Alþýðublaðið - 24.09.1972, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.09.1972, Blaðsíða 4
SUHIR FYLLAST SKELFINGU AF TILHUGSUNINNI UM TÖLUNA 13 AÐ MflÐUR TALI Nll EKKI UM EF FflSTUDAG BEB UPP fl 13. DAG MANAÐflR - EN HVAD SEGIR SAGAN UM TÖLUNA 13 OG HJÁTRÚ ÞAR AÐ LÚTANDI? Margir eru þeir, sem lita á töluna 13 sem óhappatölu, og þá er ótrú þcirra h já trúa rfu 11 u gjarnan bundin tölunni i hvaöa mynd sem er. bar sem hjátrú hefur veriö viöfangsefni þeirra sem þjóösögur rita, og á þvi i gegnum þær greiöan aögang að islenzkum lesendum, ætlum viö aö bregöa upp smámynd af þessari ..hroöalegu” tölu, þegar þrettándi dagur mánaöarins kemur upp á föstudegi. Og til þess nú að benda á aö hjátrú sé ekki eingöngu islenzkt fyrirbæri munum viö leita um allan heim að þeirri heildarmynd sem viö birtum hér. Að dómi hinnar átján ára llrsulu Schamel, var föstudagurinn 13. marz 1964 aðeins venjuiegur vinnudagur, Hún vann sem hraðritari á skrifstofu útvarpsframleiðslufyrir- tækisins Grundig i Fuerth i Vestur-Þýzkalandi. Hún beið einungis eftir þvi að klukkan yrði fjögur, þvi strax aö vinnudegi loknum ætlaöi hún meö vini sinum, sem var bandariskur i helgarlerðalag. Þetta föstudagskvöld hringdi hún til foreldra sinna og sagði þeim aö hún hyggðist sofa hjá vinkonu sinni um nóttina. Þvi næst l'lýtti hún sér til þess aö ná lestinnisem fórkl. 18,17 til Bayreuth, þar sem hún ætlaöi aö hitla Gerald M. Werner liösforingja. Hinn 26 ára gamli Werner kom á brautarstöðina á gamla DeSoto bilnum sinum, og þaöan héldu þau aö Hegel Strasse 19, sem var al- ræmd villa þarna i hverfinu. Kr þangað kom hreiöruðu þau um sig á fyrstu hæö þessa stóra ein- býlishúss. og fengu sér nokkra drykki. Þar sagði llrsula Werner aö hún væri ófrisk og komin fjóra mánuði á leið. Þvi næst kvaðst hún ætla i bað. og bauð Werner aö baöast með sér. Þegar hann kom inn i baðherbergið, og sá hina nöktu og ófrisku stúlku, trylltist hann. Hann beygði sig niöur greip um hálsinn á henni og herti að. Næsta dag fannst sundurtætt lik llrsulu dreift um allstórt svæði meöfram hraöbrautinni frá Munehen til Berlín. Ilún varö fórnarlamb ógeöslegasta glæps sem nokkur erlendur her- maöur haföi framið i Þýzkalandi, eftir strið. Þessi föstudagur hins þrettánda, varð lika óheilladagur fyrir Werner, sem siðar fékk viðurnefniö ..Barnalega ófreskjan frá Bayreuth.” Eftir ýtarlegar yfir- heyrslur bugaöist hann og viöurkenndi verknað sinn. Varö hann fyrsti erlendi hermaöurinn sem dæmdur var aö þýzkum lögum. Hann var dæmdur geö- veikur og skyldi þvi dvelj- ast á geöveikrarhæli um óákveðinn tima. Gangið þér hægt um á þessum dögum, þaö er aö segja föstudegi þann þrettánda? Afþakkið þið boö eða ferðalög? Forðizt þið aö taka mikilvægar ákvarðanir á þessum dög- um? Þó svo að það virðist kjánalegt, þá eru þúsundir manna um allan heim, sem einmitt gæta sin sérlega vel þessa daga. 1 Bandarikjunum einum er talið að hundr. milljóna af dollurum l'ari i súginn af þessum sökum. Hjátrúar- fullt fólk neitar að ganga frá verzlunarsamningum og inna