Alþýðublaðið - 26.07.1972, Síða 12
alþýðu
mfm
AlþýÖúbankinn hf
ykkar hagur/okkar metnaour
KOPAYOGS APOTEK
Opið öll kvöld til kí. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga milli kl. 1 og 3.
GEYSIHORB SKÁK FðR (BIB
í sjöundu einvigsskák-
inni i gær var annað
hvort að duga eða drep-
ast fyrir Spassky. Eftir
að hafa tapað tveimur
skákum i röð varð hann
að sýna hvað i honum
býr sem heimsmeistara.
Hann sveikst heldur
ekki um það, heldur
tefldi hina fjörugustu
skák, sem nokkru sinni
hefur verið tefld i
heimsmeistarakeppni,
og til að knýja fram
vinning fórnaði hann
m.a. þremur peðum og
einum biskupi.
t»essar fórnir dugðu
honum þó ekki til vinn-
ings, þvi skákin fór i bið
i 41. leik, og menn eru
alls ekki á einu máli um
hvor hefur meiri vinn-
ingslikur.
Þó oft hafi loftið i
Laugardalshöllinni ver-
ið raímagnaö á einvígs-
skákunum hefur það
aldrei verið eins lævi
blandið og i gærkvöldi,
enda ekki að furða,
þegar þvilik skák er
tefld.
Hér á eftir fer skákin,
ásamt skýringum Gunn-
ars Gunnarssonar.
Hvítt: Spassky
Svart: Fischer
Silileyjarvörn.
1. e4 c5
2. Rf3 dó
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
(Svartur beitir svokölluðum
Najdorf afbrigði, sem kennt er
við samnefnda kempu, sem
reikar um sali Laugardalshallar-
innar tilbúin til að ræða skákina
við hvern sem er, léttur og Ijúfur i
fasi.)
6. Bg5 e6
7. f4 Db6
8. Dd2 Dxb2
(t>ar með eru örlögin ráðin. Slikt
peðsrán er yfirleitt ekki heppilegt
i byrjun tafls. Drottningin ræðst
inn i óvinabúðirnar eins sins liös
til þess eins að næla sér i eitt peð.
Oft á tiðum kostar það hana
marga leiki að koma til baka til
heimastöðva og oft hefur hún ver-
ið fönguð, þar sem hún hefur ekki
áttneina undankomureiti. Ekkert
af þessu hræðist Kischer, hann
hefureinmitt blásið lifi i þetta af-
birgði með ótal fallegum vinn-
ingsskákum þar sem hviti hefur
mistekist að sanna fram á ágæti
peðsfórnarinnar).
9. Rb3
(Fyrsta frávik Spasskys. Oftast
er leikið 9. Hbl og hvitur hrekur
drottninguna með leikvinningi, en
það er einmitt aðalafbrigðiö, sem
Fischer hefur svo oft og meist-
aralega teflt og Spassky hyggst
reyna aðra leið).
9. ... Da3
10. Bd3 Be7
(Hér hefur yfirleitt verið leikið 10.
... Rbd7, en Fischer er á annarri
skoöun).
11. 0-0 h6
(Svartur vill reka þennan biskup
af höndum sér að sjálfsögðu og nú
tók hvitur sér drjúgan tima til að
ákveða hvort hann ætti að hörfa
með biskupinn eða skipta á hon-
um og riddaranum. Engin furða
aö Spassky tók sér hér góöan
tima, þvi með þvi að hörfa býður
hann Fischer upp á enn eitt peð).
12. Bh4!?
(Spassky hörfar með 'biskupinn
og segir meðsjálfum sér: fyrst ég
er búinn að segja A verð ég að
segja B. Leikurinn er tvieggjað-
ur, en gefur hvitum sóknarfæri og
viðheldur spennunni).
(bað tók Spassky hálftima að
hugsa þennan leik)
12. ... Rxe4
(Fischer er yfirleitt ekki ragur aö
þiggja það sem að honum er rétt.
