Alþýðublaðið - 30.11.1972, Page 2
NÁTTÚRUVERND í REYKJAVÍK
FORVITNILEGIR
HLUTIR VIÐ BÆJAR-
DYR ÞÍNAR
1 borgarlandi Reykjavikur eru
margir fallegir staðir og merki-
legir, fyrir margra hluta sakir,
þótt Reykvikingar viti ekki allir
um þá, og l.eiti jafnvel langar
leiðir úr borginni til að njóta fag-
urs umhverfis sem er svo til við
bæjardyrnar.
Náttúruverndarnefnd Reykja-
vikur vinnur nú að þvi að kynna
marga af þessum stöðum, m.a.
með þvi að setja skilti til þess að
benda fólki á þá.
A fundi, sem Náttúruverndar-
nefnd hélt með blaðamönnum i
gær, kom fram, að i ráði er aö
setja upp ein 30 slik skilti. Tvö
hafa þegar verið sett upp, i Háu-
bökkum við Súðarvog og á öskju-
hlið.
Á fyrrnefnda staðnum gekkst
náttúruverndarnefnd fyrir þvi, að
fjaran var hreinsuð, og stórmerk
jarðlög, sem sýna jarðsögu
Reykjavíkur 200 þúsund ár aftur i
timann, friðuð. Siðan var sett upp
skilti með skýringarkorti við
staðinn, — en Alþýðublaðið hefur
raunar áður skýrt frá þvi.
A hinu skiltinu, sem stendur við
hitaveitugeymana á öskjuhlið, er
kort af göngustigum um hliðina,
og er ætlunin, að það auðveldi
fólki leið um þennan skemmtilega
útivistarstað. Vilhjálmur Sig-
tryggsson hefur, að tilhlutan nátt-
uruverndarnefndar, skipulagt
svæðin, og hefur verið unnið að
lagfæringu á öskjuhliðinni sam-
kvæmt þvi undanfarin tvö sumur.
i fyrrasumar var unnið að þvi
að hreinsa hliðina, m.a. voru fjar-
lægðar girðingar og járnarusl. 1
sumar voru svo gamlar götu-
slóðir lagfærðar og borið i þær, og
næsta sumar verða gerðar nýjar
slóðir i samræmi við kortið. Þá
voru gróðursettar 40 þúsund
plöntur i sumar, aðallega vestan
við kirkjugarðinn.
í skipulaginu er talið æskilegt
að losna við öll steypt mannvirki
af vesturbrúninni, en þó er i ráði
að lagfæra mannvirki frá striðs-
árunum og láta þau standa.
SYNINGU JOHANNS
LÝKUR SUNNUDAG
Þegar við sögðum frá mál-
verkasýningu Jóhanns G. Jó-
hannssonar i Hamragörðum fyrir
stuttu höfðum við eftir, að henni
lyki á laugardaginn kemur. Nú
hefur þetta verið leiðrétt, — sýn-
ingunni lýkur ekki fyrr en á
sunnudaginn. Hún verður opin til
klukkan 23 á föstudag, laugardag
og sunnudag, en aðeins til kl. 20 i
kvöld, fimmtudag.
Aðsókn að sýningunni hefur
verið góð, og um helmingur
myndanna selzt.
TVÖFALT FLEIRI
r
GAMLA HÚSIÐ
VIÐ LÆKJARTORG
Eins og við sögðum frá í gær
standa þessa dagana yfir gagn-
gerar breytingar og endurnýjun
á innréttingum Stjórnarráðs-
hússins. Það er ekki á hverjum
degi, sem innviðir Stjórnarráðs-
ins eru til sýnis, svo við brugð-
um okkur þarna inn i fyrradag
og litum á framkvæmdir.
Húsið er eitt hið elzta i borg-
inni, næstum 200 ára gamalt. Þó
er ekki hægt að segja annað, en
aö máttarstoðir hússins hafi
staðið vel af sér timans tönn.
