Alþýðublaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 5
alþýdu lal aóiö Alþýöublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. RJUFIÐ ÞÖGNINA Þær fregnir hafa borizt íslendingum utan úr heimi, að islenzka rikisstjórnin hafi sent þeirri brezku nýjar tillögur til samkomulags i land- helgismálinu. Erlendir fréttamenn segja okkur, aði þeim felist einhverskonartilboðtil Breta um veiðar allt að 12 milna mörkunum á einhverjum svæðum a.m.k. og sé þarna um að ræða mun hagstæðara tiiboð, en islenzka ríkisstjórnin hafi áður gefið. Allir virðast sem sé vita allt um mál- ið, — nema islendingar sjálfir. Þeir hafa ekki hugmynd um neitt, nema það, sem erlendir fréttamenn fást til að segja þeim. Alþýðublaðið skilur það mæta vel, að á meðan samningaumleitanir standa yfir um landhelgis- málið þá sé óæskilegt að gera uppskátt um öll atriði þeirra viðræðna. En það er ekki nokkur leið að þegja þær alveg i hel. Þótt islenzka rikis- stjórnin þumbist við að þegja yfir öllu, sem máli skiptir, þá er ljóst, að hinn erlendi viðræðuaðili gerir það ekki og svo er komið, að ef íslendingar ætla að fylgjast með gangi mála, þá gera þeir það bezt með þvi að leita á náðir erlendra blaða og fréttastofnana. Það eina, sem islenzkir blaðamenn geta gert i málinu er að bera hinar erlendu fréttir undir einhvern ráðherranna i von um að fá nánari skýringar, sem þeir yfirleitt fá svo ekki. Auðvitað getur þetta ekki gengið svona til lengdar. Hér er um að ræða mesta lifshags- munamál islenzku þjóðarinnar og svo erum við að lesa það i erlendum blöðum, að islenzka rikisstjórnin hefi sent stjórnum Bretlands og Vestur-Þýzkalands tilboð, sem sé mun hagstæð- ara en önnur tilboð, sem islenzka stjórnin hafi sent þessum sömu aðilum áður. Almenningur á islandi stendur siðan uppi eins og glópar, því enginn maður hér hafði minnstu hugmynd um „gömlu tilboðin” hvaðþá heldur, að „endurbót” hefði verið á þeim gerð. Til þess að reyna að svala fróðleiksfýsn almennings ganga svo is- lenzkir blaðamenn búð úr búð og kaupa upp er- lend blöð, sitja óþreyjufullir yfir fjarritum eða reyna að hafa uppi á kunningjum erlendis, sem kynnu að vita eitthvað. Opinberir málsvarar okkar halda áfram að steinþegja. Rikisstjórnin verður að taka þessi upplýs- ingaratriði til gagngerðrar endurskoðunar. Það er aðeins röskur hálfur mánuður eftir þar til landhelgin verður færð út i 50 milur og við vilj- um fá að vita, hvernig málin standa. Þar að auki hefur það sýnt sig, að þögn islenzku stjórnarinn- ar um málið hefur haft mjög óheppilegar afleið- ingar, — m.a. þær, að um málið hafa borizt mjög rangar fregnir, sem eru málstað okkar stórkostlega hættulegar. Það er mjög varhuga- vert að láta hina erlendu aðila ávallt hafa allt frumkvæði um fréttamiðlunina. Við megum ekki gefa þeim algerlega fritt spil á þeim vett- vangi. Þar að auki á almenningur á íslandi kröfu til þess að fá að fylgjast með málinu eins vel og tök eru á. Hann á hér svo mikið i húfi og fólki er far- ið að gremjast að þurfa að sækja allar sinar upplýsingar — réttar eða rangar — út fyrir land- steinana. Húsbyggjendur - Verktakar Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina. Stálborg h.f. Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Slmi 42480. A tslendi hefur flokkakerfið ávallt verið þannig, að útilokað er, að einn og sami flokkur geti fengið hreinan meirihluta á Al- þingi. Vegna þess hafa allar rikis- stjórnir orðið að vera samsteypu- stjórnir tveggja eða fleiri flokka, eða þá þingminnihlutastjórnir eins flokks, en slikar stjórnir hafa af eðlilegum ástæðum aldrei átt löngum lifdögum að fanga. Það hefur einnig verið einkenn- andi fyrir stjórnarfarið á islandi, að undanskildu 12 ára stjórnar- timabili viðreinsarstjórnarinnar, að samsteypustjórnar hafa yfir- leitt enzt ákaflega illa. Það mátti næstum heita undantekning, að islenzk rikisstjórn sæti út kjör- timabil sitt. Skýringarnar á þessu eru eflaust margar, en sú ástæða hefur áreiðanlega ráðið mestu, að stjornarflokkar voru cinfaldlega ekki heilir i samstarfi, — þegar erfiðleikar steðjuðu að, þá hugs- uðu flokkarnir meira um að bjarga eigin skinni, en að vinna saman að lausn erfiðleikanna. Þáttaskil Þetta lausungartimabil i is- lenzkum stjórnmálum, ef svo má að orði komast, stóð fram til árs- ins 1959, er minnihlutastjórn Al- þýðuf lokksins og siðar sam- steypustjórn Atþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins tóku við völdum. Þetta var i fyrsta sinn, sem þessir flokkar höfðu unnið saman tveir einir að stjórn lands- ins og með samvinnu þeirra urðu mikil þáttaskil i stjórnmáialifi á islandi. i stað óvissu og ringul- reiðar vegna sifelldrar uppskipta i stjórnunarmálum tók við tólf ára timabil stöðugleika og festu og á þvi er ekki nokkur minnsti vafi, að á þeim röska áratug gátu landsmenn fagnað meiri framför- um, en á nokkru öðru jafnlöngu timabili eru að töluvert miklu leyti til komnar sökum þess stöð- ugleika i stjórnarfari, sem is- lendingar áttu þá að fanga. Vcgpa þess, að landsstjórnin var traust gat þjóðin beitt öllum kröftum sinum að alhliða framfarasókn, en sóaði ekki tima og tækifærum i sifelldar óeirðir á stjórnmála- sviðinu, ringulreið og upplausn. Gagnkvæmt traust En hvers vegna var unnt að tryggja þessar framfarir? Hvað olli þvi, að íslendingar gátu búið við sterkt og öruggt stjórnarfar i tólf ár fram til vorsins 1971? Nú dettur vist engum i hug að halda þvi fram, að skýringarinn- ar sé að leita i þvi, að á þessum árum hafi islenzk stjórnvöld átt við færri og smærri erfiðleika að etja, en fyrrum. Allir vita, að þessí árin skorti sizt á erfið vandamál. sem stjórnvöld og landsmcnn urðu að takast á við, svo ekki er skýringarinnar að leita i óvenjulega hagstæðum ytri aðstæðum. Skýringin er einfaldlega sú, að þeir tveir flokkar, sem mynduðu saman rikisstjórn fyrir röskum 13 árum, — Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn —, voru orðnir langþreyttir á sifelldum svikráðum samstarfsaðila um EFTIR HELGINA ighvatur Björgvinsson skrifar: landsstjórnun og ásettu sér það strax i upphafi að starfa saman af fullum heilindum hvor i garð ann- ars. Og það tókst. Fjölmörg deilu- mál, sem upp komu á milli flokk- anna þessi 12 ár, voru ávallt leyst með gagnkvæmri virðingu fyrir sjónarmiðum hvors annars og án þcss, að annar aðilinn reyndi að nota þær kringumstæður til þess að reka hnif i bakið á hinum. Harðir flokksmenn beggja gagn- rýndu oft sterklega þessa sam- vinnu, sem þeir töldu jafnvel of góða og að vcgna hennar glötuðu flokkarnir ýmsum tækifærum til flokkslegs ávinnings i svip. Frá henni var þó aldrei horfið og vegna þessara