Alþýðublaðið - 27.07.1972, Blaðsíða 4
12
Hef opnað lækningastofu í
LÆKNASTOÐINNI
Glæsibæ Álfheimum 74
Glæsibæ, Álfheimum 74. Sérgrein: kven-
sjúkdómar og fæðingahjálp. Viðtalstimi
eftir umtali i sima 86311.
Viglundur Þór Þorsteinsson læknir.
JAZZBALLETTSKÓLI BÁRU
Dömur ath. Dömur ath.
LÍKAMSRÆKTIN
Likamsrækt og megrun fyrir konur á öll-
um aldri.
Morgun- dag- og kvöldtimar.
Upplýsingar og innritun i sima 83730.
JAZZBALLETTSKÓLI BÁRU.
EIMSKIP 3
tonn af frystum fiski og hvalkjöti
sem aðeins á markað i Bretlandi.
Askja liggur i höfn i Weston Point
með 250 tonn af mjöli innanborös
og átti skipið að taka talsvert
magn af vörum þar.
Þriðja skipið Bakkafoss kom i
fy'rrakvöld til Ipswich, en þar átti
að losa úr honum talsvert magn
af mjöli.
Mánafoss átti samkvæmt áætl-
un að koma til Felixstow á þriðju-
dag, en þar sem hann var ekki
með neinar vörur þangað, hélt
hann beint til Hamborgar.
1 kvöld á Dettifoss að leggja af
stað frá Reykjavik til Felixstow
og Hamborgar og á samkvæmt á-
ætlun að vera i Felixstow á
þriðjudag. Verði verkfallið ekki
leyst fyrir þann tima, fer skipið
beint til Hamborgar án viðkomu á
Bretlandi.
Felixstow er aðalviðkomuhöfn
skipa Eimskipafélagsins á Bret-
landseyjum.
Um tap Eimskipafélagsins
vegna stöövunar skipanna
þriggja i höfnum á Bretlandi
sagði Arni Steinsson að tapið væri
ekki undir 300 þúsund krónum á
dag og væri þá aðeins reiknað
með föstum dagkostnaði, það er
launum og hafnargjöldum, en
tekjumissir félagsins ekki tekinn
inn i dæmið. —
GUÐGEIR______________________9
pól á hæðina með þvi að vikja
Guðgeiri úr liðinu og velja i hans
stað Þóri Jónsson, Val. Um þetta
efasl enginn sem sá Guðgeir leika
Keflvikingana hans Ilafsteins svo
grátt á þriðjudaginn.
Ilér er greinilega á ferðinni nýtt
landliðshneyksli — SS.
t
Móðir min
Ólafla Sigriður Þorvaldsdóttir
lézt i Borgarspitalanum miðvikudaginn 26. júlf.
Gréta Hjartardóttir.
Sonur okkar og bróðir
Kjartan Jónsson
lézt af slysförum 24. júli. Jarðarförin fer fram laugardag-
inn 29. júli frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 10.30 árdegis. Blóm
og kransar afbeðnir, en þeir sem vildu minnast hans, láti
liknarstofnanir njóta þess.
Sigrún Aðalbjarnardóttir
Jón Pálmason
Þorgerður Jónsdóttir.
Alúðarþakkir fyrir samúð og vináttu viö andlát og útför
eiginmanns mins, föður okkar og tengdafööur,
Júlíusar Guðmundssonar
Klapparstig 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á E-6 Borgarspítalanum,
fyrir góða hjúkrun og umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Sigriður Jónsdóttir
Bára
Ólina Sigriður
Jón Hólmsteinn
Guðmundur
Jónina
Guðrún Ragnheiður
Ulfar Jakobsen
Einar K. Magnússon
Dóra Hannesdóttir
Guöleif Pétursdóttir
Richard Björgvinsson
Jón Ól. Halldórsson
afa og langafabörn
KREPPUASTÁND I
FRYSTIIÐNAÐINUM
Framhald af bls. 1.
