Alþýðublaðið - 21.09.1972, Side 2
SITTMED
HVORII SHIOI
Þarna standa þeir hlið við
hlið, gamli timinn og nýi timinn,
i slippnum á Akureyri, hinn
gamli gufukynti Harðbakur og
skuttogarinn Sólbakur, sem
kom til landsins i marz i vor.
Blaðamaður Alþýðublaðsins
var á ferð fyrir norðan um helg-
ina og tók þessa mynd af togur-
unum, en Gisli Konráðsson,
framkvæmdastjóri Otgerðarfé-
lags Akureyringa sagði, að það
gengi ekkert alvarlegt að skut-
togaranum, það væri bara ver-
iða að hreinsa á honum botninn
og mála, sem mun gert tvisvar
á ári. 1 þetta sinn er þó lika ver-
ið að setja i hann nýtt botnstykki
fyrir radar.
Gamli togarinn, Harðbakur,
er aftur á móti i tuttugu ára
klössun, og hann er sá siðasti af
gömlu Akureyrartogurunum,
sem er settur i slika klössun.
Gisli sagði, að Sólbakur hafi
reynzt ágætlega i þeim veiði-
ferðum, sem hann hefur farið i,
en aflinn hefur ekki verið mikill
frekaren hjá öðrum togurum að
undanförnu.
Kannski er hann Harðbakur
gamli að segja hinum unga Sól-
bak frá hinum góðu gömlu dög-
um, þegar hann mokaði upp
þeim gula.
HNÖ: SJÖN-
HÚSRÁÐENDA
Vegna furðulegra æsiskrifa
nokkurra blaða að undanförnu
um viðskipti Leikfélags Reykja-
vikur við húsráðendur i Iðnó, vill
stjórn hússins leyfa sér að gefa
nokkrar upplýsingar um málið.
Um áratuga skeið hefur Leikfé-
lag Reykjavikur haft afnot af
Iðnó fyrir leiksýningar sinar, æf-
ingar allar, geymslur og skrif-
stofuhald. Samkomulag hefur æt-
fð verið um að félagið greiddi
kostnaðarverð fyrir þessi afnot
sin. Hefur Hagstofa tslands verið
fengin til þess á hverju ári að
reikna út kostnaðarbreytingar
Forráðamenn Frjáls framtaks
h.f., héldu fund með fréttamönn-
um nú fyrir skömmu i tilefni þess
að út er komin hjá fyrirtækinu 3.
útgáfa af handbókinni Islenzk
fyrirtæki.
Að sögn forráðamanna Frjáls
framtaks h.f., er tilgangurinn
með útgáfu bókarinnar sá að
koma á framfæri itarlegum upp-
lýsingum um fyrirtæki, félög og
stofnanir, sem leggja áherzlu á
tengsl við almenning. og aðra
aðila i viðskiptalifinu og stjórn-
sýslu.
milli ára og hafa verið gerðir nýir
samningar hvert haust i sam-
ræmi viö það.
Vert er að hafa i huga að hér er
ekki um hreinan húsaleigusamn-
ing að ræða, heldur er innifalið i
,,leigu”-upphæðinni þátttaka fé-
lagsins i öllum rekstri hússins svo
sem m.a. i starfsmannahaldi,
hita, rafmagni, ræstingu, bruna-
vörzlu á hverri leiksýningu o.fl.
o.fl.
Starfsemi L.R siðustu árin hef-
ur verið svo umfangsmikil, að
næstum ógerlegt hefur verið að
leigja húsið til annarra nota. Þvi
1 sambandi við undirbúning og
útgáfu á Islenzk fyrirtæki ’72
ferðuðust fulltrúar Frjáls fram-
taks h.f., um gervallt landið tii að
afla upplýsinga i bókina beint frá
forstöðumönnum fyrirtækja fé-
laga og stofnana, sem i hana eru
skráð. Undirtektir voru mjög
góðar og staðfestu það sjónarmið,
sem lagt var til grundvallar, er
fyrst var ráðizt i útgáfu bókarinn-
ar, að mikil nauðsyn væri á hand-
bæru og hagnýtu uppsláttarriti i
islenzkum viðskiptaheimi.
kemur það i hlut L.R. sem hins
eina eða svotil eina nýtanda húss-
ins að standa undir meginhluta af
reksturskostnaðinum.
