Alþýðublaðið - 25.07.1972, Blaðsíða 7
MOHGUN SKVRIR ÞESSI KONA LOGREGL
LYFJANOTKUN DÚTTUR SINNAR
Þetta er hún
'
't.\
j
S i N C E R
|
'y
Singer saumavélin
sem gerirsaumaskapinn aö leik
^^einfaldar stillingar (semenginn þarf að hræðast), eina saumavélin á markaðinum
með sjálfvirka spólun, ^ glært spóluhús, sem sýnir hvað eftir er af tvinna á spólunni,
^sjálfvirkur hnappagatasaumur, 2 gerðir, ^ hallandi nál, teygjusaumur fyrir
nýtízku teygjuefni, m.a. „overlock" og afturstingur og fjöldi annarra hluta gera Singer sauma-
vélina að beztu hjálp sem þér getið fengið við saumana.
Þér getið valið um 6 gerðir frá kr. 9.872,00 til kr. 25.043,00.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91,
Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23,
Véladeild SÍS, Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
$ Véladeild
A DMI II A o ncvi/ IAUII/ cilll OOAAA
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar
,,Þeir hafa margir farið
illa á trippunum. ívar fór á
falskri ávísun til Kaup-
mannahafnar. Ég held, að
þar hafi engin pipa farið
fram hjá honum. Svo fór
hann í LSD og tók þrjár
töflur. Það er allt of mikið
fyrirtrip og hann endaði á
Kleppi. Leifurlenti líka illa
á trippi í París og fór á hæli
þar fyrst. Antóníó lék sama
leik og Ivar, en þeir ganga
samt allir lausir núna.
Öllum ber saman um að
það sé mun auðveldara að
smygla LSD hingað en
hassi."
Þessi kafli er hluti af frá-
sögn konu, móður ungrar
stúlku, sem komizt hefur í
kynni við margt það fólk,
sem sér til þess að hingað
til lands sé smyglað fíkni-
efnum. Og sér jafnvel til
þess að hér séu til ungling-
ar, sem nota þau.
Þessi kona hefur sjálf
kynnst mörgu af þessu
fólki, sem hún segir frá, og
það er einmitt fólkið, sem
kom dóttur hennar í kynni
við eiturefnin.
Á morgun ætlar hún til
lögreglunnar og gefa upp
nöfn þess fólks, sem varð til
þess að dóttir hennar komst
i kynni við þau.
Það er sú leið, sem þessi
kona segist hafa valið, og
hún lét okkur hafa þessa
frásögn til að vekja athygli
annarra foreldra, sem ef til
vill standa i sömu sporum
og hún.
Það eru þung spor að fara
til lögreglunnar og þurfa
m.a. að gefa upp nafn dótt-
ur sinnar, — en það kynnu
ef til viII að verða þyngri
spor að heimsækja hana
síðar, ef hún færi þá leið,
sem býsna margir íslenzkir
unglingar hafa farið vegna
ofnotkunar lyfja og ffkni-
efna.
Á hæli, þar sem sum eiga
aldrei afturkvæmt.
Frásögnin fer hér á eftir:
Hann var ungur og ljóshærður
drengur, sem sötraði mjólk með-
an hann horfði áfergjulega á
dökkhæsrða piltinn með Bis-
markskeggið, sem var að hita
„grasið” ögn.
— Hvers vegna gerið þið þetta?
— Fyrst myljum við það svo-
litið. Sko, það eru svona kúlur —
og hann dró upp kúlu á stærð við
tyggjókúlu, sem vafin var i silfur-
pappir. — Þetta er hreint hass frá
Afganistan. Þaðan er bezta hass-
ið og aldrei blandað einhverjum
óþverra. Jæja, við myljum það
fyrst, svo hitum við það ögn til
þess að það sé lausara i sér.
Dökkhærði pilturinn var búinn
að laga hassið til. Það minnti
mest á piputóbak, þegar hann
tróö þvi i pipuna, sem allir vita
vist nú orðið, hvernig litur út.
