Alþýðublaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 15.08.1972, Blaðsíða 9
iMÖTTIR 2 Gisli Halldórsson, forseti tSt. GISLI ENDUR- KJORINN FORSETI r r ISI Gisli Ilalldórsson var endur- kjörinn forseti ISt til næstu tveggja ára á iþróttaþingi sambandsins sem haldið var i Skipholi i Hafnarfirði á laugardag og sunnudag. l>ingið var fjölsótt, og urðu á þvi miklar umræður. l>ingið var sett á laugar- dagsmorgun klukkan 10, og gerði það Gisli Halldórsson. l>á flutti Oddur Ólafsson lækn- ir erindi um iþróttir fyrir fatlaða, en það var eitt aðal- mál þingsins. Fyrir þinginu lágu all- margar tillögur, og voru þær til umræðu i nefndum, og komu siðan til umræðu á þing- inu sjálfu. Má þar nefna tillögu um baráttu gegn áfengisbölinu, tillaga um iþróttir fyrir fatlaða, tillaga um aukna styrki til iþróttastarfsins, til- laga um bætta aðstöðu tþróttakennaraskólans og ýmsar tillögur um breytingar á reglum ÍSi og reglugerðum. þá kom fram tillaga um áskorun til útvarpsráðs þess efnis að afnema bann á sýningum innlends efnis i sjónvarpi, þar sem auglýsingár koma fram á búningum leikmanna. Var það sannarlega timabært að ÍSt tæki þetta fáranlega bann til umræðu. Vegna rúmleysis FATT GETUR NU STOÐVAD SIGUR FRAMARA í 1. DEILD Úr þessu getur fátt komið i veg fyrir sigur Fram i islandsmótinu i ár. Liðið hélt áfram sigur- göngu sinni á laugardaginn, og sigurinn yfir helzta keppinaut- inum ÍA, verður að teljast einn mikilvægasti sigur Fram i bar- áttu sinni að ná takmarkinu, vcrða islandsmeistari. Staða Fram á toppinum i dag er cngin tilviljun, Fram hefur tvimæla- laust á að skipa bezta liðinu, og hefur auk þess haft heppnina sem fvlgifisk. en án hennar vinna engin lið stóra sigra. Eins og oft er um stórleiki, var leikurinn á laugardaginn slakur knattspyrnulega séð, og harkan sát i fyrirrúmi, þótt svo að varla hafi verið ástæða til flautukons- erts allan leikinn, en á þeirri skoðun var dómarinn greinilega, Magnús -Pétursson. Leikurinn var jafn i byrjun, Akranes sótti meira, en Fram átti hættulegri tækifæri. Akranes varð fyrra til að skora, Eyleifur sendi boltann út á hægri vægninn til Karls Þórðarsonar á 22. minútu, Karl afgreiddi boltann laglega til Teits sem skoraði framhjá Þorbergi úthlaupandi. A 34. minútu jafnaði Fram eftir hroðaleg varnarmistök fA varnarinnar, og forystuna tók Fram svo á 38. minútu, eftir jafn- vel enn meiri mistök. Elmar Geirsson lek upp vinstra megin, gaf siðan lágan bolta sem greini- lega var ætlaður sem fyrirgjöf. En sendingin var ónákvæm, sem betur fer fyrir Fram, boltinn sigldi nefnilega i markið án þess að Hörður markvörður hreyfði legg né lið. A 33. minútu seinni hálfleiks átti Elmar skot að marki, Hörður missti boltann undir sig, Jó- hannes Guðjónsson bjargaði á linu, boltinn barst út i teiginn og Kristinn Jörundsson skoraði örugglega. Skagamenn reyndu nú að jafna allt sem af tók, en þrátt fyrir mörg tækifæri, tókst þeim aðeins að skora einu sinni, og