greiðslur og annað af hendi þegar þrettánda dag mánaðarins ber upp á föstudegi. lljátrúarfull þvæla? Eftir þvi sem visindin komast næst: Já. Það er engin ástæða til að óttast þennan dag öðr- um fremur. eöa svo segir heilbrigð skynsemi. Þó lifir vel i glóðum hjátrúar- innar um töluna 13, og þá sér i lagi um föstudaginn þrettánda. Sálfræðingur nokkur hefur útskýrt þetta á þann hátt, ,,að við” vitum ,,að föstudagurinn þrettándi i mánuðinum hefur ætið verið óheilladagur. Hafi maður sjálfur orðið fyrir skakkafalli á þessum degi, er það nóg til þess að maður fari ósjálfrátt að varast hann, um alla framtið.” Einn er sá maður meðal annara, sem hefur ótrú á deginum, en það er hnefa- leikarinn Muhammed Ali (Cassius Clay). Föstu- daginn 13.nóvember 1964, þrem dögum áður en hann átti að verja titil sinn i fyrsta sinn. varð hann fyrir slysi. sem gerði það að verkum að hann gat ekki keppt i hnefaleikum næstu sex mánuðína. önnur manneskja sem á erfitt með að gleyma slik- um bannsettum föstudegi, er frú Florence Edgar. Þá var það föstudagurinn 13. febrúar 1948. Hún sat ásamt manni sinum og börnum. að snæðingi á heimili þeirra i Falldon Way. Þegar maður henn- ar. sem var lögreglu- maður, hélt af stað til vinnu stanzaði hann i dyrunum og sagöi. eftir að hafa litið á dagatalið. — Ég sé þig i kvöld, ef ég kem til baka? Að visu var þetta sagt i grini. en Florence sá hann aldrei framar. Þetta kvöld stöðvaði Nathaniel Edgar mann nokkurn, sem hann áleit að væri að koma frá inn- broti. Maðurinn, Donald George Thomas var lið- hlaupi úr hernum, reif fram skammbyssu og skaut þrem skotum' i Edgar sem hné niður særður til ólifis. Hann var fyrsti enski lögreglu- maðurinn sem drepinn var við skyldustörf i meira en sex ár. Afleiðingarnar af morðinu urðu mestu mannaveiðar, sem yfir England höfðu dunið. Seinna var gerð kvikmynd um atburðinn ,,The Blue Lamp” þar sem Jack Warner lék sitt fyrsta hlutverk af mörgum, sem leynilögreglumaður, Til allrar hamingju er það oftast leiðinda smá- óhöpp sem koma hinu illa orði á föstudaginn þann þrettánda. Eins og til dæmis sagan um hinn þjóðsagnar- kennda höfuðsmann i flug- her Hennar Hátignar, Douglas Bader. Það var föstudagur þrettándi júni 1952, Bader var úti að viðra hundinn sinn, þegar hann féll i Serpentine vatnið i Hyde Park garðin- um. Hann staulaðist upp á bakkann og flýtti sér heim til þess að skipta um föt. Þennan dag átti hann að afhenda prófskirteini við Bromsgrove heimavistar- skólann i Worcestershire. Til þess nú að flýta fyrir sér, ákvað Bader að fljúga til Bromsgrove i flugvél sinni, sem var af Miles Gemini gerð. En þá skall á þoka yfir Midlands, þannig að hann varð að snúa við, Loks komst hann þó til skólans, og það akandi. tveim timum of seint. Og við athöfnina sagði hann. ,,Ef ég hefði vitað hvaða dagur var, hefði ég ekki farið út fyrir húsins dyr i allan dag”. Þið getið hlegið að þessu. en áður en þið gerið það, ættuð þið að lita á ör- lög þeirra sem haf boðið hjátrúnni byrginn. Og i þeim efnum höfum við ákjósanlegt dæmi, þar sem Sir Henry