Alþýðublaðið - 05.07.1972, Side 11

Alþýðublaðið - 05.07.1972, Side 11
Kross- gátu- krílið LflHDHELtflSERJUR r r r eftir A VAI m VIÐATTIINI MAR Arthur H YHL ui viuhi iuni limi Mayse ,,Mike.” Háls hennar var þurr, en hún reyndi að kalla nógu hátt til að Mike gæti heyrt i gegnum gný- inn i sekkjapipunni. „Stóri bróðir fylgist með þér.” Hann heyrði ekki til hennar. Hún var viss um, að hann hefði gengið á hana, ef hún hefði ekki vikið. Hann sneri við undir skærum tónum „Highland Laddie”, og meðan hann gekk framhjá henni, flýtti hún sér að hlaða byssuna með skjálfandi höndum. Hún lyfti byssunni með báðum höndum, miðaði vandlega, hélt niðri i sér andanum og hleypti af. Herra Grár gaf ekkert hljóð frá sér. Hann stökk af stað yfir trjábolina og krafsaði með framfótunum og sveiflaði þeim kringum sig. En afturfæturnir kiknuðu, enda þótt hann berðist um. Hann féll niður á trýnið og rófan stóð út i loftið, og þannig lá hann eins og vera úr hræðilegum draumi. Linn horfði á dauðastrið hans. Belgur sekkjapip- unnar tæmdist og lék sálumessu yfir honum. Viðbrögð hennar urðu ekki þau, sem hún hafði vænzt. Ég hlýt að vera farin að harðna, hugsaði hún. Hún kiknaði ekkki i hnjánum, hún fann ekki málmbragðið, sem fylgdi venjulega i kjölfar mikils ótta. Hún nálgaðist Mike, og hann hafði rétt tima til að loka munninum, áður en hann tók byssuna. Hann þreifaði i vasa sinn eftir skothylki, hlóð byssuna aft- ur og nálgaðist bjarndýrið varlega. Þvinæst beygði hann sig fram og þrýsti hlaupinu að eyra bjarnar- ins. Blossi, sem virtist f jólublár i rökkrinu, stóð úr úr hlaupinu. Linn sagði hljóðlega: ,,Ég held, að þetta hafi ekki verið nauðsynlegt.” ,,Kannski ekki,!’ tautaði hann án þess að horfa á hana, ,,en það er betra að fullvissa sig. Gerir þú þér grein fyrir þvi, hvað hefði gerzt, ef þú hefðir hæft hann i augað?” ,,En hitti ég kannski ekki?’ Honum tókst engan veginn að gabba hana. Hún var drottning dagsins og ætlaði sér að njóta þess til fullnustu. Hún teygði fram höndina og strauk gróf- an feldinn. Skrokkurinn var enn heitur. Það var óskiljanlegt, að þetta óargadýr, sem hafði ör- skömmu áður ógnað lifi þeirra, var nú dautt og óskaðlegt. Grábjörninn með gula blettinn minnti i dauðanum á óhreina ábreiðu, sem hefur verið hengd út til viðrunar. ,,Þetta var frábært skot, Mike, eða finnst þér það ekki?” Hún var full ánægju með sig, en vorkenndi birninum. Hann hafði ekki valdið þeim vandræðum, hann hafði visað þeim leiðina niður af jöklinum og verið særður af byssuskoti án þess að verðskulda það. Það voru fyrst og fremst þau, sem höfðu valdið birninum vandræðum. „Þetta var það almesta fjandans heppnisskot, sem ég hef séð eða mun nokkurn tima sjá, „sagði Mike fýlulega við hana og starði á dýrið, og sekkja- pipan dinglaði i hendi hans. „Vissir þú að herra Grár var hérna?” „Auðvitað. Hann var alveg frá sér numinn.” Hann kingdi og rödd hans var hörð. „Á meðan ég lék, gerði hann ekkert illt af sér. Það var ekki fyrr en þú komst, að hann fór að sýna fjandskap.” „Jæja. Og hefði ég ekki komið? Og hvað hefði gerzt, þegar þú varst orðinn vindlaus?” „Það vantar aldrei vindinn i pipara,” skýrði hann út fyrir henni, strangur á svip. Hún hallaði sér að lend bjarndýrsins og drap fæti á tunnulaga höfuð þess. „Hefur þú nokkru sinni sjálfur skotið bjarndýr með svona litilli byssu, Mike?” „Nei.” „Hefur Ves Jones gert það?” „Ekki svo ég viti,” sagði hann treglega. „En hann gerir það i kvöld til að hressa upp á föður þinn. Ég er að verða uppiskroppa með sögur handa honum. Hana klæjaði á milli herðablaðanna og neri sér að bjarndýrsfeldinum, og sveiflaði öðrum fæti daðurs- lega. „Hver vann styrjöldina 1812, Mike?” „Eigum við ekki að draga um það?” „Segðu grábjörn.” „Hvers vegna?” Mig langar bara að heyra þig segja það.” „Er ekki nóg, að ég segi „frændi”? „Nei.” ef mögulegt reyndist að vera saman i klefa. — Það er útilokað. Jæja látið mig sjá sannanirnar. 