Alþýðublaðið - 21.09.1972, Qupperneq 1
alþýðu
UDAGUR 21. SEPT
211. TBL.
TVEIR í FANGELSI
FYRIR OFBELDISRÁN
Tveir 25 ára gamlir menn
hafa verið dæmdir i sakadómi
Reykjavikur i 18 og 14 mánaða
fangelsi fyrir tvö ofbeldisrán,
sem þeir frömdu á siðasta ári.
Dómarnir voru óskilorðs-
bundnir, en auk þess hlaut þriðji
maðurinn fjögurra mánaða
skilorðsbundinn dóm fyrir hlut-
deild i aö eyða þvi, sem aflaöist.
Málavextir voru þeir, að
árásarmennirnir hittu mann
uppi á Rööli. Hann var ölvaður
og hafði mikla fjármuni með-
ferðis og mun þeim hafa verið
kunnugt um það.
Þeir slógust i félagsskap viö
hann og fengu hann til aö fara
með sér að Nausti. Viö rannsókn
málsins þótti sannað, að ráns-
ásetningur hafi skapazt hjá
þeim uppi á Röðli eða a.m.k. i
bifreiöinni á leiðinni niður i bæ.
Þeir létu siðan leigubifreiöina
fara aðeins vestar á Vesturgöt-
una en Naustið er.
Þar kipptu þeir manninum
inn i húsasund, börðu hann nið-
ur, hirtu veski hans og höfðu sig
á brott, en i veskinu voru 42 þús-
und krónur.
Maöurinn komst við illan leik
niður á lögreglustöð og kærði at-
burðinn.
Nokkrum dögum seinna komu
sömu menn rétt fyrir kl. 6 inn i
verzlun i Vesturbænum og biöu
þess, að siðasti viðskiptavinur-
Framhald á bls. 4
„EINS K HEIMA
H)A OKKUR”
SÖGDU SKIPBROTSMENNIRNIR
AF JÚNI EIRÍKSSVNI
Skipbrotsmennirnir fimm af
Jóni Eirikssyni, sem brezka
freigátan Aróra bjargaði 156
sjómilur út af Stokksnesi i fyrra-
dag, komu til Hafnar i Hornafirði
á sjöunda timanum i gær, eftir að
hafa verið um borð i freigátunni i
einn og hálfan sólarhring.
Bátur frá Aróru sigldi með þá
félaga siðasta spölinn til lands og
á bryggjunni voru staddir nær
allir bæjarbúar til þess að taka á
móti þeim.
Alþýðublaðið átti viðtal við
Ástvald Valdimarsson, skip-
stj. Jóns Eirikssonar, rétt eftir
að hann var stiginn inn á heimili
ÚVEHIU
MARGIR
TALDIR
i m
Landhelgisgæzlan taldi óvenju
marga erlenda togara að veiðum
hér við land i gær eða alls 101.
Mestu munar um 19 vestur-þýzka
togara, sem ekki tókst að stað-
setja, nákvæmlega og er þvi talið,
að þeir séu utan markanna.
Niðurstaða talningar gæzlunn-
ar er að öðru leyti þessi:
Fimm vestur-þýzkir suðvestur
af Reykjanesi, 4 suður af
Hvalbak, allir að veiðum fyrir
innan.
Vitað er um 9 brezka út af Pat-
reksfirði, 1 á Strandagrunni, 3 i
Húnaflóaál, 17 á Sléttugrunni, 35
á Þistilfjarðargrunni — eða sam-
tals 65 og allir fyrir innan.
Þrir Færeyingar voru á Húna-
fjarðarál, fimm belgiskir i hólfi
númer sjö út af Snæfellsnesi og
einn i hólfi númer sex suður af
Reykjanesi.
sitt i Höfn um kvöldmatarleytið i
gær.
Hann lét geysivel af aðbúðinni
um borð i Aróru og rómaði mjög
móttökur skipstjóra freigátunnar
Guy F.F. Liorder. ,,Það var
geysigóður viðurgerningur um
borð i Aróru”, sagði Ástvaldur.
Var eitthvað minnzt á 50 mil-
urnar?
Jú, skipstjórinn gerði það einu
sinni i grini. Þegar báturinn var
sokkinn, sagði ég við hann, að nú
hefðum við ekkert að gera til
J'æreyja lengur og ef hann ætti
leið til tslands óskaði ég eftir þvi,
að hann setti okkur i land þar.
„Inn fyrir 50 milur fer ég ekki”,
svaraði þá skipstjórinn og hló. En
hann bætti þvi við, að hann yrði
að biða eftir skipunum að utan.
Það var allt gert fyrir okkur
þarna, sem hugsazt gat.
Skipstjórinn, þetta hefur verið
góður karl?
Já, mjög góður og alltaf sibros-
andi og kátur.
Var ferðafrelsi ykkar takmark-
að um borð?
Nei, við fengum að fara ferða
okkar alveg eins og við vildum.
