Alþýðublaðið - 27.07.1972, Page 7

Alþýðublaðið - 27.07.1972, Page 7
Þær stúlkur, sem koma til London til að fá fóstri eytt, lenda ekki alltaf á réftum stað. I flugstöðvum og víðar lenda þær í höndum aðila, sem þær ætluðu ekki að hitta, en ætluðu að hitta þær. ÞÆR ERP FÓRNAR- LÖMB FOSTUREYÐ- INGASVINDLARANNA Ung stúlka, 17-18 ára, gengur um sjálfvirka dyrnar úr toll- skoðuninni fram i móttökusalinn á Lundúnaflugvellinum i Heathrow. Hún viröist hikandi og taugaóstyrk. Svipast um. Náms- þerna i leit aö væntanlegum hús- bændum sinum? Það viröast margir i manngrúanum vilja keppast um aö ná tali af henni. Fræg leikkona i heimsókn? Hvorugt. Hún ber litla feröatösku i hendi. Ætlar ekki aö dveljast i landinu nema þrjá sóiarhringa. Osköp venjuleg stúlka af ókunnu þjóö- erni, sem er komin til Englands lil aö láta eyða fóstri. Ein af þeim 40-50 stúlkum sem koma daglega til Lundúna siðan i aprilmánuði 1968, þegar samþykkt voru ný lög um fóstureyðingar, þannig aö sú aðgerð skyldi standa öllum kon- um ókeypis til boöa án tillits til aldurseöa aðstæöna, svo framar- lega sem þær hefðu ekki gengið lengur með en i 14 vikur. Flestar þær konur, sem koma til Lundúna þeirra erinda, hafa áður skrifað eða haft simasam- band við sjúkrahús, til að ákveða timann. Upplýsingarnar um sjúkrahúsiö hafa þær fengið á einhverjum af hinum mörgu upp- lýsingastöðvum, viðsvegar i Evrópu. Dvölin i Englandi tekur um þrjá sólarhringa, þar eð lögin krefjast þess að útlenzkar konur séu þar að minnstakosti einn sólarhring áður en aðgerðin er framkvæmd, og ef allt gengur eðlilega, þá er svo til ætlast að hún dveljist þar sólarhring eftir aðgerðina. Flest af þeim sjúkrahúsum eða sjúkrastofnunum i Lundúnum, sem framkvæma fóstureyðingar, hafa sina eigin bilstjóra, og auk þess fulltrúa sina sem taka á móti þessum konum á flugvellinum og sjá um að þær komist heilu og höldnu á ákvörðunarstað. Aður hafa báðir aðilar komið sér saman um eitthvert einkennis- merki — plastblóm i treyjukraga eða bláa slæðu i hendi — eða þá að fulltrúinn heldur á pappaspjaldi i hendi með áletruðu nafni kon- unnar. Fóstureyðingarvandamálið hjá brezkum er nú einkum fólgið i gróðamöguleikum sjúkra- stofnananna I sambandi við tand ræði þeirra kvenna, sem orðið hafa þungaðar gegn vilja sinum. Þessar stofnanir heyja kapphlaup um viðskiptavinina. Verðið á að- gerðinni er mismunandi, yfirleitt 180-200 sterlingspund. Stela viöskiptavinum. Þekkingu mina á þessum að- stæðum fékk ég þegar mér var boðinn starfi við eitt af stærstu og beztu sjúkrahúsunum i Lundún- um, eftir nokkurra mánaða dvöl þar i borg. Flestar af konunum, sem þangað leituðu i þessum erindum, voru þýzkar en einnig allmargar af Norðurlöndum. t fyrstu var ég túlkur hjá læknunum og hjúkrunar- konunum. Þegar ég hafði unnið það starf i tvo mánuði, spurði einn af forráðamönnum stofnunarinnar, hvort ég vildi ekki taka að mér yfirumsjón með ,,flugvallardeildinni'\ Þetta sjúkrahús hafði gert samninga við vissa bilastöð. Biðu bilstjórar þaðan sjúklinganna i flugstöðinni og óku þeim til sjúkrahússins Það fyrirkomulag reyndist hins vegar ekki eins og. til var ætlast, meðal annars vegna þess