Alþýðublaðið - 29.08.1972, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 29.08.1972, Blaðsíða 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm- ar Hverfisgötu 8-10. — Sfmi 86666. Blaðaprent h.f. LOFORÐIÐ EFNT? Á meðan núverandi fjármálaráðherra, Hall- dór E. Sigurðsson, var aðalmálsvari stjórnar- andstöðunnar i rikisf jármálum var söluskattur- inn eitur i hans beinum. Þá flutti hann margar og langar ræður um þennan „óréttláta” skatt, sem bæði væri orðinn allt of hár og allt of langær sem tekjuöflunarleið fyrir rikissjóð. Hvað eftir annað lýsti hann sig andvigan þvi tekjuöflunar- formi sem farið er með álagningu söluskatts og annara likra skatta, svo sem virðisaukaskatts, og taldi slika skattheimtu óréttláta með mesta móti. Undir þetta tal tóku aðrir þáverandi stjórnarandstæðingar, — svo sem Alþýðubanda- lagsmenn. Nú hefur Halldór E. Sigurðsson verið fjár- málaráðherra nokkuð á annað ár og meðreið- sveinar hans aðrir úr stjórnarandstöðunni forð- um tið eru nú samverkamenn hans i rikisstjórn. Á þessu röska ári hefur ein svonefnd endurskoð- un á skattakerfinu verið framkvæmd og önnur stendur nú yfir að sögn ráðherranna. Samt hef- ur ekkert verið hreyft við söluskattinum að ráði. Hann hefur ekki verið lækkaður hvað þá heldur, að hann hafi verið felldur niður, eins og Halldór E. Sigurðsson gerðist svo margorður um á sin- um tima. Hin svonefnda endurskoðun rikisstjórnarinn- ar á skattakerfinu hefur áþreifanlega leitt það i ljós, að affarasælla er, að búið sé að tilkynna meginatriði hennar fyrirfram, svo hægt sé að leiðrétta vitleysurnar áður en þær bitna á fólk- inu i stað eftir á, eins og nú á sér stað. Einmitt þess vegna leyfir Alþýðublaðið sér nú að spyrja Halldór E. Sigurðsson hvort afnám söluskatts- ins sé ekki neitt meginverkefni þeirrar endur- skoðunar, sem nú stendur yfir á skattakerfinu og hvernig hann ætli að sjá rikissjóði fyrir þeim tekjum, er við það tapast. Sjálfsagt stendur ekki á svarinu frá ráðherr- anum eða málgagni hans, Timanum, fyrir hans hönd. MAGNÖS KOMINN HEIM Nú um þessa helgi mun iðnaðarráðherra, Magnús Kjartansson, hafa komið heim frá Svisslandi, en þangað fór hann i boði Alu-Suisse, auðhringsins, sem rekur hér álverksmiðju i fé- lagi við islenzka rikið, Hefurferðalagiðvonandi verið skemmtilegt fyrir Magnús og án efa hefur hinn svissneski auðhringur gert vel við hann. Á meðan Magnús Kjartansson hefur dvalið i boðsferð þessari ytra hefur margt á dagana drifið fyrir þjóð hans, sem nú á i erfiðri baráttu fyrir lifshagsmunum sinum. Alþjóðadómstóll- inn i Haag lagði eyrun við röddum Breta og Vestur-Þjóðverja og gaf út úrskurð gegn is- lenzkum hagsmunum. Þann úrskurð nota nú andstæðingar okkar i landhelgismálinu til ákafs andróðurs gegn okkur og islenzka rikisstjórnin, að iðnaðarráðherranum undanteknum, situr á stöðugum fundum þar sem fjallað er um þróun málsins, enda landhelgismálið komið á lokastig. Magnús Kjartansson heyrir til nýrri kynslóð i forystusveit flokks þess, sem upphaflega hét Kommúnistaflokkur Islands, siðar Sameining- arflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn og nú Alþýðubandalagið. Forystumenn þess flokks hafa ætið lagt mikið upp úr þvi, sem nefnt hefur verið hið alþjóðlega auðvald. Enginn þeirra þó með þeim hætti, sem Magnús Kjartansson hefur nú gert, og kemur fram i þvi að hann þiggur skemmtiferðarboð alþjóðlegs auðhrings á ör- lagastundu þjóðar sinnar. lalþýduj LEIDINLEG MISTOK I LANDHEL61SMÁLINU Það voru uggvænlegar fréttir, sem Alþýðublaðið hafði eftir Sig- fúsi Schopka, fiskifræðingi, s.l. fimmtudag. Þar sagði fiskifræð- ingurinn, að rannsóknir, sem þá voru á lokastigi, bentu til þess, að þorskklakið i ár hefði algerlega brugðizt og raunar ýsuklakið einnig að verulegu leyti. Sagði Sigfús enn fremur, að þessar upp- lýsingar hefðu enn aukið á áhyggjur fiskifræðinga, þvi nú vissu þeir ekki um neinn góðan þorskstofn á leiðinni til að standa undir afla á íslandsmiðum. Bætti Sigfús þvi við, að allar góðar vonir sem menn hefðu bundið við árganginn frá 1964, hefðu brugðizt — m.a. vegna gifur- legrar ofveiði á smáfiski af þessum árgangi. Ótíðindi Þessar fréttir, sem Alþýðu- blaðið varð fyrst til að segja, eru óhugnanlegar. Þær fela það i sér, að þorskstofninn á Islendsmiðum er i hættu. Visindamenn vita ekki um neinn sterkan árgang til þess að standa undir sókn veiðiskipa á þessi mið. Þeir árgangar, sem hafa komið vel út úr klaki, hafa verib eyddir með gengdarlausri veiði á smáfiski og milljónaverð- mæti hafa þannig farið i súginn. Og upp á siðkastið hefur i tilbót klakið brugðizt svo engin von er, að úr rætist. A sama tima fleygir fiskveiði- tækninni fram og öflugum veiði- skipum fjölgar á íslandsmiðum. öllum þessum flota er nú stefnt að siþverrandi fiskigengd og sóknin i smáfiskinn —- fisk, sem á eftir að taka út oft meira en helm- ing af eðlilegri stærð og þyngd — er hömlulaus. Þannig er nú verið að eyða af sjálfum „höfuðstóli” auðlegðar Islandsmiða. Verði öllu meira af honum tekið fer fyrir Islands- miðum eins og svo mörgum öðrum fiskimiðum, t.d. miðunum undan austurströndum Banda- rikjanna, svo illa verða stofnar nytjafiska leiknir, að þeir bera aldrei sitt barr. Þessi óhugnanlega framtiðar- mynd hefur nú færzt enn nær okkur. Upplýsingar fiskifræðing- anna um ástand þorskstofnsins á miðunum við Island og hafa gert það að verkum. Sú staðreynd, að þrátt fyrir stóraukna sókn Breta á fslandsmið þá tekst þeim senni- lega ekki að afla nema innan við helming þess magns, sem þeir drógu úr sjó á þessum sömu miðum árið 1970, —hún bendir til hins sama. Fyrir Islending eru slik tiðindi ekki slæm tiðindi úr einni atvinnugrein. Fyrir Is- lending er slik frétt þjóðarvá. Aldrei hefur okkur verið ljósari en nú nauðsyn þess að færa út is- lenzka fiskveiðilögsögu og auka verndun fiskistofnanna á Islands- miðum svo forða megi þeim frá útrýmingu. Líka við sjálf Og fiskveiðilögsagan verður færð út. Þangað til ab svo verður eru nú aðeins nokkrir dagar. Þar höfum við allan siðferðilegan rétt okkar megin, þvi þar er þjóðin að verja lifsafkomu sina og um leið að koma i veg fyrir eyðingu lifs á stórum hafsvæðum, en slik verndunarráðstöfun hlýtur að vera ekki aðeins fslendingum, heldur mannkyninu öllu til heilla, — a.m.k. þegar fram i sækir. Við erum einnig sannfærðir um, að við munum vinna i baráttunni fyrir stækkun fiskveiðilandhelg- innar. En við verðum einnig ab gera okkur grein fyrir þvi, að við þurfum að gera meira til að vernda fiskistofnana á Islands- miðum fyrir rányrkju, en að færa fiskveiðilandhelgina út. Það eru t.d. fleiri, en aðeins Bretar og Vestur-Þjóðverjar, sem stunda hömlulitlar veiðará smáfiski. Við berum þar sjálfir nokkra. Mér er sagt, að i heilum lands- hlutum sé smáfiskurinn undir- staða alls afla nú um þessar mundir. Mestallur sá fiskur, sem komið sé með að landi, sé undir- málsfiskur. Þarna eigum við Islendingar við okkur sjálfa að sakast. Rán- yrkja er rányrkja, — hvort sem hún er stunduð af innlendum eða EFTIR HELGINA erlendum aðilum. Þótt ekki sé tekið mið af öðru en sóma okkar sjálfra, þá getum við ekki horft framhjá þvi þegar við sjálfir gerumst á einhvern hátt brotlegir við verndunarsjónarmiðin. Og sú viðbára að það sé engan fisk að fá, nema hálfvaxinn smáfisk, er engin afsökun. Við getum ekki borið fyrir okkur sams konar af- sakanir og við neitum með réttu að taka gildar hjá öðrum. Sjávarbúskapur Um leið og við færum út fisk- veiðilögsögu okkar, þá verðum við einnig að setja okkur sjálfum strangari reglur varðandi veiðar þar sem einhver hætta er á of- veiði eða rányrkju. Viðreisnar- stjórnin sá svo um, að Islendingar eiga nú vel búin og nýtizkuleg rannsóknar- og fiskileitarskip. Fiskifræðingar okkar hafa þvi til- tölulega góða abstöðu til þess að fylgjast með ástandi fiskistofn- anna við Island og gefa aðvörun, þegar eitthvaö er að ganga úr- skeiðis. Þessum aðvörunum eigum við tslendingar að sinna. Eftir út- færslu fiskveiðilögsögunnar getum við tekið upp skipulagða nýtingu þeirra miða, sem liggja innan við 50 milna linuna og hafið nokkurs konar visindalegan „sjávarbúskap” ef svo má segja, — eba