Segrave er- Sir Henry Segrave átti hraðaheimsmetið i bif- reiðaakstri og ákvað að eignast hraðaheimsmetið i siglingum. Dagurinn sem hann valdi til þess að gera þá tilraun að veruleika var föstudagurinn þrettándi júni 1930, og staðurinn Lake Windermere. Um leið og hann sté um borð i hinn silfurlita tveggja mótora hraðbát Miss England II, varð ein- um af hinum mörgu áhorfendum að orði: Með tilliti til dagsetningarinn- ar væri vist bezt að fá eiginhandaráritun hjá yður. áður en þér leggið af stað". Segreve glotti og skrifaði nafn sitt með miklum glæsibrag. og hlustaði aðeins með öðru eyranum eftir þvi sem einn af aðstoðarmönnum hans. Michel Wilcocks frá Cleveland sagði;.,Það mun allt ganga vel.herra, föstu- dagurinn þrettándi er minn happadagur”. Segrave setti nýtt heimsmet, óg var meðal- hraðinn 159 km á klst. Á bakaleiðinni ætlaði hann að slá sitt eigið met, og þegar hann var að nálgast 195 km hraða kollsteyptist báturinn með miklum boðaföllum og skall niður með botninn upp i loft. Hraðametskonungurinn og viðgerðarmaður að nafni Vic Halliwell létu þarna lif sitt, en Wilcocks hinn heppi bjargaðist á einhvern undursamlegan, hátt. Rannsóknir á slysinu leiddu i ljós að báturinn hafði siglt á litinn trjábút. Og likindareikningur sýndi, að það var 1 á móti milljón að slikt gæti skeð. Þeir sem hvað mesta ótrú hafa á þrettánda degi mánaðarins og ekki sizt ef hann ber upp á föstudegi eru sjómenn. Að hefja ferð á slikum degi telst til dauðasyndar i þeirra aug- um. En þrátt fyrir það litu embættismenn i landi öðr- um augum á hlutina, þegar skipið City of Benares var skipað til brottferðar föstudaginn þrettánda september 1940. Var ferðinni heitið til Canada og voru far- þegarnir hundruð flótta- barna. Fjórum dögum siðar varð skipiö fyrir tundurskeytaárás og 38 börn létu lifið. En hvers vegna er litið á föstudaginn þann þrettánda sem óheilla- dag? 1 eðli sinu sem slikur, hefur föstudagurinn á sér lélegt orðspor þvi hann er krossfestingardagur Krists. En hjátrúin varðandi föstudaginn nær miklu lengra aftur i timann en til atburðarins á Golgatahæð. Hægt er að rekja hjátrúna á föstu- deginum aftur i gráa forneskju. Að talan 13 sé óheillatala kemur til af siðustu kvöldmáltið Krists. Þeir voru þrettán sem þá snæddu saman. Siðan er það hald manna, að snæði þrettán ’manns saman við sama borð að kvöldlagi mun einn þeirra deyja áður en árið er liðið. Hræðslan við töluna þrettán er svo mikil i U.S.A. og þá sér i lagi við föstudaginn þrettánda, að stofnuð hefur verið hreyfing þar, þess eðlis að koma þeim bölvaða degi út af öllum almanökum. Áætlunin er sú, að gera nýtt almanak þar sem marz, júni, september og desember innihaldi hver um sig 31 dag, en hinir mánuðirnir allir hafi hver fyrir sig 30 daga. Nýárs- dagurinn á að verða al- þjóða helgidagur sem til- heyrir engu ári, Með þessu fá allir dagar sinn ákveðna mánaðardag og alltaf þannsamaár eftir ár. Og allir hátiðisdagar myndu þvi koma upp á sama degi ár hvert. En svo eru það aðrir er reyna að eyða hjátrúnni. Kvikmyndaleikstjóri