Alþýðublaðið - 27.07.1972, Blaðsíða 3
STRAX EFTIR
VINDUR
Myndir frá heimsmeistaraein-
viginu i skák verða á dagskrá
sjónvarpsins þrjá fyrstu dagana
eftir sumarfriið, en útsendingar
hefjast að nýju á þriðjudaginn
kemur.
Að öðru leyti verða á dagskrá
fyrstu vikuna ýmsir gamlir kunn-
ingjar, og engar stórvægilegar
breytingar á efnisvali né niður-
röðun er að finna.
Ashtonfjölskyldan snýr nú aftur
á skerminn eftir nokkurt hlé, en
14. þáttur verður sýndur á þriðju-
daginn. Sagt er, að 60 þættir séu
til um þessa ágætu fjölskyldu, en
talið, að 13 þættir i lotu sé hæfileg-
ur skammtur fyrir meðal sjón-
varpsáhorfanda.
Þá er Valdatafl á dagskrá á
miðvikudaginn, siðan ofurhug-
arnir i Ironside á föstudag, og
kennarinn fjörugi i þættinum
Framhald á bls. 4
- OG ÞAU ERU ENN Á DAGSKRÁ
Vegna hins afburða lélega
markaðar i Danmörku þessa
stundina, hafa nokkrir skipstjór-
ar á sildveiðibátum i Norðursjó
gripið til þess ráðs að sigla með
aflann hingað heim. Sildin er nú
orðinn átulaus og vel feit, og þvi
mjög góð til frystingar.
1 gær komu þrir bátar heim úr
Norðursjónum meðsild, örfirisey
landaði á Akranesi, Héðinn i
Keflavik og i Hafnarfirði og Eld-
borgin i Reykjavik. Við skrupp-
um niður á Granda um kaffileytið
i gærdag, og tókum Gunnar Her-
mannsson skipstjóra á Eldborg-
inni tali. ,,Það er mjög mikill
áhuga meðal okkar skipstjóranna
ytra að sigla heim með aflann
meðan markaðurinn er svona lé-
legur i Danmörku, en okkur finnst
að við eigum ekki miklum skiln-
ingi að mæta hér heima”, sagði
Gunnar.
,,t vor var talað um að það
vantaði 4000 lestir sildar i beitu
fyrir næsta vetur, og þessa sild
eigum við alls ekki að veiða hér
heima, heldur flytja hana heim
frá Norðursjónum. En þaö brá
svo við að þegar farið var að at-
huga með heimflutning sildar, að
óvist var hvort fyrir lægi ábyrgð
um kaup á sild til beitu, og nú höf-
um við fregnað að fengist hafi á-
byrgð fyrir kaupum á 2000 lest-
um, eða helmingi þess sem vant-
ar fyrir veturinn. Þetta teljum við
ekki nægilega gott”.
Gunnar sagði at fyrstihúsin hér
borguðu 12 krónur fyrir kilóið af
sildinni, og það borgaði sig að
sigla heim með aflann meðan
verðið væri svona lágt i Dan-
mörku. Astæðuna fyrirlágu verði
kvað Gunnar vera mikið framboð
og mikla hita sem nú ganga yfir
Danmörku. Auk þess væri sildin
blönduð, en inn á milli væri sild
eins og hún fengist bezt úr Norð-
ursjónum, þannig væri sildin sem
þeir væru nú að landa.
„Við erum búnir að vera þrjár
vikur i Norðursjónum, fórum
þangað beint úr kolmunnanum
fyrir austan. Okkur hefur gengið
prýðilega, seldum tvisvar úti og
nú erum við að land i þriðja sinn.
Aflinn i þetta sinn er um 3000
kassar af sild, eða 120—130 lest-
ir”.
Gunnar kvað það mikinn mun,
að hér heima fá bátarnir kassana
aftur, en úti verða þeir að selja þá
með aflanum, og kaupa svo aðra i
Framhald á bls. 4
Við tókum myndina á Grandanum i gær. Hún er af
Gunnari Hermannssyni skipstjóra og börnum hans,
Kristjöriu , U'nu og Haraldi. Ljósm. SS.
19 SKÆRUUDAR FELLDIR
í JÚGÚSLAVÍU
Júgóslavnesk fréttastofa til-
kynnti i gærkvöldi, að öryggis-
sveitir stjórnarinnar hefðu ráðið
niðurlögum 19 manna hóps
skæruliða i siðustu viku. Skæru-
liðarnir komust inn i landið með
SER I
FRÍ
ólöglegum hætti frá Austurriki i
júni og höfðu þeir heitið þvi að
koma af stað uppreisn i landinu
gegn kommúnistum.
1 fréttatilkynningu frá innan
rikisráðuneytinu i Belgrad er
sagt, að samtals 13 manns úr ör-
yggissveitum stjórnarinnar hafi
fallið i viðureigninni við skæru-
liðana.
Skæruliðarnir voru að sögn
mjög vel vopnum búnir til skæru-
hernaðar og voru þeir klæddir
samskonar einkennisbúningi og
Ustasja-menn, eða hvitliðar, i
siðari heimsstyrjöldinni.
