Alþýðublaðið - 26.07.1972, Síða 1

Alþýðublaðið - 26.07.1972, Síða 1
alþýðu m k. sl < wmm MIÐVIKUDAGUR 26. JOLI 1972 — 53 ÁRG — 163 TBL « BAKSÍÐUSKÁK AÐ VANDA EITRIÐ KOM MEO SðSUNNI Eiturlyfjasendingin mikla sem danska lögreglan fann i sið- ustu viku og við sögðum þá frá, komst til Danmerkur með vöru- flutningabifreiðum frá Tyrk- landi. Var sendingin falin i köss- um sem innihéldu fikjur og tómatsósu. Smyglhringurinn sem sá um að smygla lyfjunum til Dan- merkur, hafði einfaldlega kom- ið sér upp innflutningsskrifstofu i landinu, og byrjaði innflutning á matvöru frá Tyrklandi. Jafn- framt kynnti hann sér vinnu- brögð dönsku tollgæzlunnar. Hringurinn komst fljótlega að þvi, að danska tollgæzlan leitaði ekki sérlega vandlega, og þvi setti hann tómatsósu og fikjur efst i kassana, en eiturlyfin neðst. Svo öruggir voru smyglararn- ir meö sig, að þeir buðu jafnvel tollgæzlunni að leita, sem hún þáði afar sjaldan. I Hún er kunnari en frá þurfti að segja árátta tslendinga að tina upp hverja „sjoppu” við þjóövegi landsins á ferðalögum, til þess að kaupa kók og pylsur. En nú hefur smitað út frá sér, að þvi er virðist og skepnurnar eru komnar á pylsubragðið. Þær vilja lika fá ,,eina með öllu". Aö minnsta kosti var ekki annaö að sjá á kindunum, sem við hittum við „sjoppuna” hjá skiöaskálanum i Hveradölum á sunnudagskvöldið. Þær hópuð- ust saman við dyrnar og hnus- uðu rækilega af hverjum og ein- um sem kom út með pylsur og kók eða annað góðgæti i höndun- um. Ekki þurfti annað en rétta fram hendurnar þá komu þess- ar annars styggu fjallafálur hlaupandi og vildu fá bita. Ekki vitum viö hvort þær fengu nægju sina þetta kvöld, en i það minnsta var ein kindin öt- uö i tómatsósu á snoppunni, eitt- hvað virðist þeim finnast stúlk- an á myndinni vera matarleg. FLUGVÉL I VÖRPUNA Togbáturinn Dis KE 95 kom til hafnar á Akranesi i gærmorgun með rifrildi úr flugvél, sem komu i trolliö á miðunum út af Eldey. Kifrildin komu upp i tveimur tog- urum. fyrst tvö þriðjudaginn 18. júli en það siöasta kom á laugar- Framhald á bls. 4 MtÍR „HAMRANESMENN” ÚR- SKURBAÐIR I VARBHALD Þrir menn voru i gær úrskurð- aðir i gæzluvarðhald vegna „Hamranesmálsins”, sem svo hefur verið nefnt. Skipstjóri togarans og einn annar af eigendum hans hafa ver- ið úrskurðaðir i allt að 40 daga gæzluvarðhald, og þriðji maður- inn, sem verið hefur tengdur út- gerð togarans, en er ekki einn eigenda hans, hefur verið úr- skurðaður i allt að 14 daga gæzlu- varðhald. Sakadómsrannsókn vegna tog- arans Hamraness, sem sökk i góðu veðri um 45 milur út af Snæfellsnesi aöfaranótt 18. júli siðastliðinn, hófst að kröfu Sak- sóknara rikisins hjá bæjarfógeta- embættinu I Hafnarfirði i gær og byrjaði rannsóknin með þvi að mennirnir þrir voru úrskurðaðir i gæzluvarðhald. Sigurður Hallur Stefánsson, fulltrúi við bæjarfógetaembættið i Hafnarfiröi, tjáði blaöinu i gær, aö fljótlega eftir að sjóprófum lauk hinn 28. júni s.l. hafi „Hamranesmálið” verið sent Saksóknara rikisins, en skömmu fyrir siöu' u helgi hefði siðan bor- izt krafa lrá saksóknara þess efn- is, að málið yrði rannsakað i sakadómi. Sagði Sigurður Hallur Stefáns- Framhald á 2. siðu. FASTEIGNASKATTARNIR OG OG GAMLA FÓLKIÐ Korgarráði Iteykjavikur hafa borizt um 500 umsóknir frá öldruðu fólki i höfuðborg- inni, scm óskar cftir niðurfcll- ingu fastcignaskatta. Svcitarfélögum cr lögum samkvæmt hcimilt að fclla niður fasteignaskatta hjá cfnalitlu nldruöu fólki. Á furnli borgarráðs i gær var fjallað um hluta þessara um- sókna, en afgreiðslu þeirra er þannig háttað, að umsóknun- um er fyrst visað til fraintals- ncfndar og sama hátt útsvars- málum. Framtalsnefnd skilar siðan áliti sinu til borgarráðs, scm tckur cndanlcga ákvörð- un um afgrciöslu málanna. Borgarráð hefur ekki aug- lýst ncinn ákveðinn frest fyrir þá, scm vilja sækja um að fá fastcignaskatta eftirgcfna. Alþýðublaðiö vill vekja at- hygli efnalitils aldraðs fólks i horginni, scm á fasteignir, að það gctur sótt um niðurfcll- ingu fastcignaskattanna með þvi að skrifa Borgarráði Keykjavikur bréf. Umrædd niðurfelling fast- cignaskattanna nær aðeins til aldraðs fólks, sem hefur mjög litlar tckjur. Geta þeir, sem liafa fullar eöa þvi sem næst fullar tekjur, þó að þeir séu komnir á eftirlaunaaldur, þannig ekki vænzt niður- fellingar þessara skatta. — DRENGURINN SEM LÉZT i Drengurinn sem fórst I slysinu j að Hofi i Arnarneshreppi á mánu- dag, hét Kjartan Jóþsson, til heimilis að ölduslóð 84 I Hafnar- firði. Faðir hans, sem var með honurn, heitir Jón Pálmason, en hann er ættaður frá Hofi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.