Þorsteinn Arnalds hjá Bæjar-
útgerð Reykjavikur sagði það
rétt vera, að mjög alvarlegt
ástand væri nú i sambandi við
karfavinnslu frystihúsanna.
„Endarnir ná alls ekki saman i
sambandi við þá vinnslu og hef-
ur ástandið farið hriðversn-
andi”, sagði Þorsteinn. Sagði
hann ástæðurnar einkum tvær,
— i fyrsta lagi kostnaðarhækkun
hjá frystihúsunum i sambandi
viö vinnsluna og i öðru lagi
erfiðari og dýrari vinnslu vegna
þess, að fiskurinn hafi farið
smækkandi. Sagöi Þorsteinn, að
forráðamenn hraðfrystihúsa
hgfðu mjög þungar áhyggjur af
ástandinu.
Einar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrysti-
stöðvarinnar, sagði i viðtali við
blaðið, að mjög mikið vantaði
upp á, að vinnsla karfans stæði
undir sér. Sagði hann, að hrað-
frystihúsamenn hefðu haldið
með sér fund s.l. mánudag um
málið og staðfesti, að annar
fundur hefði verið boðaður i
dag, þar sem m.a. yrði rætt um,
hvort stöðva ætti alla móttöku á
karfa.
„Þetta ástand er búið að
standa lengi”, sagði Einar. „Við
höfum átt um það viðræður við
sjávarútvegsráðherra og hefur
hann tekið málaleitunum okkar
vel, en enn hefur þó ekkert verið
aðhafst i málinu af hálfu ráðu-
neytisins”.
Aðspurður um það, hvaða
lausn hefði helzt verið rædd við
ráðherrann sagði Einar, að
einna helzt hefði verið rætt um
að fella niður útflutningsgjaldið
og að taka upp einhverjar
greiðslur úr verðjöfnunarsjóði
til karfavinnslunnar.
„Tapið er nú frá 50—100 þús
kr. á vinnsludag hjá meðal-
frystihúsi á karfavinnslunni og
vantar upp á sem svarar kr. 1,64
á hráefniskiló svo vinnslan
standi undir sér”.
Einar Sigurðsson sagði það
einnig vafalaust, að ef móttakan
á karfa yrði stöðvuð væri ekki
um annað að ræða, en að leggja
togurunum, þar sem útilokað
væri að sigla með karfa til sölu
erlendis.
„Þá mun einnig alvarlegt at-
vinnuleysi halda innreið sina
hjá fólki i hraðfrystiiðnaðin-
um”, sagði Einar. „Hér á Suð-
vesturlandi byggja flest hrað-
frystihús þannig á togaraafla og
i þeim húsum leggst vinna
sennilega alveg niður, þótt afli
báta geti staðið undir áfram-
haldandi vinnslu frystihúsa i
öðrum landshlutum”.
Alþýðublaðið ræddi einnig við
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóra Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar um karfavinnsluna i
gær.
„Það er ekkert launungar-
mál, að bullandi tap er á karfa-
vinnslunni. Þvi sem næst allur
afli togaranna, sem hér leggja
upp, er karfi. Eins og sakir
standa borgar sig engan veginn
að vinna karfann og það, sem
framleitt hefur verið að undan-
förnu eru allt óseldar birgðir.
Nú er búið að fylla upp i alla
Rússlandssamninga og karfa-
markaðurinn i Bandarikjunum
er svo óverulegur, að alls ekki
er grundvöllur aö vinna fyrir
hann”, sagði Einar i samtalinu
við blaðið.
Aðspuröur sagðist Einar ekki
vita, hvort taldir væru mögu-
leikar á að ná frekari samning-
um um sölu á frystum karfa til
Sovétrikjanna, og bætti við:
„En eins og verðið er nú á karfa
á Rússlandsmarkaði stendur
það ekki undir vinnslukostnað-
inum”.