Þau voru þrjú um hana og
reyktu til skiptis. Það var ekki að
sjá, að neitt óvenjulegt væri um
að vera, enda öll vön. Eftir
smáslund hvarf stúlkan fram.
Piltarnir settu plötu á fóninn. Sá
ljóshærði dansaði ögn um og virt-
ist frekar æstur. Sá með Bismark-
skeggið sat með krosslagðar
hendur og fætur á gólfinu og helzt
leit út fyrir, að hann hefði fallið i
trans. Ljóshærða piltinum tókst
hins vegar ekki að fá hann til að
tala við sig, hvernig sem hann
reyndi.
— Ég er hommi sagði hann. —
Stærsta skrefið er að viðurkenna
það fyrir sjálfum sér og svo að
viðurkenna það fyrir heiminum.
Ég er stoltur af þvi að vera það
sem ég er
Sá dökkhærði þagði og stúlkan
kom aftur inn. Hún settist i stól og
starði á gólfteppið.
Hann flippaði alveg núna. Ertu
high? spurði ljóshærði pilturinn.
Stúlkan kinkaði kolli.
— Svona er það, sagði sá ljós-
hærði. — Grasið eykur hugar-
ástandið, sem maður er i hverju
sinni. Ég var æstur og verð heldur
æstari, þú varst langt niðri og
verður rólegri. Hann flippar
bara. Allir litir veröa skærari og
hlutirnir, ja. þá sér maður i nýju
ljósi hverju sinni. Ég kom með
hrúgu með mér frá Kaupmanna-
höfn. Ég var i gipsi. þegar ég kom
og hafði sett svona 50 gr. inn i um-
búðirnar. En ég hefði ekki þurft
þess. Það leitar enginn á manni.
Þeir halda sig við bréfin hérna.
Og hasshundurinn er annað hvort
high eða i afvötnun. Það er löggan
sem þuklar bréfin til að vita,
hvort þau eru þykk eöa þunn. Mér
finnst ólöglegt að fikta við ann-
arra manna póst.
— Einu sinni fékk ég hass á
Indlandi, sagði sá dökkhærði,
sem hafði vaknað af dáinu. — Það
var fint hass. blandað með ópium.
Ég hef aldrei flippað jafn vel.
— Það er bezt óblandað, sagði
stúlkan og hin kinkuðu kolli. —
Lang bezt. En þetta endist ekki
lengi, þótt fimm grömm dugi i
nokkrar pipur og margir geti ver-
ið um hverja pipu. Það er þó i
lagi, þvi að það kom stór sending
frá Amsterdam nýlega og er rétt
að komast i dreifingu. Þau neita
hins vegar að segja, hverjir hafi
staðið að kaupunum, en þetta var
rúmlega pund og kom með skipi.
—- Þaðerútumalltland. Hvers
vegna heldurðu, að hann Hinni sé
ekki i bænum núna?
— Er hann með það? Ég hélt,
að hann væri ekki lengur i um-
ferð.
— Ja, hann er nú vanur að
óperera i Lækjargötunni. Þetta er
stór-pusher. Hann er lika með
L.S.D. og amfetamin.
Nei, þaö er ófært að fá þau til að
ræða þessa stórsendingu, en öll
þurfa þau nauösynlega áð
skreppa út á land á morgun, svo
að sennilega er ekkert komið til
Reykjavikur ennþá. Það er hins
vegar allt i lagi að tala um at-
burði, sem hafa gerzt og ekki er
unnt að sanna lengur. Sönnunar-
gögnin eru „gufuð” upp.
— Það voru fimm krakkar,
sem brutust inn i Kópavogs-apó-
tek svona ósköp rólega. Þau
þekktu sko öll lyf hundrað prósent
og tóku eins mikið og þau áttu
gott með. Auðvitað notuðu þau
efnin sjálf og seldu lika. Á ein-
hverju þurftu þau að lifa. Það
entist bæði vel og lengi...ég held,
að þau hafi étið afganginn eftir
hálfan mánuð. Ég þekki eina
stelpuna, sem var i þessu. Hún
bauð engum að kaupa af sér, en
HÚSAFELLS-
HÁTÍÐIN:
allir vissu, að hún var með i
þessu, svo að þeir spurðu og hún
seldi þeim, sem báðu um það. Það
lá við að lögreglan kæmist óvart i
þetta mál, sem sem betur fer
varö ekkert úr þvi. Það er óhugs-
andi. að þeir geti nokkuð hér eftir.
