Alþýðublaðið - 21.09.1972, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 21.09.1972, Qupperneq 3
GLENS A BAK VIÐ RIMLANA Arabiskir hryðjuverkamenn eru nú daglega i fréttum að heita má og nú síöast i sam- bandi við morðið á israeiska sendiráðsmanninum i London og svo fleiri morðtilraunir á sama sólarhringnum með vitis- vélum, scm þeir senda embætt- ismönnum israels i pósti. Myndirnar hér efra eru þvi for- vitnilegar. Þær eru af arabísk- um konum, sem starfað hafa með hryðjuverkamönnunum, en „tapað leiknum” og fallið í hendur sjálfum „erkifjendun- uni”, israelsmönnum. Mynd- irnar eru samsagt teknar i isra- clsku fangelsi og cr tilefnið það, þegar Arabakonurnar og aðrir kvcnfangar þarna fengu að færa upp leikrit. A efstu myndinni er fangclsisstjórinn i miðið — og sýnist hafa boðið upp á svala- drykk — cn konurnar, sem standa honum sitt til hvorrar handar, fengust meðal annars við að smygla sprengiefni til arabiskra hryðjuverkamanna i ísrael. Neðri myndin til hægri sýnir atriði úr leikritinu, sem sýnt var i fangelsinu, en sú við borðið er raunar ekki fangi heldur fangavöröur. Loks er svo mynd af einuin áhorfenda, Riinu Tannous, sem var ein tveggja arabiskra kvönna, sem tóku þátt i tilrauninni til að ræna Sabena flugvél á flugvellinum við Tel Aviv á siðastliðnu vori. Eins og rnyndin sýnir var Rima samt ekki laus meöan sýningin fór fram. Hún var geymd i klefa, sem þó var þannig stað- settur, að hún gat fylgst með gamninu gegnum rimlana. AMIN ER ENN ÞÁ VIB SAMA NYERERE KALLAR HANN „GEÐVEIKT FÍFL” Við minningarathöfn um fallna Ugandahermenn i gær hótaði Adi Amin, forseti Uganda (myndin), nýjum árásum á bækistöðvar Ugandaskæruliða i norðurhluta Tanzaniu, en hann hélt þvi fram, að nýjar innrásir i Uganda væru nú ráðgerðar þaðan. Útvarpið i Uganda haföi það einnig eftir Amin i gær, að flugher og landgönguliði verði gefin skip- un um árásir á herbækistöðvar Tanzaniumanna, þar sem þar sé einnig verið að ráðgera innrásir i Uganda. Amin fullyrðir lika, að Julius Nyerere, forseti Tansaniu, ætli að senda 10.000 hermenn og skribdreka að landamærunum til þess að herja á Uganda. Amin staðhæfir að Nyerere og vinurhans, Obote, fyrrum forseti Uganda, hafi þjálfað skæruliða, sem geti barizt við hvaða her sem er, og skæruliðarnir njóti stuðn- ings brezkra, tanzaniskra og israelskra hermenna. Dagblaðið Daily News i el Salaam sagði i gær, að Amin væri álika innrættur og brjálaður og TVEIR BANKAR LEGGJfl í PÚKKIÐ Forsætisráðherra barst þriðju- daginn 19. þ.m. tilkynning frá Seðlabanka Islands þess efnis, að bankaráð hefði ákveðið aö gefa 5 milljónir króna i landssöfnun til Landhelgissjóðs. Jafnframt barst forsætisráð- herra tilkynning frá Landsbanka Islands um að bankaráð hans hafði ákveðið að gefa 3 milljónir króna i sama skyni. Hefur forsætisráðherra þakkað gjafirnar og lýst ánægju sinni yfir þeim skilningi á þessu nauðsynja- máli, sem gjafirnar bera vott um. Hitler, og að hættulegt sé fyrir Afrikurikin að slikur maður sé við völd i einu þeirra. Þá sagði Nyerere i gær á fundi með skandinaviskum blaða- mönnum að hann muni ekki þola fleiri loftárásir frá Ugandamönn- um. Hann kallaði Amin við sama tækifæri „geðveikt fifl”. VILTU KAUPA LEIKHÚS? BYRJA ÞEIR NÆST AD HOTA MEÐ KJARNORKUSPRENGJUM VÍSINDAMENN VARA VIÐ HRYÐJUVERKA-AAAFÍUNNI Fyrr á þessu ári birtust alltaf við og við i Lögbirtingablaðinu tilkynningar um nauðungarupp- boð á eign Þjóðleikhússins við Hverfisgötu. Þá var skýrt frá þvi, að hér væri ekki um að ræða trassaskap af hálfu Þjóðleikhússins, heldur hægfara millifærslur fjármuna milli rikisstofnana. Nú er Þjóðleikhúsið enn komið •á listann yfir nauðungaruppboð. Að þessu sinni vegna kröfu Gjald- heimtunnar samkvæmt lögtaki fyrir u.