að bilstöðinn sá sér ekki neinn sérstakan hagnað i þvi sambandi. Og nú kom á daginn, að allmargir viðskiptavinir, sem beðið höfðu um ákveðinn tima létu aldrei sjá sig. Ég tók þetta nýja starf að mér. Það var fyrst og fremst i þvi fólg- ið að taka á móti konunum i flug- stöðinni, en þar að auki bar mér að gera stjórn sjúkrahússins við- vart um það svindl, sem þarna ætti sér stað. Og það hefði verið synd að segja að starfið reyndist fábreytilegt. Þaö leið varla svo dagur, að maður lenti ekki i ein- hverju þrefi og átökum. Um tiu fulltrúar frá jafn mörgum að meira eða minna leyti viðurkenndum sjúkra- stofnunum i Lundúnum og nágrenni söfnuðust saman á hverjum morgni við dyrnar úr tollstofunni i flugstöðinni, fram i farþegasalinn. Sumir af þessum náungum voru beztu menn, sem tóku þetta að sér eins og hvert annað ábyrgðarstarf og voru hæverskir við víðskiptavinina. En þeir voru samt i minnihluta. Hinir voru ruddalegir náungár úr hafnarhverfunum, ágengir og brögðóttir. Margir af þeim lifðu á þvi bókstaflega að stela væntan- legum sjúklingum frá hinum stóru og heiðarlegu sjúkrahúsum. Þeir fengu 10-20 pund i þóknun fyrir hvern sjúkling, sem þeir gátu rænt á þennan hátt. Aðferðin var venjulega eitthvað i þessum dúr: Þegar stúlkan stanzar og fer að svipast um allvandræöalegar oftastnær,gengur hann, veiðiþjóf- urinn, til hennar og spyr ,,á leið i sjúkrahús?” á þýzku, þvi að hann gerir ráð fyrir þvi að viðkomandi stúlka sé þýzk, þar sem hann veit að flugvélin, sem var að lenda, kom frá Vestur-Þýzkalandi. Stúlkan heldurað hann sé kominn þarna, maðurinn frá sjúkra- húsinu, sem umtalað var að biði hennar — hvernig ætti hann annars að geta vitað að hún væri á leið i sjúkrahús? Eða þá að stúlkan, sem er að svipast um eftir fulltrúa frá áður umsömdu sjúkrahúsi, er ávörpuð af manni, sem vindur sér að henni og spyr hvort hún sé ekki ungfrú Schmidt, eða hann nefnir eitt- hvert annaö algengt þýzkt ættar- nafn. Það er að visu harla óliklegt að hann slampist á það rétta, en stúlkunni finnst þó sem hún sé ekki lengur ein sins liðs i ókunnu landi, og svarar oftast að hún sé ekki ungfrú Schmidt, og nefnir um leið sitt rétta nafn. ,,Já, auð- vitað”, svarar hinn slungni veiði- þjófur, „Það nafn er jú hérna lika á listanum yfir þá sjúklinga, sem ég að vitja hérna. Og það er alltitt að hann hafi meðferöis íista með mörgum ættarnöfnum, sem hann hefur að öllum likindum skrifað upp úr þýzkri simaskrá. Þær geta, jú, notaö pilluna. Það er til a'ð stúlkur lendi þarna á flugvellinum i Heathrow, án þess að hafa haft samband við nokkra sjúkrastofnun áður. Lögum samkvæmt ber henni að snúa sér tafarlaust til lögreglunn- ar, sem visar henni þvi næst á þau sjúkrahús og stofnanir, sem hún getur valið um. En jafnvel þótt fjórir óeinkennisklæddir lög- regluþjónar standi þarna vörð við dyrnar fram i farþegasalinn, tekzt þeim þó sjaldan að standa veiðiþjófana að verki. Stúlkurnar eru hræddar við lögregluna og þegja, ef til kemur. En svo er það önnur hætta, sem þarna biður þessara stúlkna, en að er sérstök manntegund i Lundúnum, „harkararnir”, sem sitja þarna i flugstöðinni um við- skiptavini, þar sem þeir stunda