Alþýðublaðið - 30.08.1972, Blaðsíða 8
LAUGARASBIÚ Simi 112075
Baráttan við vítiselda
Æsispennandi bandarisk kvik-
mynd um menn sem vinna eitt
hættulegasta starf i heimi. Leik-
stjóri: Andrew V. McLaglen.
Myndin er tekin i litum og i 70 mm
panavision með sex rása segultón
og er sýnd þannig i Todd A-0
formi, en aöeins kl. 9. Kl. 5 og 7er
myndin sýnd eins og venjulega 35
mm panavision i litum meö is-
lrnzkum texta.
Athugiöislenzkur texti er aðeins
með sýningum kl. 5 og 7.
Athugið aukamyndin Undra-
tækni Todd A-O er aðeins með
sýningum kl. 9.10
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sama miðaverð á öllum sýning-
um.
HAFNARBÍÚ -- n,m
Á KROSSGÖTUM.
Fjörug og spennandi ný banda-
risk litmynd um sumarævintýri
ungs manns, sem er i vafa um
hvert halda skal.
MICIIAKL DOUGLAS
(sonur Kirk Douglas)
LEE PURCELL
Leikstjóri: ROBERT SCHEER-
ER
lslenzkur texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
TÚNABÍÚ^^^^^
VISTMAÐUIi
Á VÆNDISHÚSI
(„GAILY, GAILY”)
IHI Mll(ISnil1(UIXK:illlN('()MI)W 11«NlNIS
A NORMAN JEWISON FILM
Skemmtileg og fjörug gaman-
mynd um ungan sveitapilt er
kemur til Chicago um siðustu
aldamót og lendir þar i ýmsum
æfintýrum.
— Islenzkur texti -í-
Leikstjóri: Nornian Jewison
Tónlist: Henry Mancini.
Aðalhlutverk: Beau Bridges,
Melina Mercouri, Brian Keith,
George Kennedy.
Sýnd kl. 5; 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
8--------------------------
KÚPAVOGSBfÓ Simi 419X5
DINGAKA
Kynngimögnuð amerfsk litmynd
er gerist i Afriku og lýsir töfra-
brögðum og forneskjutrú villi-
mannanna.
islenzkur texti.
Aðalhlutverk:
Tom Davis, Marion Davis, Ntoku
Makwena, Stanley Baker, Juliet
Prowse, Ken Gampu.
Endursýnd kl. 5,15 og 9,00
Bönnuð innan 14 ára.
HAFNARFlAROARBlð Simi 50249
Byssur fyrir
San Sebasfian
Stórfengleg og spennandl banda-
rísk litmynd, tekin í Mexikó.
Leikstjóri: Henri Verneuil.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 9.
Bönnuð innan 12 ára.
STJÚRNUBIO Simi ,393,;
UGLAN OG LÆDAN
(Tha owl and
the pussycat) tslenzkur texti.
Erlendir blaðadómar: Barbara
Streisand er orðin bezta grínleik-
kona Bandarikjanna Saturdey
ltevicw. Stórkostleg mynd
Syndicated Columnist. Eina af
fyndnustu myndum ársins
Woniens Wear Daily. Grinmynd
af beztu tegund Times.Streissand
og Segal gera myndina frábæra
News Week.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 14 ára
HÁSKÓLABÍÓ
Simi 22140
Kvennjósnarinn
(Darling Lili)
Mjög spennandi og skemmtileg
litmynd frá Paramount tekin i
Panavision. — Kvikmyndahand-
rit eftir William Peter Blatty og
Blake Edwards, sem jafnframt er
leikstjóri. — Tónlist eftir Henry
Mancini.
islenzkur texti
Aðalhlutverk:
Julie Andrews
Rock Hudson
Sýnd kl. 5 og 9.
BOKANIR
OGAFTUR
BÓKANIR
Þeim linnir ekki bókununum i
Knglandi. A laugardaginn voru
þeir ckki færri en 52 leikmenn-
irnir sem fengu nöfn sin rituð i
svörtu bækurnar hjá dómur-
unum, og fjórir fengu að yfirgefa
völiinn. Nú strax i byrjun
keppnistimabils, eru bókanirnar
orðnar hátt á þriðja hundraðið.
