapar þessu einvigi, veröur næsti
áskorandi.
Ingi R. Jóhannsson:
Ég vil engu spá, en mér finnst
þó liklegra að Fischer vinni,
ELO-stigin gefa það til kynna að
hann sé betri.
Mér finnst ekki nema eðlilegt
að álykta, að annarhvor þessara
manna yrði áskorandinn 1975.
Stefán Briem:
Ég tel liklegast að einviginu
verði hætt áður en úrslit fást,
vegna þess að öðrum keppend-
anna verði ekki gert nóg til hæfis
að hans mati. Reynist þetta rangt
spái ég að Fischer sigri með 12
1/2 gegn 8 1/2.
Mer þykir þrjú ár vera of
langur timi til að unnt sé að spá af
nokkru viti um næsta áskoranda.
WUC0IILG7 VA«. VAO «B SIG6A .
SKYLO/ Aó GEPA EVG/LOERT
A'ANN úfAE VESSU ÓUMKANS
ÚLRSTÖPVARMAU'
[WÚN VEKOuK LLUOAUO
IVAflNA Úí\ NEMA HÚN
WVERk!& HELbO«Ðu)
Vaó V£RP| i' VE1u«', (
[ VVR/R NÚ ulAN PA0 AP WÚN
EKVS NA17URLEGA \ HlL VA VERCCR
[ VluN ÁRLlbANLEú-A INNKULSA
16 V£|f gÚN ER
SAUOVRA EN EC-
fRÚl SAMT E.KKI
ÖPRU EtV HÚN
fíEFl SIQ-