Alþýðublaðið - 29.08.1972, Blaðsíða 3
NÝ ORÐSENDING FRÁ BRETUM
SE6IAST BIÍHIB
TIL VIDRÆBHA!
Likur benda til, að viðræður
geti hafizt aftur við rikisstjórnir
Bretlands og Vestur-Þýzkalands
um fiskveiðar þessara þjóða hér
við land eftir útfærslu fiskveiði-
landhelginnar næstkomandi
föstudag. Alla vega hafa rikis-
stjórnir beggja rikjanna lýst þvi
yfir, að þær séu reiðubúnar til að
hafa viðræður við rikisstjórn Is-
lands um viöhorfin svo fljótt sem
báðum aðiium hentar.
Þetta eru fyrstu viðbrögð
brezku stjórnarinnar við siöustu
tillögum islenzku stjórnarinnar,
sem fela i sér nokkra tilslökun frá
fyrri tillögum. Nú hafa rikis-
stjórnir Breta og Vestur-Þjóð-
verja hins vegar úrskurð Haag-
dómstólsins upp á vasann.
t gær afhenti brezki sendi-
herrann á tslandi Einari Agústs-
nVii P”
»»i* • i ITAMI II 1AD
IVAItII HAI 5AK IST
,,Nýi vegurinn yfir Kambana
mun komast i gagnið i haust eins
og ráð er fyrir gert, nema vetur
konungur gangi i garð fyrr en
vant er og harðari en hann hefur
verið undanfarin ár og tefji fram-
kvæmdir”, sagði Sigfús 0. Sigfús-
Farmhald á 2. siðu.
syni, utanrikisráöherra, orðsend-
ingu þess efnis, að brezka rikis-
stjórnin hafi athugað ákvörðun
alþjóðadómsins varðandi bráöa-
birgðaráðstafanir vegna máls
þess, sem nú sé fyrir dómstólnum
og að hún muni reiðubúin til að
’ fara eftir henni.
Jafnframt er þvi lýst yfir, að
brezka rikisstjórnin sé reiðubúin
til að hafa viðræður við rikis-
stjórn tslands, svo fljótt sem
báðum aðiljum hentar.
Sams konar skilaboð hafa
borizt frá ríkisstjórn Sambands-
lýðveldisins Þýzkalands.
Alþýðublaöið hafði i gærkvöldi
samband við Einar Agústsson,
utanrikisráöherra, en hann
kvaðst ekkert geta um orösend-
ingar þessar sagt á þessu stigi, en
, kvað rikisstjórnina halda fund
um málið fyrir hádegi i dag. —
DAUFT f
SÍLDINNI
Frekar dauft var hjá sildveiði-
bátunum i Norðursjónum i siðast-
liðinni viku. Heildaraflinn er 1632
lestir og heildarsöluverðið tæpar
21 milljónir krónur. 'Meðalverðiði
er aðeins 12,85 krónur, sem er
mjög lágt. Hæst meðalverð fyrir
sildarfarm fékk Hrafn Svein-
bjarnars. GK. 23,92 krónur fyrir
kilóið, en lægst fór verðið i 3,49
krónur hvert kiló.
Alls seldu 26 bátar afla sinn i
vikunni, flestir þeirra i Dan-
mörku, en aðeins tveir i Þýzka-
landi.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem AlþýOublaðið hefur fengið.eru lfkur á, að árið 1972 veröi gott
berjaár. Þær fregnir höfum viö vestan af Fjörðum, að þar hafi tveir menn verið viö berjatinslu daglangt,
og siöan seit uppskeru dagsins Afengisverziun rikisins og fengið fyrir hana sex þúsund krónur.
Hvort sú litla á myndinni er að tina fyrir 'Afengið vitum við hins vegar ekki. —
TOLF OLVAÐIR
VORU TEKNIR
UM HELGINA
Lögreglan i Reykjavik hafði
uppi um helgina herferð gegn ölv-
uðum ökumönnum og árangurinn
lét ekki á sér standa. Þegar yfir
lauk hafði hún staðið aö verki tólf
ölvaða ökumenn.
