Alþýðublaðið - 13.08.1972, Blaðsíða 2
Á myndinni t.v. John Cu-
sack forstjóri citurlyfja-
skrifstofu Handaríkjanna
i Evrópu. Á myndinni t.h.
Charlcs „Cucky" Luci-
ano. Ilann skipulagói
glæpahring, scm cin-
göngu fékkst við eitur-
Iyf jasmygl og pcninga-
fölsun.
Það má teljast nokkuð
öruggt að æðstu menn
hinnar viðbjóðslegu eitur-
lyfjasölu á svörtum
markaði sitji i lúksus-
villum sinum, og fylgjast
með allri umferð i hinni
fornu og ys-miklu hafnar-
borg við Miðjarðarhafið.
Eiturlyfjadeild lögregl-
unnar þekkir þessa menn,
sem þá glæpamenn er gert
hafa Marseille að
blómstrandi eituriyfja -
hafnarborg. hfn banka-
reikningar þeirra meö
milljónir af Frönkum,
ásamt vinskap við þekkta
stjórnmálamenn, hefur
aftrað allri eftirgrennslan
um starfsemi þeirra.
Þannig að þegar lögreglán
ferðast á milli hafnar-
kránna og hirðir einn og
einn sölumann, geta þessir
eiturlyf jakonungar latið
lara vel um sig i hinum
mjúku ha’gindastólum
sinum.
Þvi lannst franska lög-
reglustjóranum, Max
Kernet, heldur belur farið
að hitna undir fótum sér,
þegar yfirmaður banda-
risku eiturlyfjadeildarinn-
ar i Kvrópu, John Cusack,
hélt þvi fram i viðtali við
íréttamenn i Marseille, að
stórlaxarnir va'ru „herrar
i eigin húsi”, þar á
staðnum. Kernet bar það á
Cusack, að hann ýkti
þýðingu Marseilleborgar,
þegár um eiturlyf jasölu
vami að ræða, og einnig að
hann gerði litið úr baráttu
frönsku lögreglunnar gegn
svinariinu.
Æskulýðs og iþrótta-
málaráðherra Krakk-
lands, Joseph Comiti
ásamt Le Mouel yfirmanni
frönsku eiturlyfjalögregl-
unnar. sviiruðu ásökunum
Cusacks, með þvi að fara
fram á að Bandarikja-
menn gæfu upp nöfn á
þessum „stórlöxum," Það
var Bandarikjamönnum
sára-auðvelt, þar sem
tveir öldungardeildar-
þingmenn þeir Morgan
Murphy frá Illinois og
Robert Steele frá
Connecticut höföu starfað
með sérlegri nefnd,
skipaðri af bandariska
utanrikisráðuneytinu, að
uppljóstrun á ólöglegri
eiturlyfjasölu um allan
AAargt bendir til þess, að 80% af öllu því eiturlyf jamagni, sem til
Bandarikjanna kemur frá Austurlöndum, sé umskipað og gert að
,,neytendavöru" í frönsku hafnarborginni AAarseille. í vel skipulagðri
þriggja mánaða leit, fundust i borginni eiturlyf, að verðmæti 480
milljóna ísl. kr. Aðáliti sérfræðinga erþetta magn aðeinsfáein prósent
af heildarmagninu sem þarna er í umferð. Eða eins og einn lögreglu-
maðurinn sagði —,, Ef tekin er liking víð ísjaka, höf um við aðeins náð
því af jakanum, sem upp úr sjónum stendur.—"
Tveir Bandarískir þingmenn hafa gert skýrslu um mál þetta, og
gefið upp nöfn é mönnum og f jölskyldum, sem mestu ráða á hinum
ólöglega eiturlyf jamarkaði í AAarseille. Skýrslan gerði það að verkum,
að lögreglusfjóri AAarseilleborgar, fannst vera farið að brenna
iskyggilega undir fótum sér.