ólöglegan leigubilaakstur. Með ismeygilegri frekju reyna þeir að lokka nýkomna ferðamenn i gildruna. „Leigubill handa yður, herra minn” eða „ungfrú”, hvislar harkarinn i hálfum hljóðum i eyra hinum nýkomna útlendingi, sem ekki grunar neitt. Upphátt getur harkarinn ekki boðið þjónustu sina, þar sem þessar veiðar hans i flugstöðinni er ólöglegar með öllu. Sektir, sem nema allt að 100 pundum, ef hann verður uppvis að athæfi sinu, aftra honum ekki að taka á- hættuna. Venjulegur leigubill frá flugvellinum til Lundúna kostar 3 pund en harkarinn tekur frá 3 pundum og upp i 20 fyrir ferðina. „Það fer allt eftir viðskipta- vinunum”, sagði einn af þessum hörkurum, sem ég átti einhvern tima tal við. „Sé um rika Banda- rikjamenn að ræða tek ég yfirleitt 15 til 20pund. Séu það aftur á móti ungar manneskjur, tek ég kannski ekki meira en venjulegt leigubilsgjald”. Þegar ég spurði hvort fólk kærði aldrei þetta oku- verð, eða kallaði á lögregluna, gerði hann einungis að yppta öxlum. „Þessir bölvaöir túristar kunna ekki nein skil á enskri mynt, og séu það rikir milljóna- mæringar, borga þeir orðalaust fremur en flækjast i yfirheyrslur. Og auk þess telja þeir ekki sam- boðið virðingu sinni að þrefa við bilstjóra”. Margir af þessum hörkurum eru á mála hjá fóstureyðinga- stofnunum, og fá þá aukreitis fimm til tiu pund fyrir hvern við- skiptavin, sem þeir krækja i handa þeim, en að sjálfsögðu verður viðkomandi að greiða ok- urhátt ökugjald. Þegar ég spurði hann hvort hann fýndi aldrei til samúðar með þessum stúlkum, sem þegar ættu við ærin vandræði að striða, svaraði hann einungis að þær mættu sjálfum sér um kenna. „Þær geta jú notað pilluna og setið heima — og á einhverju verðum við aö lifa.” ógnanir. Mér veittist of erfitt að stilla mig um að snúa mér formála- laust að þeim stúlkum, sem ég sá i slikri hættu og vara þær við, en ég hajði fengið ströng fyrirmæli um það frá sjúkrahúsinu að blanda mér ekki i neitt slikt, þar eð það gæti haft hinar óþægi- legustu afleiðingar að kalla yfir sig fjandskap þessara náunga. Og það var einhvern daginn, sem ég las það i dagblaðinu „Evening Standard”, að lög- fræðingur nokkur, sem verið hafði lögfræðilegur ráðunautur fóstureyðingarstofnunar, sem gert haföi verið að loka, hefði orðið fyrir árás. Kvöld eitt hafði dyrabjöllunni heima hjá honum verið hringt, og þegar hann fór til dyra, réðist ókunnur náungi á hann og barði hann illa með rofjárni. Lögfræðingurinn vissi sumsé helzt til mikið og hafði reynst helzt til opinskár við réttarhöldin i máli stofnunarinn- ar. Lögreglan gat ekkert aðhafst, þar eð árásarmaðurinn hafði borið grimu. Þrátt fyrir þá viðvörun að blanda mér ekki i það sem fram fór i flugstöðinni, komst ég samt ekki hjá að hafa afskipti af vissu vandræðamáli. Ung stúlka frá Danmörku kom inn i farþega- salinn. Harkari nokkur vatt sér að henni, og ég sá að hún sýndi honum seðil með nafni sjúkra- hússins, sem samið hafði verið við áður en hún hélt að heiman. Það var gott sjúkrahús og naut mikils álits. Stúlkan talaði lélega ensku með greinilegum dönsku- hreimi. Harkarinn las nafnið á sjúkrahúsinu, og sagði siðan með leikrænni fyrirlitningu