vinnubragða skap- aðist traust á milli stjórnmála- manna með svo gjörólik viðhorf og rikja hjá Alþýðuflokksmönn- um og Sjálfstæðismönnum. Báðir aðilar héldu fast við sinar póli- tisku skoðanir, en þaö traust, sem skapaöist á milli þeirra, lagði grundvöllinn að farsælla stjórnarfari og meiri framförum, en islendingar hafa nokkru sinni áður þekkt. Þrír fjandsamlegir flokkar Nú er þessu timabili stöðug- leika i stjórnarfari augljóslega lokið. Þrátt fyrir hagstæðustu ytri skilyrði, sem um getur, tókst nú- verandi stjórnarflokkum ekki að halda samvinnu sinni óspilltri, nema á nokkra mánuði. Strax og draga tók i loft fóru stjórnar- flokkarnir að hugsa meira um eigið skinn en rikisstjórn og þjóðarhag og nú er svo komið, að rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar cr lifandi dauð. Hún getur tórt að nafninu til i mánuði eða jafnvel ár til viðbótar, en það blandast ekki nokkrum manni hugur um það lengur, að siðferðislega er stjórn- in fallin fyrir löngu. Við völdum á islandi situr ekki lengur samsteypustjórn, heldur þrir fjandsamlegir flokkar, sem lýsa þvi opinberlega yfir, að þeir beri enga ábyrgð á neinu, nema sinum eigin f agráðunev tum. Forystuflokkur stjórnarinnar, Framsóknarflokkurinn, er hund- eltur af málgögnum samstarfs- flokkanna og óbreyttir flokks- menn eins stjórnarflokksins krefjast afsagnar ráðherra ann- ars. Þið, sem munið ekki lengur aft- ur i timann, cn 12 ár, — kemur ykkur þessi „stjórnarsamvinna” ekkert kynlega fyrir sjónir? Þið, sem stutt hafið þessa flokka og styðjið þá ef til vill enn, — hvernig er hægt að fella harðari dóm um rikisstjórn en með þvi, að flokkar hcnnar keppist um að koma af sér allri ábyrgð á stjórnarathöfnun- um? Engin stjórnarandstaða getur nokkurn tima gengið jafn ger- samlega milli bols og höfuðs á stcfnu einnar rikisstjórnar og stjórnarflokkarnir i núverandi rikisstjórn hafa sjálfir gert á sið- ustu vikurn. Flótti þeirra frá ábyrgðinni af stjórnarathöfnun- uin jafngildir yfirlýsingum um gjaldþrot stjórnarstefnunnar. Gatið i girðingunni Það cr enginn vandi að stjórna á mcðan allt leikur i lyndi. Það hafa allar rikisstjórnir á tslandi getað. Vandinn byrjar fyrst, þegar erfiðlcikarnir steðja að. Þá cr valið á milli þess, að axla ábyrgð og standa svo eða falla Framhald á bls. 4 LEIÐRÉTTING I grein Björgvins Guðmundssonar um borgar- mál, sem birtist i Alþýðu- blaðinu s.l. föstudag, varð sú misritun, að sagt var að 11% álag hafi verið lagt á útsvar Iteykvikinga. Að sjálfsögðu átti að standa 10% álag. Við það hækkuðu hins vegar út- svörin úr 10% i 11% af brúttó- tekjum. SUMARFERÐ UM SUDURLAND Alþýöuflokksfólk á Reykjanesi Alþýðuflokksfélögin i Ilafnarfirði, Kópavogi og Seltjarnarnesi cfna til skemmtiferöar sunnudaginn 20. ágúst n.k. Farið verður frá Hafnarfirði kl. 9 stundvislega og farið um Hveragerði, Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyri, Gaulverjabæ, Skálholt, Gullfoss og Geysi og komið viö á Laugarvatni á heim- leiö. Farmiðinn kostar kr. 800,00 og er innifalin kvöidmáltið. Að öðru leyti þurfa þátttakendur að hafa með sér nesti sjálfir. Nánari upplýsingar um ferðina verða veittar dagana 16. og 17. ágúst kl. 8—10 e.h. i sima 50499 og auk þess i simum 50848 og 42078. Þriðjudagur 15. ágúst 1972 "5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.