hcim. Nú tilkynntu þessir
tvcir þingmenn, að þeir
vissu niifnin á þeim sam-
vizkulausu glæpa-
miinnum, er stjórnuðu
eiturlyf jasölunni. Létu
þeir birta hluta af skýrslu
nefndarinnar en þar stóð
meðal annars þetta. — Á
siðastliðnum lOárum hafa
l'jórar fjölskyldur frá
Korsiku staðið fyrir eitur-
lyf jal ram leiðslunni i
Marseille. — Siðan koma
niifnin á fjölskyldunum, en
um þær verður fjallað hér
á eftir. Bara ein af öllum
þeim driffjöðrum, sem
naíngreindar eru i skýrsl-
unni, hefur reynt að krafsa
yl'ir skitinn, og hvitþvo sig,
en hinir halda kjafti allir
með töiu.
Blóðugt bófastriö.
Marcel Krancisi, foringi
Gaulle-ista i litla Korsi-
kanska bænum Zicavo,
hefur hótað að ákæra alia
þá menn, sem halda þvi
i'ram að hann sé viðriðinn
ólöglega eiturlyfjasölu.
Hinn 51 árs gamli Krancisi
er forstjóri fyrir einum
vinsælasta spilaklúbb
Farisar, Cercle
Haussmann. Og svo
virðistsem herra Francisi
lifi spennandi lifi. Fyrir
fjórum árum komu tveir
skuggalegir glæpamenn
frá Korsiku i heimsókn til
hans, að heimili hans i
Bougival rétt fyrir utan
Farís. Voru þeir með heilt
bilhlass af sprengjum, og
var það ætlun þeirra að
koma Francisi á fund
feðra sinna. Þvi miður
mistókst sú fróma ósk
þeirra. þar sem bifreið
þeirra kumpánanna
sprakk við innkeyrsluna
að húsi Francisi. Að sjálf-
sögðu drápust glæpaspir-
urnar, og voru kistur
þeirra furðu léttar við
jarðaförina.
Einu ári seinna var
aftur gerð tilraun til að
ráða Francisi af dögum,
og fór sú aðgerð fram á
einni fjölförnustu götu
Ajaccio, fæðingaborgar
Napóleons á Korsiku. Til-
raunin endaði með skot-
bardaga, og þegar yfir
lauk, lá einn maður eftir,
skotinn til bana og sex
menn lifshættulega
særðir, en Francisi slapp
að mestu óskaddaður.
Bróðir hans Roland
Francisi var aftur á móti
ekki jafn heppinn. Hann
hafði verið forstjóri fyrir
spilasölum iklúbb einum
i Westminster, i London.
Arið 1968, er Roland var 31
árs gamall, kom hann tií
flugvallarins i London, og
var ætlunin að hann tæki
til starfa i elzta spilaviti
horgarinnar, Crockford,
með árslaun upp á 2
milljónir. En brezku inn-
flytjendayfirvöldin vildu
ekki hleypa honum inn i
landið, og ástæðan
sem þau gáfu upp var sú,
að hann hefði ekki
atvinnuleyfi fyrir hinu
nýja starfi sinu.
Án efa hefur Roland
fengið sér nýtt starf þegar
þetta er ritað.
Francisi bræðurnir, sem
eru fjórir alls, eiga spila-
viti i sex Evrópulöndum
fyrir utan Norður-Afriku
og Austurlönd nær.
Af öðrum glæponum
sem nefndir eru i skýrslu
þingmannanna eru
Venturi bærðurnir hátt
skrifaðir. Og svo hrotta-
fengnir eru þeir sagðir
vera, þeir Jean og
Dominique Venturi, að
enginn fæst til þess að
bera vitni gegn
þeim.Venturi bræðurnir
hafa verið alræmdir siðan
1951, fyrir sjórán sem þeir
þá frömdu. Þeir skipu-
lögðu sjóránið og fram-
kvæmdu, þegar smyglara-
skútu að nafni Combinatie
var rænt á Miðjarðarhafi
með 2700 kassa af siga-
rettum á leið sinni frá
Tangier. A þeim rúmum
20 árum, sem siðan eru
liðin, hafa 15 menn verið
drepnir i blóðhefndar-stil,
úr röðum sjóræningjanna
og fyrrverandi eigenda
smyglskútunnar.