Herferðin stóö reyndar stutt
eða i nokkrar klukkustundir
aðfaranótt sunnudagsins.
1 átta tilfellum var um óyggj-
andi ölvunarakstur að ræða, en i
fjórum tilfellum þurfti að setja
menn i fangageymslur lögregl-
unnar og senda þá siðan i yfir-
heyrslu hjá rannsóknarlögregl-
unni.
TVEIR NÁDll
JAFNTEFLI
VHI KAVALEK
Kavalek, stórmeistari i
skák, sem staddur er hér á
landi til aö fylgjast með
heimsmeistaraeinviginu i
skák tefldi fjöltefli i ölafsvik
siöastliðinn föstudag.
34 þátttakendur úr Ölafsvik
og nágrannabyggðum hennar
tóku þátt i fjölteflinu og tókst
tveimur þeirra að gera jafn-
tefli við stórmeistarann, en
engum tókst hins vegar að
leggja hann.
Þeir, sem náðu jafntefli við
Kavalek stórmeistara, eru
Hinrik Konráðsson og Her-
mann Hjartarson.
Fjölmargir fylgdust með
taflinu. —
STRID UM SKÚLABÓKSðLUNA
SKOLAFÖLK VILL
FA bóksöluna
f EIGIN NENDUR
Allt virðist benda til þess, aö
kalt strið sé hafiö milli Lands-
sambands menntaskólanema og
Innkaupasambands bóksala.
Menntaskólanemar hafa nú pant-
aö beint erlendis frá megnið af
þeim erlendu kennslubókum, sem
kenndar veröa við fjóra af
menntaskólum landsins næsta
vetur.
Hér er um að ræða yfir 10.000
eintök fyrir um 2.700 nemendur
og er andvirði bókanna 3—5 mill-
jónir króna. Til dæmis er andvirði
um 700 eintaka af stærðfræði-
kennslubókum um hálf milljón
króna.
Með þvi aö taka verzlunina meö
erlendar kennslubækur I eigin
hendur ætla menntaskólanemar
aö freista þess að lækka bóka-
kostnað sinn verulega, eða um
10—30%.
Um það bil þriðjungur þeirra
erlendu kennslubóka, sem
menntaskólanemar hafa pantað
beint, eru gefnar út af danska
bókaforlaginu Gyldendal, en
vafasamt er, að menntaskóla-
nemar fái þessar bækur afgreidd-
ar til eigin bókasölu.
Innkaupasamband bóksala hef-
ur einkaumboð fyrir Gyldendal
hér á landi og hefur sambandið
lýst þvi yfir bréflega, að þaö muni
nota einokunaraðstöðu sina, og
neitar aö afgreiða umræddar
bækur fyrir menntaskólastigið.
Hins vegar mun Innkaupasam-
band bóksala væntanlega panta
þessar bækur sjálft, þannig að
þær verði til sölu i venjulegum
bókaverzlunum, en Innkaupa-
samband bóksala er einmitt
hlutafélag bóksala i Reykjavik.
Allar erlendu bækurnar hafa
verið pantaðar i gegnum Bóksölu
stúdenta og er Alþýðublaðinu
kunnugt um, að annar af fram-
kvæmdastjórum hennar er nú i
Kaupmannahöfn og mun eiga viö-
ræður við framkvæmdastjóra
Gyldendals um máliö.
Þórarinn Þórarinsson, mennta-
skólanemi, sem á sæti I bóksölu-
nefnd Landssambands islenzkra
menntaskólanema, tjáöi blaðinu I
gær, að umrædd viðskipti væru að
öllu leyti gerð á vegum og á á-
byrgð Landssambands islenzkra
menntaskólanema en I samvinnu
við Bóksölu stúdenta.
„Við sjáum ekki betur en okkur
geti tekizt að lækka bókakostnað-
inn mjög verulega, svo fremi sem
nemendur bregðist ekki eigin
málstað og verzli við eigiö fyrir-
Framhald á bls. 4
3
Þriðjudagur 29. ágúst 1972