Hann þiggur peðsfórn nr. 2.
13. Rxe4 Bxh4
(Nú reynir á Spassky að sanna
réttmæti þessara peðsfórna).
14. f5!
(Og enn leikur Spassky skemmti-
lega: hann fórnar 3ja peöinu, en
raunar var það kannski eini leik-
urinn, sem hélt sókninni gang-
andi. Övenjuleg taflmennska i
heimsmeistarakepþni. Sigurvilji
Spasskys er til fyrirmyndar!
14. ... exf5
(Fischer þiggur 3ja peðið, enda
var þaö eflaust ráðlegast. Aðrir
leikirsem til greina virtust koma
og stungiö var upp á voru 14. ...
d5 og 14. ... Be7).
15. Bb5
(Og nú fórnar Spassky
manni/Heimsmeistarinn spennir
bogann til hins itrasta. 1 rauninni
er þetta eina góða framhaldið
fyrir Spassky. hann má ekki
slaka á spennunni eitt andartak.
Nú var loftið orðiö lævi blandið i
Laugardalshöllinni. Þó oft hafi
verið skemmtilegra i þessu ein-
vigi jafnaöist engin staða á við
þessa. Heimsmeistarinn búinn að
fórna 3 peðum og biskup. Hvernig
endar þetta var spurt. Standast
allar þessar fórnir?)
15. ... axb5
(Fischer þiggur fórnina).
16. Rxd6 Kf8
17. Rxc8
(Spassky hefur nú fengið til baka
manninn, sem hann fórnaði og
eitt peð. Hann hefur ennþá 2 peð-
um minna, en honum hefur tekizt
að eyðileggja hrókfæringu hjá
svarti og peð svarts á b7 og b5 eru
ákjósanlegur skotspónn).
17. ... Rc6
18. Rd6
(Meö þessum leik reynir Spassky
að krækja sér i eitt peð i viðbók,
en flestir bjuggust við leiknum 18.
Dd7, sem hótar peðinu á b7 og ef
til vill siðar Rd6 með máthótun).
18. ... Hd8
19. Rxb5
(Spassky býður upp á drottn-
ingarkaup meö einu peöi minna,
en Fischer hafnar.)
19. ... De7
(Með þessum leik sýnir Fischer
fram á ágæti svörtu stöðunnar.
Honum hefur tekizt að hrinda öll-
um sóknartilraunum Spasskys og
stendur nú mjög vel meö einu
peði meira. Sókn Spasskys hefur
fjarað út. hann verður að stokka
upp spilin að nýju og snúa sókn i
vörn.)
20. Df4 96
21. a4 Bg5
22. Dc4 Be3
23. Khl f4
(Svartur þrengir að hvitum og það er afar lærdómsrikt að sjá
hvernig Fischer hefur tekizt að
snúa taflinu sér i hag. En það er
ekki allt búið, sitthvaö ske). á eftir að
24. g3 ...
(Spassky er fundvis á gagnfæri i
erfiðri stöðu).
24. ... gs
25. Hael Db4
(Fischer þvingar fram drottn-
ingarkaupöruggur með unnið tafl
með peði yfir, en Spassky á eftir
að sýna hversu sterkur hann er i
slikum stöðum).
26. Dxb4 Rxb4
27. He2 Kg7
28. Ra5 b6
29. Rc4 Rd5
30. Rc4-d6 $c5
31. Rb7 Hc8
32. c4 Re3
33. Hf3 Rxc4
34. gxf4 g4
35. Hd3 h5
36. h3 Ra5
37. Rb7-d6 Bxd6
EINS OG
FLÓÁ
SKINNI
„Fischer er aldrei kyrr
nokkra stund á milli leikja.