7 Ekki ferðu að neita þvi að þú þekkir Horace? (Horace var tengiliðurinn. sem Tommy hafði ætlað að skjóta fyrir svik). — Vitanlega þekki ég Horace. Grunur hans um að Horace hefði verið útsendari. Gestapo virtist nú staðfestur. — Ætlaöu að segja mér að hann hafi frætt ykkur um þessa vitleysu? — Það er engin vitleysa. Horace er einn af okkar beztu mönnum — Horace er svikari og þjófur og lygari. — Varlega nú. Ég gæti hæglega sótt hann og yfirheyrt ykkur augliti til auglitis. Það kynni að verða þér hættulegt. — Gerðu það bara. Ég er ekki hræddur við hann, heyrirðu það? Ég h'eimta að Horace verði sóttur. — Jæja, þú safnar glóðum elds að höfði sjálfs þin. Ég skal sjá um að þið hittist einhvern morguninn i næstu viku klukkan tiu. — Hann verður of seinn sannaðu til, og ef hann veit hvern hann á að hitta, kemur hann alls ekki. ssas.m' Eftir nokkrar spurningar annars eðlis, sem Tommy svaraði ekki öðru en þvi sem hann vissi að Mizzlevitz þekkti til, var hann sendur aftur til fangelsins. Eftir þriðja daginn i nýja klefanum var hann orðinn kunnugur daglegum venjum fangelsisins. Á morgnana var kaffi. Er hann hafði lokið við daglegar likamsæfingar sinar og ræst klefann kom á stofugang gamall akfeitur Feldwebel, sem hafði fyrir sið að gefa honum utanundir, sparka i hann og segja: ,,Pr-rezki liðsforingi, við skulum tr-r-repa þig hægt”. Eftir þessa upplyftingufórhann að reyna að stafa sig fram úr fréttabrotum á dagblaða- sneplunum sem honum voru afhentir sem salernispappir. f hádegismat var pylsusúpa og sneið af þurru brauði, á kvöldin var hvorki súpa né brauð. En jafnt og þétt bárust honum kveðjur frá samföngum sinum og hann sendi þeim kveðjur á móti gegnum lausu rúðuna. En t i 1 b r e y t i n g a 1 e y s i fangelsisdaganna rufu tiðar ferðir i Avenue Foch og rue des Saussaies til yfirheyrslu. Hversu illa sem Tommy var við heimsóknirnar til Rudi og félaga hans og barsmiðar þeirra, var hann þó feginn þessum ferðum vegna þess að þær veittu honum tækifæri til að athuga leiðina, sem fanga- vagninn fór og kynnast venjum fangaverðanna. Eftir fjórðu ferðina hafði hann tilbúna flóttaáætlun sina. Á eftir fangávagninum fylgdi alltaf i tiu metra fjarlægð opinn bill með fjórum Gestapom önnum vopnuðum vélbyssum. í vagninum sjálfum voru tveir verðir með Sten- byssur og sat annar hjá öku- manninum, en hinn stóð i ganginum fyrir innan aftur- dyrnar. Þessi gangur var alltaf fullur af svartm arkaðs- bröskurum og öðru glæpa- smælki, sem ekki var rúm fyrir i klefunum. Af samtölum þessara fanga komst Yeo- Thomas að þvi, að þegar fanga- verðirnir voru ltalir, sem oft kom fyrir, setttist vörðurinn við vagndyrnar af óforbetranlegum slappleika suðurevrópu- mannsins á litinn kjaftastól og lagði sten-byssuna frá sér i annað hornið. Með þvi að þrýsta öxlinni fast i dyrnar þegar hann væri læstur inni i klefanum i rue des Saussaies hugðist Tommy koma i veg fyrir að efri lásinn lokaðist, með aðstoð vinsam- legra fanga fyrir utan vonaðist Yeo-Thomas hann til að geta opnað neðri lásinn, sem var algeng tegund og mikið notuð á járnbrautar- vögnum. Þegar vagninn svo beygði úr Boulevard Raspail in i Avenue d Orléans, ætlaði hann að fara út úr klefanum, fikra sig aftur i vagninn og þrifa sten- byssuna á meðan hinir bæru vörðinn ofurliði. t gegnum rifuna i afturhurðinni myndi hann svo tæma( sten-byssuna inn um framruðu bifreiðar- innar fyrir aftan, mennirnir i henni myndu annaöhvort deyja eoa særast eöa oitreiöin sjatt fara út af veginum og hvolfa. Hann myndi siðan stökkva út úr vagninum með hina fangana á hælum sér, fela fjötraðar hendurnar undir hálsklút, sem hann hafði þegar fengið að láni hjá einum kvenfanganna, hverfa i ringulreiðinni og halda til rue d Alésia skammt frá. Þar átti hann falin fölsuð skilriki, peninga, nærföt og skamm- byssu i málarastofu einni. Siðar gæti hann fengið kunningja sinn til að koma og ná af sér hand- járnunum. En það átti ekki að verða þannig. Þegar nafnakall átti sér stað inni i fangelsinu, voru þeir Palaud og Chaland kallaðir til þriðju deildar en Yeo-Thomas, sem rölti vongóður á eftir þeim var sóttur með höggum og spörkum og fleygt á höfuðið inn i dimman klefa þar sem ekki sá handa skil. Þegar hann gat staðið i fæturna aftur hóf hann könnun á þessum nýja dvalar- stað sinum: klefinn var örfá skref veggja á milli, hann gekk til hægri og rakst þar á eitthvað, sem liktist borði, lengra til hægri straukst hann við sal- ernisskálogað lokum varð fyrir honum járnrúm, sem hann lét fallast niður i staðuppgefinn. Hann gat þó aðeins legið á Miðvikudagur 5. júli 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.