Siðasti samningur rann út 30.
júni s.l. Samkvæmt honum voru
greiðslur L.R. miðaðar við sýn-
ingarfjölda.þannig að greidd var
föst upphæð fyrir hverja sýningu,
lækkandi eftir sýningarfjölda.
Hins vegar var ekkert greitt fyrir
önnur afnot af húsinu til æfinga,
sem máttu standa frá kl. 10 til kl.
16 flesta daga. Æfingadaga er
starfsfólk hússins bundið, t.d. i
eldhúsi þar eð starfsfólk L.R. fær
hádegismat o.fl. á staðnum fyrir
lágmarksverð.
Með þessu fyrirkomulagi hafði
L.R. það algerlega i hendi sér
hvað það greiddi fyrir afnotin af
Iðnó. Lágmarksgreiðsla var fyrir
tvær sýningar á viku. Hefði L.R
þá meira að segja getað hagað
sýningum svo að leika tvisvar i
Iðnó en aðra daga t.d. I Austur-
bæjarbiói, en haft eftir sem áður
full afnot af Iðnó og gert húsið
ónýtanlegt til annarra hluta. A
þann hátt hefði L.R ekki staðið
undir nema litlum hluta rekstrar-
kostnaðar Iðnó.
Þegar að þvi kom á þessu
hausti að gera nýja samninga við
L.R. vildi stjórn hússins þyi
Framhald á bls. 4-
ÍSLENZK FYRIRTÆKI 72
ATVINNA RAFHA ATVINNA
Óskum eftir að ráða nú þegar nokkra handlagna iðnverkamenn til
framleiðslustarfa i verksmiðju vorri.
Góð laun og ódýrt fæði á staðnum.
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐIAN,
Hafnarfirði, Simi 50022
SF-flokkurinn
vill virka aöstoö
Norðmanna
Ef nauðsynlegt er, þá á Noreg-
ur að bjóða islenzku landhelgis-
gæzlunni skip og tæki til afnota,
segir miðstjórn norska SF-flokks-
ins i ályktun um landhelgismálið.
SF-flokkurinn biður norsk yfir-
völd og samtök fiskiðnaðarins að
aðstoða og styðja Islandinga i
landhelgisbaráttunni. I orðsend-
ingu frá flokknum segir svo:
,,Miðstjórn norska SF-flokksins
biður samtök fiskiðnaðarins og
yfirvöld um að styðja varnir Is-
lands á fiskveiðilögsögu sinni og
snúast gegn hinum óleyfilegu
veiðum, sem togaraútgerðarfyr-
irtæki frá EBE-löndum og Stóra-
Bretlandi láta skip sin stunda
þar. Hagsmunir rikja, sem næst-
um eingöngu stunda veiðar við
strendur annara rikja, eiga að
vikja fyrir verndunarsjójiarmið-
um fiskstofna og hagsmunum
ibúa strandrikja. Tillitið til til-
verugrundvallar lslands á að
vega þyngra á metaskálunum en
tillitið til brezkra og vestur-
þýzkra gróðasjónarm iða. SF
styður baráttuna „Samhygð
TÖPIIDU í CÆR
I annarri umferð Ölympiuskák-
mótsins i Skopje i Júgóslaviu tap-
aði islenzka sveiíin fyrir hinni
vesturþýzku, en einni skák er ó-
lokið.
Jón Kristinsson, sem teflir á 2.
borði, gerði jafntefli við Pfleger.
Guðmundur Sigurjónsson tapaði
fyrir Hubner á 1. borði. Magnús
Sólmundarson tapaði fyrir
Kersten á 4 boröi, én skák Björns
Þorsteinssonar á 3. borði gegn
Hecht fór i bið og er Björn talinn
hafa lakari stöðu.