Sagt er, að öfgamennirnir hafi
ætlað sér að berjast fyrir frelsi og
sjálfstæði Króatiu.
A nazistatimabilinu og á striðs-
árunum hafði Ustasja-hreyfingin
öll völd i sinum höndum i Króatiu
i skjóli þýzkra nazista. —
Verulegur liðsauki
Okkur barst verulegur liðsauki i landhelgismálinu siðastliðinn
mánudag. Kinverjar lýstu þvi þá yfir að litil strandriki ættu allan
rétt á að banna fiskiskipum annarra og stærri þjóða að veiða á mið-
um þeirra, utan hinna viðteknu 12 milna marka.
Það var fulltrúi Kina á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um frið-
samlega nýtingu landgrunnsins, en sú ráðstefna er haldin i Genf i
Sviss, sem las yfirlýsingu um þetta efni.
Fulltrúinn, Chen Chi-fang, sagði að risaveldin og önnur stór riki
noti fiskveiðiflota sinn til rányrkju á miðum annarra rikja.
„Ofriki hinna fáu stórvelda á sviði fiskveiða og stöðug ásókn
þeirra á grunnsævi annarra rikja, hefur þegar valdið miklu tjóni
efnahagslegu sjálfstæði ýmissa smárikja”, sagði m.a. i yfirlýsing-
unni.
Mættu vera fleiri
Nixon Bandarikjaforseti fékk á mánudaginn i hendur skýrslu um
baráttu stjórnarinnar gegn eiturlyfjadreifingu, og sagði við það til-
efni, að hann óskaði eftir þvi að tala þeirra, sem handteknir eru fyr-
ir eiturlyfjadreifingu verði tvöfölduð á næsta ári.
Undanfarið ár voru 16.144 handteknir i Bandarikjunum vegna eit-
urlyfja, en 8.465 þar áður. „Við munum gera okkar bezta til að tvö-
falda fjölda hinna handteknu”, svaraði Myles Ambrose, ráðgjafi
forsetans i þessum málum. Hann bætti þvi við að i hitteðfyrra hafi
1.651 pund af heróini verið gert upptækt i heiminum, sú tala hafi i
fyrra aukizt upp i 3.966 pund.
Metvika í morðum
Siðasta vika var i einu tilliti
metvika i New York. Þar voru þá
viku framin 57 morð. I meðalviku
eru þau 31.
26 hinna 57 voru stungnir til
bana, 24 skotnir, 10 fórnarlamb-
anna voru heróinsjúklingar. Af
þeim voru tvær stúlkur, 15 og 17
ára skotnar inni á bar.
Hinn mikli hiti þar i borg er
sagður ef til vill eiga einhverja
sök, en einnig að þessa vikuna
voru sendir út peningar með lif-
eyri.
Life brást bogalistin
LIFE reyndi — en of seint — að koma i veg fyrir að Nixon útnefndi
Spiro Agnew varaforsetaefni sitt á nýjan leik. Tveggja og hálfs
dálks leiðara og viðeigandi teiknimynd i siðasta blaði LIFE, sem út
kom á mánudag, var varið til þess að hvetja Nixon til að velja ein-
hvern annan en Agnew.
Þetta var of seint, þvi á laugardaginn barst tilkynning frá Hvita
húsinu um að Spiro Agnew yrði varaforsetaefni i kosningunum i
nóvember.
„Það er erfitt að imynda sér að Nixon með fjögurra ára reynslu
sem forseti og átta ára reynslu sem varaforseti, skuli i rauninni
halda að Spiro Agnew sé bezta varaforsetaefni, sem repúblikanar
eiga völ á”, sagði i leiðaranum.
Mengunarsektir í Japan
Sex japönsk fyrirtæki voru á mánudaginn fundin sek um að hafa
valdiðloftmengun og dæmd til að greiða niu manns 286.396 dollara i
skaðabætur, en þetta fólk hafði hlotið astma og bronkitis.
Það var héraðsdómur i Yokkaiehi, hafnarborg i Mið-Japan sem
felldi þennan úrskurð, en hann er fyrsti sliks eðlis þar i landi.
Það var i september 1967, sem fyrrgreindir niu stefndu fyrirtækj-
unurn, og fóru fram á 651.233 dollara i bætur. Sfðan hafa tveir þess-
ara niu látist.
Dómurinn lækkaði bótaupphæðina m.a. á þeim forsendum að
mengunin gæti að nokkru leyti stafað af öðrum fyrirtækjum.
21 STIG!
Misskipt er mannanna gæð-
um. Hér sunnaniands og suð-
vestan er sifelldur rigningar-
suddi, en þeir fyrir norðan og
austan segja okkur með stolti,
að hjá þeim sé nú aldeilis
heitt. liitastigið komst liklega.
hæst á Egilsstöðum I gær þar
fór hann upp i 21 stig.
SJONVARPID
einvígiðH
BÁTAM „HÖRFA” HEIM
OG SEUA SILDINA HÉR
Fimmtudagur. 27. júlí 1972
3