einn bauð einu sinni til erfi- drykkju á föstudegi sem var þrettándi mánaðarins. Veizlusalurinn var skreyttur sem likhús og komu gestirnir i likvögn- um til gleöskaparins. Bandariskur félags- skapur, sem kallar sig Baráttumenn gegn hjátrú i Bandarikjunum hefur þrettán manna stjórn. Heldur stjórnin sérstaka stjórnarfundi hvern þann föstudag sem ber upp á þann þrettánda. Hefst fundurinn kl. 18J5 i her- bergi númer 1313 á hóteli i Chicago. Stjórnar með- limirnir brjóta spegla, strá niður salti, ganga undir stiga. opna regn- hlifar innandyra, sparka i skeifur, pynda svarta-ketti og kveikja i þrem sigarett- um með sömu eld- spýtunni. Árið 1962 færði félag þetta, geimfaranum John Glenn úr að gjöf. Allar tölurnar á úrinu voru tal- an 13. Var gjöfin viður- kenning Glenn til handa þar sem honum hafði verið skotið upp i 13.geimskipinu sem Bandarikjamenn skutu á loft. Er Glenn flutti þakkarávarp sitt fyrirúrið, var hann beðinn um að tala annað hvort i 13 sekúndur 13 minútur eða 13 klukkustundir. Hann þakkaði fyrir sig á nákvæmlega 13 sekúnd- um. En jafnvel John Glenn gat gengið of langt. hvað heppninni viðkom. Þessi maður sem hafði hring- sólað i kringum hnöttinn án skakkafalla rann til eitt sinn er hann var i bað- herbergi sinu, datt og sló höfðinu við. Urðu af- leiðingarnar þær, að hann fær svimaköst öbru hverju og varð að hætta við þær ráðagerðir sinar, að reyna að ná kosningu til banda- riska þingsins. UNDARLEGAR STADREYNDIR UM FÖSTUDAGINN ÞANN ÞRETT- ánda. Ungur viðskiptamaður frá Burnley, David Warren að nafni, varð svo hræddur vegna tveggja óhappa sem hann hafði lent i á föstudegi sem bar upp á þann þrettánda, að hann tryggði hús sitt fyrir 25 þús. pund þegar hann hélt á knattspyrnuleik einn slikan föstudag. Mesta sprengjuregnið sem yfir Buckingham Palace kom i seinni heim- styrjöldinni kom föstu- daginn þrettánda sept. 1940. Charles Joiner frá Leicester var svohjátrúar fullur. að enginn máttur gat fengið hann til þess að snúa sér við i stiga. Dag nokkurn þegar hann var á leið upp á aðra hæð i húsi sinu heyrði hann undarleg hljóð fyrir aftan sig. Frekar en að snúa sér við reyndi hann að ganga aftur á bak niður stiga, en við þá tilraun missté hann sig og féll aftur fyrir sig. Hálsbrotnaði hann af fallinu og lét þar lif sitt. Dagurinn var föstu- dagurinn þrettándi júli 1962. Kafbáturinn Truculent átti að leggja af stað i jóm- frúarferð sina föstudaginn 13. janúar 1930. En þar sem skipstjórinn var svo hjátrúarfullur, fékk hann þvi til leiðar komið, að skipið hélt til hafs degi fyrr. En forlögin gripu i taumanna. Um nóttina sigldi sænska oliuskipið "Divina á kafbátinn og sökkti honum i mynni Thames, með 65 manns innanborðs, sem allir drukknuðu. Harold Macmillan fyrr- verandi forsætisráðherra Breta notaði föstudaginn 13.júli 1962 til þess ab reka sex af ráðherrum sinum. Föstudaginn 13. desem- ber 1957 reyndi heimilis- iaus negri að fremja bankarán i New York. En það átti ekki af ræflinum að ganga. Bankinn var yfirfullur af lögregluþjón- um sem voru að innleysa