i röddinni: „Æjá — þessi. Þeirri stofnun hefur þvi miður verið lokað”. Stúlkan stóð þarna ráðþrota og vegalaus, en náunginn reyndist „hjálpsamur” — hann vissi um aðra slika stofnun og bauðst til að aka henni þangað. Sú stofnun var að visu fyrir utan London — um 50 km — en harkarinn var reiðu- búinn aö koma stúlkunni þangað fyrir litinn pening! Það vildi svo til að ég hafði áður komizt að raun um að harla vafa- samt orö lá á þeirri stofnun, sem harkarinn hugðist selja sjálfdæmi varðandi stúlkuna, sem var sömu 6 Fimmtudagur. 27. júli 1972 pop þjóðarogég. Einhvern tima hafði frönsk stúlka verið göbbuð þangað, en þegar harkarinn nam staðar úti fyrir skuggalegu hreysi i einu af úthverfum borgarinnar, krafðist hún þess að hann æki sér aftur inn i borgina og sneri sér til lögreglunnar, sem visaði henni á sjúkrahúsið, sem ég starfaði hjá. Hvort þetta var satt, vissi ég að visu ekki, en mér fannst samt sem áður ekki nein ástæða til að stúlkunni yrði stofnað i hættu. Ég sneri mér þvi að henni, skyrði. fyrir henni á dönsku allar að-. stæður og að þvi búnu náðum við 1 leigubil, sem ók henni á hinn áður umsamda ákvörðunarstað, og hlaut góðar viðtökurÞvi að vitan- lega var lygi að þar hefði verið lokað. Harkarinn sagði ekki neitt — ekki þá. En um kvöldið þegar ég var á heimleið, sat hann fyrir mér ásamt kunningja sinum. Þeir vildu bara benda mér á hvað ég væri heppin að vera kvenmaður. Hefði ég verið karlmaður, mundi allt öðru máli að gegna. Samt sem áður vildu þeir taka það fram, að öruggast væri fyrir mig, að þetta yrði i fyrsta og siðasta skiptið, sem ég rændi þá afkomu- möguleikum sinum. Ekki svo að skilja að allt væri einungis neikvætt i sambandi við þessa starfsemi. Tveir ungir menn settu á fót nýja stofnun, sem rúmað gat tiu sjúklinga, og gekk einungis mannkærleiki til.. Þeir réðu fyrsta flokks lækna að stofnuninni og úrvals hjúkrunar- konur, og gjaldið var ótrúlega lágt eigi að siður, þannig að þeir reiknuðu sér ekki neinn gróða, heldur miðuðu viö það eitt að stofnunin bæri sig. Ég get lika farið lofsamlegum orðum um sjúkrahúsið, sem ég starfaði hjá. Þar var ekki einungis að gjaldið sem upp var sett væri lægra en i meðallagi, heldur var stúlka aldrei gerð afturreka, þótt hún hefði ekki fé til að greiða það. Forstöðumaður sjúkrahússins, ungur og aðlaðandi maður, sem skildi til hlitar vandræði sjúklinganna, greiddi gjaldið heldur úr sinum eigin vasa, svo læknarnir fengju sitt, heldur en að senda stúlku á brott án fyrirgreiðslu. Eða þá að hann sló af gjaldinu til muna. Sjúkrahús þetta var skammt fyrir utan London i fallegu um- hverfi. Læknar og hjúkrunarlið naut trausts og vinsælda sjúk linganna. Viðurgerningur i mat og drykk var eins og á 1. flokks hóteli. Það var einkum fyrir samtöl min við danskar stúlkur, sem þangað leituðu, að mér varð ljóst það mikla tilfinningaálag, sem þær urðu að bera. Þær höfðu áður leitað til viðkomandi aðila heima, en fengið afsvar af einhverjum heimskulegum ástæðum og for- dómum. Það vakti oft og tiðum undrun mina, að einmitt Englendingarnir, með alla sina vanafestu og afturhaldsemi skyldu verða til þess að veita stúlkum af Norðurlandaþjóðum, sem