a.m.k. visi að slikum bú- skap. Slik nýting á auðlindum hafsins er einmitt það, sem koma skal, og hvers vegna ættum við Islendingar ekki að reyna að riða fyrstir á vaðið með tilraunir i þá áttina á svipaðan hátt og við höfum nú tekiö forystu um verndunarmálin? Við höfum allt það til að bera, sem þarf, svo slik tilraun geti borið árangur. Vel menntaða og hæfa visindamenn og ágætan skipakost til rann- sóknarstarfa. Auðug fiskimið við strendur landsins. Þegar vib höfum unnið sigur i landhelgismálinu þá væri slikt verkefni hrifandi viðfangsefni og verðugt. Ef til vil verður islenzka þjóðin sú fyrsta i heiminum, sem fer að búa með fisk i sjónum á svipaðan hátt og maðurinn hefur um aldaraðir búið með kvikfénað á landi. 1 framtiðinni getum við vel gert slikar tilraunir. Við höfum góðar vonir, um, að þær myndu takast. Þvi ekki að reyna? Við verðum að vanda okkar verk Þótt við höfum vissulega góðan málstað að verja i landhelgismál- inu, þá verðum við þó engu að siður að vaka yfir hverju fótmáli okkar og ihuga vandlega það, sem vib gerum og hyggjumst gera. Við verðum að einbeita okkur að þvi að gera sem fæst mistök i kynningu áróðri og öðru starfi og ef okkur verður það á, að gera einhver mistök, þá eigum við að læra af þeim. Þannig komum við i veg fyrir, að slik mistök verði gerð aftur. Töluverðar umræður um ýmis framkvæmdaratriði af tslands hálfu i sambandi við landhelgis- málið hafa orðið eftir að Alþjóða- dómstóllinn i Haag sendi frá sér úrskurð sinn á dögunum. Þær umræður hafa ekki snúizt um úr- skurð dómsins, — allir Islend- ingar eru sammála um, að honum beri að mótmæla, á hann beri aðeins að lita sem ábendingar, en ekki endanlega dómsniðurstöðu m.a. vegna þess, að dómstóllinn hefur enn ekki fjallað um lögsögu sina i málinu, og að Islendingar eigi ekki að kvika frá fyrir- ætlunum sinum um útfærslu þann 1. september. En dómurinn kom samt sem áður almenningi á tslandi tals- vert á óvart. Fólkið i landinu telur, að úrskurðurinn bendi til þess, að dómendurnir þekki litið sem ekkert til málsins og byggi þvi dóminn á mjög röngum for- sendum. I þvi sambandi hefur það mjög komið fram hjá al- menningi, að það hafi verið mis- ráðið af islenzku rikisstjórninni, að hafa engan málsvara i Haag til þess að kynna dómendunum hina islenzku — og réttlátu hlið mál- anna. Málsvarar rikisstjórnarinnar hafa sagt, að slikt hefði ekki verið hægt vegna þess, að i þvi hefði falizt óformleg yfirlýsing um, að Islendingar samþykktu lögsögu Alþjóðadómstólsins i landhelgis- málinu. Þetta er alls ekki rétt. Það var og er enginn vandi að ganga svo frá málum, að tilvist islenzks fulltrúa i Haag hefði jafnvel enn betur undirstrikab mótmæli tslands við lögsögu dómstólsins og þvi haft þver- öfugar afleiðingar við það, sem rikisstjórnin vill vera láta. Auk þess að færa fram rök fyrir þeirri afstöðu okkar að viðurkenna ekki lögsögu dómstólsins i málinu hefði hinn islenzki fulltrúi getað unnið i Haag mikið og gott kynn- ingarstarf á málstað okkar og marga grunar, að dómurinn hefði hljóðað öðru visi, ef islenzk rödd hefði heyrzt i Haag á þeim tima, þegar dómendurnir gerðu upp hug sinn i málinu. Þungamiðjur átakanna Atökin i máli eins og land- helgismálinu fara fram á mörgum vettvöngum. Avallt er þó einhver þungamiðja i þessum átökum öllum, — einhver staður, þar sem hámark orrustunnar er. Á slikum stöðum verðum við Is- lendingar ávallt að hafa mál- svara frá okkur. Þar megum við ekki gefa andstæðingum leikinn eftir. Siðla sumars 1972 var þunga- miðjan i átökum um landhelgis- útfærsluna um nokkra hrið i Haag, — þar sem Alþjóðadóm- stóllinn hefur aðsetur sitt. Þann baráttuvettvang höfðu andstæð- ingar okkar valið og voru mættir þar með liði sinu. En íslendingar komu ekki á vettvang. Bretar og Vestur-Þjóð- verjar gátu þarna farið sinu fram mótspyrnulaust. A meðan voru málsvarar okkar fslendinga upp- teknir við annað, þar sem þungi átakanna var ekki eins mikill. Alrhenningur á tslandi telur Framhald á 2. siðu. 5 Þriðjudagur 29. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.