Alþýðublaðið - 29.08.1972, Side 1
alþýðu
m
\ 29. ágúst 1972—53. árg.
GÆZLAN VHI ÆFINGAR
Aö sjálfsögðu er undirbún-
ingur undir þorskastriðið
kominn i fullan gang hjá Land-
helgisgæzlunni, enda tæp vika
þar til fiskveiðimörkunum
verður tosað út i 50 milur.
Sportsiglingamenn, sem voru
á leið til Keflavikur i litlum vél-
báti á sunnudaginn, sigldu fram
á eitt varðskipanna skammt
undan landi, og þegar þeir komu
i námunda við það kom i ljós, að
skipverjar stunduðu þarna her-
æfingar af kappi.
Það sem þeir virtust leggja
aðal áherzlu á i þessum æf-
ingum var tækni, sem er langt
frá þvi að vera ný af nálinni.
Hana stunduðu forfeður okkar,
vikingar, með góðum árangri
fyrir þúsund árum.
Hernaðartækni þessi er i þvi
fólgin að leggja skipinu að skipi
óvinarins og ráðast til upp-
göngu. Þeir varöskipsmenn
beittu þarna krókstjökum af
snilld mikilli, og sögðu sport-
siglingarmennirnir, að eftir
þessa sjón óttist þeir ekki að við
munum ekki hafa i fullu tré við
Breta.ef til þorskastriðs kemur.
Yfirmenn Landhelgisgæzl-
unnar hafa ekki viljað ljóstra
HREPPSNEFND HAFNAÐI MILLJÓNABOÐI
r
OG GAF BONDAN
UM GIÖF HANS
AFTIIR HLBAKA
Það er ekki of t sem hreppsfélög
taka af skarið og koma i veg fyrir,
að peningamenn kaupu upp land-
skika við laxveiðiár, og jafnvel
heilar jaröir, til þess eins að ná
veiðiréttindum.
Þetta gerðist þó fyrir skömmu i
Aðaldælahreppi i Suður-Þing-
eyjarsýslu, er hreppsnefndin
synjaði milljónaboði i gamalt
samkomuhús i landi Hðlmavaðs,
og landskika á bakka Laxár —
með öðrum orðum á einum bezta
laxveiðistað á landinu, og ákvað
að skila Hólmavaðsbóndanum
landinu.
Forsaga þessa máls er sú, að
fyrir allmörgum árum gaf bónd-
inn að Hólmavaði hreppnum land
undir samkomuhús, og liggur
skikinn við Laxá. Veiðiréttur i
ánni var að sjálfsögðu undanskil-
inn, og heyrði hann undir Hólma-
vað eftir sem áður.
Nú stendur yfir bygging á skóla
annarsstaðar i hreppnum, og þar
er fyrirhugað að byggja á næst-
unni félagsheimili og iþróttahús.
Starfsemi i gamla samkomu-
húsinu verður þvi lögð niður fljót-
lega, enda húsið litið, og vafa-
laust mun skólahúsið gegna hlut-
verki þess að einhverju leyti þar
til félagsheimilið ris.
Þá gerðist það, að fjársterkir
aðilar báru fram ósk um að kaupa
Farmhald á 2. siðu.
ÁREKSTRAMET
í FIRÐINUM
Lögreglan i Hafnarfirði hafði
nógu að snúast um helgina, þv
það var engu likara en árekstra
alda gengi yfir bæinn.
Samtals urðu i bænum i:
árekstrar og i einum þeirra ger
eyðilegðist splunkunýr lögreglu
bill.
Þetta er að verða algjört metái
hvað varðar árekstra, þvi miðai
við sama tima i fyrra hafa orðii
75 fleiri árekstrar þar núna. Sam
anlagður fjöldi þeirra er 430.
RAUTT UÓS FYRIR
A myndinni hér til hliðar er
grænt ljós fyrir gangandi fólk,
en i Reykjavik var i gær rautt
ljós fyrir regnhlifar, þrátt fyrir
mikla rigningu. Rokið var
nefnilega of mikið fyrir þær, þaö
komst i 9 vindstig, en það var
mesta rok I byggð i gær.
Þetta var landsynningsrign-
ing, sem raunar var mjög tak-
mörkuð, bundin við annes hérna
á Reykjanesskaga, mest i
Keflavik, þar rigndi 21 milli-
metra á niu timum.