Um afleiðingar þeirra erfið-
leika, sem nú steðja að frysti-
húsunum og togaraútgerðinni,
sagði Einar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri B.O.H. ennfrem-
ur: „Ég sé ekki betur en afleið-
ingar þessa verði þær, að togar-
arnir verði bundnir, enda kem-
ur það af sjálfu sér, þegar ekki
þykir fært lengur að taka á móti
karfa og vinna hann”.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
leggja nú upp þrir togarar, þeir
Mai, Haukanesið og Rán.
70% í BRÆÐSLU!
„Þctta ber allt að sama
brunni”, sagði Jakob Jakobsson
fiskifræðingur þegar við bárum
undir hann fréttina um karfann
i gær. „Þetta er enn ein sönnun-
in um þá gengdarlausu sókn
sem stunduð hefur verið á
undanförnum árum, og sýnir
glögglega aö þorskstofiiinn hef-
ur verið kominn á heljarþröm”.
Þá hefur biaðið fregnað að
sóknin i karfastofninn hafi einn-
ig verið gegndarlaus, og sifellt
sé veiddur minni karfi. Þannig
hefi nýlega aðeins 29% af
karfaafla eins togarans þótt
nýtanlegur til frystingar, 71%
hafi verið of smár og þvi allur
farið i bræðslu.
SKÁKIN
unni. Staðan er harla skemmti-
leg, kóngur Fischers kominn
alla leið yfir borðið)
47. ... Hc2
48. Kh2 Hcl
49. Kgl
og hér sömdu kapparnir um
jafntefli eftir fjörugustu skák
einvigisins.
Gunnar Gunnarsson.
AFLEITT___________________12
þvi áleit hann hafa skemmst svo,
að ekki yrði hægt að selja það á
fullu verði.
Rúðan hafði verið brotin með
steinhellu, sem lá i glugganum,
og virtist hún hafa verið tekin úr
vegg. Lögreglan tók helluna til
athugunar, og fljótlega fannst
veggurinn, sem hún hefði verið
tekin úr.
Heiðar sagði, er við töluðum við
hann, að hann vildi ekki trúa þvi,
aö Vestmannaeýingar hefðu verið
þarna að verki, þó það sé engan
veginn útilokað. Helzt hallaðist
hann að þvi, að þetta væru að-
komumenn, en alltaf er talsvert
slangur af þeim I bænum.
ÚRBÆTUR 5
40% byggingarkostnaðarins,
verkamannabústaðalánið jafn
hátt, 40% eða alls 80% bygginga-
kostnaðar bæði lánin eftir sem
áöur.
Ef þessi leið er farin verða
lánakjör verkamannabústaða
ávallt hlutfallslega jafn hagstæð
án tillits til ibúðastærðar.
Eins og áður segir var frum-
varp Jóns Armanns Héðinssonar
ekki afgreitt á þinginu i fyrra.
Það var kistulagt i nefnd.
En þau atriði, sem Jón benti
þar á, er ávallt hægt að leiðrétta
og þar að auki tiltölulega auðvelt.
Er þvi sjálfsagt og eðlilegt að
rifja málið upp og vekja athygli á
þvi i umræðum um húsnæðismál-
in i heild og þau vandkvæði, sem
þar er við að etja.
SIGLA HEIM 3
staðinn, og þá yfirleitt á dýrara
verði.
„Þeir eru margir orðnir lang-
þreyttir úti, enda hafa þeir verið
að frá byrjun júni. Sumum hefur
gengið vel, öðrum bölvanlega, og
þeim sem verst hefur gengið, hef-
ur komið til hugar að hætta og
koma heim. Það er bara misjafnt
hvort þeir hafa að einhverju að
hverfa”.
Gunnar sagðist búast við þvi að
veröa i Norðursjónum til
ágústloka. „Þá hef ég mikinn
áhuga á þvi að reyna við loðn-
una”, sagði Gunnar, en hann á i
pöntun flottroll hjá netagerð
Ingólfs Theódórssonar i Vest-
mannaeyjum . Hyggst Gunnar
reyna trollið á loðnuna frá
nóvember fram i janúar, en á
þeim tima hefur loðnuveiði ekki
verið reynd svo nokkru nemi áð-
ur.