Ekki nokkur skapaður hlutur fal-
inn fyrir okkur. Við vorum alveg
eins og heima hjá okkur.
Áður en Ástvaldur og félagar
hans yfirgáfu Aróru, voru þeir
leystir út með gjöfum. Þeim voru
gefnir öskubakkar með nafni
Aróru á, myndir af skipinu, rak-
vélar o.fl. Auk þess var tollurinn
opnaður fyrir þeim og þeim gef-
inn kostur á að kaupa sigarettur
og fleira.
Auk Astvalds voru á Jóni Eir-
íkssyni, Jón Einar Jónsson, stýri-
maður, Einar B. Tómasson, 1.
vélstjóri, Tryggvi Ólafsson, 2.
vélstjóri og Kári Sólmundarson
matsveinn.
ÞÚSUND í 300
MANNA PLÁSSI
Það er yfirleitt geysileg aðsókn
á þá réttardansleiki, sem haldnir
eru nú viða um land, en þó mun
aðsóknin liklega hafa slegið öll
met um siðustu helgi, þegar um
eitt þúsund manns voru á réttar-
dansleik, sem haldinn var i Þjórs-
árveri i Flóa, en húsið tekur tvö-
til þrjú hundruð manns með góðu
móti.
Eg get ekki gizkað á hvað bila-
Framhald á bls. 4
OMURLEG SKYRSLA ALÞJOÐABANKANS
ÞEIR FÁTÆKU VERÐA
SlFELLT FÁTÆKARI
Þó að hundruðum billjóna
króna sé árlega varið til efna-
hagsaðstoðar i þróunarlönd-
unum og gifurleg áherzla sé
lögð á aukinn hagvöxt i þeim er
staðreyndin samt sú, að byrði
fátæktarinnar i heiminum eýkst
stöðugt en ekki öfugt.
Þetta kemur fram i nýrri
skýrslu Alþjóðabankans, sem
gefin var út fyrir fáeinum dög-
um, Þar kemur fram,Nað
árangur baráttunnar gegn
fátækt þróunarlandanna sjálfra
og sömuleiðis fólksins, sem þar
býr, sé afar misjafn frá" éinu
landi til annars. En sé litið á
árangurinn i-heild, bendir allt til
þess, að fátæktin aukist sifellt i
heiminum.
Engin önnur stofnun i heim-
inum veitir hinum fátæka hluta
heimsins eins mikla aðstoð og
Alþjóðabankinn,’:en hann veitti
þróunarlán að upphæð 3 billjón-
ir dollara á siðasta ári. 1 skýrslu
bankans segir m.a.:
Þetta stafar að nokkru leyti ,
en alls ekki öllu, af hinni öru
fólksfjölgun i þróunarlönd-
unum, sem dregur úr árangri
þróunarhjálparinnar. —
Skýrslur sem gerðar hafa
verið um hagvöxt i hinum
fátæku löndum heims, leiða i
ljós, að alvarlegustu vanda-
málin á sviði efnahags- og
félagsmála einkennast af gifur
legu launamisrétti, mjög miklu
atvinnuleysi, mjög tiðum ung-
barnadauða. ólæsi meðal mikils
hluta þjóðfélagsþegnanna, al-
varlegum næringarskorti og
sjúkdómum.
Skýrslur þessar byggja á
þeim óhugnanlegu staðreynd-
um, hvernig lifið er i hinum
fátækustu löndum heimsins,
þrátt fyrir mikið átak Alþjóða-
bankans og fjölda margra ann-
arra aðila i hinum rikari heims-
hlutum til aðstoðar þróunar-
löndunum til sjálfsbjargar. —■
STAÐINN AÐ VERKI í FJÓSINU,
SVAMLAÐI GEGNUM HÓP AF LÖG-
REGLUÞJÓNUM, HVARF HUND-
BLAUTUR ÚT í BUSKANN!
Maður, sem talið er að hafi
reynt að eiga mök við kýr í fjósi
einu inni i Laugardal, lagði á
flótta rétt áður en lögreglan
kom á staðinn og tók á rás i átt
að sundlaugunum.
Þótt Tögreglan væri hætt að
vcita honum eftirför, snaraði
hann sér yfir grindverkið um-
hverfis laugarnar og stakk sér
til sunds i öllum fötunum, en þar
voru einmitt nokkrir lögreglu-
þjónar að taka sundsprett!
Laugarvörðurinn bjargaði
mannninum strax uppúr, en i
stað þess að biðja lögregluþjón-
ana, sem voru i lauginni um að-
stoð, hringdi hann á lögreglu-
stöðina og bað þar um hjálp.
Flótta m aðurinn sá þá enn
einu sinni sitt óvænna og tók á
rás eitthvað inn i næsta ibúðar-
hverfi og var úr augsýn þegar
lögreglan kom. Hefur ekkert
spurzt til hans siðan.
Tildrög þessa voru þau, að
bóndinn að Laugabóli i Lauga-
dal, tók eftir mannaferðum i
fjósinu snemma siöastliðinn
i Framhald á bls. 4