Myndin sýnir innviði á annarri
hæð hússins og sést greinilega,
hvar sagað hefur verið af einni
stoðinni, en það var gert, þegar
risið var sett á húsið. Er nú loft-
ið farið að síga á þessum stað og
þarf að setja einhverjar styrkt-
arstoðir undir að nýju.
Á myndinni sézt Hans
Eyjólfsson, húsvörður Stjórnar-
ráðsins, virða fyrir sér þessa
fornu viði, sem innan skamms
verða aftur horfnir sjónum
manna. Loftið skal að minnsta
kosti vera slétt og fellt á yfir-
borðinu, cins og svo margt ann-
að þessa dagana.
r
FLUGVELAR UM
r
ISLENZKA flugstjurnarsvædid
Búist er við að rösklega 33 þús-
und flugvélar fari um islenzka út-
hafs flugstjórnarsvæðið á þessu
ári, og til marks um geysilega
aukningu á flugumferð hér i
grennd má nefna, að árið 1961
fóru aðeins um 16 þúsund flugvél-
ar um svæðið.
Svæðið nær frá 61. að 73. gráðu
norðlægrar breiddar og frá
Greenwich lengdarbaug að
ströndum Grænlands. Það er ekki
eingöngu að umferðin hafi vaxið
gifurlega, heldur einnig hraði
flugvélanna, sem um svæðið fara.
þvi hlutfallstala þota, sem leið
hafa átt.um svæðið, hefur aukizt
úr 42% i rúmlega 80% á siðustu 10
árum.
Þotur kjósa flestar að fljúga i
svipaðri flughæð, en það hefur
þær afleiðingar, að erfitt er að
koma allri umferðinni fyrir á
hagkvæman hátt miðað við al-
þjóðareglur um aðskilnað milli
flugvéla.
Starf islenzkra flugumferðar-
stjóra gerist þvi stöðugt erfiðara,
auk þess sem skortur á heppileg-
um tækjum kostaði oft óþægindi
fyrir flugvélar innan svæðisins.
Aðskilnað flugvéla má hins
vegar minnka verulega með notk
un radartækja. -Þvi var hafin
könnun á kaupum og rekstri
heppilegra radartækja fyrir flug-
stjórnarmiðstöðina á Reykja-
vikurflugvelli, sem leiddi til þess,
að keypt voru radartæki af
Plessey-gerð, og voru þau tekin
formlega i notkun um siðustu
helgi, en kostnaður við kaup, upp-
setningu og þjálfun starfsfólks
mun nema um 50 milljónum
króna.
Kostnaður var til muna minni
þar sem afnot fengust af radar-
skermi varnarliðsins á Kefla-
vikurflugvelli, en önnur tæki eru
öll staðsett i flugturninum i
Reykjavik.
Þau eru af nýstárlegri gerð og
byggjast uppi á þvi að svartæki
eru i flugvélunum, sem segja
hvaða vél sé á ferðinni og hæð
hennar og hraða. Eldri radar-
tækin syndu aðeins flugvél.
Þessi nýjung mun greiða veru-
lega fyriröllu flugi innan islenzka
úthafs flugstjórnarsvæðisins.
Þess má geta, að tæki af þessari
gerð hafa aðeins verið notuð af
herjum stórveldanna, þar til þau
voru tekin i notkun hér.
Þau eru einkum ætluð til að
þjóna þörfum millilandaflugsins,
en einnig þeim innlendu vélum,
Framhald á bls. 4
RISABINGÓ
Lionsklúbbur Njarðvikur hefir
stofnað til „Risabingós”, sem
spilað er i STAPA alla fimmtu-
daga kl. 20.30. Aðalvinningurinn
er VOLVO-bifreið, sem spilað
verður um, eftir að 1700 miðar
hafa verið seldir. Auk þess eru
18 vinningar hvert kvöld.
öllum hagnaði verður varið
til liknarmála, einkum hafa þeir
Lionsmenn sjúkrahúsið i Kefla-
vik i huga, en nú er á döfinni
stórfelld stækkun þess,. Enn-
fremur hafa þeir Lionsmenn
mikinn hug á þvi að snúa sér að
liknar málum aldraðra .