Ja, þau tóku dóbesin, valium,
librium, og HytonAsa. Þetta eru
deyfandi og róandi lyf. Ekkert
varið i þau? Vist er varið i þau.
Maður verður sljór og er sama um
allt. Fer ur sambandi við um-
heiminn og skiptir sér ekkert af
hinu fólkinu. ef það skiptir sér
ekki af manni. Annars komst
þetta aldrei upp, svo aö það er i
Íagi að tala um þaö.
— Þeir hafa margir farið illa á
trippunum. ívar fór á falskri
ávisun til Kaupmannahafnar. Ég
held að þar hafi engin pipa farið
fram hjá honum. Svo fór hann i
LSD og tok þrjár töflur. Það er
allt of mikið fyrir trip og hann
endaöi á Kleppi. Leifur lenti lika
illa á trippi i Paris og fór á hæli
þar fyrst. Antonió lek sama leik
og Ivar, en þeir ganga samt allir
lausir núna.
Öllum ber þeim saman um, að
það sé mun auðveldara að smygla
LSD hingað en hassi.
— LSD — töflurnar eru svo litl-
ar. Það kemst mikið fyrir i hverri
sendingu, en við höfum engan s-
e'rstakan áhuga. Það fara svo
margir yfir á fyrsta trippinu.
Heróin og morfin eru ófær.
Já, þvi að Villi var á þvi. Greyið
hann Villi. Það var hroðalegt að
komast yfir það, þegar maður er
„hokked on it”. Svefnleysi,
taugastrekkingur, hræðsla. Sem
betur fer er greyið hann Villi
kominn yfir það og notar nú bara
hass og sprútt.
— Sjálfsagt að selja krökk-
unum sprútt i búðum. Þau eiga
ekki að þurfa að kaupa allt a
svörtum. Sumir bilstjórarnir
selja bara krökkunum, en þeir
stórgræða á þvi. Lögreglan er
farin að halda vörð við útsöl-
urnar. Ég veit um konu sem lenti
illa i þvi. Hún var búin að fara inn
og svo báðu krakkarnir hana um
að skreppa aftur inn. Hún gerði
það, þó að hún þekkti þá ekkert,
hefur sjálfsagt verið á móti svört-
um eins og fleiri. Þau nöppuðu
hana, þegar hún kom út. Mér
finnst það lúalegt. Annars er
hassið betra en sprútt. Ég vil það
heldur.
Þau vilja það öll heldur.
ÍON
LÆKNIR SiMI
■ I I * *
| I I i f
o'z
I
T I 1 I
O'l
ERIIM VIB AB
BERA GAGN EBA ÖGAGN?
„Erum við að gera gagn, eða
erum við að gera ógagn? þetta
er sú spurning sem viö viljúm fá
svar við”, sögðu þeir Hjörtur
Þórarinsson, skólastjóri á Klepp-
járnsreykjum og Vilhjálmur
Einarsson, skólastjóri á Reyk-
holti, sem eru helztu forsvars-
menn útihátiðarinnar i Húsafells-
skógi, er þeir gerðu blaðamönn-
um grein fyrir hátíðinni sumar.
Þetta er i sjötta sinn, sem Ung-
mennasamband Borgarfjarðar
stendur fyrir hátiðinni í núver-
andi mynd, en ungmennafélögin
tiu i sambandinu leggja fram
sjálfboðaliða viö störf á hátiðinni,-1
og þannig fá félögin nokkrar tekj-
ur til félagsstarfsins.
