Alþýðublaðið - 26.07.1972, Page 5
alþýðul
I
aöið
Alþýðublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb) Aðsetur
ritstjórnar Hverfisgötu 8—10. — Simi 86666.
Blaðaprent h.f.
UOTUR
Málgagn eins stjórnarflokksins,
Þjóðviljinn, hefur undarlega áráttu til
þess að reyna að blása að glæðum
sundrungar i landhelgismálinu. Jafn-
vel núna, þegar aðeins nokkrir dagar
eru þar til landhelgin verður færð út í
50 mílur og áframh. eindregin
samstaða þjóðarinnar getur ráðið úr-
slitum heldur Þjóðviljinn áfram að
mana pólitíska andstæðinga sína til
rifrildis við sig um landhelgismálið.
Varpar blaðið að þeim hvers kyns upp-
lognum ásökunum og vænir þá um alls
kyns vammir og skammir og væru
pólitiskir andstæðingar þeirra manna,
sem Þjóðviljann skrifa, ekki gæddir
mun meiri stillingu og heilbrigðri
skynsemi en Þjóðviljaskriffinnarnir,
þá væri allt fyrir löngu komið í háaloft
hér heima út af smávægilegri atriðum
málsins. Má nærri geta hvílíkan grikk
íslendingar gerðu sjálfum sér með
slíkri framkomu. Samt sem áður
heldur Þjóðviljinn áfram að hvetja til
sliks með skrifum sínum.
Eins og sakir standa nú um þessar
mundir er veriö að þrautreyna leiðir til
samkomulags við Breta og Vestur-
Þjóðverja um landhelgisútfærsluna.
Bæði Einar Ágústsson og Lúðvík
Jósefsson hafa sagt aftur og aftur, að
þeir vilji reyna til hins ýtrasta að ná
samkomulagi og báðir hafa þeir sagt,
að samkomulag geti enn orðið.
Undir þessum kringumstæðum, á
elleftu stundu landhelgismálsins, er
þaö þvi stórkostlega varhugavert af
Þjóðviljanum að reyna að ýta undir
deilur ög sundurþykkju meðal lands-
manna um atriði þess máls. Alþýðu-
blaðiö varar Þjóðviljann eindregið við
að halda slíku áfram.
LEIKUR
Við á Alþýðublaðinu erum reiðubúnir
að deila við ykkur Þjóðviljamenn um
hvað sem er og hvenær, sem er, — að-
einsekkium landhelgismálið núna. Ef
þið metið þjóðarhagsmuni einhvers i
þessu mikilvæga máli, sem þið hljótið
að gera, þá látið þessi varnaðarorð
ykkur að kenningu verða, og skrifið í
framtíðinni um landhelgismálið með
þjóðarsamstöðu en móti sundrungu!
ALVARLEG HÆTTA
Ríkisstjórn ólafs Jóhannessonar vill
kenna sig við ,,vinstri stefnu". En er
hún vinstri stjórn? Mótast aðgerðir
hennar af vinstri sjónarmiðum?
Hvað segir gamla fólkið um það? Er
það vinstri stefna að þyngja skattbyrð-
ir þess meir, en nokkurs annars hóps í
þjóðfélaginu?
Og hvaö segja neytendur i landinu?
Ber það vott um vinstri stefnu hjá rík-
isstjórn að knýja fyrst fram stórfelldar
hækkanirá smásöluálagningu og setja
siðan á kaupstöðvun áöur en launþegar
geta fengið þær hækkanir bættar?
Nei! Þetta er ekki vinstri stefna! Sú
stjórn, sem þannig verk vinnur, er eng-
in vinstri stjórn.
En þetta sifellda tal stjórnarherr-
anna um vinstri stefnu og vinstri stjórn
getur engu að síður komið miklu illu til
leiðar. Með þvi að vera i sifellu að
nudda sér utan í hugtakið „vinstri"
getur rikisstjórninni tekizt að koma
óorði á allt, sem það hugtak i rauninni
stendur fyrir. Það er alvarlegasta
hættan i sambandi við tilvist þessarar
ráðvilltu ríkisstjórnar.
BROTID SKIP
Það er ekki lengur neitt deilu-
efni, að rikisstjórnin hafi beðið al-
gert skipbrot á þvi ári, sem hún
hefur setið. Það er orðið svo aug-
ljóst öllum.
I efnahagsmálunum rikir nú al-
gert öngþveiti. t heilt ár hefur
þjóðarbúið verið rekið án þess að
stjórnendur þess hafi haft neina
heildarstefnu i efnahagsmálum
til að styðja sig við og nú fyrst er
verið að skipa nefnd til að leita.
Skattar á þorra gjaldenda hafa
verið stórhækkaðir með nýjum
skattalögum. Þau voru svo illa
unnin, að nú kemur i ljós, að
þyngstu byrðarnar voru lagðar á
þá, sem sizt skyldi, — gamla fólk-
ið. Þar tók rikisstjórnin aftur með
annari hendi það, sem hún hafði
gefið með hinni, og raunar mun
meira.