launaávisanir sinar. Föstudaginn 13. april 1956 ætlaði töframaðurinn George Grimmond ab reyna að ná meb tönnun- um byssukúlu, sem skotið var úr skambyssu. Þessi þraut hafði kostað tólf menn lifið. Búningsher- bergi hans var númer 13, og hann var þrettándi i röðinni af þeim skemmti- kröftum sem áttu að skemmta i BBC sjón- varpinu þetta kvöld. Hann lifði þessa tilraun af, en mikiö slasaður og ber nú mikla virðingú fyrir töl- unni 13. Vorster forsætisráð- herra Suður-Afriku er fæddur 13. desember 1915, sem þrettánda barn foreldra sinna. Hann var talinn þrettándi æðsti maður rikisstjórnarinnar, og hafði verið þingmaður i 13 ár, þegar hann varð for- sætisráðherra. Hinn 13. september 1966. Þegar dr. Verwoerd var til moldar borinn, ók Vorster i bil númer 13. Og forgjöf hans i golfi er 13 högg. Makarios erkibiskup er fæddur 13, ágúst 1913. Hann varð prestnemi 13 ára gamall og vigðist til prests 13. nóvember 1946. Varð biskup 13. júni 1948 og forseti Kýpur (sem þá var 13. landið i hinu brezka samveldi) 13. desember 1959. Gamanleikarinn Robertson Hare elskar töluna 13. Hann hitti konuna sina þann 13. marz 1913, og 13. april 1922 var ieikrit hans ,,Tons of Money” frumsýnt,en það skóp honum mikla frægð. Og það eru þrettán bók- stafir i nafni hans. Þegar Margrét prinsessa fæddist þorði faðir hennar þáverandi hertoginn af York, ekki að láta skrá fæðinguna. Hún hefði verið skráð á eyðublað nr. 13, i stað þess var nafn George nokkurs Brown skráð á þetta eyðublað. Arið 1962 slasaðist hann alvarlega i dráttarvélar- slysi og dagsetningin: Föstudagurinn 13. júli. Þrir bandariskir for- setar hafa verið skotnir á föstudegi, þeir Lincoln, Mckinley og Kennedy. Lincoln var meira að segja skotinn á föstu- deginum langa. h’yrsta herdeildin sem var þurrkuð út i fyrri hei ms ty r jöldi nni var Rússneska 13. herfylkið. Fyrsti kafbáturinn sem sökkt var var U-13 og fyrsti enski kafbálurinn sem leið þau örlög, var E- 13, sem sökkt var út af ströndum Danmerkur. K- 13 sökk i mynni Clyde fljóts og fórust allflestir, sem i honum voru. Hinn 13. júli 1932 keypti Maharinn af Rajpipla, hestinn Windsor Lad fyrir 1300 gineur. Tveim árum seinna mætti Maharinn á sinar 13. Derby veðreiðar i röð. Windsor Lad var með númerið 13 og sigraði, Meðal þess fólks sem hefur neitað að sitja sem þrettándi maður til borðs, eru Sir Winston Churchill, George konungur fimmti, leikkonan Vivien Leigh og margt annarra stór- menna. I Frakklandi er hjátrúin gegn þvi að hafa 13 manns við sama borðið svo sterk, að þar ér fólk sem leigir sig sem fjórt- ánda mann. Kallar fólk þetta sig Quatorziemes. Upphaflega hafði þaö verið ákveðið, að krýning Játvarðar konungs áttunda, skyldi fara fram 13. mai 1937. En á rikis- stjórnarfundi árið 1936 var ákveðið að flýta krýningunni um einn dag. En þvi miður heppnaðist sú tilraun til þess að koma i veg fyrir öll óhöpp, ekki að gagni. Allir þekkja ástar og sorgarsögu aldarinnar. o Sunnudagur 24. september 1972 Sunnudagur 24. september 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.