Meðal frægra leikmanna bók-
aðra á laugardaginn má nefna
Bob McNab, Ray Kennedy og
Charlie George i Arsenal, Bobby
Moorc West Ham, Norman Hunt-
er Lceds (kom vist engum á
óvart) og Mike England Totten-
liarn . George lék sinn fyrsta lcik
mcö Arsenal á laugardaginn, og
var óðara kominn i vandræði i
samskiptum við dómarann.
1 Englandi er nú mikið talað um
kaup Derby á David Nish i siðustu
viku. og hinaógnarháu upphæð
sem hann fór á, 225 þúsund pund.
Vilja margir meina, að hann sé
ekki virði nema 150 þúsund
punda. Það kcmur væntanlega i
Ijós.
EYIAMEHN ERII
GOÐIR 12. FL.
Eyjamenn tefla fram sterku liði
i II. flokki i ár, eins og raunar
undanfarin ár. IBV sigraði i A
riðli með miklum yfirburðum og
hlaut fullt hús stiga.
IBV-Breiðablik 5-2
IBV-Valur 3-1
IBV-KR 5-0
IBV-Vikingur 2-0
IBV-Fram 1-0
bessi frammistaða liðsins þarf
ekki svo mjög að koma á óvart,
þar sem i liðinu leika nokkrir
mjög snjallir leikmenn sem eru
fastir leikmenn i I. deildarliði
IBV. Má þar t.d. nefna Asgeir
Sigurvinsson og Orn öskarsson,
hvaða II. fl. lið getur státað af
tveimur landsliðsmönnum ?
Markvörður liðsins, Arsæll
Sveinsson ver einnig mark isl.
unglingalandsliðsins. Fleiri at-
hyglisverðir leikmenn eru i liðinu
og Eyjamenn lita björtum augum
til framtiðarinnar. HJ.
LÉTTUR
SEÐILL
NÚNA
Liverpool hefur tekiö forystuna 11. deild með 9 stig eftir sigurinn
yfir West Ham á laugardaginn. Arsenal gerði jafntefli við Man.
Utd. á Old Trafford og hefur tapað stigum I tveim sfðustu leikjum,
er I öðru sæti með 8 stig. Þá koma Chelsca, Everton, Ipswich og
Tottenham með 7 stig, en 6 stig hafa Leeds og Norwich.
Newcastle, Sheff. Utd., Southampton, West Ham og Úlfarnir eru
með 5 stig, en Crystal PaL, Derby og Stoke, eru með 4 stig.
Birmingham, Coventry, Leicester eru með 3 stig, en á botninum er
Man. City, Man. Utd. og WBA með 2 stig.
Á siðasta getraunaseðli voru 6 jafntefli, 4 heimasigrar og tveir
útisigrar. Úrslit nokkurra leikja komu á óvart, eins og vænta
mátti og má þar sérstaklega nefna útisigur Ipswich yfir
Newcastle, sigur Norwich yfir meisturunum Derby.
Næsti seðill sýnist mér fremur viðráðanlegur og snúum okkur
þá að spánni:
ARSENAL—CHELSEA 1
Þetta er einn erfiðasti leikurinn á seðlinum að þessu sinni, þvi
hér eigast við nágrannalið frá Lundúnum, sem báðum hefur
gengið vel i haust. Arsenal hefur hlotið 8 stig og gerði um sl. helgi
jafntefli við Man.Utd. á Old Trafford. Chelsea er með 7 stig og
vann Man. City heima um sl. helgi. Allir möguleikar eru fyrir
hendi i sambandi við þennan leik, en ég spái heimasigri.
COVENTRY—STOKE X
Coventry hefur gert þrjú jafntefli, en tapað tveim leikjum, báð-
um á útivellli, en Stoke hefur unnið einn leik, gert tvö jafntefli og
tapað báðum útileikjunum. Bæði liðin gerðu jafntefli um s.l. helgi,
Coventry úti við Leicester, enStoke heima við Everton. Heimasig-
ur eða jafntefli eru liklegustu úrslitin og spá min er jafntefli.
CHRYSTAL PAL.—NEWCASTLE 1
Chrystal Pal. hefur tapað aðeins einum leik það sem af er, fyrir
Stoke á útivelli, en gert fjögur jafntefli, m.a. við Derby og
Liverpool. Newcastle hefur átt misjafna leiki, unnið tvo leiki, gert
eitt jafntefli og tapað tveim leikjum. Heimasigur eða jafntefli eru
liklegustu úrslitin i þessum leik og spá min er heimasigur.