I Borgarfirði rigndi ekkert i
gær og raunar ekki fyrr en
REGNHLÍFARNAR!
komið er að Gufuskálum, og
sömu sögu er aö segja fyrir
austan okkur, og það rigndi.
meira að segja ekkert i Vest-
mannaeyjum.
A Norður- og Austurlandi var
hinsvegar sumarbliða, hitinn
þar var viða með þvi meira,
sem komið hefur i sumar.
Hitinn var mestur á Mánár-
bakka, 21 stig, 20 á Staöarhóli,
og viöa voru 19 stig.
1 dag var gert ráð fyrir hægri
sunnanátt sunnan og vestan-
lands, og slcúrum.
UMFERÐARSLYSIN
BORGAR
TONER
HÆTT1I-
SVÆBI
Um helgina urðu fjögur um-
ferðarslys i Reykjavik og var i
tveimur tilfellum ekiö á sex ára
gamla drengi.
Þessi slys áttu sér stað á
Kringlumýrarbrautinni og Háa-
leitisbraut.
Þá lenti strætisvagn i árekstri
viö leigubil á mótum Hjarðar-
haga og Dunhaga og gjöreyði-
lagðist leigubillinn. Farþegi i
bilnum slasaðist litils háttar.
Þá var ekið á konu i Borgartún-
inu aðfaranótt laugardagsins.
Akstursskilyrði voru mjög
slæm á þessum tima, svarta
myrkur og rigning og kváðust
lögreglumenn, sem komu á slys-
staöinn vera undrandi, aö á þessu-
stað skuli ekki hafa orðið enn
fleiri slys.
Það, sem gerir ástandið
kannski alvarlegast er sú stað-
reynd aö á þessum stað eru engar
gangstéttir og þegar jörö er biaut
notar fólk götuna sjálfa sem
gangbraut.
STRAND
Tuttugu og átta tonna eikar-
bátur, Fjóla BA 150 strandaði i
fyrrinótt á Meðallandsbugt á
milli Nýjaóss og Bergvatns-
óss.
Veður var gott á þessum
slóðum. Þó var nokkur strekk-
ingur á suðaustan.
Varðskipið Óðinn var statt
skammt undan og björguðu
varðskipsmenn tveimur skip-
verjum, sem voru á Fjólu.
NEYDARÁSTAND í VÆNDUM?
VÍSINDAMENN FINNA ENGIN SEIÐI í SJÓ ÓT AF SUÐUR- VESTUR- OG MEGINHLUTA NORÐURLANDS
Leitarskipið Arni Friðriksson
kom á laugardaginn úr ungviðis-
rannsóknum i kringum landið.
Eins og Alþýðublaðið hefur skýrt
frá, var álitið að þessar 'rann-
sóknir myndu leiða i ljós, að
þorskklakiö hafi að mestu
brugðist við landið á þessu ári, og
ýsuklakið að einhverju leyti
einnig.
„Þessi skoðun stendur
óhögguð”, sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur i sam-
tali við Alþýðublaðið i gær, en
Hjálmar var leiðangursstjóri um
borð i Arna Friðrikssyni.
Hjálmar sagði að leitað hefði
verið.i kringum allt landið, að
Austfjöröum undanskildum. Eins
og i fyrra, fannst ekkert af
seiðum fyrir sunnan og suðvestan
land.
En það sem alvarlegra var,
sama og ekkert fannst af seiðum
á svæðinu frá tsafjarðardjúpi að
Axarfirði, en i fyrra fannst þó
nokkurt magn seiða á þessum
slóðum.
Ekki reyndist unnt að rannsaka
svæðið austan Langaness, en
álitið var að þar væri eitthvað
magn seiða að finna, en þó ekki
Framhald á bls. 4
FATT ER SVO MEÐ OLLU ILLT AÐ EKKIFYLGI NOKKUÐ GOTT
Seiðarannsóknir Islendinga, 1 samtali við Hjálmar Þessi seiði komast i gagnið árin Þá sýndu rannsóknirnar geysi-
Breta og Sovétmanna á haf- Vilhjálmsson fiskifræðing i gær, 1975-76. Styrktu þessar niður- legt magn karfaseiða i Græn-
svæðunum kringum landið sýndu kom i ljós að geysilegt magn stöður grun fiskifræðinganna frá i landshafi. Er þar sjórinn fullur af
bjartar hliðar ekki siður en þær loðnuseiða fannst fyrir vestan og vor, um að loðnuklakið hafi tekizt karfaseiðum. og ætti bvi ekki að
dökku. norðan land i rannsóknunum. mjög vel.Framhald á 2, siðu.