MENGUNAR-
TÆKI AF
ÍSLENZKUM
UPPRUNA
Eins og Alþýðublaðið sagði frá
á sinum tima, hefur Alfélagið
islenzka gert samning við Jón
Þórðarson á Reykjalundi um að
láta smiða, og gera tilraunir með,
tæki til varnar mengun frá
Álverinu.
Samkvæmt upplýsingum
Ragnars Halldórssonar, frkvstj.,
eru góðar vonir bundnar við
notagildi þessara tækja. Er þegar
sýnt, að þau gefa góðan árangur
gegn ryki, og hugsanlega einnig
gegn flúor,
Hreinsunartæki, sem nú eru
notuðvið hliðstæðar verksmiðjur,
gera ráð fyrir svo miklu vatns-
magni, að verulegt tap fram-
leiðsluefna verður ætið við notkun
þeirra.
Likur eru til þess, að við notkun
á hreinsitækjum Jóns Þórðar-
sonar, verði hægt að vinna aftur
nokkuð af þvi krióliti, sem annars
tapast með útblæstrinum. Má
gera ráð fyrir, að smiði tækjanna
og tilraunir með þau taki allt
næsta ár, og að svo komnu máli er
ekki hægt að segja neitt um
kostnaðinn við þá framkvæmd.
Uppsetning þeirra tækja, sem
notuð eru annars staðar, mundi
kosta um 200 milljónir króna, en
eins og áður var sagt frá, er þess
vænzt, að tæki Jóns veiti betri
mengunarvörn.
UNGT FÓLK í
SELFOSSKIRKJU
Nú i vetur hafa verið haldnar
samkomur i Selfosskirkju á veg-
um Sambands islenzkra kristni-
boðsfélaga, annanhvern sunnu-
dag.Hafa ýmsir tekið til máls en
þó aðallega ungt fólk úr kristni-
boðsfélaginu „Árgeisli” sem
einnig hafa séð um samkomurnar
að mestu. Siðasta samkoman sem
haldin verður fyrir jól verður nú á
sunnudaginn 3. des. og hefst kl.
20:30 i Selfosskirkju. Á samkom-
unni mun Æskulýðskór. K.F.U.M.
&K. syngja nokkur lög og ein-
hverjir af meðlimum kórsins
tala. Allir sem áhuga hafa eru
velkomnir i krikjuna á sunnudag
kl. 20:30.
Sigurjón Gunnarsson.
Myndlistar-
keppni fyrir
börnin í út-
varpinu
Evrópska útvarpssambandið
hefur ákveðið að efna til nýstár-
legrar myndlistarkeppni fyrir
yngstu hlustendurna, þá þeirra,
sem ekki verða orðnir 13 ára 17 .
mai 1973.
Keppnin er i þvi fólgin að
börnin teikna eða vinna i annað
efni myndir eftir að hafa hlustað
á flutning tónverksins „Pétur og
úlfurinn” eftir Prokofieff.
Rikisútvarpið verður aðili að
keppninni ásamt útvarpsstöðvum
i liðlega 20 löndum.
„Pétur og úlfurinn” verður
fluttur tvisvar i útvarpinu til að
trýggj3 að sem flest börn geti
hlustað og eigi kost á þvi að verða
með. Fyrri útsendingin verður
sunnudaginn 3. desember kl. 16.25
en sú seinni verður á sama tima
sunnudaginn 10. desember.
Verðlaun verða veitt fyrir þær
tiu myndir , sem beztar verða
taldar af dómnefnd og verða þær
siðan sendar á sýningu , sem
útvarpið i Bayern sér um. Þar
verða veitt þrenn verðlaun fyrir
beztu myndirnar en auk þess 10
verðlaun til þess lands, sem
flestar beztu myndirnar koma frá
að áliti dómnefndar.
o
Fimmtudagur 30. nóvember 1972