var þar að verki Leó Jóhannesson varamaður á 38. minútu. Loka- staðan varð þvi 3:2 Fram i hag. Framliðið átti i heild góðan dag, en af öðrum ólöstuðum bar Marteinn Geirsson af öðrum i lið- inu. Akranesliðið var eins og áður án ýmissa góðra leikmanna, og það kann ekki góðri lukku að stýra, að breiddin skuli vera svo litil að nauðsynlegt reynist að nota tvo leikmenn, sem varla eru tækir i l. flokk, þ.e. annan bak- vörðinn og einn framvörðinn. Dómari var Magnús Pétursson sem fyrr segir, og vann hann þaö afrek að bóka þjálfara Fram, Guðmund Jónsson. Þá bókaði hann tvo leikmenn tA. SS Sigurlið ÍR, fyrirliðinn Jón Þ Ólafsson hampar bikarnum. Sveit ÍR bar sigur úr býtum i Bikarkeppni FRÍ sem fram fór á Laugardalsvcllinum um helgina. Er þetta i fyrsta sinn sem ÍR sigrar í keppninni, KR hefur oftast sigrað, fimm sinnum og UMSK einu. Sveit ÍR var vel að sigrinum komin. ÍR hlaut 135 stig, UMSK 112 stig, KR lOii stig, Armann 100 stig og HSK 80 stig. Keppni er ólokið i stangarstiikki, en úrslitin þar koma ekki til með að breyta neinu. Bikarkeppnin var heldur svip- litil i þetta sinn, og var það af mörgum ástæðum. Veður var afar óhagstætt til keppni seinni daginn, starfsmenn voru af skornum skammti og tafði það keppnina, og þá voru mætingar iþróttafólks slæmar, og urðu þvi miklar breytingar á niðurröðun i greinar. Sem dæmi má nefna, tafðist kringlukastskeppnin um rúman stundarfjórðung, vegna þess að kaststjórinn mætti ekki. Tima- verðir voru i færra\lagi, og tima- takan alveg fyrir neðan allar hellur. Til dæmis munaði 2,7 sekúndum á tveim klukkum sem tóku timann á Þorsteini Þor- steinssyni i 1500 metra hlaupinu, og klukkurnar sem tóku timann á Borgþóri Magnússyni i 110 metra grindahlaupi sýndu 14,8 sek, 15,2 sek og 15,3 sek. Klukka sem þjálfari KR var með, sýndi 14,8 sek. Það er full ástæða að láta gera athugun á klukkunum, eða þá þeim sem taka timann. Bezta afrek rpótsins vann Er- lendur Valdimarsson, sigurkast hans i kringlukasti gaf 990 stig, og fékk Erlendur að launum farand- styttu sem veitt er fyrir bezta af- rek mótsins en stytta þessi var gefin af dr. Ingimari Jónssyni i fyrra. Hér fer á eftir skrá yfir ein- staka sigurvegara mótsins: Fyrri dagur: 200 metra hlaup karla. Bjarni Stefánsson KR 22,3 sek. 800 metra hlaup karla. Þorsteinn Þorsteinsson KR 1.53.1 min. 3000 metra hlaup karla. Halldór Guðbjörnsson KR 9,17,4 min. 4x100 metra boðhlaup karla. Sveit KR 43,5 sek. Kúluvarp karla: Erlendur Valdimarsson 1R 15.45 metrar. Spjótkast karla. Elias Sveinsson IR 62,62 metrar. Sleggjukast. Erlendur Valdimarsson IR 56,12 metrar. Hástökk karla. Jón Þ ölafsson ÍR 2.00 metrar Langstökk karla. Friðrik Þór Öskarsson IR 6,66 metrar. 100 metra hlaup kvenna. Ingunn Einarsdóttir IR 12,7 sek. 4x100 metra boðhlaup kvenna. Sveit UMSK 51,6 sek. Framhald á bls. 4 FRiÁLSIÞRÚTTABIKARIHH FÖR I FYRSTA SKIPTI TH. ÍR-INGA Þriðjudagur 15. ágúst 1972 '9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.