Dustið rykið af
Fallöxinni.
Einn af mörgum, sem
ekki svarar simahringing-
um né opnar dyrnar ef
bankað er, er einn af
nánustu samstarfs-
mönnum Venturi-bræðr-
anna, Joseph Orsini. Á
hann hafa þingmennirnir
bent sem eina af drif-
fjöðrum þeim, er reka
eiturlyfjasöluna i
Marseille. 1 lok seinni
heimstyjaldarinnar, flýði
Orsini Frakkland, svo
hann slyppi við að verða
ákærður fyrir samstarf
við nazista.
Honum var haldið i
gæzlu af Bandarikja-
mönnum á Ellis-eyjum, og
var ákæran á hendur
honum sú að vera einn af
fyririiðunum i flokki
manna, er verzluðu með
eiturlyf og falska peninga-
seðla. Var talið að Charles
„Lucky” Luciano hafi
stofnað fyrrnefndan
glæpahóp, og stýrt honum
styrkri hendi meðan hann
sleit barnsskóm, en siðan
tók Orsini við. Var það álit
bandariskra yfirvalda, að
Orsini hafi stjórnað, jafn-
vel á meöan honum var
HVAÐ ÆTLI KONAN
REKIFYRST AUGUN
I ÞEGAR HÚN SÉR
NAKINN KARLMANN?
GETIÐ EINU SINNI
Konu sem sér nakinn
karlmann verður fyrst
litið á kynfæri hans Þegar
hún virðir hann nánar fyr-
ir sér. litur hún á axlir
hans. háls og höfuð. Sið-
ast hendurnar. Sé sami
karlmaður alklæddur i
fyrsta skiptið sem þau
sjást. þá hvarflar hún aug-
unum á allt annan hátt —
þá virðir hún fyrir sér
mjaðmirnar. athugar
gaumgæfilega hreyfingar
hans. hvernig hann er
klæddur. hvort hann virð-
ist hreinlegur. hvort hann
hafi athyglisverðar
hendur.
Gægjur.
Þegar um er að ræða
utanaðkomandi kynesp
un. þá er ekki um að ræöa
neinn mun — eða ekki svo
að munur geti kallast — á
konum og körlum. Klám
hefur ekki siöur kynfýsna-
æsandi áhrif á konur en
karla. Konur falla ekki
siður i þá freistni að
..ga'gjast" heldur en karl-
menn. Aftur á móti er
munurinn sá að það sem
karlmennirnir sækjast eft-
ir að skoða á þann hátt, er
óneitanlega bæði ólikt
margvislegra og áhuga-
verðrara, en það sem
kvenmanninum gefst að
skoða. Og þannig er það
lika þótt um alklæddar
manneskjur sé að ræða
hingað ti 1 að minnsta kosti
hefur klæddur likami karl-
mannsins ekki þolað neinn
samanburð við klæddan
kvenmannslikama. Þess
hefur áður verið getið
hvaö geri konuna athyglis-
verðasta i augum karl-
mannsins — að hún sé
brjóstamikil, þrýstin um
bakhlutann. hafi hins
vegar granna fætur og sitt
hár.
Streita.
Hins vegar er mun
minna athugaö — og hefur
aldrei verið rannsakað
visindalega fyrr en nú —
hvað það er sem konur
sækist eftir að sjá á karl-
mönnum, þannig að augu
þeirra beinist fyrst að þvi.
1 sambandi við ráðstefnu
um sambúð, ólik kyn-
hlutverk og streitu, sem
efnt var til i Sviþjóð ekki
alls fyrir löngu, gafst vis-
indamönnum tækifæri til
að athuga augnahvarf
mikils fjölda kvenna, þeg-
ar þær virtu fyrir sér þá
mynd sem hér birtist.
Syndsamlegt.
Samkvæmt uppeldis-
venjum og öðrum erföa-
2
Sunnudagur 13. ágúst 1972