Eyðsla á fjárlögum var aukin
um nálægt þvi 50%. Þetta var
gert þrátt fyrir augljósa verð-
bólguhættu og þann voða, sem i
var stefnt með þvi að auka svo
mjög spennuna. Nokkrum mán-
uðum seinna á svo að reyna að
draga i land með bráðabirgðalög-
um til sparnaðar.
Kyrir ári lofaði rikisstjórnin
launþegum öllu fögru. Um ára-
mótin lét hún hefja ráðstafanir,
sem byggðust á þvi að ræna laun-
þega umsömdum visitölubótum.
Nokkrum mánuðum siðar lót hún
afnema verðstöðvun til þess að
geta hleypt enn meiri verðhækk-
unum af stokkunum, — þar á
meðal hækkunum á smásölu-
álagningu á nokkrum þýðingar-
mestu neyzluvörum almennings.
(irfáum vikum þaráeftir lét hún
með bráðabirgðalögum rifta
kjarasamningum og bannaði að
aukinn framfæ'rslukostnaður
vegna áðurnefndra ha'kkana
lengist bættur i kaupgjaldi.
1 kosningunum vorið 1971 tiiluðu
núverandi stjórnarflokkar mikið
um, að þáverandi rikisstjórn
hefði ekkert upp á að bjóða, nema
bráðabirgðaráðstafanir. Þegar
þeir svo tóku við stjórnartaumum
þóttust þeir hafa annað og betra a
reiðum höndum og boðuðu þá
„stefnu” i málefnasamningi, sem
siðar var prentaður og gefinn út
fyrir almannafé. En svo gerðist
ekki meir. Engin merki sáust um
þessa nýju stefnu. Og loks, þegar
eitthvað var aðhafst á ársafmæli
rikisstjórnarinnar, var allt, sem
hún hafði upp á að bjóða nýjar
„bráðabirgðaráðsafanir”. Þá
þurfti hún tima til að hugsa!
Þetta eru aðeins örfá dæmi. Af
mörgum er að taka.
Það er þvi ekki lengur neitt
deiluefni, að „stefna” rikisstjórn-
arinnar hafi beðið skipbrot. Hún
hefur reynst með öllu óhæf að
ráða við það verkefni, sem hún
tók að sér að gegna. Engin rikis-
stjórn á tslandi hefur jafn fljótt og
skörulega sannað getuleysi sitt.
Mikið hljóta margir þeir, sem
studdu þessa rikisstjórn til valda
vorið 1971 vera farnir að sjá eftir
þeim verkum sinum.
KATTARÞVOTTUR
ÞJÓÐVILJANS
í forysturgrein Þjóðviljans i
gær er á vandræðalegan hátt
reynt að útskýra fyrir
koin uialijörðinni hvers vegna
rikisstjórnin liafi nú, einu ári
eftir að luin tók við völduni,
látið skipa nefnd til þess að
leita að þeirri efnahagsstefnu,
seni stjórnin boðaði i málefna-
saniningnum.
„Það vinstra fólk, sem
kjörið liefur vinstri stjórn til
valda á islandi. gerirkriifur til
þess. að sú stjórn þori að tak-
ast á við sjálf grundvallar-
vandamálin i islenzku þjóð-
l'élagi”. segir blaðið. (lg
nefndin á sem sé að leita að
leiðuni til þess.
En hvernig er þvi varið,
Þjóðviljaritsljóri góður: A
ekki það „vinstra fólk". sem
kaus þessa „vinstri stjórn”
kröfu til þess, að hún hafi sjálf
i pokahor ninu einhverjar
„vinstri leiðir” og þurfa þvi
ekki að skipa scrfræðinga-
nefnd lil að leita þeirra cftir
heils árs aðgcrðarlcysi? Og er
þaðekki einkennileg ráðstofun
hjá þessari sömu stjórn að
leita að þessum iciðum hjá
nefnd, sem að meiri hluta cr
skipuð helztu efnahagsráðu-
naulum viðreisnarstjórnar-
innar?
Menn eins og Jóhannes Nor-
dal, seöalbankastjóri, pró-
fessorarnir ólalur lljörnsson
Kramhald á bls. 1
Átt þú eftiraötaka sumarleyfið aö
einhverju eöa öllu leyti? Hvers
vegna þá ekki aö geyma tvær vikur
þar til i haust og veröa sér úti um
sumarauka i Kaupmannahöfn i ferö
á vegum Alþýöuflokksins? Það
tækifæri stendur öllu flokksbundnu
Alþýðuflokksfólki um land allt opið.
,,SUNNU", svo hér er um aö ræöa
eina allra ódýrustu utanlandsferö
ársins! Allar upplýsingar um ferðina
og feröakostnað má fá hjá ferða-
skrifstofunni „SUNNU", símar
16400, 12070 og 26555, eða á skrifstofu
Aiþýöuflokksins, simar 15020 og
16724.
Til Kaupmannahafnar 7. septem-
ber í haust i hálfs mánaðar ferö á
vegum Alþýöuflokksins! ÞVí EKKI
ÞAÐ!
Of dýrt? Ert þú nú svo viss um
þaö? Alþýðuflokksfélag Reykja-
vikur hefur náö mjög hagstæðum
samningum viö feröaskrifstofuna
Miövikudagur. 26. júlí 1972
5