„Og svo er það kolmunninn,
maður. Við lóöuöum 4 stórar
breiður af kolmunna þegar við
sigldum við Færeyjar á heimleið-
inni, og þann fisk verðum við með
einhverju móti að nýta”, sagði
Gunnar um leið og hann sýndi
undirrituðum svarta flekki á
dýptarmælinum, sem sýndi
greinilega hið geypimikla kol-
munnamagn sem verið hefur við
Færeyjar.
Leitarskipiö Arni Friðriksson
hefur verið flotanum i Norðursjó
til aðstoðar siðasta mánuðinn, og
var Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur leiðangursstjóri. Arni
Friðriksson er nú kominn til
Reykjavikur aftur, og náðum við
sem snöggvast tali af Jakobi i
gær.
.Veiðin hefur verið heldur betri
við Skagerak nú en i fyrra, og
framboðið þvi meira”, sagði
Jakob þegar við spurðumst fyrir
um ástæðuna fyrir lélegum sölum
islenzku bátanna að undanförnu.
„Þá hefur sildin verið blönduð, og
það hefur dregið úr verðinu,
ásamt miklum hitum sem
minnka geymsluþol sildarinnar.
Aftur á móti er átan horfin úr
sildinni, og gerir það hana betrí
til frystingar”. '
„Það verður að gera i þvi að
flytja þessa sild heim meðan hún
er svona feit”, sagði Jakob, og
hann tók i sama streng og Gunn
ar, um að áhuginn væri fyrir
hendi hjá skipstjórunum, svo
framarlega sem þeir fá nægilega
fyrirgreiðslu.
Að sögn Jakobs hefur allt geng-
ið óhappalitið fyrir sig hjá is-
lenzku bátunum i Norðursjónum
fram að þessu.
A dagskrá Hafrannsóknar
stofnunarinnar er að senda Arna
Friðriksson aftur i Noröursjóinn
1. september, en hvort úr þvi
veröunfer eftir framgangi land-
helgismálsins, þ.e. hvort Bretar
gripa til einhverra gagnráöstaf-
ana vegna útfærslunnar 1.
september. — SS.
SJONVARP____________________3_
„Hve glöð er vor æska” svikur
okkur áreiðanlega ekki á laugar-
dagskvöldið.
Leonard Bernsteiner m.a. með
André Watts i þætti sinum „Tón-
leikar unga fólksins” á föstudags-
kvöldið, og ekki ætti Evrópu-
keppni i suður-ameriskum döns-
um að koma sjónvarpsáhorfend-
um á óvart á laugardagskvöldið.
En svo við snúum okkur aftur
að fyrsta útsendingardeginum,
þriðjudeginum, þá hefst þáttur
um skákeinvigið strax eftir veður
og auglýsingar, en seinna um
kvöldið mætir Eiður Guðnason
galvaskur til leiks i þættinum
„Setið fyrir svörum”, en Ómar
Ragnarsson lýkur dagskránni
með iþróttaþætti.
Að lokum má geta þess, að dag-
skrá fyrstu sjónvarpsvikunnar
verður birt i heild i Alþýðublaðinu
á laugardaginn.
NESVOLLUR_________________8
tiðinni. en á honum hafa verið
gerðar nokkrar breytingar i
sumar. Ilafa tvær brautir verið
lengdar að mun, 4. og 5. brautin,
auk þess sem ný braut verður
tekin i notkun — 6. braut, sem er
par 3 rétt 100 metrar að lengd.
Leggst þvi gamla 9. brautin nið-
ur.
A föstudagskvöld 28/7.
1. Þórsmörk
2. Landmannalaugar,
3. Kerlingarfjöll — Hvera-
vellir,
4. Kerlingargljúfur.
Á laugardagsmorgun.
1. Lakagigar (4 dagar).
Ferðafélag Islands,
Oldugötu 3,
simar: 19533 — 11798.
4
Fimmtudagur. 27. júli 1972