Úrslit eru nú kunn úr biðskák,
sem Jón Kristinsson átti frá 1.
umferð viðureigninni við Ný-Sjá-
lendinga, og fór Jón meö sigur af
hólmi. fslenzka sveitin vann
þannig Ný-Sjálendinga með 3 1/2
vinning gegn 1/2.
(solidaritet) með íslandi”.
Til þess að hægt sé að ábyrgjast
auðæfi hafsins og tryggja undir-
stöðu atvinnulifs strandbúa er
nauðsynlegt að færa einnig fisk-
veiðilögsöguna i Noregi út i 50
milur. Stuðningur við islenzku
þjóðina er þvi einnig stuðningur
við þá norsku.
Ef nauðsynlegt er, þá á Noreg-
ur að bjóða islenzku landhelgis-
gæzlunni afnot skipa og tækja”.
Genginn í lið
með dönskum
Þá hcfur Raymond Burr,
scm leikur m.a. aðalhlutverk-
ið i sjónvarpsþáttunum um
Ironsidc, ákvcðið að standa að
framleiöslu og taka að sér
aöalhlutverk i kvikmynd um
andspyrnuhreyfinguna
dönsku frá árum seinni heims
styrjaldarinnar. Danskur
kvikinyndagerðarmaður á
hugmyndina og hefur fengið
Burr i liö með sér.
Burr á að leika ameriskan
flugmann, sem kemur til
Kaupmannahafnar 25 árum
eftir að hann tók þátt i baráttu
mótspyrnuhreyfingarinnar og
rifjar upp gömul kynni og at-
burði.
Þrjú árásarmál
verða flutt í dag
1 sakadómi Reykjavikur verða i
dag flutt mál þriggja manna, sem
valdir eru að meiri háttar likams-
meiðingum á sitt hverjum
skemmtistaðnum i Reykjavik.
Alvarlegasta árásarmálið átti
sér stað við Sigtún á árinu 1970.
Maður var sleginn mjög þungu
höggi þar fyrir utan og höfuð-
kúpubrotnaði. Auk þess skaddað-
ist heyrn hans og er enn ekki út-
séð um hvort hann fær heyrn á
öðru eyranu.
Hin málin tvö eru bæði frá sið-.
asta ári. t öðru tilfellinu var um
að ræða slagsmál i Klúbbnum,
sem leiddu til nefbrots.
Þriðja málið er óhugnanlegra,
þótt meiðsl hafi ekki verið mjög
alvarleg.
Fullorðinni konu var hrint fram
af stigapalli i samkomuhúsi við
Brautarholt 4 og við það brotnaði
geislabein vinstri handar viö úln
lið.
Áverkinn er ekki mikill, en
mjög óþægilegur.
Ósakhæfur tekinn enn
Ungur sibrotamaður bráuzt inn
á sex stöðum i Reykjavik i fyrri-
nótt og stal þar að auki einum bil,
en lögreglan náði að handsama
hann á einum innbrotsstaðanna.
Piltur þessi er aðeins 18 ára, en
samt sem áður skipta afbrot hans
tugum, að þvi er rannsóknarlög-
reglan segir, en hún hefur nær
stöðugt haft afskipti af honum i
mörg ár.
Pilturinn framdi fjölda inn-
brota áður en hann varð 16 ára, en
þá var hann ekki sakhæfur vegna
æsku sinnar. Nú hafa læknar
hinsvegar úrskurðað hann ósak-
hæfan, vegna geðtruflana eða af-
brota ástriðu.
Þrátt fyrir það hefur pilturinn
setið inni helming þess tima frá
þvi að hann varð 16 ára, ef allt er
lagt saman. Þegar læknar töldu
hann ósakhæfan, úrskurðuðu
þeir hann i geðrannsókn, en þvi
mun aldrei hafa verið framfylgt
að fullu.
©
Fimmtudagur 21. september 1972