DERBY—LIVERPOOL X
Þá komum við að skemmtilegum og erfiðum leik. Derby hefur
gengið illa til þessa, unnið aðeins einn leik, gert tvö jafntefli og
tapað tveim leikjum. Liverpool er i efsta sæti með 9 stig, unnið
fjóra leikiog gert eitt jafntefli. Ef Derby ætlar að verja titilinn frá
i fyrra, þarf liðið að fara að vinna leiki, en trúlega verður róðurinn
erfiður gegn Liverpool og þori ég ekki að ganga lengra, en að spá
jafntefli.
EVERTON—W.B.A. 1
Everton hefur gengið mun betur en i fyrra, þvi nú hefur liðið
unnið tvo leiki og gert þrjú jafntefli. Sömu sögu er ekki að segja
um WBA, sem er á botninum eftir 5 umferðir með 2 stig, tvö jafn-
tefli og þrjú töp. Mér sýnist þvi flest benda til þess, að óhætt sé að
spá Everton sigri i þessum leik, sem fram fer á Goodison Park,
heimavelli Everton.
IPSWICH— TOTTENHAM 1
Ipswich hefur komið á óvart með góðri frammistöðu það sem af
er og hefur aðeins tapað einum leik, gert eitt jafntefli og unnið þrjá
leiki. Tottenham hefur svo gert það ágætt líka, þvi liðið hefur að-
eins tapað einum leik, gert eitt jafntefli og unnið þrjá leiki. Þessi
lið hafa þvi bæði hlotið 7 stig.
Erfiöur leikur, en ég tek áhættuna og spái heimasigri.
LEEDS—NORWICH 1
Eftir öllum sólarmerkjum að dæma ætti hér að vera einn af
öruggum leikjum á þessum seðli, þvi mér finnst óliklegt annað en
að Leeds vinni þennan gegn nýliðunum i 1. deild. Leeds er nú með
6stig að loknumfimmleikjum, en Norwich hefur hlotið sömu stiga-
tölu að loknum jafn mörgum leikjum.
MAN CHITY—LEICESTER 1
Man. City hefur aðeins hlotið tvö stig eftir 5 leiki, unnið einn leik,
en tapað fjórum leikjum. Leicester hefur hlotið 3 stig, gert þrjú
jafntefli og tapað tveim leikjum. Man. City hlýtur að fara að ná
sér á strik og ef ekkert óvænt kemur fyrir ætti að vinnast sigur yfir
Leicester á Maine Road á laugardaginn.
SHEFF.UTD.—SOUTHAMPTON 1
Sheff. Utd. vann WBA á útivelli um sl. helgi og hefur nú hlotið 5
stig, öll á útivelli, en tapað báðum heimaleikjunum. Southampton
hefur gert fjögur jafntefli, en tapað einum leik og er þvi með 4 stig.
Þótt ég spái Sheff. Utd. sigri I þessum leik, sem þá yrði fyrsti
heimasigurinn, er alls ekki hægt að útiloka jafntefli.
WEST HAM—MAN.UTD. 1
Þetta er nokkuð erfiður leikur. West ham hefur unnið báða
heimaleiki sina til þessa, en gert jafntefli og tapað tveim leikjum
úti. Man. Utd. er á botninum i 1 . deild með 2 stig, tvö jafntefli og
þrjú töp. Möguleiki er á jafntefli í þessum leik, en heimasigur
finnst mér þó koma frekar til greina, enda hefur West Ham unnið
báða leiki sina á Upton Park.
WOLVES—BIRMINGHAM 1
Úlfarnir mæta nýliðunum Birmingham á velli sinum Molineux
Park og ættu að bera sigur af hólmi i þeirri viðureign. úlfarnir
byrjuðu illa, en hafa nú hlotið 7 stig eftir 5 leiki, unnið báða heima-
leikina, en tapað tveim leikjum úti og gert eitt jafntefli. Birming-
ham er með 3 stig, sigur, tap og jafntefli á heimavelli, en tvö töð á
útivelli.
Q.P.R.—MIDDLESBRO 1
Q.P.R. sem var eitt af toppliðunum I 2. deild i fyrra mætir á
laugardaginn Middlesbro á Ellerslie Road i London. Ekki er þessi
leikur siður erfiður viðfangs, en leikir i 1. deild og úrslit ekki auð-
ráðin. Q.P.R. vann Middlesbro heima i fyrra með 1—0 og geri ég
aftur ráð fyrir heimasigri.
Miövikudagur 30. ágúst 1972