þ.b. einni og hálfri milljón króna. Getur sá dagur runnið, að Mafia arabiskra hryöjuverka- manna ógni heiminum með kjarnorkusprengju? Spurningin hljómar eins og hún væri tekin upp úr einhverri af bókum Ian Flemmings, en hún er ekki út i hött að áliti 220 leiðandi vísindamanna frá 45 löndum austurs og vesturs. Þeir hafa nú sent frá sér möguleika, að slik ógnun samvizkulausra glæpa- manna eða pólitiskra öfgamanna geti blasað við einhvern góðan veðurdag. Aðvörunina sendu visinda- mennirnir út að aflokinni 22. Pugwash Conference, sem stóð i 6 daga i Oxford I Englandi i siðustu viku. Einn visindamannanna, pró- fessor Joseph Rotblat, sagði i við- tali eftir ráðstefnuna: „Eftir þvi sem fleiri riki eignast kjarnorku- vopn aukast likurnar á þvi, að einstaklingar eða hópar manna geti með flugránum eða öðrum hætti komizt yfir nægilegt magn af plútonium til að framleiða eig- in kjarnorkusprengju, eina eða fleiri”. Mr. Rotblat, sem er 63 ára gamall prófessor yfirmaður læknaskólans við St. Bartholomew’s Hospital i Lond- on, er jafnframt ritari Pugwash Conference, en hlutverk ráðstefn- unnar er, að fremstu visinda- menn heims eigi þess kost ööru hverju að bera saman bækur sin- ar um það hvernig tryggja megí öryggi fólks á atómöld i sambýl- inu við ógnir gereyðingarvopna samtimans. Ráðstefnan, en henni lauk i sið- ustu viku, komst að þeirri niður- stöðu, að kjarnorkustöðin i Dounreay á Skotlandi gæti hæg- lega orðið hryðjuverkamönnum, samvizkulausum glæpamönnum eða pólitiskum öfgamönnum að bráð. Kjarnakljúfar stöðvarinnar framleiða meira af plútonium en hún hefur þörf fyrir. Búast visindamennirnir við, að innan’ skamms muni þessi plútonium-framleiðsla ganga kaupum og sölum eftir lögmálum framboðs og eftirspurnar. Smáriki þyrfti aðeins að kom- ast yfir 1% af árlegri plútonium- framleiðslu stöðvar þessarar til þess að geta búið til eigin kjarn- orkusprengju. Mr. Rotblat segir i fyrrgreindu viðtali, að glæpaflokkar á borð við Mafiuna eða hópar hryðju- verkamanna, sem einskis svifast, gætu hæglega rænt nægilegu plútonium-magni til að fram- leiðsla kjarnorkusprengju og bendir i þvi sambandi á öll flug- Framhald á bls. 4 HARKALEGIR AREKSTRAR Það virðist ætla að veröa sama sagan á nýja veginum á milli Reykjavikur og Selfoss og á Keflavikurveginum, að ef slys verða eru þau mikil. Þannig var það i fyrradag, að tveir bilar lentu þar saman á vegamótunum út i Þorlákshöfn við Hveragerði. Billinn, sem ók eftir nýja veginum var á allmik- illi ferð, er hinn ók i veg fyrir hann. Skullu þeir harkalega saman og eru báðir stórskemmdir en tvennt slasaðist, sem var i öðrum bilnum og talsvert mikið og voru þau flutt i sjúkrabil á spitalann á Selfossi. ökumaðurinn, sem var einn i hin- um bilnum, slapp hinsvegar ó- verulega meiddur. Sama dag ók fullhlaðinn vöru- bill aftan á annan vörubil við Iðu- brú, en þótt' bljhús þess, sem aft- an á ók, legðist nær alveg saman, slapp ökumaður ómeiddur. T ækniskólakennarar byrjað vinnu — með Kennararnir hafa nú sjálfir bjargað menntamálaráðuneyt- inu úr þeirri klipu, sem það var komið i vegna seinagangs á af- greiðslu launakrafa kennara við Tækniskólann, og hafa þeir haf- ið kennslu með þeim fyrirvara að endanlega verði búið að ganga frá málunum fyrir 1. nóv- ember, sagði Jón Bergsson deildarstjóri i Tækniskólanum i viðtali við blaðið i gær. Sem kunnugt er, rituðu kenn- arar við skólann menntamála- ráðuneytinu bréf fyrir allmörg- um mánuðum, og óskuðu þess, að kjör þeirra yrðu ákveðin fyr- ir haustið, ella hæfu þeir ekki kennslu. Afgreiðsla málsins dróst svo á langinn alveg fram til siðustu hafa fyrirvara mánaðamóta, að ráðuneytið skipaði nefnd, sem á að skila áliti fyrir næstu mánaðamót. Siðan hefur ráðuneytið einn mánuð til að kveða upp úrskurð i málinu. Aðalkröfur kennaranna eru að stundakennarar lúti sömu reglugerð og kennarar við Há- skölann, og fastakennarar vilja 24 stunda kennsluviku i stað 27. Q Fimmtudagur 21. september 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.