álita sig svo frjálslyndar á öllum sviðum, greiðan aðgang að fóstureyðingum. Að sjálfsögðu verður einnig sá háttur upp tekinn á Norðurlöndum fyrr eða siöar — en þangað til það verður, heldur að meðaltali ein dönsk stúlka á hverjum degi yfir til Englands, og greiðir 30 -40 þúsund krónur fyrir þá þjónustu, sem henni ætti að standa til boða ókeypis heima, samkvæmt al- mennum mannréttindum. Ilér er sýnishorn af einni af fyrstu kartöfluuppskerum ársins. Þessi haugur kom undan sex grösum i garði einum i Hafnarfirði I gær. Kartöflurnar cru vænar og fallegar, þegar tekið er tillit til þess, að þær eru teknar upp í þriðju viku júlfmánaðar. Stærsta kartaflan vegur tæp 100 grömm. Ctsæðið var sett niður um miðjan aprfl og var haft undir piasti til maf loka. Verður ekki annað sagt en þessi ágæta uppskera spái góðu um kartöfluuppskeruna, þegar kemur fram á haustið. Kartöflurnar á myndinni eru úr garði Irmu Karlsdóttur i Hafnarfirði. heimurinn okkar PAPPALARDI NEYDDIST TIL AÐ HÆTTA - ENDA HEYRN- ARLAUS Marc Bolan verður önnum kafinn i kvik- myndastiidfói næstu tvær vikur til þess að ganga frá kvikmynd, sem Ringo Starr tók af honum og T. Rex á hljómleikum þeim, sem hljómsveitin hélt á Wembley i marz á þessu ári. Einnig mun myndin greina frá ,,jam session” með Elton John. Hljómsveitin, sem er i Bandarikjunum þessa stundina sendi frá sér fyrir nokkrum dögum nýja breiðskifu sem heitir „The Slider”. Það festast fleiri á filmu en Marc Bolan. Þetta hefur LEONARI) COHEN notfært sér og látið taka kvikmynd af hljómleikaferð sem hann fór i nýlega um Evrópu. Myndin er einn og hálfur timi að lengd og ber heitið „Bird on the Wire". Emcrson Lake og Palmcrlögðu land undir fót i siðustu viku og heimsóttu Japan ásamt hljómsveitinni Free. Spiluðu hljómsveitirnar siðan á hljómleikum i Tokio siðastliðið laugardagskvöld. Farangur ELP var 7 tonn af tækjum, 8 rótarar og einn tannbursti á mann. Nú munu standa yfir samningavið- ræður um hljómleikaferð til Moskvu. Frétzt hefur að slik ferð sé aðeins möguleg, á „cultural exchange basis", eins og það heitir á enskunni eða á menningarsamskipta- grundvelli. Uriah Heep munu senda frá sér nýja tveggja laga plötu i þessari viku. Titillagið er „Easy Living”, sem tekið er af nýjustu L.P. plötu hljómsveitarinnar, „Demons and Wizards”. Bassaleikarinn og framleiðandinn Felix Pappalardi hætti i hljómsveitinni Mountain fyrir nokkru. Sagt var að það hefði sletzt upp á vinskapinn. Nú hefur hins vegar komist upp um strákinn Tuma og mun hin raunverulega ástæða vera, að Pappalardi var að verða heyrnalaus. Svo mun Michael Jackson senda frá sér nýja litla plötu þann 28. júli. Titillagið er „Ain’t No Sunshine”, sem tekiö er af siðustu L.P. plötu hans, „Got to be there”. Áætlaður komutimi i verzlanir hérlendis er óút- reiknanlegur. Nýjar L!P. plötur: T. Rex, The Slider (EMI) Elvis Presley, He Touched Me (RCA) Rod Stewert, Never A Dull Moment (Mercury) Simon og Garfunkel, Simon and Garfunkels Greatest Hits (CBS) Hvenær þær koma svo i verzlanir hérlendis er svo annað mál. VÆNT UNDIR Fimmtudagur. 27. júli 1972 7

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.