Alþýðublaðið - 05.07.1972, Page 9
MARKflSUPAN
Mannakaupin ganga glatt í Englandi:
JAFNVEL SELDIR í
SUMARLEYFUNUM!
i landsleik l)ana og íslend-
inga fengu áhorfendur að sjá
nóg af mörkum. enda þótt þeir
hafi ekki fengið það sem þeir
allra helzt vonuðust eftir, is-
lenzkan sigur. En eins og fram
kom hér á iþróttasiðunni i gær,
hefði sigurinn vel getað lent
okkar megin, þvi danska liðið
var ekki sérlega sterkt. En
tvenn gróf varnarmistök i byrj-
un seinni hálfleiks gerðu út um
þennan landsleik Dana og
islendinga.
Alþýðublaðsmenn voru með
myndavélarnar á lofti i fyrra-
kvöld og tókst þeim að festa það
markverðasta á filmu, þar á
meðal flest mörkin. Við birtum
þau með til gamans. ásamt
mynd af Sigurði Dagssyni i
markinu.
Á efstu myndinni liggur Sig-
urður reyndar hjálparvana á
jörðinni. og boltinn liggur i
markinu eftir hörkuskot Jack
Hansen. Á rnynd númer tvö eru
það Danir sem mega hiröa
boltann úr netinu. eftir óvænt
jöfnunarmark islendinga.
Og enn liggur boltinn i danska
markinu eftir skot Eyleifs,
inynd þrjú. og næsta mynd sýnir
Allan Simonsen jafna fyrir
Dani.
Myndir fimm og sex sýna
hörmungarstundir islenzku
Framhald á bls. 4
öll knattspyrna liggur svo að
segja niðri i Englandi þessa
stundina, og leikmennirnir sóla
sig á ströndum Spánar og hvilast
eftirerfiðan vetur. Þar getur ,,al-
múginn” virt þessa kappa fyrir,
og hafa islenzkir sóldýrkendur
notfært sér þetta tækifæri dyggi-
lega, enda eru kapparnir vel
þekktir frá sjónvarpsleikjunum
hér heima.
En þótt knattspyrnan sjálf liggi
niðri, blómstra ýmsir fylgihlutir
hennar jafn vel og áður, til að
mynda kaup og sölur á mönnum.
Þær hafa verið margar að undan-
förnu, og verða væntanlega enn
fleiri þegar liða tekur á julimánuð
og félögin fara að undirbúa sig
fyrir næsta keppnistimabil.
Kaupin hafa jafnvel gengið svo
langt, að menn eru seldir meðan
þeir liggja i sólinni á Spáni, og
þeir hafa ekki þurft að gera annað
en staðfesta vilja sinn með einu
simtali!
Eins og svo oft áður hefur nafn
Tonu Waddington framkvæmda-
stjóra Stoke verið mikið i fréttun-
um að undanförnu, enda hefur
hann mikið sýslað við tékkheftið.
í vor seldi hann Mike Bernard til
Everton fyrir 140 þúsund pund, og
peningana notaði hann vel eins og
alltaf, keypti Jimmy Robertsson
frá Ipswich (kom hingaö með
Arsenal um árið) og Geoff Hurst
frá West Ham. Báðir eru þessir
menn vel við aldur, en Wadding-
ton er frægur fyrir að ná þvi bezta
út úr útbrunnum leikmönnum,
samanber George Eastham og
Stanley Matthews.
Stjarna Hurts hefur fallið illi-
lega seinni árin, hann var hetja
enska landsliðsins þegar það
vann Heimsmeistarakeppnina
1966, gerð þá þrjú mörk i úrslita-
leiknum. Og fyrir tveim árum var
hann metinn á yfir 200 þúsund
pund, og siðast lék hann i enska
landsliöinu nú i vor.
Liverpool hafði fest kaup á mið-
herja Huddersfield Frank
Worthington, og greitt fyrir hann
150 þúsund pund. En nokkru
seinna rifti Liverpool samningun-
um á þeirri forsendu aö Worth-
ington væri með of háan blðð-
þrýsting. Hópur lækna rannsak-
aði hann tvisvar, og i bæði skiptin
var niðurstaðan sú sama. Þvi rifti
Liverpool kaupunum, og
Worthington fékk taugaáfall ofan
á allt saman. Hann hefur nú náð
I kvöld klukkan 20 hefst á I.aug-
ardalsvellinum afmælismót KSÍ.
Er þetta unglingamót með þátt-
töku fimm liða, tveggja skozkra
og þriggja islenzkra.
Mótið stendur i fimm daga. og
vcrður lcikið i Reykjavik. á Akra-
nesi og i Keflavik. Fyrstu tveir
lcikirnir fara fram á Laugardals-
vcllinum i kvöld, og leika þá
Landið-Reykjavik ’56 og Faxa-
flóaúrval-Celtic.
Eins og kunnugt er hefur Olym-
piunefnd islands cfnt til happ-
drættis til fjáröflunar vegna und-
irbúnings og þátttöku islendinga i
Olympiuleikunum i Munchen sið-
ar i sumar. Vinningar i happ-
drættinu eru 4 flugför til Munchen
og aðgöngumiðar að Olympiu-
leikunum ásamt hótelherbergj-
um.
Happdrættismiðar voru sendir
ýmsum einstaklingum og einnig
liafa þeir verið til sölu á skrifstofu
t.S.Í. og i minjagripasölu Olym-
piuncfndar i Aðalstræti 18.
Þar sem ekki hafa verið gerð
sér að mestu, og sést nú oft i fylgd
með ungfrú Englandi, Carolyn
Moore, þeirri sem lengst var við-
loðandi George Best.
Feliri kaup hafa átt sér stað
milli félaga isumar, en þar er um
minni spámenn i knattspyrnunni
að ræða. Fleiri kaup eiga sér
örugglega stað á næstunni, og er
jafnvel talað um að framherjar
eins og Brian Kidd (Manchester
United), Joe Royle (Everton) og
MikeChannon (Southamton) leiki
með nýjum félögum næsta vetur.
- SS.
full skil á útsendum happdrættis-
miðum hcfur verið ákveðið að
fresta drætti til 29. júli.
Olympiunefndin treystir á, að
allír gcri full skil i happdrættinu
fyrir þann tima.
Á föstudaginn léku landslið og
pressulið í golfi. Landsliðið sigr-
aði með yfirburðum, 45 höggum,
471 högg gegn 516. Úrslit urðu
þessi.
LANDSLIDID
Einar Guðnason, GR 73 högg
Björgvin Ilólm. GK 77 —
Þorbjörn Kjærbo. GS 78 —
Gunnlaugur Ragnarss. GR82 —
Öttar Yngvason. GR 83 —
Björgvin Þorsteinss. GA 78 —
471
PRESSULIDIÐ
Jóhann Eyjólfson. GR 85 högg
Sigurður lléðinsson, GK 85 —
Hannes Þorsteinsson. GL 85 —
Július R. Júliuss. GK 86 —
llans ísebarn. GR 89 —
Ölafur B. Ragnarss. GR 86 —
516
ALLS STADAR
©
Miðvikudagur 5. júlí 1972