Tilgangur sambandsins er tvi-
þættur. Annars vegar að efna til
fjölskylduhátiðar, þar sem allir
aldursflokkar geta komið og
skemmt sér saman um þessa
helgi og veita svo fjölbreytta og
góðá’skemmtikraíta að það vegi
upp á móti þeim takmörkunum/að
fólk verður að láta á móti sér að
vera með áfengi á staðnum. Og
um leið veitir sambandið ung-
mennafélögunum möguleika á að
afla sér starfsfjár, með þvi að
leggja þarna fram sjálfboða
vinnu.
Aðstæður á Húsafelli eru þær
sömu og i fyrra, tvennar fjöl-
skyldutjaldbúðir og einar ungl-
ingatjaldbúðir og skemmtiatriði
á þremur stöðum. Er samfelld
dagskrá i 13 tima á laugardag og
18 tima á sunnudag, auk föstu-
dagskvölds og mánudagsmorg-
uns. Sex hljómsveitir leika fyrir
dansi og margs konar skemmti-
atriði eru á milli. Mótssvæðið
verður opnað kl. 16 föstudaginn 4.
ágúst og kl. 9 um kvöldið verður
byrjað að leika fyrir dansi á 3
pöllum, Náttúra leikur i Lamb-
húslind, hljómsveit Ingimars Ey-
dal i Hátiðarlundi og Stuðlatriu i
Paradis, en Nafnið leysir af, svo
aldrei verði hlé. Er dansleikur til
kl. 2 um nóttina.
I I II i 0|Z II I I i I I I I 0|t
0,1
:
Rp
/• V* l .X•■{(/.> 4 vv^/jt, i , . ■"
/•íosíw jy fc-
; / ,'Tf
í
J&y v /!• yJiy
< r-w , > > V * y v
v* ’ / S /^jp\
REYKJAVÍK I ? £
A laugardag byrjar diskótek kl.
14, þá keppa Haukar og ÍR i hand-
knattleik, úrvalslið frá Holstebro
i Danmörku sýnir fimleika og
spænskt flamingotrió sýnir listir
sinar. Kl. 8 verða hljómleikar i
Lambhúslind, Trúbrot og Magnús,
og Jóhann og dansleikir verða á
öllum pöllum til kl. 3 um nóttina,
sömu hljómsveitir og kvöldið áð-
ur. En kl. 3 verður varðeldur við
Kaldá. Þennan dag fer fram
keppni táningahljómsveita, sem
leika tvisvar sinnum og Trúbrot
leikur á milli.
A sunnudag byrjar diskótek kl.
10,30 og flutt verður Jesus Christ
Superstar með mjög góðum
hljómtækjum. Kl. 1 hefst hátiða-
dagskrá, sem Guðmundur Jóns-
son stjórnar, en þá hefur Lúöra-
sveit Stykkishólms hafið leik
sinn. Helgistund verður, Guð-
mundur G. Hagalin flytur hátið-
arræðu, Rió trió skemmtir og
fimleikaflokkurinn danski sýnir.
Kl. 15,30 keppir meistaraflokkur
IR við UMSS i körfuknattleik. Kl.
17 er skemmtidagskrá i Hátiða-
lundi. Á hljómleikum leika Ingi-
mar Eydal, Trúbrot og Sigurður
Rúnar, Lúðrasveit Stykkishólms
og nýkjörin táningahljómsveit
’72. Meðal skemmtikrafta eru
Magnús og Jóhann, Rió trió og
Ómar Ragnarsson. Flokkur frá
Holstebro sýnir Þjóðdansa.
Knattspyrnukeppni kvenna verð-
ur á iþróttavelli, IA keppir gegn
Ármanni. Sýnt verður fallhlifa-
stökk. Og dansað verður á 3 pöll-
um við undirleik Ingimars Ey-
dals, Stuðlatriós, Roof Tops og
Trúbrots og kvöldinu lýkur með
flugeldasýningu kl. 2,15.
Á mánudag verður diskótek
undir stjórn Gisla Sveins Lofts-
sonar kl. 10—14,30.
Þriðjudagur. 25. júli 1972
Þriðjudagur. 25. júlí 1972