Hann snýr sér til og frá i 470
dala stólnum, nagar á sér negl-
urnar og borar i nefið eða eyrun
á sér meö fingrunum, meðan
Spasski reynir að sökkva sér of-
an i skákina”, segir i grein um
einvigið i blaðinu International
Herald Tribune, sem kom út á
mánudaginn var.
Blaðið segir, að jafnvel
Lombardy, nánasti meðhjálpari
Fishers, hafi tekið svo til orða
um grófa og óheflaða framkomu
Fischers við skákboröið.að
,,væri hann i sporum Spasskis,
mundi hann hafa neitað að tefla,
nema stóli Fischers væri fleygt
út".
Harðar deilur standa nú um
kvikmyndaréttinn milli lög-
fræðinga Fischers og Chester
Fox og er þeirri deilu ekki lokið.
Hins vegar segir i áðurnefndri
grein, aö fyrir 6. skákina hafi
Fischer frétt að verið væri aö
setja upp myndavélar. Hafi
hann farið og grandskoðað
myndavélarnar i 3 klukkustund-
ir nóttina áður ,,eins og krakki i
leikfangabúö", enda þótt ekki
stæði til að setja þær upp fyrir
skákina.
1 siðustu leikjum hefur Spassky
rétt til muna úr kútnum. Honum
hefur tekizt að skapa sér gagn-
færi með riddurum og fær nú
hættulegasta mann svarts, bisk-
upinn fyrir riddara með heppileg-
um uppskriftum).
38. Rxd6 Hcl
39. Kg2 Rc4
40. Re8 Kg6
Og hér lék Spassky biðleik. Búizt
var við þvi að Spassky leki hér 41.
Hd5 sem hótar skák á g5 og sem
svarleik viö þvi 41. ... f6. Biösk-
ákin verður tefld áfram i dag og
má hiklaust búast við tvisýnni
baráttu, enda væri annað ekki i
samræmi við þessa skák, sem er
ein fjörugasta sem nokkru sinni
hefur verið tefld i heims-
meistarakeppni.
Gunnar Gunnarsson.
BIÐ-
STAÐAN
A BCDEFGH
jn
c-
n
ABCDEFGH
MYNDA-
GÁTAN
ENN
OLEYST
Ekkert var kvikmyndað á 7.
umferð heimsmeistaraeinvigis-
ins i skák i Laugardalshöllinni.
Mikinn hluta dagsins i gær stóðu
viðræöur milli lögfræðings Fisch-
ers, Pauls Marshall, fulltrúa ABC
fyrirtækisinS/Chesters Fox, kvik-
myndatökumanns og Guðmundar
Þórarinssonar um kvikmynda-
tökumálið.
: Blaðafulltrúi Skáksambandsins
Jkvað i gærkvöldi engar endanleg-
!ar niðurstöður liggja fyrir, en
jmikið hefði miðað i samkomu-
lagsátt um málið.
Til að lesendur átti sig á þvi,
um hvað deilur snúast og hverjir i
! raun deila, skal það rifjað upp.
! Skáksamband Islands hefur eitt
einkarétt á allri myndatöku. Það
Isamdi við Chester Fox fyrirtækið
um myndatöku og veitti þvi fyrir-
tæki einkarétt i starfi. Ýmsir
tökumenn frá sjónvarpsstöðinni
ABC hafa unnið i kring um þær
tökur, sem gerðar hafa veriö
vegna þess, að Fox hefur sölu- og
endurleigurétt á myndum sinum
■ og þessir aðilar ætluðu að nota
efni þetta i sinar iþróttafréttir.
Áskorandinn Robert Fischer
, hefur hins vegar mótmælt öllum
myndatökum og það hefur valdið
öllum þessum aðilum miklum ó-
þægindum, eins og augljóst er.
Rússarnir hafa ekkert haft sig i
frammi um þetta mál, en að sjálf-
sögðu vilja þeir gjarnan eiga að-
gang að myndum frá þessum
sögulega atburði.