Alþýðublaðið - 23.09.1972, Blaðsíða 9
IÞROTTIR 3
BOLT-
ANUM
VERÐUR
MIKIÐ
OG VÍÐA
SPARK-
AÐUM
HELGINA
Það verður margt um að vera
hjá knattspyrnumönnum og kon-
um um helgina og hætt er við að
knattspyrnuunnendur megi hafa
sig alla við, ef þeir ætla að fylgj-
ast með öllum þeir leikjum, sem
þá fara fram en margir þeirra
verða án efa spennandi og
skemmtilegir.
A laugardaginn lýkur 1. deildar
keppninni i ár með leik Fram og
Vals, sem fram fer á Melavellin-
um og hefst kl. 14.00. Fram hefur
sem kunnugt er þegar tryggt sér
Islandsmeistaratitilinn i ár og
spurningin er aðeins sú, hvort
þeim tekst að hljöta þrem eða
fimm stigum fleira, en næsta lið.
Fram hefur þegar hlotið 21 stig,
en Vestmannaeyingar koma
næstir með 18 stig og hafa lokið
leikjum sinum.
Að loknum leiknum verður Is-
landsmeistarabikarinn afhentur
og eru margir heldur óhressir yfir
þvi, að sú virðulega og skemmti-
lega athöfn, sem raunar er há-
punktur mótsins, skuli þurfa að
fara fram við frumstæðar að-
stæður á Melavellinum i stað þess
að gera það á Laugardalsvellin-
um, þar sem verðlaunaafhend-
ingin mundi njóta sin mun betur.
Það er Baldur Scheving fyrir-
liði Fram, sem tekur á móti Bik-
arnum fyrir liö sitt, en svo
skemmtilega vill til, að Baldur
var einnig i liði Fram árið 1962, en
þá vann Fram Bikarinn siðast.
Strax að leik Fram og Vals
loknum koma ungir knattspyrnu-
menn frá Breiðabliki i Kópavogi
og Val og leika til úrslita i Is-
landsmóti 4. flokks. Leikir yngri
flokkanna eru ekki siður
skemmtilegir, en leikir hinna
eldri og vitað er að Breiðablik og
Valur eiga góðum leikmönnum á
að skipa i þessum aldursflokk.
Þá fer fram leikur a Akureyri i
Bikarkeppni 2. flokks milli
heimamanna og Stjörnunnar úr
Garðahreppi.
Það er vissara að vera árrisuil
á sunnudagsmorguninn, ef ekki á
að missa af þeim leikjum, sem
fram fara þann dag. Kl. 10.30 fer
fram leikur i 2. deild á Melavell-
inum milli Þróttar og tsfirðinga.
Kl. 11.00 fer hinsvegar fram leik-
ur á vellinum i Kópavogi, sem
marga mun fýsa að sjá, en það er
úrslitaleikurinn i fyrsta tslands-
móti kvenfólks i knajtspyrnu
utanhúss, sem fram fer hér á
landi. Þar mætast lið Fram og FH
i Hafnarfirði og er ómögulegt að
spá fyrir fram um úrslit i þeim
leik, þar sem bæði félögin hafa
jöfnum liðum á að skipa.
Þeir leika sinn seinni leik á Laugardalsvellinum ámorgun og Ieikurinn hefst kl. 14. Það er norska liðið
Viking, sem er á efri myndinni, en á neðri myndinni er Vestmannaeyjaliðið, sem nú ætlar að bæta fyrir
heppnissigur Norðmannanna. Og það má gera ráð fyrir hörkuleik, þvi Eyjamenn eru sigurvissir, en
þurfa að vinna stórt. Og það voru Norðmenn, sem unnu fyrri leikinn.
STORILEIKURINN VERÐUR
MILLIÍBV OG NORDMANNA
Þá komum við að aðalleik
helgarinnar, sem fram fer á
Laugardalsvellinum og hefst kl.
14.00, en það er siðari leikur Vest-
mannaeyinga og Vikings frá
Stavanger i E.U.F.A. Bikarnum.
Búast má við mikilli baráttu i
þeim leik, enda er mikið i húfi
fyrir bæði liðin. Vikingur vann
fyrri leikinn, sem fram fór i
Stavanger i s.l. viku með 1-0 og
voru heppnir að fara meðsigur af
hólmi i þeirri viðureign. Nú er
stund hefndarinnar runnin upp
fyrir Vestmannaeyinga og ætla
þeir að selja sig dýrt og stefna að
þvi að sigra og vinna sér rétt til
þátttöku i 2. umferð keppninnar.
Fyrir þá sem ekki hafa fengið
sig fullsadda af knattspyrnu, skal
bent á aðskreppa inn á völl Þrótt-
ar við Sæviðarsund strax að lokn-
um leiknum a Laugardalsvellin-
um, þvi að kl. 16.30 hefst þar einn
af úrslitaleikjunum i islandsmóti
2. flokks, milli Akurnesinga og
Fylkis. Auk þeirra liða hafa Vest-
mannaeyingar tryggt sér þátt-
töku i úrslitakeppninni.
Að lokum óskum við við knatt-
spyrnumönnum og knattspyrnu-
unnendum góðrar og skemmti-
legrar helgar.
Hdan.
-----------------------o
Laugardagur 23. september 1972